Alþýðublaðið - 24.01.1995, Side 1
Stefanía Þorgrímsdóttir gafst upp á að starfa í kjörnefnd Alþýðubandalagsins í Reykjavík
__ ■ ■
Bryndís og Ogmundur
eru skiptimyntin
- í draumaríkisstjórn Ólafs Ragnars, segir Stefanía.
„Ég tel að allur þessi málatilbún-
aður hafi verið fyrirfram ákveðinn af
forystu flokksins. Þetta hafi verið
gert í því augnamiði að ná fulltrúum
ASÍ og BSRB inn á listann í eitthvert
af fjórum efstu sætum eins og raun
varð á, til að bjóða í skiptimynt í
draumaríkisstjóm að loknum kosn-
ingum,“ segir Stefanía Þorgrúns-
dóttir, sem sagði sig úr kjömefnd Al-
þýðubartdalagsins í Reykjavík, í við-
tali við blaðið.
Stefanía segir að Svavar Gestsson
og fleiri forystumenn Alþýðubanda-
lagsins hafi fjarstýrt störfum kjör-
nefndarinnar. Hún hafi fengið það
hlutverk að semja reglur fyrir opið
prófkjör um framboðslista flokksins
en vinnubrögðin ekki verið sam-
kvæmt því umboði.
„Olafur Ragnar Grímsson mun í
langan tíma hafa látið uppi þá skoðun
að einhver eftirsóknarverðasta ríkis-
stjóm sem hægt væri að fá í stöðunni
væri stjóm Alþýðubandalags og
Sjálfstæðisflokks. Og það er stað-
reynd að strax síðastliðið sumar fóm
á stað þreifingar milli Svavars og
Ogmundar Jónassonar," segir Stef-
anía.
Hún segir að þegar Ögmundur var
í desember nefndur í þriðja sæti
framboðslista Alþýðubandalagsins í
Reykjavík hafi óháði söfnuðurinn
hans ekki verið til í neinu formi. Þetta
sé allt saman skrípaleikur og aðferð-
imar við val á listann hafi verið svik
við hinn almenna flokksmann.
Stefanía Þorgrímsdóttir segir að
ástandi flokksforystunnar í Reykja-
vík og Reykjanesi megi líkja við
hjónaband þar sem gefnir séu pústrar
við og við en skriðið upp í hjóna-
sængina að lokum þegar mikið liggi
við. ,JÉg hef ekki hugsað mér að vera
frillan í hjónabandinu," segir Stefan-
ía.
Hún segir að forystumenn Al-
þýðubandalagsins virðist starfa eftir
þeim nótum að það sé betra að gera
Stefania Þorgrímsdóttir: Hætt.
illt en ekki neitt þá loksins þeir reyni
að gera eitthvað. Hún nenni ekki að
standa Iengur í svona vitleysu.
Siá viðtal á blaðsíðu 5,
Sósíalistar
íhuga enn að
bjóða fram
GG-lista
Kjördæmisráð Alþýðubanda-
lagsfélaganna í Reykjavík heldur
fund í kvöld þar sem taka á
ákvörðun um framboðslista fyrir
komandi þingkosningar. A fund-
inum mun Sósíalistafélag Reykja-
víkur óska eftir heimild kjördæm-
isráðs til að bjóða fram undir bók-
stöfunum GG ef svo fer að félagið
vilji ekki taka þátt í framboði AI-
þýðubandalagsins.
Samkvæmt upplýsingum Al-
þýðublaðsins hafa félagar í Sósí-
alistafélaginu, sem á aðild að Al-
þýðubandalaginu, ekki enn tekið
ákvörðun um að bjóða fram til
hliðar við flokkinn. Hins vegar
þarf beiðni um að fá að bjóða
fram undir GG að fá afgreiðslu
kjördæmisráðs og því verður hún
lögð frá á fundinum í kvöld.
Alþýðubandalagið á Austurlandi
Þetta er
ekki góð
staða
- fyrir flokk sem ætti að hafa sóknarfæri, segir
áhrifamaður í Alþýðubandalaginu á Austurlandi
Alþýðubandalagsmenn á Austur-
landi sem blaðið ræddi við í gær
drógu enga dul á að uppstilling fram-
boðslista flokksins með Hjörleif
Guttormsson í efsta sæti væri mjög
umdeild ráðstöfun. Ekki fari milli
mála að mikill ágreiningur sé uppi
innan flokksins og staða hans í kjör-
dæminu hafi enn veikst við þessa
ákvörðun. Hins vegar hafi kjördæm-
isráð og uppstillingamefnd átt úr
vöndu að ráða þar sem Hjörleifur
krafðist þess að vera áfram í efsta
sæti.
„Ég hef ekki trú á því að það verði
mikið streymi úr flokknum vegna
þessa. Hins vegar tel ég víst að
ákveðinn hluti fiokksmanna ntuni
hafa hægt um sig fyrir komandi
kosningar. Þetta er ekki góð staða
fyrir flokk sem ætti að öllu jöfnu að
hafa góð sóknarfæri,” sagði einn af
forystumönnum Alþýðubandalaginu
á Austurlandi í samtali við blaðið.
Viðntælendur blaðsins voru sam-
niála um að eina vonin til að halda
Alþýðubandalaginu á Neskaupstað
saman væri bæjarmálapólitíkin. Þar
væri sterk samheldni ríkjandi. Hins
vegar væri flokkurinn þar kloftnn í
afstöðunni til Hjörleifs eins ög ann-
ars staðar í kjördæminu. Alþýðu-
bandalagsmenn utan Neskaupstaðar
sögðu að burtséð frá ágreiningi Hjör-
leifs og Einars Más Sigurðssonar
hefðu þeir ekki viljað að tvö efstu
sæti listans væm skipuð Norðfirð-
ingum. Því hefði uppstillingamefnd
valið Þuríði Backman á Egilsstöð-
um í annað sætið. Hins vegar væri
staðan þannig á Austurlandi að ef
Hjörleifur hefði ekki fengið efsta
sætið hefði það einnig haft í för með
sér klofning í flokknum. Hann ætti
sína stuðningsmenn ekki síður en
sterka andstæðinga.
„Staðreyndin er sú að uppstilling-
amefnd varð að höggva á erfíðan
hnút og það gengu margir tregir til
þessarar niðurstöðu,“ sagði einn af
viðmælendum blaðsins.
Kjördæmisráð Alþýðubandalags-
ins á Austurlandi hélt fund á Egils-
stöðum í síðustu viku þar sem upp-
stillingamefnd Iagði fram tillögu að
framboðslista flokksins og var hún
samþykkt samhljóða.
Siá umfiöllun á baksíðu.
Súðavík
Vinna hefst aftur
í næstu viku
Fyrsti áfangi uppbyggingar í Súðavík hafinn.
A sameiginlegum stjornarfundi 1
Frosta hf. og Álftfirðingi hf. í Súða-
vík var rædd sú alvarlega staða
sem er í bænum eftir hina hörmu-
iegu atburði síðustu viku. ÖII at-
vinna í bænum hcfur síðan legið
niðri, en í tilkynningu frá Frosta og
Álftfirðingi segir að vinna muni
hefjast á nýjan leik mánudaginn
30. janúar. Skip félaganna héldu til
veiða í gær og dag. Margt af starfs-
fólki Frosta hf. dvelur á Isafirði og
munu einhverjir Súðvíkingar búa
þar áfram enn um sinn. Starfsfólki
verður ekið milli staða ef þörf er á.
í tilkynningu stjóma fyrirtækj-
anna segir að með þessu sé fyrsti
áfangi uppbyggingar í Súðavík haf-
in, og sú von sett fram að fólk snúi
fljótlega heim.
Otvíræður sigur Rannveigar Rannveig Guðmundsdóttir félagsmálaráð-
herra og stuðningsmenn hennar voru að vonum sigurreif í húsnæði jafnaðarmanna í Kópavogi á sunnudags-
kvöldið. Rannveig varð efst í prófkjöri jafnaðarmanna á Reykjanesi um helgina, því fjölsóttasta frá upphafi, en
tæplega níu þúsund tóku þátt. Guðmundur Árni Stefánsson alþingismaður varð í öðru sæti og Petrína Baldurs-
dóttir alþingismaður í því þriðja. Fjórða sætið vermir Hrafnkell Óskarsson yfirlæknir. „Mjög hörð en drengileg
keppni var milli Rannveigar og Guðmundar Árna Stefánssonar. í prófkjörinu tókust þau í raun á um forystuhlut-
verk fyrir Alþýðuflokkinn í Reykjanesi. í Hafnarfirði var þátttakan talsvert betri en áður, og fyrirfram gerðu marg-
ir ráð fyrir því að styrkur Alþýðuflokksins í Hafnarfirði kynni að tryggja Guðmundi Árna sigur. En Rannveig...hef-
ur ennfremur staðið sig vel sem þingmaður, og á stuttum ferli sem ráðherra sýnt í senn þekkingu á málefnum
flókins ráðuneytis og örugg tök. Þetta launuðu Kópavogsbúar henni með gífurlegum stuðningi, en yfir tvö þús-
und manns tóku þátt í kjörinu úr Kópavogi, meira en tvöfalt fleiri en áður," segir i leiðara Alþýðublaðsins í dag.
A-mynd: E.ÓI. Sjá umfjöllun á blaðsíðu 4.
Endurskoðun
hættumats snjó-
flóða er hafin
Norskur sér-
frædingur
kominn til
landsins
- í boði Össurar
Skarphéðinssonar
umhverfisráðherra.
Yfirmaður norsku rannsókna-
stöðvarinnar um snjóflóð, Karsten
Lid, kom hingað til lands í gær-
kvöldi í boði Össurar Skarphéðins-
sonar umhverfisráðherra. Ráðherra
telur nauðsynlegt að íslendingar færi
sér í nyt reynslu og þekkingu er-
lendra sérfræðinga þegar vamir og
eftirlit með snjóflóðum verða teknar
til gagngerar endurskoðunar í kjölfar
slyssins á Súðavík. Karsten Lid
þekkir vel til aðstæðna á íslandi og í
kjölfar snjóflóðsins í Neskaupstað
1974 skoðaði hann aðstæður og
veitti ráðgjöf um hættumat og vamir
gegn frekari flóðum.
,,Ég hef fengið Karsten Lid hingað
fyrst og fremst til að ráðgast við mig
og mína sérfræðinga. Ég vil kynnast
því hvemig eftirlit og vamir gegn
snjóflóðum em byggðar upp í Nor-
egi, en mínir menn telja að aðstæður
þar séu einna líkastar okkar. Hann
mun jafnframt útskýra fyrir okkur í
smáatriðum hvemig hættumöt ganga
fyrir sig hjá Norðmönnum. Ég hefi
ekki síst áhuga á að fræðast urn
hvemig veðurfarsþátturinn kemur
inn í hættumöt og tel nauðsynlegt að
hann komi öflugar inn á mat á hættu-
svæðum," sagði Össur Skarphéðins-
son í samtali við blaðið í gær.
Þá hefur umhverfisráðherra fyrir
hönd ríkisstjórnarinnar
þekkst boð franskra stjómvalda
um að senda hingað til lands
M. Gilles Borrel, en hann er sér-
fræðingur f snjóflóðum við Cema-
gref-stofnunina í Grenoble, sem hef-
ur víðtæka reynslu í snjóflóðarann-
sóknunt. Ekki er búið að tímasetja
heimsókn Frakkans en Veðurstofan
mun skipuleggja hana.
Össur sagði að þetta væri á engan
hátt vantraust á íslenska sérfræðinga.
„Reynslan ætti hins vegar að hafa
kennt okkur að það væri hreint glap-
ræði að róa ekki fyrir allar víkur þeg-
ar snjóflóðavamir em annars vegar.
Ráðgjöf erlendis frá er einfaldlega
sjálfsögð í þessu tilviki," sagði ráð-
herrann.