Alþýðublaðið - 24.01.1995, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 24.01.1995, Blaðsíða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1995 Rannveig Guðmundsdóttir fagnar sigri með stuðningsmönnum sinum í Hamraborg, félagsmiðstöð jafnaðarmanna í Kópavogi. A- myndir: E.ÓI. Uppsöfnuð atkvæði frambjóðenda í sæti, lokatölur: 12 3 4 Rannveig Guðmundsdóttir: 4535 6266 6959 7527 Guðmundur Arni Stefánsson: 3701 4679 5317 5927 Petrina Baldursdóttir:__________233 2940 5083 6521 Hrafnkell Oskarsson: 171 1646 3350 5046 Elín Harðardóttir: 566 2087 3833 Gizur Gottskálksson: 811 1954 3254 Garðar Smári Gunnarsson: 21 526 1406 2764 Samtals: 8717 17434 26156 34872 Ég kem ekki inn f þessa baráttu fyrr en í desember, þegar útséð er um að nokkur annar al' Keflavíkur-Njarð- víkur svæðinu gefi kost á sér. Ég hef því ekki haft tök á því að kynna mig mjög vel í stórum bæjarfélögum sem ráða úrslitum, nema það að ég bjó í Hafnarfirði fyrir tuttugu árum. Ég reyndi heldur ekkert sérstakt til að kynna mig, var ekki með opna skrif- stofu, né heldur sendi ég út bæk- linga, eins og um var samið. Það sem vekur athygli er gríðarleg þátttaka í Kópavogi og Grindavík og Garða- bærinn skilaði sér líka vel. Hluti af skýringunni er vitaskuld persónu- fylgi Rannveigar í Kópavogi og verðum við að vona að þetta skili sér í atkvæðum fyrir flokkinn í kosning- unum. Það sama er auðvitað uppi á teningnum í Grindavík. Annars er þetta prófkjör góð byrjun á öflugri kosningabaráttu.“ Gífurlega fjölsótt prófkjör Rannveig Guðmundsdóttir Glaðværð og blrta „Ég er ákaflega þakklát og glöð yfir því trausti sem mér er sýnt að Ari Skúlason, hagfræðingur Alþýðusambands íslands óskar Rannveigu til hamingju með sigurinn. Petrína Baldursdóttir Fyrsti Grind- víkingurinn „Ég er ofboðslega ánægð með mína útkomu. Ég fékk mjög góðan stuðning í mitt sæti. Einnig held ég að þessi gífurlega þátttaka sýni styrk flokksins í kjördæminu. I mínum heimabæ, Grindavik, tók rúmur helmingur manna á kjörskrá þátt í prófkjörinu, eða 751 af rúmum tjór- tánhundruð. Það er ljóst að Grind- víkingar kusu með það í huga að styðja mig. Ég er fyrsti Grindvíking- urinn sem tek sæti á Alþingi sem fastamaður og því er eðlilegt að bæj- arbúar vilji halda sínum þingmanni." á kjörstað og raða sfnu fólki í fjögur efstu sætin. í öðru sæti varð Guð- mundur Arni Stefánsson alþingis- maður, í því þriðja Petrína Baldurs- dóttir alþingismaður og fjórða sætið féll í skaut Hrafnkatli Oskarssyni skurðlækni (sjá nánar meðfylgjandi töflu). Alþýðublaðið náði tali af fimm frambjóðendur í prólkjörinu, þau Elínu Harðardóttur mat- reiðslumann, Petrínu, Rannveigu, Garðar Smára Gunnarsson verk- stjóra og Hrafnkel, og spurði þau út í úrslitin. Ekki náðist í Guðmund Arna Stefánsson, né Gizur Gott- skálksson lækni, þar eð þeir eru báð- ir erlendis Eiín Harðardóttir Stærsta prófkjör kjördæmisins , Já, ég er sátt við mína útkomu í þessu prófkjöri. Ég gaf kost á mér í þriðja til fjórða sæti, því það var nú einungis kosið um íjögurefstu sætin. Það eru þrír þingmenn í þremur efstu sætunum og maður reiknaði heldur með því að það færi þannig svo ég held að maður geti bara verið ánægður. Þessi gríðarlega góða þátt- taka er sterk fyrir flokkinn. Nú vonar maður bara að þetta skili sér í kosn- ingunum. Þetta er lang stærsta próf- kjör sem nokkur flokkur hefur haft í prótkjörinu og það hefur sitt að segja.“ Garðar Smári Gunnarsson Sameinumst um listann „Það er ekkert launungairnál að ég vonaði að Guðmundur Ami næði fyrsta sætinu. Hvað varðar mitt framboð, þá renndi ég blint í sjóinn. Ég hafði enga vél á bak við mig heldur bara mig sjálfan. Ég átti von á því að ég fengi flest atkvæðin mín úr Hafnarfirði og eftir lokatölum að dæma virðist það einmitt hafa verið raunin. Við Elín erum auðvitað bæði úr Hafnarfirði og tökum sjálfsagt talsvert hvort frá öðm. Það er eðli- legt að þátttakan í prófkjörinu sé svona góð miðað við þá baráttu sem var í gangi. Vonandi skilar þetta sér sem mest í kjörkassana í vor. Ég fer ekki í neina fýlu þó ég hafi orðið neðstur í þessu prófkjöri og ég á ekki Ys og þys í talningarmíðstöð prófkjörsins, sem staðsett var í húsnæði Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. von á öðru en að jafnaðarmenn í Reykjaneskjördæmi sameinist um þennan lista.“ Hrafnkell Óskarsson Mjög ánægður „Ég er mjög ánægður með mína útkomu í þessu prófkjöri og ég held að þetta sé sterk uppröðun á listann. vera valin til forystu fyrir jafnaðar- menn í Reykjaneskjördænti. Ég keppti að fyrsta sætinu og hafði al- veg eins búist við því að ná því ekki, þannig að gleðin er jafnvel meiri fyr- ir vikið. Ég vil koma á framfæri þakklæti til stuðningsmanna minna og í dag er mér efst í huga sú glað- værð og birta sem einkenndi baráttu þeirra. Fyrirfram var búist við þvt' að það yrði þungur hjá mér róðurinn, því er ég sérstaklega glöð yfir þátt- tökunni í Kópavoginum og hlýt að taka hana sem svo að Kópavogsbú- um finnist það einhvers virði að þeirra maður sé í forystu í kjördæm- inu. Við vorum ákveðin f að hafa þetta prófkjör opið til að hefja hina öflugu kosningabaráttu sem er fram- undan hjá okkur jafnaðarmönnum. Ég geng nú til verka sem forystu- maður og ég mun sækja fram af miklum krafti." Rannveig Guðmundsdóttir fé- lagsmálaráðherra mun leiða fram- boðslista jafnaðarmanna í Reykja- neskjördæmi í vor. Það varð ljóst í fyrrakvöld eftir öruggan sigur henn- ar í einu fjölsóttasta prófkjöri fyrr og síðar í kjördæminu. Tæplega níu þúsund manns sáu ástæðu til að fara [INNKAUPASTOFNUN IREYKJAVÍKURBORGAR Utboð F.h. Byggingadeíldar borgarverkfrædings er óskað eft- ir tilboðum í vidhald raflagna í nokkrum grunnskólum Reykjavíkur. Útboðsgögn verða seld á kr. 1.000,- á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík. Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 8. febrú- ar 1995, kl. 14.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800 Sá kann ei gott að þiggja sem ei þakkar Jón E. Guðmundsson listamaður þakkar öllum þeim sem gerðu honum 80 ára afmælisdaginn svo ógieymanlegan. Hugheilar kveðjur, Jón E. Guðmundsson. iHiiiit Verkamannafélagiö Dagsbrún Leiðbeiningar við framtalsgerð Verkamannafélagið Dagsbrún gefurfélagsmönnum sínum kost á leiðbeiningum við gerð skattframtals helgina 4.-5. febrúar 1995 með sama hætti og undanfarin ár. Þeir, sem huga hafa á þjónustu þessari, eru beðnir um að hafa sam- band við skrifstofu Dagsbrúnar, sími 25633, og láta skrá sig til viðtals eigi síðar en 3. febrúar nk. Ekki er unnt að taka við beiðnum eftir þann tíma. Verkamannafélagið Dagsbrún.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.