Alþýðublaðið - 11.01.1995, Page 1
Kvennalistaraunir í Reykjaneskjördæmi
Sár atburðarás fyrir
einhverjar konur
- segir Kristín Halldórsdóttir sem býður sig fram í nýju forvali sem stendur yfir. Helga
Sigurjónsdóttir sigraði í fyrra forvali en niðurstöður þess voru hunsaðar. Helga ekki
með aftur.
„Kvennalistinn hefur getað geng-
ið frá sfnum framboðum án ágrein-
ings til þessa og konur eru ósköp
leiðar yfir því að þetta skyldi þurfa
að fara svona á Reykjanesi. En stað-
reyndin er sú að konur voru mjög
ósáttar við að ég gæfi ekki kost á
mér að vera í hópi 10 efstu kvenna á
framboðslistanum. Þær fóru því á
stað með aðgerðir til að fá mig á
listann og tókst það. En þessu var
ekki beint gegn nokkurri konu og
það vissi enginn hverjar höfðu ver-
ið í efstu sætum fyrra forvals fyrren
eftir að undirskriftasöfnun fór fram
og ég búin að samþykkja að taka
þátt í nýju forvali," sagði Kristín
Halldórsdóttir í samtali við blaðið.
Framboðsmál Kvennalistans í
Reykjaneskjördæmi hafa ekki
gengið hljóðalaust. Forval um röð-
un á lista fór fram fyrir nokkrum
vikum og urðu úrslit þau að Helga
Sigurjónsdóttir bæjarfulltrúi
Kvennalistans í Kópavogi hafnaði í
efsta sæti, en hins vegar var þátttaka
ekki nægileg fyrir bindandi niður-
stöðu. Engu að síður lagði uppstill-
ingamefnd til að farið yrði eftir nið-
urstöðum forvalsins og var tillagan
samþykkt á félagsfundi í desentber.
Hópur kvenna vildi ekki una
þeirri niðurstöðu og safnaði undir-
skriftum um að Kristín Halldórs-
dóttir gæfi kost á sér í efsta sæti.
Kristín varð við áskoruninni og í
framhaldi af þvi var samþykkt að
láta fara fram nýtt forval. Það forval
er að heíjast og fer fram skriflega
sem hið fyrra.
Um 160 konur eru félagar í
Kvennalistanum á Reykjanesi og
eiga rétt á að taka þátt í að raða í 10
efstu sæti listans, en 21 kona er í
framboði. Helga Sigurjónsdóttir er
afar ósátt við þau vinnubrögð að
hunsa fyrra forvalið og er ekki með
í þvf síðara.
„Það voru í raun mjög fáar konur
sem ákváðu að láta niðurstöðu for-
valsins gildaþótt þátttaka í því væri
mjög lítil. Eg held að það fáist
miklu lýðræðislegri niðurstaða með
þessu nýja forvali þrátt fyrir svolítið
erfiða og sára atburðarás fyrir ein-
hverjar konur," sagði Kristín.
-Helga Sigurjónsdóttir telur það
ekki heiðarleg vinnubrögð að
lumsa niðurstöður fyrra forvals og
efna til forvals á ný með þessum
hœtti?
„Eg er ekki sátt við þessar yfir-
lýsingar hennar. Það er margbúið
að fara yfir þetta mál í okkar hópi
og það hefur alltaf legið fyrir að það
væri ekki verið að lýsa yfir neinu
vantrausti eða óánægju með þær
konur sem gáfu kost á sér. Hins
vegar virtust konur hafa gert ráð
fyrir því að ég yrði í framboði og
það talsvert rætt án þess að ég vissi
af því.
Þegar kom í Ijós að ég var ekki í
framboði fór hreyfing á stað til að fá
mig til að skipta um skoðun, en
þetta beindist ekki að Helgu eða
hinum konunum sem gáfu kost á
sér. Helmingur þeirra skoraði raun-
ar á mig að fara fram í þessu forvali.
En það hefði verið æskilegt að
vinna betur að framboðsmálunum í
upphafi og þá hefði þetta ekki þurft
að koma til,“ sagði Kristín
Halldórsdóttir.
Alþýðuflokkurinn á Vesturlandi
Sveinn Þór
í öðru sæti
Framboð fyrir Þjóðvaka kom ekki til
greina, segir Sveinn Þór Elínbergsson.
,Já, það er klárt mál að ég tek
annað sæti á lista Alþýðuflokksins
í Vesturlandskjördæmi. Ástæðan
fyrir því að ég tók mér þetta góð-
an tíma til umhugsunar er sú, að
ég vildi skoða hvað þetta þýddi
fyrir stöðu okkar Snæfcllinga. Ég
tel á þessum tímapunkti rétt að ég
taki sætið á sömu forsendum og ég
fór í prófkjörið, að tekið sé tillit til
hagsmuna Snæfellinga, minna
sjónarmiða og afstöðu þeirra sem
stutt hafa mig,“ sagði Sveinn Þór
Elínbergsson, aðstoðarskólastjóri
í Snæfellsbæ, í samtali við Al-
þýðublaðið í gærkvöldi.
Sveinn Þór tókst á við Gísla S.
Einarsson í prófkjöri um efsta
sætið fyrir jól og laut lægra haldi.
„Það er ljóst að Alþýðuflokkurinn
hefur skýra og afdráttarlausu
stefnu og hefur náð góðum ár-
angri. Sú staða auðvcldaði vissu-
lega ákvörðun mina um að taka
annað sætið,“ sagði Sveinn Þór.
Sveinn Þór hefur ítrekað verið
orðaður við framboð fyrir Þjóð-
vaka, en aðspurður sagði hann
Gísli S. Einarsson og Sveinn Þór Elínbergsson tókust á í prófkjöri á Vest-
urlandi fyrir jól. Þeir munu leiða lista Alþýðuflokksins í kosningunum.
það af og frá: „Nei, það er ekki
rétt að ég hafi verið að spá í fram-
boð fyrir Þjóðvaka. Þetta kom
kannski til umræðu í einstaka
hópum - jafnvel á meðal stuðn-
ingsmanna minna - en ekki að
mínu frumkvæði. Framboð fyrir
Þjóðvaka kom ekki til greina af
niinni til hálfu. Ég vísa þessum
sögusögnum til föðurhúsanna.
Það breytir því hinsvegar ekki, að
mér finnst jafnslæmt og áður að
Jóhanna Sigurðardóttir hafi farið
úr Alþýðuflokknum.“
Þjóðarflokkurinn býður ekki fram á Norðurlandi eystra
Get ekki unnið eftir
formúlum Jóhönnu
- segir Ámi Steinar Jóhannsson sem er orðaður við Alþýðubandalagið.
Rokkið & sukkið
„Ég sukkaði mikið þegar ég
var í þessum tónlistarbransa, en
ég hef hitt leigubílstjóra og lög-
fræðinga sem sukka alveg jafn-
inikið og popparar gera. Það er
bara af því að poppararnir eru í
sviðsljósinu að það gert svona
mikið veður útaf þessu.segir
Michael Dean Óðinn Pollock í
viðtali við Alþýðublaðið.
Sjá viðtal við Ijóðskáldið
Mikka Pollock á miðopnu.
„Við Steingrímur J. Sigfússon
drukkum saman kaffi í gær og það er
ekkert meira um það að segja. Það
var bara verið með vangaveltur um
stöðuna og ég veit ekki hvort ég
hreyfi mig eitthvað, en alla vega
verður það ekki með Jóhönnu Sig-
urðardóttur. Ég get ekki unnið eftir
þeim fonnúlum sem þar eru uppi,“
sagði Ámi Steinar Jóhannsson garð-
yrkjustjóri á Akureyri og þjóðar-
flokksmaður í samtali við blaðið.
Við síðustu þingkosningar fékk
Þjóðarflokkurinn, sem bauð fram
með Flokki mannsins, sáralítið íylgi
nema í Norðurlandskjördæmi eystra.
Þar var Ámi Steinar í efsta sæti og
flokkurinn fékk tæp 1.100 atkvæði
eða nær 7% atkvæða. Vitað er að
bæði Þjóðvakafólk og Alþýðubanda-
lagið hafa verið að bera víumar í
Áma Steinar um að taka sæti á lista
við komandi kosningar. Ámi sagði
Þjóðarflokkinn ekki mundu bjóða
fram nú enda væri hann enn að
greiða niður skuldir kosningabarátt-
unnar fyrir (jórum árum. Orðrómur
er uppi um að Áma hafi verið boðið
annað sæti á lista Alþýðubandalags-
ins í kjördæminu, en hann segir það
ekki rétt. „Ég er hins vegar félags-
málamaður og hef áhuga á pólitík.
En ég er ekki í pólitík nerna ég hafi
það á hreinu hvað eigi að fara að gera
og hvemig. Ég var aldrei tilbúinn til
að stilla mér upp fyrir framan sjón-
varpsmyndavél og segja: Ég fylgi Jó-
hönnu. Svoleiðis uppseming er mér
ekki að skapi og mér finnst það hall-
ærislegt áður en nokkur stefnuskrá er
komin. Svo em þama hlutir sem þarf
að gera upp en ekkert er unnið í. Það
em stóm málin sem hún stendur fyr-
ir eins og húsnæðismálin og samein-
ing sveitarfélaga. Hvort tveggja hef-
ur algjörlega farið út í sandinn að
mínu mati og verið unnið úl stórtjóns
að mörgu leyti,“ sagði Ámi Steinar.
Við erum vinir Helga Nína Aas var á göngu með vini sinum
niður við höfn í gær. Hundurinn hennar er óneitanlega tilkomumikill, og
það er nafnið líka: Fitjar Czar Amurat Sakowitz, allajafna kallaður Amur-
at. „Við erum vinir," sagði Helga Nína og af myndinni að dæma er Am-
urat svo sannarlega á sama máli.
Fráleitt að banna
hundahald í Reykjavík
- segir Össur Skarphéðinsson ráðherra
dýraverndarmála um hugmyndir um að
banna hundahald í Reykjavík.
„Mér finnst þessi umræða út í hött.
Það er fráleitt að banna hundahald í
Reykjavík. Ég skil ekki þá fullyrð-
ingu að hundar passi illa í borg, ein-
sog einn borgarfulltrúi orðaði það
víst,“ sagði Ossur Skarphéðinsson
umhverfisráðherra og æðsti yfirmað-
ur dýravemdarmála í samtali við Al-
þýðublaðið í gær. Ámi Þór Sigurðs-
son borgarfulltrúi R-listans hefur
viðrað þá skoðun að hætta eigi að
leyfa undanþágur frá banni við
hundahaldi í Reykjavík. „Reglu-
gerðin um hundahald er mjög ströng,
og ég veit ekki til þess að nein stór-
vægileg vandamál hafi komið upp
vegna hunda í Reykjavík. Mér finnst
að Ami Þór, sá ágæti maður, eigi að
finna sér einhveija aðra póli- tík,“
sagði Össur.
*
Runólfur Agústsson lögfræðingur
Skipar líklegal. sæti
Þjóðvaka á Vesturiandi
Runólfur Ágústsson, lögfræð-
ingur og lektor við Samvinnuhá-
skólann á Bifröst, mun að öllum
líkindum skipa fyrsta sæti ffam-
boðslista Þjóðvaka á Vesturlandi í
komandi Alþingiskosningum. Þetta
hefur Alþýðublaðið eftir traustum
heimildum í kjördæminu. Runólfur
vill sjálfur þó hvorki játa né neita
þessum ffegnum.
„Það er ekki búið að ganga ffá
endanlegri röð á listanum og því vil
ég hvorki játa þessu eða neita. Ég
vil eiginlega ekkert annað um það
segja. Við gerum annars ráð fyrir
að ganga frá listanum fyrir næstu
mánaðarmót, en kynningarfundur á
framboði Þjóðvaka í kjördæminu
verður haldinn á Hótel Borgamesi
17. janúar.
Mér líst vel á kosningabaráttuna
framundan og tel ekki ástæðu til að
ætla annað en útkoma Þjóðvaka í
kosningunum verði góð,“ sagði
Runólfur í samtali við blaðið í gær-
rnorgun.