Alþýðublaðið - 24.01.1995, Síða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1995
MMTIIITílfMD
20858. tölublað
Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 625566
Útgefandi Alprent
Ritstjórar Hrafn Jökulsson
SiguröurTómas Björgvinsson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 625566
Fax 629244
Áskriftarverð kr. 1.550 mA/sk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Stórglæsilegt
prófkjör
Stórglæsilegu prófkjöri Alþýðuflokksins á Reykjanesi lauk á
sunnudagskvöld með afgerandi sigri Rannveigar Guðmunds-
dóttur félagsmálaráðherra. Guðmundur Ámi Stefánsson al-
þingismaður varð í öðru sæti, en rösklega átta hundruð atkvæði
skildu hann og Rannveigu. I þriðja sæti varð ungur og röskur
þingmaður úr Grindavík, Petrína Baldursdóttir, og Hrafnkell
Óskarsson, læknir úr Keflavík, í því íjórða. Ljóst er því, að
efstu sæti lista Alþýðuflokksins í Reykjanesi eru afar vel skij>
uð, og traustur róðrarmaður í hverju rúmi. Með svo sigurstrang-
legan lista er nú Alþýðuflokkurinn líklegur til verulegrar sókn-
ar í Reykjanesi.
Fyrir Alþýðuflokkinn í heild var prófkjörið glæsilegt vegna
hinnar ótrúlega góðu þátttöku sem sló öll fyrri met. En á níunda
þúsund manns tóku þátt í kjörinu. Þetta speglar í senn verulega
aukinn áhuga á Alþýðuflokknum og málefnum hans en ekki
síður traustan stuðning við þá einstaklinga, sem tókust á um
efstu sæti listans. Það dylst engum, að jafnaðarstefnan hefur
undanfarið átt á brattan að sækja eftir að Jóhanna Sigurðardótt-
ir freistaði þess að kljúfa flokkinn. Þrátt fyrir það og önnur áföll
sýnir hin gríðarlega þátttaka í prófkjörinu í Reykjanesi, að
flokkurinn er nú óðum að sækja í sig veðrið.
Mjög hörð en drengileg keppni var milli Rannveigar og Guð-
mundar Áma Stefánssonar. í prófkjörinu tókust þau í raun á um
forystuhlutverk fyrir Alþýðuflokkinn í Reykjanesi. I Hafnar-
firði var þátttakan talsvert betri en áður, og fyrirfram gerðu
margir ráð fyrir því að styrkur Alþýðuflokksins í Hafnarfirði
kynni að tryggja Guðmundi Áma sigur. En Rannveig er eini
þingmaðurinn úr Kópavogi, og líkt og Guðmundur Ámi hefur
hún að baki litríkan feril í stjóm bæjarins. Hún hefur ennfrem-
ur staðið sig vel sem þingmaður, og á stuttum ferli sem ráðherra
sýnt í senn þekkingu á málefnum flókins ráðuneytis og ömgg
tök. Þetta launuðu Kópavogsbúar henni með gífurlegum stuðn-
ingi, en yfir tvö þúsund manns tóku þátt í kjörinu úr Kópavogi,
meira en tvöfalt fleiri en áður. Þessi gífurlegi stuðningur við
Rannveigu í Kópavogi réði að líkindum úrslitum. Þátttökuna í
Kópavogi má jafnframt túlka sem mikinn persónulegan sigur
fyrir félagsmálaráðherrann, því fólkið í Kópavogi sýndi með
ótvíræðum hætti hve mikið traust það ber til hennar sem stjóm-
málamanns.
Án efa hefur Guðmundur Ámi goldið þeirrar hörðu herferðar
sem gegn honum var rekin á síðasta ári vegna meintra ávirð-
inga sem ráðherra. En hinn mikli stuðningur við hann í próf-
kjörinu sýnir líka, að hann nýtur vaxandi trausts. Þeir sem axla
ábyrgð uppskera að lokum, og Guðmundur Ámi kemur keikur
og sterkur út úr prófkjörinu; hann er ungur stjómmálamaður
sem á framtíðina fyrir sér.
Petrína Baldursdóttir úr Grindavík hláut traustan stuðning í
þriðja sætið. Af þingmanni að vera er hún komung, en hefur
eigi að síður vakið athygli fyrir lifandi málflutning og traust
vinnubrögð. Það verður auðvelt fyrir Alþýðuflokkinn að beijast
fyrir því að halda henni inni á þingi sem þriðja þingmanni
flokksins í Reykjanesi. Framundan er nú öflug kosningabarátta,
þar sem hinn góði árangur flokksins í prófkjörinu í Reykjanesi
verður stökkbretti til endumýjaðra landvinninga.
Önnur sjónarmið
I nýjasta tölublaði tímaritsins
Time, er birt alveg hreint snilldarleg
ritgerð eftir Rod nokkum Usher;
grein sem ber fyrirsögnina „The
Not-Me Generation" eða „Ekki-ég
kynslóðin". Titillinn útskýrir um-
fjöllunarefnið og fer greinin hér á
eftir, millifyrirsagnir eru blaðsins:
Hin þrádu ummæli:
„Ég ber ábyrgdina “
Þegar Fransmaður einn missti
stjóm á vöruflutningabílnum, sem
hann var að aka í gegnum verslunar-
himnaríkið Andorra í Pýrenefjöllun-
um seint á síðasta ári, valt ökutækið
niður hæð og beint innf miðja versl-
unarmiðstöð. Níu manneskjur týndu
lífí í slysinu og næstum 40 slösuðust.
Það sem aðgreindi hinsvegar þetta
tiltölulega litla slys frá öðmm miklu
verri vom orð ökumannsins, hins 31
árs gamla Jean-Francis Pasini -
fjögurra bama föður, sem slasaðist
aðeins lítillega. A sjúkrabeði sínu á
spítala daginn eftir, sagði hann við
franska útvarpsstöð, að þrátt fyrir
sönnunargögn sem bentu ótvírætt til
þess að bremsur flutningabflsins hef-
ur bilað, þá hefði hann sem atvinnu-
maður í slíkum akstri átt að geta
stjómað ferli tækisins. Pasini sagði
einfaldlega: „Ég ber ábyrgðina.“
Það getur vel verið að Pasini hafi
verið í losti og án vafa hafði hann
ekki tíma til að ráðfæra sig við lög-
ffæðing og ekki vom miklar líkur á
að yfirlýsing ökumannsins myndi
létta sorg íjölskyldna kvennanna níu
sem létu líftð. En mikið var það nú
hressandi að heyra þessa yfirlýsingu
Pasini; yfirlýsingu sem er orðin svo
sjaldgæf að hún gæti þessvegna ekki
verið þýdd úr latínu: „Mea culpa“
(Eg ber ábyrgðina).
Óendaniegur
listi afsakana
Kennið geðlyfinu Prozac urn
þetta, bendið á áhrif alkóhóls og
þvælið erfðafræðilegum skýringum
innf málið - listi nútímamanna yfir
afsakanir vegna gjörða þeirra, er orð-
inn svo langur og yfirþyrmandi að
hann hefur fyrir margt löngu yfir-
gnæft setninguna sem þarf einungis
18 stafi til að mynda: „Þetta var mér
að kenna“.
Umboðsmenn afsakana hafi grip-
ið til ótal úrræða í þessari deild:
Harðræðis í uppeldi, efnahagslegra
þrenginga, fyrirtíðaspennu, eftir-
fæðinga-þunglyndis, umhverfislegs
þrýstings, meðvitaðs og ómeðvitaðs
þunglyndis, of mikillar eiturlyfja-
neyslu, of lítils sjálfstrausts, kynferð-
islegrar misnotkunar, langvarandi
svefnleysis, húsasóttar og ýmissa
annarra og krankleika; andlegra sem
líkamlegra.
Ef allt annað bregst, þá mætti
hugsa sér að syngja Lög og reglu eft-
ir Bubba Morthens („Ekki benda á
mig, segir varðstjórinn,“... og svo
framvegis), en það væri vafalaust
neyðarúrræði.
Eins gott ad kenna
engum um
Mannleg mistök eiga sér vitaskuld
afar sannfærandi vísindalegar og
hegðunarfræðilegar
skýringar og í dag er það
orðið svo, að það, að
segja að einhveijum hafi
orðið á í messunni, er að
bjóða heim málssókn,
ásökunum um dóm-
hörku, því að maður sé
talinn hægri öfgamaður
eða fordómabulla -
nefndu það...
Alveg einsog doktor
Pangloss, ein af sögu-
hetjum Voltaire, notaði
hin aðskildustu vísindi
til að sanna að það sé
engin afleiðing án or-
sakar, þá eru speki okkar
og fræði 250 ámm síðar
að framleiða „ekki-ég
kynslóðir", sem nærast á
hugmyndinni um það að
hægt sé að skella allri
skuld á áföll af einhverju
tagi. I stjómmálum hef-
ur þessi tilhneiging búið
til nýja manntegund er
bregst við áföllum, svo-
kallaða skemmda-
stjómendur, sem fram-
bjóðendur kunna að
verða fyrir með því að
slá stöðugt ryki í augu
kjósenda.
Alveg einsog doktor Pangloss, ein af söguhetjum
Voltaire, notaði hin aðskildustu vísindi til að
sanna að það sé engin afleiðing án orsakar, þá
eru speki okkar og fræði 250 árum síðar að fram-
leiða „ekki-ég kynslóðir“, sem nærast á hug-
myndinni um það að hægt sé að skella allri skuld
á áföll af einhverju tagi.
Menn dregnir úr
sidferdisfenjum
Hvers vegna skyldi
Jimmy Carter vera
orðin svona eins-manns
friðarsamninganefnd?
Jú, það er einmitt vegna
þess að hann kann þessa
list. Hann hafði árangur
sem erfiði, vegna þess
að hann kemur mönnum
eins og Kim II Sung
heitnum, leiðtoga Norð-
ur-Kóreu, Raoul Cédr-
as, herstjóra á Haítí og Radovan
Karadsic f Bosníu, upp úr þeim sið-
ferðislegu fúafenjum er þeir hafa
vaðið.
Það, að gera slíkar manneskjur
trúverðugri og ekki eins fyrirlitlegar,
krefst oft örlítillar hagræðingar sann-
leikans. Tökum sem dæmi eftirfar-
andi gimstein Carters: „Ákveðnir
foringjar í haitíska hemum eru til-
búnir til þess að fallast á að setjast í
helgan stein fyrir tímann á heiðvirð-
an hátt.“
Ad vorkenna aumingja
krimmunum
Þar sem ásakanir og hnútuköst
hafa reynst gagnleg í viðureigninni
við upphafna aðila, þá erum við
orðnir svo ónæmir fyrir ásökunum,
að viðbrögðin við þeim hafa unnið
sér stóran sess innan læknisfræðinn-
ar.
Fómarlömb mannrána þjást í æ
ríkari mæli af því sem kallað er
„Stokkhólms-syndrómið,“ sem lýsir
sér þannig að þau vorkenna aum-
ingja mannræningjanum. Þessi af-
skræming gæti bent til þess að við
þyrftum í framtíðinni að horfa upp á
lögfræðinga veija skjólstæðinga sína
með þeim rökum að þeir hafi endur-
tekið glæpinn sökum stöðugs sektar-
sveltis.
Jeffrey Dahmer sagdist
bera ábyrgð
Jeffrey Dahmer, maðurinn frá
Milwaukee í Wisconsin, maður sem
drap 17 ungmenni, hafði fátt sér til
málsbóta. I NBC-sjónvarpsþættin-
um Duteline - nokkmm mánuðum
áður en Dahmer var drepinn af sam-
fanga á síðasta ári - spurði þáttar-
stjórnandinn fjöldamorðingjann um
álit á þeim skoðunum föður hans að
Dahmer hefði farið villur síns vegar
vegna lyíjatöku ófrískrar móður
hans eða rifrilda foreldranna þegar
hann var barn að aldri. Dahmer svar-
aði um hæl: „Hvað ntig varðar þá em
þetta allt aumar afsakanir. Það er ein-
læg skoðun mín, að það sé rangt hjá
fólki sem ffemur glæpi að reyna færa
sökina yfir á einhvem annan, á for-
eldrana, uppeldið eða umhverfið
sem það býr í. Það er bara ræfildóm-
ur að reyna koma sér undan sökinni
með þvi' að skella henni á einhvem
annan. Eg ber ábyrgðina."
Þessi ábyrgðartilfinning tilheyrir
frekar framsýni en eftir- á-hyggju og
orð Dahmer gera einungis þörfina
enn brýnni á að rannsaka nánar hið
sjúklega ástand fjöldamorðingja. En
það á alls ekki að gera þannig, að
hætta sé á að algjört niðurrif verði á
sakhæfni þessara einstaklinga; að
það ástand skapist að algjör skil
myndist á milli verknaðarins og þess
sem framdi hann. Jafnvel Dahmer
sjálfur gerði ekki hina minnstu til-
raun til að yfirfæra ástand sjálfs síns
á þann gmndvöll.
„Afneitunar-málbætur"
sonar míns
Ég varð eitt sinn vitni að því þegar
sonur minn sparkaði í kvið fjöl-
skyldukattarins - af ekki nokkurri
sjáanlegri ástæðu. Ég brást skjótt við
og heimtaði þegar í stað skýringu:
„Afhverju í ósköpunum gerðirðu
þetta?“ Jake sonur minn þagði dá-
góða stund agndofa og svaraði síðan:
„Vegna þess...að ég gerði það
ekki!“ Þessi ummæli urðu síðan
þekkt í fjölskyldu minni sem „út-
skýrandi-afneitunar-málbæturnar".
Jake var veitt syndaaflausn á gmnd-
velli aldurs; hann er þriggja ára.
Fyrir fullorðna ætti það að vera
fullkomlega ásættanlegt að taka
ábyrgð á gjörðum sínum - þrátt fyrir
að það sé ef til vill jafnsárt á stundum
og að fá spark í kviðinn.
Dagatal 24. janúar
Atburdir dagsins
1908 Konur náðu kjöri til bæjar-
stjómar Reykjavíkur í fyrsta sinn.
Kvennalisti þeirra fékk fjóra fulltrúa
af fimmtán. 1920 ítalski listmálarinn
Amadeo Modigliani deyr vegna of-
neyslu áfengis og eiturlylja. 1965
Winston Churchill deyr; forsætisráð-
herra Breta í seinna stríði og Nóbels-
hafi í bókmenntum. 1985 Jón Páll
Sigmarsson hlýtur titilinn „Sterkasti
maður heims", fyrstur íslendinga.
Afmælisbörn dagsins
Hadrian rómverskur keisari, kunn-
astur fyrir múrinn sem hann lét reisa
á Norður-Englandi til að halda Skot-
um í skeljum, 76. Ernest Borgnine
bandarískur kvikmyndaleikari,
1917. Nastassja Kinski kvikmynda-
leikkona af þýskum ættum (dóttir
leikarans Klaus Kinski), sem ung
aflaði sér verðskuldaðrar frægðar,
1961.
Annálsbrot dagsins
I Ögursdal hvarf fjárstúlka úr Vigur
og sást aldrei síðan.
Eyrarannáll, 1690.
Lokaord dagsins
Úff, hvað mér leiðist þetta allt.
Hinstu orð Winstons Churchills,
sem dó þennan dag árið 1965.
Málsháttur dagsins
Sá þekkir ekki sitt kyn sem í öskunni
sifur.
Borg dagsins
Anna var einmitt hvort tveggja, eik
og fjóla - stórbrotin listakona, sem
hafði klifið þrítugan hamar harðrar
vinnu til frægðar og frama, markvís
og viljasterk, en um leið viðkvæm og
ljúf og gædd ógleymanlegum yndis-
þokka.
Sigurður Nordal um leikkonuna Önnu Borg;
Morgunblaðið 19. apríl 1963.
Ord dagsins
Ástin hrindir andans ró,
ýmsa blindað hefur;
kætir lyndi, færir fró,
frið og yndi gefur.
Ókunnur höfundur.
Skák dagsins
Skák dagsins var tefld í Zagreb í
Króatíu árið 1990; meðan Júgóslavi'a
var enn við lýði. Cebalo hefur hvítt
og á leik gegn Hulak. Hvíta drottn-
ingin er í uppnámi á e7 og aukþess er
peði á b2 voði vís. Cebalo, sem er
lunkinn meistari, hristi framúr erm-
inni fimasterkan leik sem knúði Hul-
ak til uppgjafar án frekari málaleng-
inga. Hvað gerir hvítur?
28. Rxe5!! Og Hulak gafst upp.
Samanber: 28. ... Hxd7 29. Rxd7
Dd8 30. Rf6+ Kf8 31. Rxh7+ Kg8
32. He8+! Dxe8 33. Rf6+ Kf8 34.
Rxe8 Kxe8 35. h7 og drottning er í
heiminn fædd.