Alþýðublaðið - 05.01.1995, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 05.01.1995, Blaðsíða 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1995 -ti' New York íbúar New York-borgar strengdu risavaxnasta loforð nýársins um sjálfsafneitun; Með víðtæku reykingabann sem framfylgt verður á öllum veitingastöðum er taka yfir 35 gesti í sæti er New York formlega hætt að reykja: Síðasti smókminn Elaine Kaufman, eigandi Elaine's, sögufrægs eftirlætis staðar harðsnúinna drykkjumanna og stórreykingamanna: „Fari þeir allir til helvítis!" fbúar New York-borgar sem fyrir voru heimsins þjakaðasta fólk af óefnanlegum nýársheitum strengdu sameiginlega á gamlárskvöld risa- vaxnasta loforð nýársins um sjálfs- afneitun - - og f þetta skiptið er þeim alvara. Með samþykkt borgarráðsins á víðtæku reykingabanni sem fram- fylgt verður á öllum veitingastöðum er taka yfir 35 gesti í sæti er New York formlega hætt að reykja. Eigandí veitingastadar ætlar í mál Fyrir stóran meirihluta Banda- ríkjamanna — sem nú eru flestir fylgjandi öfgafullum aðgerðum til að hreinsa andrúmsloftið af eitur- efnum ýmiskonar — var þetta nýja banntímabil langþráð og tilkoma þess síst of snemmbær. En á meðal reykingamanna og veitingastaðaeig- enda var samþykkt borgarráðsins (sem sett verður í lög þann 10. janú- ar) tekið með fyrirsjáanlegum við- bjóði og fyrirlitningu. Pino Luongo, eigandi fimm vin- sælustu veitingastaða borgarinnar og þar á meðal hins gífurlega vin- sæla Coco Pazzo, hefur hótað mál- sókn á hendur borgaryfirvöldum fyrir að mismuna gróflega þeim við- skiptavinum hans sem langar til að kveikja sér í einni (Rod Stewart, Lauren Bacall, Julio Iglesias, Frank Sinatra, Helena Bonham Carter. til að nefna örfáa nafnkunna viðskipta- vini Luongo sem reykja). „Fari þeir allir til helvítis" „Þetta minnir mig á daga komm- únismans," sagði Luongo öskuillur. „Atvinna mín er að gleðja fólk og gera því til geðs. Veitingastaðir eru ekki staðir sem fólk neyðist til að heimsækja. Það á að vera komið undir hverjum og einum einstaklingi hvað hann vill gera með ltf sitt.“ „Fari þeir allir til helvítis!" segir Elaine Kaufman, eigandi Elaine’s, sögufrægs eftirlætis staðar harðsnú- inna drykkjumanna og stórreykinga- manna, aðspurð um skoðanir á nýja reykingabanninu. „Það næsta sem dynur á okkur verður sjálfsagt her- ferð AA-samtakanna til að neyða okkur til að hætta drekka - fari þeir líka allir til helvftis!" Gífurleg flódbylgja and-reykingaáróðurs Nýja löggjöfin í New York — sem einnig leggur blátt bann við tóbaksneyslu á íþróttaleikvöngum og takmarkar reykingar á vinnustöð- um við sérstök reykherbergi þar sem aðeins þijár manneskjur eða færri mega dvelja í einu — er hinsvegar aðeins lítill hluti af gífurlegri flóð- bylgju and-reykingaáróðurs sem nú kaffærir Bandaríkjamenn hvert sem litið er. Maryland, Vermont og Utah hafa nú þegar bannað allar reykingar á veitinga- s t ö ð u m . Kalifornía ennfremur svo gott sem algjörlega reyklaus að utan sem innan og bandaríska alríkiskerfið lætur ekkert úrræði ónot- að til að drepa í síg- arettum á öllum skrif- stofum sín- um. „Þetta er ekki mann- réttinda- mál" „Þetta er ekki mann- réttindamál," segir borgarstjómar- forsetinn Peter Valone með áherslu. En hann var einmitt maðurinn sem kynnti reykingabannið til sögunnar og lagði fram sem frumvarp. „Þetta er heilbrigðismál. Ég er ákaflega ánægður með að við höfum nú greitt atkvæði með þvf að gera þessa borg að heilbrigðari dvalarstað." Heilbrigðari, en sennilega ekki hamingjusamari. Og hún er örugg- lega ekkert öruggari fyrir vikið. „Nei, látiði ekki svona. Reykinga- bannið er ekkert nema lélegur brandari,“ segir Brian McNally, eig- andi veitingastaðarins á Royalton- hótelinu. „Maður stígur hér varla út- fyrir hússins dyr án þess að ræningj- ar og ruplarar myndi biðröð til að komast að manni. Og hvar er lög- reglan til að vernda mann? Jú, hún er upptekin við and-reykingainnrás- irá veitingastaði." Hver mun framfylgja reykingabanninu? Enginn virðist enn vita hvemig farið verði að því vandasama verk- efni að framfylgja lögunum í öllum hinum 11 þúsund veitingastöðum, kaffihúsum og skyndiréttastöðum borgarinnar. Margir veitingastaða- eigendur em ósveigjanlegir í þeirri ætlan sinni að leyfa viðskiptavinum sem þess óska, að kveikja sér í sígar- ettu. „Hver ætlar sér að sjá til þess að þessu reykingabanni verði fram- fylgt? spyr Pino Luongo. „Ekki ætla ég að gera það. Ég er ekki lög- reglumaður.“ Borgarbúar fara hamförum í blöðum Og hvað varðar við- brögð al- mennra borg- arbúa við reyk- ingabanninu þá hafa þeir farið hamförum í lesendábréfa- skrifum sínum á síðum dag- blaðsins New York Times. Einn les- endanna benti til að mynda á, að nú fengi hún pottþéttan lagalegan grunn til að krefjast banns á alla bí- laumferð í New York. „Ég er ekki ökumaður,“ skrifaði hún. „En ég á þess engan annan kost, en að anda mér hinum meng- andi útblæstri bifreiðanna. Ég er ekki reykingamaður. En ég á ekki að þurfa venja komur mínar á reyk- fyllta veitingastaði og bar.“ Munu reykingamenn sæta stofufangelsi? Önnur kona skrifaði og kvartaði sáran yfir því, að þær 2,5 milljónir reykingamanna sem í borginni búa, myndu „í raun og vem sæta stofu- fangelsi“ þegar lögin ganga í gildi. „Eru þessar meintu 2,5 milljónir borgarbúa sem reykja virkilega svo háðar tóbaksnautninni að þeir geta ekki lifað af 45 mínútur til klukku- tíma án þess að anda að sér eitur- reyknum?" spurði einn forvitinn les- endabréfsskrifari sem svar við ásök- unum um stofufangelsisvistun. „Auðvitað getum við lifað af þetta langan tíma án þess að reykja,“ hljóðaði svarið við þeirri spurningu, „alveg einsog þú gætir án vafa til- neyddur þraukað í þrjú korter á veit- ingastað án þess að tala eða hlæja.“ Kæruleysislegt frjálsræðið kvatt? Eitt aðaláhyggjuefni borgarbúa er síðan að persónuleiki borgarinnar, sem löngum hefur stært sig og státað af andrúmslöfti kæmleysislegs frjálsræðis, verði gjörbylt í anda boða og banna reykingabannsins. Ibúar New York óttast reglugerðar- áráttu stóra-bróðurs-rfkisins. En Danny Meyer, eigandi hins vinsæla (og heilbrigða) veitinga- staðar Union Square Cafe sem nú hefur verið reyklaus um fimm ára skeið, spáir því að reykingabannið geti aðeins bætt ástandið í borginni. Starfsfólkið hefur engan valkost Meyer, sem var ákafur talsmaður reykingabannsins á opinberum vett- vangi, segist hafa mun þyngri áhyggjur af starfsfólki sínu en við- skiptavinunum; velferð starfsfólks- ins skipti öllu máli. „Starfsfólk hefur engan valkost á vinnustað sínum,“ segir hann. „Þau þurfa að vinna á vöktum sex klukku- stundir í senn á veitingastöðum þar sem reykurinn fyllir öll vit. Mér finnst það hræðileg tilhugsun að til sé vinnuveitendur sem hafa þyngri áhyggjur af viðskiptavinunum en heilsu starfsfólksin.s.“ Kaffid, leiðinlega dagblaðið og Ijóskan Brian McNally deilir hinsvegar ekki bjartsýnisviðhorfum Meyer um að ástandið muni aðeins batna í borginni við reykingabannið. „Mað- ur situr á veitingastað umlukinn reyk sem helst minnir á múrvegg í þykkt sinni. Maður hefur fyrir fram- an sig bolla af espresso-kaffi, New York Times og gullfallega konu. Fjarlægðu reykvegginn og hvað hef- ur maður þá fyrir framan sig? „Bolla af molakaffi, hundleiðin- legt dagblað og heimska ljósku?" Byggt á The Sunday Telegraph. „Fari þeir aUir til helvítis!“ segir Elaine Kaufman, eig- andi Elaine’s, sögufrægs eftirlætis staðar harðsnú- inna drykkjumanna og stórreyldngamanna, að- spurð um skoðanir á nýja reyldngabanninu. „Það næsta sem dynur á okkur verður sjálfsagt herferð AA-samtakanna til að neyða okkur til að hætta drekka — fari þeir líka alhr tU helvítis!“ Stuttfréttir Doktor Árni Björnsson Á laugardaginn fer fram dokt- orsvörn við heimspekideild Há- skóla íslands. Arni Björnsson cand.mag. ver rit sitt Saga dag- anna, sem dómnefnd skipuð af heimspekideild hefur metið hæft til doktorsprófs. Doktorsvömin fer fram í hátíðasal Háskólans og hefst klukkan 14. Öllum er heimill að- gangur. Góðuraðbúnaður í Kópavogi Trésmíðafélag Reykjavíkur hef- ur frá 1985 árlega veitt fyrirtæki sérstaka viðurkenningu fyrir góðan aðbúnað starfsmanna á vinnustað. Að þessu sinni var ákveðið að veita fyrirtækinu Á. Guðmundsson hf. Skemmuvegi 4 í Kópavogi viður- kenningu félagsins. Fyrirtækið er húsgagnaframleiðandi og sérhæfir sig í gerð skrifstofuhúsgagna. Þar starfa 12 manns við framleiðslu. í fyrirtækinu er rúmgóð og björt matstofa og hver starfsmaður hefur eigin hirslur. Snyrtileg aðkoma er að fyrirtækinu, umgengni öll til fyrirmyndar, öll hreinlætisaðstaða er í góðu lagi og öryggismálum er vel sinnt. Það var Ásgeir J. Guð- mundsson forstjóri sem tók við viðurkenningu Trésmíðafé- lagsins. Útvarpsverðlaun Á gamlársdag var úthlutað úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins. Verðlaunin hlutu að þessu sinni Is- ak Harðarson Ijóðskáld og Odd- ur Björnsson leikritaskáld og komu 400 þúsund krónur í hlut hvors. Krossgátur ársins Krossgátubók ársins 1995, sú 12. í röðinni er komin út hjá ÓP-út- gáfunni. Bókin hefur að geyma fjölmargar krossgátur sem eiga eft- ir að stytta krossgátuunnendum stundimar. Forsíðuna prýðir skop- mynd af Davíð Oddssyni forsætis- ráðherra. Bankaieikur Dregið hefur verið í getraunaleik Búnaðarbankans sem staðið hefur yfir í Kringlunni og ýmsum fram- haldsskólum. Alls tóku um sjö þús- und manns þátt í leiknum og voru dregnir út 136 vinningshafar. Að- alvinningurinn, Hyundai 433DL tölva, kom í hlut Jennýar Guð- mundsdóttur, Reykhólum í Barðastrandarhreppi, en hún er 19 ára nemandi Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Dóra Ingvarsdóttir útibússtjóri Búnaðarbankans í Mjódd afhenti Jenný vinninginn. Menningar- verðlaun VISA Afhending styrkja úr Menning- arsjóði VISA, voru veittir í þriðja sinn milli jóla og nýárs. Sjóðurinn var stofnaður 1992 með það að markmiði að styðja íslenska menn- ingu og listir', efla vísindi og tækni og til að veita fé til líknarmála. Einar Már Guðmundsson rithöf- undur hlaut menningarverðlaunin nú fyrir framlag á sviði ritlistar. Á sviði tónlistar fékk Tríó Nordica verðlaun en það skipa Auður Haf- steinsdóttir, Bryndís Halla Gylfadóttir og Mona Sandström. Á sviði leiklistar fékk Bryndís Einarsdóttir leiklistamemi verð- launin en Blindrabókasafnið fyrir framlag á sviði líknarmála. Þjóðar- átak stúdenta fyrir þjóðbókasafnið fékk verðlaunin á sviði vísinda og fræða. Alls nema verðlaunin 1.5 milljónum króna eða 300 þúsundum í hlut hvers verðlauna- hafa. Atvinnuréttindi útlendinga Um áramót tóku gildi ný lög um atvinnuréttindi útlendinga. Lögin taka til allra útlendinga að undan- skildum þeim sem em ríkisborgar- ar í aðildarríkjum EES. Framvegis verður greint á milli þriggja teg- unda af atvinnuleyfum. Tímabund- ið atvinnuleyfi er veitt atvinnurek- enda til að ráða útlending í tilgreint starf um tiltekinn tíma. Obundið at- vinnuleyfi er veitt útlendingi til að vinna á Islandi og loks er um að ræða atvinnurekstrarleyfi sem felur í sér leyfi til að vinna sjálfstætt eða starfrækja fyrirtæki. Erlendir námsmenn sem stunda nám í ís- lenskum skólum þurfa nú atvinnu- leyfi. Einnig er gert ráð fyrir sér- stöku leyfi til að ráða einstakling á aldrinum 17-30 ára í vist á íslenskt heimili (au-pair). 42 fórust í fyrra Samkvæmt samantekt Slysa- vamafélags Islands fómst 42 ein- staklingar í banaslysum í fyrra, 33 karlar og nfu konur. Níu útlend- ingar fómst af slysförum hér á landi og einn Islendingur fórst í umferðarslysi erlendis. Flestir fór- ust í umferðarslysum eða 18 ein- staklingar. í sjóslysum eða vegna dmkknunar fómst 10 og jafnmarg- ir fórust í ýmiss konar slysum. I flugslysum fómst fjórir. Banaslys hafa ekki orðið jafn fá síðast liðin 10 ár, en 1993 fómst 48. Flestir fór- ust 1986 eða 74. Breytingaskeið kvenna Á vegum Sálfræðistöðvarinnar verða haldnir fyrirlestrar um breyt- ingaskeið kvenna á fimmtudags- kvöld klukkan 20 að Hótel Loft- leiðum. Fyrirlestramir eru einkum ætlaðir konum á aldrinum 40 til 55 ára. Fjöleignahús og húsaleigulög Húsnæðisstofnun ríkisins hefur gefið út kynningarbæklinga um ný lög sem tóku gildi 1. janúar 1995. Um er að ræða lög um fjöleignahús og húsaleigulög. I bæklingnum um ný lög um fjöleignahús er hið nýja hugtak útskýrt og vakin athygli á reglugerð sem er væntanleg. Stutt yfirlit em gefið um efni laganna en þau em mun ítarlegri en fyrri lög og meginbreytingar em kynnt- ar. I bæklingnum um ný húsaleigu- lög em helstu breytingar kynntar frá því sem var í lögum um húsaleigusamninga. Hægt er að nálgast þessa bæklinga hjá Húsnæðisstofnun ríkisins, skristof- um sveitarfélaga, Húseigendafé- laginu, Leigjendasamtökunum og víðar. Gjaldeyrishöft fallin úr gildi Nú um áramótin tók gildi síðasti áfangi í afnámi gjaldeyrishafta hér á landi. Nú verður Islendingum heimilt að eiga hvers konar gjald- eyrisviðskipti án nokkurra tak- markana og skilaskylda erlends gjaldeyris fellur úr gildi. Þeir sem eignast erlendan gjaldeyri geta ráð- stafað honum að vild. Með þessum áfanga er stigið lokaskrefið í þeirri stefnu sem fylgt hefur verið frá 1990 og var staðfest með nýjum gjaldeyrislögum sem tóku gildi 1992 og skuldbindingum Islands í EES- samningnum. Með nýrri reglugerð sem Sighvatur Björg- vinsson viðskiptaráðherra helur gefið út em gefnar frjálsar skamm- tímahreyfingar tjármagns, til dæm- is kaup á erlendum skammtíma- verðbréfum og innlegg á banka- reikninga erlendis, en á síðasta ári vom þessi gjaldeyrisviðskipti háð tjárhæðartakmörkunum. Þótt gjaldeyrisviðskipti hafi nú að fullu verið gefin frjáls verður áfram í gildi upplýsingaskylda lil Seðla- banka Islands vegna hagsýslugerð- ar. Þannig verður ætlast til að á af- greiðslubeiðni vegna gjaldeyris- viðskipta sé tilefni viðskiptanna til- greint. Er þetta svipað fyrirkomu- lag og í öllum helstu nágranna- löndum okkar. Viðskiptaráðuneyt- ið telur að nú séu innlendar reglur um gjaldeyrisviðskipti og íjár- magnshreyfingar orðnar fyllilega sambærilegar við það sem gerist í öðrum OECD-löndum. Ú

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.