Alþýðublaðið - 18.01.1995, Qupperneq 8
Miðvikudagur 18. janúar 1995 10. tölublað - 76. árgangur Verð i lausasölu kr. 150 m/vsk
Samhugur í verki
Fjölmiðlar landsins standa að landssöfnun vegna
náttúruhamfaranna í Súðavík.
Þjáning og sorg íbúa í Súðavík og
gífurlegt eignatjón kalla á skjót við-
brögð annarra íslendinga þeim til
hjálpar og stuðnings. Þess vegna hafa
Stöð 2 og Bylgjan, Ríkisútvarpið
(Rás 1 og Rás 2) og Rikissjónvarpið,
FM 95,7, Aðalstöðin, X- ið, Brosið,
Alþýðublaðið, Dagur, DV, Morgun-
blaðið, Morgunpósturinn og Tíminn
ásamt Pósti og síma ákveðið í sam-
vinnu við Rauða kross fslands og
Hjálparstofnun kirkjunnar að efna tii
söfnunar á meðal allra landsmanna.
Landssöfnunin „Samhugur í verki“
hefst annað kvöld, 19. janúar, klukk-
an 19:55 með ávarpi forseta íslands,
frú Vigdísar Finnbogadóttur, sam-
tímis á báðum sjónvarpsrásunum og
öllum útvarpsrásum landsins - og
síðan verður tekið á móti framlögum
í símamiðstöð söfnunarinnar til
sunnudagskvölds 22. janúar.
Landssöfnunin verður með því
sniði að fólk getur annars vegar
hringt í símanúmer landssöfnunar-
innar og tilgreint fjárhæð sem er sett
á greiðslukort eða heimsendan gfró-
seðil. Hins vegar er hægt að leggja
beint inn á sérstakan bankareikning
söfnunarinnar hjá öllum bönkum og
sparisjóðum.
Símanúmer söftiunarinnar er 800
5050 (grænt númer)
Bankareikningur söfnunarinnar er
1117-26-800 Sparisjóðnum í Súða-
vík. Tekið verður á móti framlögum
inn á bankareikning landssöfnunar-
innar ffá föstudeginum 20. janúar til
föstudagsins 3. febrúar.
Sjóðsstjórn landssöfnunar-
innar er skipuð fulltrúum Rauða
kross Islands, Hjálparstofnunar
kirkjunnar, stjómvalda, sóknar-
prestinum í Súðavík og fulltrúa
Rauða kross deildar ísafjarðar-
sýslu. Fjárgæsluaðilar söfnun-
arinnar em sparisjóðirnir á fs-
landi.
Þeir sem standa að Lands-
söfnun vegna náttúruhamfara í
Súðavík, hvetja alla íslendinga
til að sýna samhug í verki og
láta sitt af hendi rakna svo að
milda megi áhrif hinna válegu
atburða á líf og afkomu fjöl-
skyldna og einstaklinga í Súða-
vík.
Jón Bjarman sjúkrahúsprestur
Erfíttaðtala
við fólkið
- eftir því sem lengra líður
frá atburðunum. Mikið álag er
á neyðarmiðstöð Rauða
krossins í Reykjavík, segir
Sigrún Árnadóttir framkvæmda-
stjóri RKÍ.
Áfallahjálp í Súðavík
Fyrirbyggir langvinn
sálræn eftirköst
- segir Borghildur Einarsdóttir geðlæknir um tilgang áfallahjálpar
þegar hópslys verða.
„Áfallahjálp beinist að því að fyr-
irbyggja alvarleg og langvinn sálræn
eftirköst hjá þeim sem hlut eiga að
máli þegar hópslys eiga sér stað.
Annars vegar er um að ræða sálræna
skyndihjálp á vettvangi og hins veg-
ar kerfisbundna tilfinningalega úr-
vinnslu þegar hættuástand er um
garð gengið,“ sagði Borghildur
Einarsdóttir geðlæknir í samtali við
blaðið.
Borghildur hefur sérhæft sig í
áfallahjálp sem og eiginmaður henn-
ar, Rudolf Adolfsson geðhjúkmnar-
fræðingur. Hann fór vestur á Súða-
vik með varðskipinu Tý f hópi sér-
þjálfaðs sjúkraliðs ásamt björgunar-
sveitarmönnum. Borghildur Einars-
dóttir, sem er starfandi geðlæknir á
Landspítalanum, sagði að í skipu-
lagningu aðgerða og viðbúnaði við
hópslysum væri mikilvægt að hafa í
huga, að hópslys, hvort heldur vegna
náttúmhamfara eða af mannavöld-
um, væm alvarleg áföll sem valda
sálrænu umróti og streituviðbrögð-
um hjá þeim sem hlut eiga að máli.
„Áfallahjálp nær til þeirra sem
tengjast slysinu beint eða óbeint.
Sem dæmi má nefna hina slösuðu,
þá sem bjargast án áverka, vanda-
menn, sjónarvotta, vinnufélaga,
hjálparfólk og stjómendur hjálparað-
gerða,“ sagði Borghildur. Hún sagði
sálræna skyndihjálp á vettvangi
byggjast á lfkamlegri og andlegri að-
hlynningu einstaklinga sem hafa
orðið fyrir alvarlegum áföllum. Allir
þátttakendur í hjálpar- og björgunar-
störfum þyrftu að þekkja eðlileg
streituviðbrögð og tileinka sér
gmndvallaratriði sálrænnar skyndi-
hjálpar.
Bráð streituviðbrögð
Borghildur var spurð hver væm
helstu einkenni streituviðbragða á
vettvangi hópslysa.
„Bráð streituviðbrögð sem em
mest áberandi á vettvangi em líkam-
leg viðbrögð af ýmsum toga. Þar má
nefna skjálfta, hraðan hjartslátt,
svita, ógleði, kviðverki, köfnunartil-
fmningu, hraða öndun og svima.
Þessi lfkamlegu viðbrögð getur verið
erfitt að greina frá einkennum líkam-
legra áverka eða sjúkdóma, svo sem
blæðingu, höfúðáverka eða súrefnis-
skorti. Atferli eða hegðun em alla-
jafna lítið afbrigðileg. Þó getur borið
á óróleika, ofvirkni eða sinnuleysi.
Tilfinningaleg viðbrögð em lítil í
Sigrún Árnadóttir framkvæmda-
stjóri RKI og Jón Bjarman sjúkra-
húsprestur að störfum í neyðar-
miðstöð Rauða krossins í Reykja-
vík. A-mynd: E.ÓI.
„Það verður alltaf erfiðara að
tala við fólkið eftir því sem lengra
líður frá atburðunum, því þetta
fólk er búið að bíða frá því í gær-
morgun,“ sagði Jón Bjarman
sjúkrahúsprestur í samtali við Al-
þýðublaðið í gær, en Jón er við sí-
mann í neyðarmiðstöð Rauða
krossins í Reykjavík.
Um þrjúleitið í fyrradag opn-
aði Rauði krossinn neyðarlínu
fyrir þá sem vilja fá upplýsingar
uin vini og vandamenn er kunna
að hafa ient í snjóflóðinu í Súða-
vík. Einnig eru þar til taks sér-
fræðingar í áfallahjálp sem eru
tilbúnir að tala við þá sem eiga
um sárt að binda vegna þessara
hörmunga. Þessir sérfræðingar
eru sjálfboðaliðar úr röðum
lækna, presta, sálfræðinga og
hjúkrunarfræðinga. Þeir sinna
öllu Iandinu utan Vestfjarða.
Borgarspítalinn sendi hóp slíkra
sérfræðinga vestur á firði með
varðskipinu Tý á mánudaginn.
Sigrún Arnadóttir, fram-
kvæmdastjóri Rauða krossins á
íslandi, sagði í viðtali við blaðið í
gær að mikið álag hefði verið á
því fólki sem sæti við símana. Um
fimmhundruð símtöl hefðu verið
á fyrsta sólarhring þjónustunnar.
Rauði krossinn fær upplýsingar
frá almannavörnunum á ísafirði
jafnóðum og eitthvað gerist fyrir
vestan. Sigrún sagði prestana
vera ómissandi við símana, þó all-
ir hinir væru að sjálfsögðu nauð-
synlegir líka.
Jón Bjarman sjúkrahúsprest-
ur sagði að her sóknarpresta víða
um land væri tilbúinn að koma til
aðstoðar við fólk ef til þeirra væri
leitað.
Sigrún sagði að gríðarlegt álag
væri á starfsfólki sjúkrahússins á
ísafirði, það hjálpaði að fá til
starfa fólk sem væri nýbúið að
fara á námskeið í áfallahjálp.
Aðspurður sagði Jón Bjarman
að hann væri aðallega í því að til-
kynna aðstandendum fólksins
sem lenti í flóðinu sorgarfréttirn-
ar og vísa því á aðra, en að fólk
velti talsvert fyrir sér hinstu rök-
um tilverunnar á stundum sem
þessum.
Sigríður Guðmundsdóttir,
hjúkrunarfræðingur og forstöðu-
maður alþjóðaskrifstofu Rauða
krossins, sagði að áfallahjálpin
væri ekki síður fyrir fólkið sem
stæði í hjálparaðgerðum, svo sem
leitarmenn og hjúkrunarfólk.
Það þyrfti að tala við einhvern
um reynslu sína, sem oft væri
hrollvekjandi.
Sigríður sagði ennfremur að
ekki leystist úr vandamálum
fólks þó allir fyndust, því yrði
Rauði krossinn með áframhald-
andi ráðgjöf fram eftir vikunni.
Síminn er 5626722.
Allir sem greitt hafa laun á árinu
1994 eiga að skila launamiðum
ásamt launaframtali á þartil gerðum
eyðublöðum til skattstjóra.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
Skilafrestur
rennur út
21. janúar
Borghildur: Tilfinningaleg úrvinnsla þarf helst að fara fram innan
þriggja sólarhringa. A-mynd: E.ÓI.
byrjun en ryðja sér úl rúms þegar frá
líður sem kvíði, hræðsla, reiði, sorg
eða sektarkennd og lita minninguna
um áfallið. Skynjun og rökhugsun
truflast. Þetta hefur í för með sér
óraunveruleikatilfinningu, brenglað
ú'maskyn, úlhneigingu til að mis-
skilja, mistúlka og draga rangar
ályktanir. Því þurfa allar upplýsingar
og fyrirmæli að vera hnitmiðaðar og
endurteknar," sagði Borghildur.
Það kom fram í máli Borghildar
Einarsdóttur að líkamleg skyndi-
hjálp hefði að sjálfsögðu alltaf for-
gang á slysstað. Björgunarfólk þyrfú
að sýna rósemi og súllingu í orði og
athöfnum. Veija þyrfti fólk fyrir for-
vitnum áhorfendum, ágengni íjöl-
miðla og hjálparfólki sem ekki hefði
hlutverki að gegna. Það þyrfti að
hjálpa einstaklingum úl að horfast í
augu við raunveruleikann skref fyrir
skref. „Þegar hættuástand er
um garð gengið er tímabært að
huga að formlegri úlfmninga-
legri úrvinnslu. Hún getur nýst
hjálparfólki, þolendum, vanda-
mönnum, sjónarvottum og öðr-
um sem hlut eiga að máli.
Tilfínningaleg úrvinnsla fer
oftast ífam í hópi 10 til 14 ein-
staklinga, helst innan þriggja
sólarhringa. Tímalengd er ein
til tvær klukkustundir. Það er
mikilvægt að sá sem stýrir úr-
vinnslunni sé hlutlaus aðili með
undirstöðuþekkingu í áfalla-
hjálp og starfsreynslu í mann-
legum samskiptum. Þetta er
tækifæri til að deila með öðrum
tilfinningum, hugsunum og
viðbrögðum sem tengjast slys-
inu,“ sagði Borghildur Einars-
dóttir geðlæknir.
Launagreiðendur!
Lauinamiðum
ber að skila
í síðasta lagi
21. janúar