Alþýðublaðið - 11.01.1995, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 11.01.1995, Blaðsíða 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 1995 " Jpp með veskið, t jsrvsrv '.SKasssSrS ^'^4« rjst-.im hra-< <s t«n* t>K' » r-sx' Vw« «««:* r«« **« »*«»■ *“»• pöy'W' J. i„A«, íi f>5W* <•* t« w vinoa. irr i <••"»- ji .» fae* <*» <» »*** •: '°r.,in jt. *> H(o» - '/? er i möppu hpco >"Aw,-„,.fl^7u. ' Pess vegna er ég t/| *■»«** ,.w , _ uS"/"*?1» ay’SS*, ILTi *?**** > aftS sssííæ'S^S' - Saa~aaxa? R^ss.sssg *«j'z hhtTSf'** *ei*‘ Vi‘“ *# «1 1 ’&******' ** S^^SJSÍs '»■ •, »1 «*>» %.í*,ví» »; v1* “*»• iAui, IzJíI* *»»« tntó ísAÆXcr.'s* iJKfsearwi ter^'CSiSS ■—«*SSffív:,.*« •ájiiU áíf »*f K7«9I Ílfo-T., *»*!•*»*, • fSiSR,%-.«i SSE2~f "í 2.S1S? * <v<*“£ rt «kt L?.'«y>«'»i,'.w £*!,7*í v« “.v„ w'ÆSít-'K SSí^3?y™«- gaBttsaa»4 iaflsösöís.- —PsSSös- ^inni Enn kljást Karl og Krummi: Prófkjör Alþýðuflokksins í Reyj efstu fjögur sæti listans: Elín S<a Guðmundur Árni Stefáns Guðmundsdóttir. Alþýðublaf Guðmundur Arni Stefánsson: JT Eg er varaformaður og eðlilegt að ég leiði listann Karl Th. skimar víða - frá Hrafni Gunnlaugssyni. „Trúlega hefur Karl Th. skimað bókina víð- ar, og skil ég nú betur ýmsar aðrar fullyrð- ingar sem finna má í umfjölluninni selekt- ivu. Ætti ég að leiðrétta þær allar, yrðu kafl- ar úr bókinni, „Krummi“, framhaldssaga í Alþýðublaðinu fram á vorið. Ég er ekki viss um að Fróði féllist á það. En ég ætla að víkja að einni klausu í umfjölluninni sem mér þykir rétt að upplýsa Karl Th. um úr því hann skimaði og ég er farinn að skrifast á við hann.“ Reykjavík, 5.janúar 1995. Fyrir stuttu birti ég greinarkom í Alþýðublaðinu sem bar yfirskriftina: , Athugasemd um selektivt rninni" og fjallaði greinarkomið um umljöllun Karls Th. Birgissonar um bókina „Krummi“. Umfjöllunina kallaði Karl Th. „Upp með veskið, Hrafn“. I nefndri umfjöllun hafði Karl Th. full- yrt að ég sleppti að nefna í bókinni bréf frá Ingimar Ingimarssyni, þáver- andi aðstoðarframkvæmdastjóra, sem hann sendi mér, eftir að ég gekk af dagskrárfúndi hjá Sjónvarpinu til að mótmæla offorsi sem mér þótti beitt við brottvikningu Ingva Hrafns Jóns- sonar, þáverandi fréttastjóra. Karl Th. leggur hins vegar á það áherslu að ég hefði tíundað afsökunarbréf sem Her- bert V. Baldursson var látinn skrifa Sveini Einarssyni vegna mddalegrar framkomu. f greinarkomi mínu Um selektivt minni, vakti ég athygli á því að trú- lega hefði Karl Th. ekki náð að lesa bókina áður en hann fjallaði um hana, því ekkert væri undan dregið um bréf Ingimars í bókinni og vitnaði til þess bókartexta orðrétt. En eins og áður segir bjó ég mér hins vegar til þá skýr- ingu að Karl hefði ekki lesið alla bók- ina, eða skammtímaminnið reynst selektivt. Fyrri skýringin reyndist rétt, því Karl segir nú orðrétt í svari til mín í Alþýðublaðinu: ,JLeiðrétting Hrafns er rétt; nokkm fyrr í bókinni minnist hann á þetta bréf frá Ingimar, en sú umfjöllun fór framhjá mér. Hún er í kafla um fyrri ár hans á Sjónvarpinu, sem ég las með mun minni áhuga en bæði það sem á undan og eftir fór. Skimaði er réttasta orðalagið." Trúlega hefúr Karl Th. skimað bókina víðar, og skil ég nú betur ýms- ar aðrar fullyrðingar sem finna má í umfjölluninni selektivu. Ætú ég að leiðrétta þær allar, yrðu kaflar úr bók- inni, „Kmmmi“, firamhaldssaga í Al- þýðublaðinu fram á vorið. Eg er ekki viss um að Fróði féllist á það. En ég ætla að víkja að einni klausu í um- fjölluninni sem mér þykir rétt að upp- lýsa Karl Th. um úr því hann skimaði og ég er farinn að skrifast á við hann. Umfjöllun Karls Th. lauk orðrétt á þessari klausu: „Hver er það sem læt- ur þetta frá sér á prenti? Er það litli feiti leikstjórinn, sem lét dæma Viku- blaðið í fjársektir fyrir munnsöfnuð?" Það er misskilningur að ég hafi stefnt Vikublaðinu fyrir munnsöfnuð. Ég stefndi því af því blaðið bar upp á mig að ég hefði brotið lög og reglur og væri „hvítflibbaglæpon". Ég hef engan áhuga á því að kenna blaðamönnum Vikublaðsins háttvísi eða fá þá dæmda fýrir munnsöfnuð. Blaðamenn vaða kjaftforina eftir ka- rakter og mega ata henni á mig og mín verk ef þeim líður betur á eftir. En undir áburði um það að ég væri glæpon gat ég ekki setið. Það getur enginn maður. Ritfrelsið gefúr okkur kost á að leita réttar okkar fyrir dóm- stólum, sé ólöglegt athæfi borið upp á okkur. í alræðisríkjum eiga menn ekki kost á því, þar líðst að menn séu úthrópaðir glæponar og þeir geta ekki varið sig fyrir dómstólum. Islending- ar em enn svo heppnir að slíkt alræð- isástand ríkir ekki hér og við búum við réttarríki. En hvað nefnda klausu Karls Th. varðar, býst ég við að skýringin á henni sé sú, að hann hafi aðeins skim- að ítarefni bókarinnar, en þar er að finna bréf til formanns Blaðamanna- félags íslands sem er svohljóðandi (skáletrun er Alþýðublaðsins): Reykjavík4. mars, 1994. Hr.fonnaður Blaðamannafélags Islands, Lúðvík Geirsson, Miðvangi 6, 220 Hafnarfjörður. Ég sé viðtal við þig í Vikublaðinu dags. 3. mars, þar sem þú ert aðfjalla um dóm þann sem kx’eðinn var upp í máli því er ég höfðaði á hendur Sig- urði Friðþjófssyni blaðamanni, vegna greinar sem hann skrifaði í Helgarblaðið þann 14. febrúar 1992. Eftir lestur viðtalsins sýnist mér að skoða verði málið í samhengi við það sem áður hafði gerst. Þegar grein Sigurðar birtist var ég erlendis og þurfti að koma heim ef ég vildi leita réttar míns, vegna áburðar ígreininni um að ég hefði brotið lög, og varð ég því að hœtta viðferð sem ég var í á vegum Scenska sjónvarpsins. Þú veist að kœrufrestur til Siðanejhdar þíns eigin félags er ákveðinn dagafjöldi. Ég kom heim og það fyrsta sem við gerðum var að reyna að tiá sáttum í málinu og bjóða Helgarhlaðinu að biðjast afsökunar á ummœlunum. Því var algjörlega hafiiar. Málinu varþá vísað til Siðanefndar. Dómur siða- nefhdar var að mörgu leyti hvassari en sú dómsniðurstaða , sem þú er að gagnrýna í viðtalinu við í Vikublað- inu. Við buðum fram sœttir gegn því að Helgarblaðið birti niðurstöðu siðanefndar athugasemdalaust og bœðist afsökunar á nefndum unuruel- um. Þessu var algjörlega hajhað, og ekki nóg með það heldur hnykkti blaðið áfyrri ummtelum og dró nið- urstöðu siðanefndar í efa, og hafði hana í flimtingum. Var okkur því nauðugur einn kostur aðfara ímál, til þess að hreinsa mig afþeim áburði að vera skjalafalsari, lögbrjótur og glœpamaður. Ég held að það sé grundvöllur málfrelsis t hverju landi að menn geti hreinsað sig fyrir dóm- stólum, ef á þá er borið á prenti að þeir séu glœpatnenn. Annars vœrum við komin í þjóðfélag j>ar sem annar hver maður vœri Dreyfus. Þetta er eini tilgangur minn með málshöfðun- inni. Að lokum skal ég geta þess, að á meðan á tnálaferlunum stóð átti ég oft ágcett spjall við Sigurð Friðþjófsson í kajfihléum og bauð honum slag í slag sátt í málinu, ef hann vildi draga til baka þau umnueli, þar sem borin voru á mig lögbrot. Hann harðneitaði því hins vegar allan tímann. Það er mín skoðun, að mér haft verið dœmd- ar lágar bœtur íþessu máli. Kostnað- urinn setn ég hef haft af þessu máli skiptir orðið milljónum, þatmig að það kenutralveg eins til greina að við áfrýjum málinu til Hcestaréttar, til að ná fram þeim skaðabólakröfutn setn mér voru ekki dcenular í héraðsdómi. Mér voru aðeins dœtndar miskabœt- ur, og þœr bcetur plús dcemdur mats- kostnaður, hrökkva vart fyrir raun- verulegum lögfrceðikostnaði. En jrað, að þú setn ert formaður Blaðamannafélagsins, takir afstöðu gegn þinni eigin siðanefnd vekur hins vegar fleiri spumingar í tnínum en viðtalið svarar. Fyrirsögn viðtalsins við þig er: „Sannleikurinn skiptirekki máli". Og síðan er vitnað í þig orð- rétt: „...Það er algerlega ófœrt að sönn ummceli séu dcemd dauð og ómerk “ Mérþcetti vcent um ef þú gcet- ir nefht þau ummceli orðrétt sem þú vísar til þegar þú talar um söntt utn- mceli sem hafa verið clcemd dauð og ómerk. Bið þig vel að lifa, Hrafn Gunnlaugsson. Kalli minn, svo mörg vom þau orð. En ég skil hvemig skim getur villt okkur sýn. Það geta fleiri hlaupið á sig en þú - bæði Lúlli og Ingimar em svona pínulítið líka - því það er vand- lifað. Gleðilegt ár, Krummi. Guðmundur Árni Stefánsson, alþingis- maður frá Hafnar- firði, gefur kost á sér í fyrsta sætið í próf- kjörinu. Guðmund- ur Árni er fæddur 1955, eiginkona hans er Jóna Dóra Karlsdóttir hús- móðir, þau eiga sex börn - fjögur eru á lífi. -Verður þetta gott prófkjör? ,Já, það vona ég svo sannarlega. Mér heyrist það reyndar á okkar stuðningsfólki hér Hafnarfirði og reyndar í kjördæminu öllu að það sé mikill áhugi á próf- kjörinu og þessvegna á ég hef ég fulla trú á, að það verði góð og al- menn þátttaka. Enda stendur Alþýðuflokkur- inn styrkum fótum hér í Reykjaneskjördæmi og hefur gert það um langt árabil. Við vomm með yfir 20% fylgi hér í síð- ustu alþingiskosningum og emm nú með á milli 14% og 15% fylgi. Það er að vísu nokkuð undir kosningafýlgi Alþýðu- flokksins í kjördæminu, en við náum því upp í snarpri og góðri kosn- ingabaráttu. Það era all- ar forsendur sem benda til þess.“ -Ná lítur allt út fyrir að þið séuð á nýjan leik að taka við stjórnar- taumum í Hafnarfirði. Mtin það koma til með að skipta máli í próf- kjörinu? „Já, það verður nátt- úrlega flokkslega mjög örvandi vegna þessa prófkjörs, að Alþýðuflokkurinn komist aftur til valda hér í Hafnarfirði. Enda er hann héma langstærsti flokkurinn og ber því, að vera hér við stjómvölinn. Það sýnir sig núna, að þeir sem eru búnir að vera hér við völd í 200 daga - Sjálfstæðis- flokkur og Alþýðubandalag - gátu ekki valdið þessu verkefni sínu.“ -Ertu ekkert smeykur við þessa návígisbaráttu sem prófkjör eru? „Nei. Útaf fyrir sig hef ég oft farið í prófkjör áður og það hefur aldrei skilið eftir sig nein ör eða vandamál. Ef menn vinna heiðarlega að þessu, sem ég hef alla ástæðu til að ætla, þá hef ég engar áhyggjur afþví að menn komi ekki standandi niður úr þeirri baráttu. Engar áhyggjur. Við emm auðvitað að takast þama á innan flokksins og emm öll samherjar og skoðanasystkini. Ég hef sannasl sagna ekki nokkrar áhyggjur af því, að nokkur vandamál fylgi í kjölfarið og hef ekki orðið var við neinar annarleg- ar hvatir sem liggja að baki baráttu einstakra aðila. Þama verður valið til forystu það fólk sem stuðningsfólk okkar telur hæfast og ég held að þetta verði gott prófkjör og gott innlegg í lokasprettinn fyrir kosningamar. Með því að hafa prófkjörið svona nálægt kosningunum verður kosn- ingabaráttan rökrétt framhald; menn fara beina leið í þá baráttu úr prófkjöri og em vel heitir. Þetta er gott fyrir- komulag og hefur alltaf gefist vel hér í Hafnarfirði til að mynda.“ -Kemurðu inní þetta prófkjör sem fulltrúi Hafnftrð- ingaeða...? „Nei, nei. Ég er fulltrúi Alþýðuflokksins fýrst og fremst. Ég er varaformaður flokksins og í því ljósi tel ég ekki óeðlilegt að ég leiði þennan lista. Að öðm leyti er ég ekki fulltrúi neinna ákveðinna sæta héma á Reykjanesi. Við bjóðum fram á Reykjanesinu öllu; ekki á einstaka stöðum. Oneitanlega er hinsvegar ekki hægt að þræta fyr- ir það, að mitt sterkasta vígi er náttúrlega héma í Hafnar- firði, ég var héma leiðtogi flokksins um árabil. Hinsveg- ar á ég stuðning víðsvegar í kjördæminu." -Nú ertu kannski þekktastur fyrir störfþín í tveimur ráðuneytum og þar á undan sem bœjarstjóri í Hafnar- firði. Hvað með aðra málaflokka, vita mentt nokkuð um afstöðu þína íþeim? „Ég hef nú látið flestalla málaflokka mig einhverju varða og menn ættu að vita um afstöðu mína í fleslum málum. Félags- og heilbrigðismálin dekka nú ekki lítið svið og menn hljóta að sjá það. Atvinnumálin em hins- vegar grundvöllur alls og í störfum mínum sem bæjar- stjóri í Hafnarfirði var það gmndvöllur alls sem hægt var að gera. Atvinnumálin em auðvitað mál málanna og hafa verið gmndvöllur alls í minni stefnumörkun sem stjórn- málamaður. Það gildir um flestalla málaflokka, að þeir skarast á við atvinnumálin sem em gífurlega veigamikill málaflokkur." -Verða atvinnumáUn - launa- og kjaramál - þannig meginstefnumál Alþýðuflokksins í komandi kosning- um að þínu mati? „Já. Það liggur auðvitað ljóst fyrir að kjara- og at- vinnumálin brenna heitast á öllum fjölskyldum í landinu. Ég held að þau verði stóru málin í næstu alþingiskosning- um. Þar hefur Alþýðuflokkurinn skýra og ljósa stefnu. Menn eiga ekkert að þurfa að velkjast í vafa um stefnu flokksins í þeim efnum. Ef við lítum á stefnu okkar til dæmis í sjávarútvegsmálum þá er þar að finna sama stefnugmnninn og í öðmm málaflokkum: Heill almenn- ings er höfð að leiðarljósi en ekki afstaða einstakra hags- munahópa." -Nú fór Alþýðuflokkurinn töluvert uppá við í síðustu skoðanakönnun. Liggur leiðin áfram upp? ,Já. Það er engin önnur leið fyrir Alþýðuflokkinn en uppá við. Við höfum vitaskuld átt á brattan að sækja í ýmsum efnum, en Alþýðuflokkurinn hefur áður þurft að mæta andstreymi með menn og málaflokka. Við höfum unnið okkur í gegnum slíka erfiðleika og munum einnig gera það á nákvæmlega sama hátt nú.“

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.