Alþýðublaðið - 24.01.1995, Qupperneq 3
ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
BSRB í framboð
stefnu Alþjóðabankans með
mælskustíl Einars Olgeirssonar á
næstu mánuðum.
Heldur er þó ólíklegt að hið nýja
guðspjall Olafs Ragnars falli vel að
hástemmdri mælsku þeirra Svavars
og Ögmundar. Framboð BSRB til
Alþingis er ekki fram komið til að
leita nýrra lausna á efnahagsvandan-
um, heldur til að vemda hagsmuni
BSRB. Slikt hagsmunapot hefði nú
einhvemtíma verið eitur í beinum
Olafs Ragnars, fyrrum foringja „lýð-
ræðiskynslóðarinnar“. En hvað á
hann að segja? I síðustu kosningum
hmndi stuðningur opinberra starfs-
manna við Alþýðubandalagið -
þökk sé vasklegri framgöngu Ólafs í
embætti fjármálaráðherra. I kosning-
unum 1987 kusu 19% opinberra
starfsmanna Alþýðubandalagið, en
aðeins 12% í kosningunum 1991.
Framboði BSRB er ætlað að bæta
upp tapið frá 1991, án þess að ganga
í flokkinn. Hagsmunagæslan gæti
krafist sjálfstæðis gagnvart hugsan-
legum verðandi fjármálaráðherra Ól-
afi Ragnari Grímssyni.
Höfundur er stjórnmálafræðingur og
aðstoðarmaður umhverfisráðherra
Aumt er nú ástandið í Alþýðu-
bandalaginu. Gamlir stuðningsmenn
Ólafs Ragnars Grímssonar yfirgefa
flokkinn í röðum og hafa á síðustu
áram ýmist gengið í Alþýðuflokkinn
eða til liðs við stefnu Alþýðuflokks-
ins undir pilsfaldi Jóhönnu Sigurðar-
dóttur. A móti reynir flokkurinn að
laða að sér nýtt blóð og tekst það ein-
ungis með þeim formerkjum að við-
komandi gangi
ekki formlega í Al-
þýðubandalagið.
Fremstur í
flokki hinna
„óháðu“ er Ög-
rnundur Jónasson.
Formanni BSRB
fer vel að halda
ákafar ræður í stíl
Einars Olgeirsson-
ar um peningavaldið á Alþingi og
aukna misskiptingu tekna í þjóðfé-
laginu. Aðeins vantar eldheitar sær-
ingar gegn heimsvaldastefnunni og
lof um eilíft sjálfstæði og fullveldi
þjóðarinnar. Ekki þurfa hinir
„óháðu" þó að hafa miklar áhyggjur
af því. Svavar Gestsson er ekki eins
óháður sögulegri arfleið Alþýðu-
bandalagsins og Ögmundur Jónas-
son, og tók við kyndli hins þjóðem-
issinnaða sósíalisma af Einari Ol-
geirssyni. Ræðumennskan á fram-
boðsfundum Alþýðubandalagsins f
vetur verður því væntanlega með
íjörlegra móti. Auðvaldið, kapítal-
isminn, Þórarinn V., ESB og jafnvel
Nató fá horn og hala andspænis hin-
um vængjumprýddu englum réttlæt-
isins.
I DV í gær hélt Ögmundur Jónas-
son því fram að Alþýðubandalagið
hefði mesta kjölfestu - væntanlega
sögulegri kjölfestu - flokka á félags-
hyggjuvæng stjómmálanna. Svavar
Gestsson tekur undir þetta með ákafa
í Morgunpóstinum í gær: „Vinstra
megin er Alþýðubandalagið kjölfest-
an. Alþýðubandalagið hefur gert
margvíslegar ráðstafanir til að fanga
framtíð íslenskra stjómmála og hefur
sýnt meiri kjark í þeim efnum en
nokkur annar stjómmálaflokkur."
Heldur er þetta nú skoplegt hjá Svav-
ari. Þegar helstu stuðningsmenn
hans innan flokksins vilja ekkert af
honum vita og stöðugur straumur
hæfileikafólks er frá allaböllum til
Jóhönnu Sigurðardóttur, sýnir Al-
þýðubandalagið „meiri kjark" en
aðrir stjómmála-
flokkar. Og ekki
batnar nú kok-
hreystin þegar
Svavar - þjakað-
ur af fortíðinni -
þykist nú hafa
fangað framtfð ís-
lenskra stjóm-
mála. Kannski að
Alþýðubandalag-
ið hafi fangað framtíðina með kjark-
mikilli afstöðu sinni til EES.
Málefnastaða þeiira félaga Ög-
mundar og Svavars er hin fróðleg-
asta. Ögmundur telur að samfélagið
hafi verið gert að tilraunabúi frjáls-
hyggjunnar. Svavar berst gegn at-
vinnuleysi, fátækt, spillingu og ríkis-
stjóminni - og þá sínu harðast gegn
því síðastnefnda. Svo notað sé orð-
færi Páls Péturssonar, þá virðast þeir
félagar ætla í krossferð gegn „bijál-
aðri frjálshyggju“ ríkisstjómarinnar.
I stað þessarar brjálsemi á væntan-
lega að koma útflutningsleið Ólafs
Ragnars Grímssonar.
Sjálfur hefur Ólafur Ragnar lýst
því hversu glaður hann varð í heim-
sókn sinni í Alþjóðabankann í Wash-
ington á síðasta vori. Þar komst hann
nefnilega að því að útflutningleiðin
er nýjasta tískan þar á bæ. Það þarf
svo sem ekki að koma á óvart. Eins
og Morgunblaðið komst að orði er
útflutningleiðin ágæt stefna fyrir
hófsaman hægriflokk og hæfði því
væntanlega vel kristilegum demók-
rötum á meginlandi Evrópu. Það
verður fróðlegt að fylgjast með þeim
Ögmundi og Svavari boða efnahags-
Pallborðið
Hlk Birgir
•BT jfc-T Hermannsson
H skrifar
Heldur er þó ólíklegt að hið nýja
guðspjall Ólafs Ragnars falli vel að
hástemmdri mælsku þeirra Svav-
ars og Ögmundar. Framboð BSRB
til Alþingis er ekki fram komið til
að leita nýrra lausna á efnahags-
Fylgi Alþýðubandalagsins meðal opinberra Vandanum, heldur tíl að Vemda
starfsmanna, samkvæmt rannsóknum Ólafs Þ. , . T-,Í-,T-,T-,
Harðarsonar. hagSmUni BSRB.
Iviðtali við fréttamann
útvarps í gærmorgun
sagði Rannveig Guð-
mundsdóttir félagsmála-
ráðherra að
hún hefði
fremur bú-
ist við að
verða undir
, __ __ f slagnum
i , t við Guð-
mund
Árna Stef-
ánsson al-
þingismann
í Hafnar-
firði. Það
sem ráðið
hefur úrslitum var hin
gríðarmikla kjörsókn í
Kópavogi, sem slagaði
upp í þátttökuna í Hafnar-
flrði, og eins hefur Rann-
veig greinilega átt drjúgan
meirihluta á Suðumesjum.
Það var einmitt hin góða
kjörsókn Suðumesja-
manna sem fleytti Hrafn-
katli Oskarssyni upp í 4.
sætið og væntanlega vara-
þingmennsku...
Hinumegin
Arnarnes Norðurpólsins.
ÞKL
menn héldu
á dögunum
fund á Sel-
fossi, og
mættu um 80
manns. Sunn-
lenska fréttablaðið segir
að athygli hafi vakið hve
margir framsóknarmenn
voru meðal fundarmanna,
en þar haft einnig verið
fólk úr öðram flokkum,
meðal annars Sjálfstæðis-
flokknum. Frammælendur
á fundinum voru Jóhanna
Sigurðardóttir, Ágúst
Einarsson, Þorsteinn
Hjartarson skólastjóri á
Skeiðum, Kristín Erna
Arnardóttir kvikmynda-
gerðarmaður á Steinum
undir Eyjafjöllum og Elín
Magnúsdóttir á Kumb-
áravogi á Stokkseyri.
Sunnlenska fréttablaðið
hefur eftir Þorsteini Hjart-
arsyni, sem er einn helsti
forsprakki Þjóðvaka á
Suðurlandi, að hinn nýi
flokkur eigi umtalsverðan
stuðning meðal sveita-
fólks. Þá er haft eftir
honum að Þjóðvaki
„tæki ekki landbúnað-
arstefnu Alþýðuflokks-
ins og ekki heldur stefnu
Alþýðuflokksins í Evr-
ópumálum". Þetta stang-
ast reyndar á við það sem
Ágúst Einarsson sagði á
stofnfundi Þjóðvaka;
nefnilega að skoða bæri
aðild Islands að Evrópu-
sambandinu...
Meira um Þjóðvaka á
Suðurlandi. Áður-
nefndur Þorsteinn Hjart-
arson er líklegastur til að
leiða listann, en hjónin
Ragnheiður Jónasdóttir
og Unnar Þór Böðvars-
son era einnig nefnd til
sögunnar. Þau sögðu sig
nýverið úr Alþýðubanda-
laginu. Enn er nefndur
Páll Skúlason kennari í
Biskupstungum. Málin
skýrast væntanlega fyrir
landsfund Þjóðvaka, sém
haldinn verður undir mán-
aðamótin...
Verðlisti
dagsins
Metsölupopparar nútímans
blikna í samanburði við gömlu
sígildu meistarana þegarfjár-
hæðir greiddar fyrir eiginhand-
arárituð handrit að verkum
þeirra eru skoðaðar. Lítum á
topp-sex-verðlista Sothebys
uppboðshaldaranna fyrir hand-
rit að sígildum verkum:
1. Wolfgang Amadeus Moz-
art, 284 milljónir (1987),
safn af sinfóníum hans.
2. Robert Schumann, 185
milljónir (1994), önnur sinfón-
ían.
3. Ludwig van Beethoven,
142 milljónir (1991), Píanó-
sónata í E-moll, Ópus 90.
4. Robert Schumann, 99
milljónir (1989), eina fullklár-
aða útgáfan að Píanó-konsert í
A-moll, Ópus 54. .
5. Igor Stravinsky, 37 millj-
ónir (1982), fyrsta útgáfa af
verkinu The Rite of Spring.
6. Franz Joseph Haydn, 18
milljónir (1993), ófullkláraði
strengjakvartettinn Missa: Sunt
Bona Mixta Malis, Ópus 103.
Mozart: Metsala.
Fimm á förnum vegi Fylgdist
þú með prófkjöri Alþýðuflokksins á Reykjanesi? (Spurt í Reykjavík)
Margrét Sveinsdóttir nemi:
Nei, ég gerði reyndar ekki, en ég
hinsvegar ánægð með sigur Rann-
veigar.
Sverrir Guðjónsson söngvari:
Já, ég komst ekki hjá þvf og mér
finnst niðurstaðan rökrétt.
Unnar Ágústsson stöðuvörð-
ur: Já, það er betra að hafa Rann-
veigu í fyrsta sæti.
Kristján Kristjánsson sjómað-
ur: Já, það sem kom í íþróttafréttun-
um. Niðurstaðan er mjög ásættanleg.
Lúðvík Per Jónasson vélfræð-
ingur: Ég heyrði það sem kom í
fréttum og mér finnst niðurstaðan
góð fyrir flokkinn.
Viti menn
Eftir allt sem á undan er
gengið er augljóst að mín
staða er mjög sterk í þessu
kjördæmi. Það kemur
auðvitað mjög á óvart og
sérstaklega ánægjulegt að
þessi bylgja jafnaðarmanna
skuli hafa risið í Kópavogi og
haft jafnmikil áhrif á niður-
stöðuna og raun ber vitni.
Guðmundur Árni Stefánsson um
niðurstöður prófkjörsins í Reykjanesi.
DV í gær.
Snúlla slær íslandsmetið:
Mjólkar á við þrjár kýr.
Frétt í Mogganum á sunnudag af kúnni
Snúllu á Efri-Brunná í Saurbæ í Dölum.
Þegar ég fór að eiga við sæng-
urfötin var augljóst að þar
höfðu sofið tvær manneskjur.
Á koddanum var sítt ljóst hár
og á lakinu var sönnunargagn
þess að einhverskonar
„virkni“ hafði átt sér stað.
Dagbókarbrot Wendy Berry ráðskonu
breska kóngafólksins. Þar segir frá
framhjáhaldi Díönu prinsessu og
James Hewitt. DV í gær.
Mao Tse-hvað?
Fyrirsögn fréttar í Mogganum á
sunnudag þarsem segir frá takmark-
aðri þekkingu kínverskra skólabarna
á Maó heitnum formanni.
Hvernig getur heiðarlegur
alþingismaður eða formaður
í stórum stjórnmálaflokki
staðið fyrir framan kjósendur
og hvatt þá til löghlýðni þegar
þeir sjálfir eru staðnir
að siðleysi sem gerir þá
aumkunarverða og
berskjaldaða?
Ellert B. Schram í leiðara DV í gær þar-
sem hann gagnrýnir harðlega þá lands-
byggðarþingmenn sem skrá lögheimili
sitt úti á landi til þess að fá hærra kaup.
Veröld ísaks
Þrátt fyrir að allur þorri fólks haldi
ef til vill annað, þá gerði Banda-
ríkjamaðurinn Thomas Alva Edi-
son aðeins eina hreina vísindalega
uppgötvun; „Edison áhrifin“ (Edi-
son effect). Uppgötvunin snerist um
flæði rafstraums um lofttæmi. Edi-
son fékk einkaleyfi á uppgötvun-
inni, en gat ekki fundið nokkurt
notagildi fyrir hana og fór svekktur
að vinna að öðram hlutum. Edison
áhrifin vora hinsvegar síðar notuð
til að leggja grunninn að uppbygg-
ingu alls rafeinda-iðnaðarins - út-
varps, sjónvarps og það allt saman.
Úr staðreyndasafnlnu Isaac Asimov's
Book of Facts eftir samnefndan höfund
næstum tvöhundruð vísindaskáld-
sagna.