Alþýðublaðið - 24.01.1995, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 24.01.1995, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1995 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5 Stefanía Þorgrímsdóttir sagði sig úr kjörnefnd Alþýðubandalagsins í Reykjavík vegna óeðlilegra vinnubragða og afskipta flokksforystunnar. í viðtali við Sæmund Guðvinsson segir Stefanía tilganginn með samstarfi Alþýðubandalagsins og „óháða safnaðarins“ augljósan ■ ■ Ogmundur og Bryndís skiptimynt í draumastjóm Olafs Ragnars Stefanía: Ég ætla ekki að vera frillan í stormasömu hjónabandi forystumanna Alþýðubandalagsins. A-mynd: e.ói. „Það eru þrjár meginástæður fyrir því að ég sagði mig úr kjörnefnd Al- þýðubandalagsins í Reykjavík. í fyrsta lagi var kosin sex manna kjör- nefnd sem hafði það hlutverk að semja reglur fyrir opið prófkjör og sjá um framkvæmd á því. Nefndin hafði jafnframt heimild til að kanna aðrar leiðir en prófkjör ef það kæmi upp breyttar forsendur af einhverju tagi, sent ekki var nánar skilgreint. Eg tel að kjörnefndin hafi yfirhöfuð ekkert unnið að því sem henni var uppálagt en þess í stað leitað uppi strax á sínum fyrstu fundum breyttar forsendur í líki Ögmundar Jónas- sonar og síðan unnið út frá þeitxi hugmynd alla tíð. Prófkjör varð strax aukaatriði. Ég tel að kjörnefndin hafi ekki haft neina heimild frá kjördæmisráði til að vinna eins og hún gerði og var alla tíð ósátt við það,“ sagði Stefan- ía Þorgrímsdóttir þegar hún var spurð um úrsögn hennar úr kjör- nefnd Alþýðubandalagsins í Reykja- vík. „I öðm lagi var ég ákallega lítið hrifm af því að hlusta á Guðrúnu Helgadóttur stilla upp fyrstu fjórum sætunum á væntanlegan lista í beinni útsendingu frá Alþingishúsinu. Fyrst sú aðferð var síðan samþykkt af meirihluta kjördæmisráðs var raunar ekkert með kjömefnd að gera og Guðrún hefði svo sem getað mbbað upp restinni af listanum. Ég tel að vinnubrögð nefndarinnar sjálfrar framanaf hafi verið óeðlileg miðað við það umboð sem hún hafði. Einn- ig tel ég að bæði Guðrún Helgadóttir og fleiri af foringjum fiokksins hafi fjarstýrt gangi mála allan tímann," sagði Stefanía. Draumaríkisstjóm Alþýdubandalagsins „í þriðja lagi þá tel ég að allur þessi málatilbúnaður hafi í rauninni verið fyrirfram ákveðinn af forystu flokksins. Þetta hafi verið gert í því augnamiði að ná fulltrúum ASI og BSRB inn á Iistann í eitthvert af fjór- um efstu sætum eins og raunin varð á, til að bjóða í skiptimynt í drauma- ríkisstjóm að loknum kosningum. Svavar: Fjarstýrði kjörnefnd Al- þýdubandalagsins i Reykjavík. Ólafur Ragnar Grímsson mun í langan tíma hafa látið uppi þá skoð- un að einhver eftirsóknarverðasta ríkisstjórn sem hægt væri að fá núna í stöðunni væri stjóm Alþýðubanda- lags og Sjálfstæðisflokks. Og það er staðreynd að strax síðastliðið sumar fóm á stað þreifmgar milli Svavars Gestssonar og Ögmundar. Ég bendi Ifka á að Bryndís Hlöðversdóttir. lögfræðingur ASl, er það sem kallað er hrein mey í pólitik. Hún er algjör- lega óreynd en er sett tafarlaust í 2. sætið.“ Hvert var hlutverk oddvita list- ans, Svavars GesLssonar, í þessu máli? „Ég tel að Svavar hafi verið einn af þcim sem fjarstýrðu þessari nefnd allan tímann. Hann gerði það með þeim hætti að hluti nefndarfólks hafði ekki hugmynd unt þá fjarstýr- ingu.“ Hverjir skipuðu kjörnefndina? „Ég var þarna sem fulltrúi Sósíal- istafélags Reykjavikur, Guðrún Sigurjónsdóttir frá Æskulýðsfylk- ingunni, Árni Þór Sigurðsson og Ástráður Haraldsson frá ABR, Gísli Gunnarsson Birtingu og Þor- steinn Óskarsson frá Framsýn. Kjömefnd hefur alltaf verið skip- uð fimm mönnum. Þegar kosið var í nefndina á kjördæmisráðsþingi í haust var ég boðin fram af fulltmum Sósíalistafélagsins. Ýntsar mótbárur vom hafðar frammi við þá tilnefn- ingu en þegar ljóst var að ég myndi njóta meiri stuðnings en Þorsteinn Oskarsson og trúlega fella hann var fjölgað upp í sex í nefndinni. En þar með fengu líka öll þau félög fulltrúa sem eiga aðild að kjördæmisráðinu. Hins vegar er síðan þrætt fyrir það bæði af kjördæmisráði og flokksfor- ystu að við í kjömefndinni séum full- trúar einhvema hópa innan Alþýðu- bandalagsins. Við séum þarna bara öll sem Alþýðubandalagsfólk. Það cr því mjög einkennileg staða að það skuli vera kosið í kjömefndina til þess að allir hópar eigi þar inni sinn fulltrúa, sem að sjálfsögðu vinna að því að koma fólki úr sínum röðum inn á listann, en gagnvart Sósíali- stafélaginu hafður uppi sá málfiutn- ingur að félögin eigi ekki rétt á nein- um nöfnum þarna inn því við séum öll aðeins Alþýðubandalagsfólk. Vinnubrögðin hafa verið ákaflega ruglingsleg, að ég ekki segi furðuleg. Þótt kjömefndin hafi útaf fyrir sig viljað vinna þokkalega heiðarlega að málum í samræmi við sitt umboð þá var á einum fundi komið upp allt annað sjónarmið en á næsta fundi á undan. Ástæðan er einfaldlega sú að þá var búið að kippa í spottana," sagði Stefanía ennfremur. Ekki hugsad mér ad vera frillan „Varðandi það hvort Svavar Gestsson hafi leikið tveimur skjöld- um í þessu máli þá ætla ég að koma með samlíkingu varðandi mat mitt á ástandi flokksforystunnar í Alþýðu- Bryndís: Hrein mey í pólitík en lög- fræðingur ASÍ. bandalaginu, alla vega í Reykjavík og á Reykjanesi: Ég álít að flokks- forystan þar sé í ákafiega góðu hjónabandi þar sem er rifist og gefn- ir pústrar við og við en skriðið upp í hjónasængina að lokum og einkum þegar mikið liggur við að ná sáttum. Það er sjálfsagt bara gott og blessað l'yrir Alþýðubandalagið að halda flokksforystunni í hjónabandi með þeint aðferðum. En ég hefekki hugs- að mér að vera frillan í hjónaband- inu. El' einhverjir aðrir vilja gegna því hlutverki að vera frillan er það þeirra mál en ég stend ekki í svoleiðis. Það er kannski megin- ástæðan fyrir því að ég sé enga ástæðu tii að vinna í kjörnefndinni. Ég er ekki tilbúin til að vera opin- bert eða óopinbert handbendi ein- hverra." Finnst þér flokksfólk hafa verið svikið í þessu máli? „Ég tel það alveg tvímælalaust eft- ir að kjördæmisþing er búið að sam- þykkja í haust að hafa opið prófkjör. Það er mikið nýmæli í Alþýðu- Guðrún: Skipaði framboðslista Al- þýðubandalagsins í beinni útsend- ingu. bandalaginu að standa þannig að málum. Síðan er þessi aðferð við- höfð og í þokkabót er flokksmönn- um ekki einu sinni gefinn kostur á að nefna flokksfólk inn á þennan lista. Það er bara kjömefndin og eitthvert huldufólk úti í bæ sem gerir það. Ég lel þetta svik við hinn almenna flokksmann og bendi á að innan Al- þýðubandalagsfélags Reykjavíkur og víðar er allt í bullandi upplausn eftir þessar aðfarir," sagði Stefanía Þorgrímsdóttir. „Hvað varðar þessa sameiningu óháða safnaðarins hans og Ögmund- ar og Alþýðubandalagsins þá bendi ég á það að það er samþykkt á kjör- dæmisráðsþingi 15. desember að handraða á lista. Það er með þessum fjórum nöfnurn: Svavar Gestsson, Bryndís Hlöðversdóttir, Ögmundur Jónasson og Guðrún Helgadóttir í efstu sætum. Þetta er gert án þess að Ögmundur sé búinn að gefa formlegt svar, sem hann ætlaði síðan að gefa 18. janúar en ekki varð, og óháði Ólafur Ragnar: Telur ríkisstjórn Al- þýðubandalags og Sjálfstæðis- flokks vera besta kostinn. söfnuðurinn var ekki til í neinu formi á þessum tíma. Það var því býsna hlálegt að heyra talað um einhverja samfylkingu. Þetta var bara skrípaleikur. Ég hef ekkert á móti Ögmundi Jónassyni en að hann hafi verið með einhverja fylkingu með sér til samstarfs við Álþýðubandalagið er bara hreint kjaftæði. Ef um samfylkingu tveggja afla væri að ræða þá væri eðlilegt að hreyfa því máli hvem- ig ætti að skipta kostnaði við kosningabaráttunni. Mér vitan- lega hefur ekki verið hreyft við því máli, en það hafa heyrst kostn- aðartölur uppá einar tíu milljónir króna. Mér er sama þótt þær væru bara fimm milljónir. Ég spyr sem fyrrverandi kjörnefndarmaður hvemig eigi að skipta þessum kostn- aði milli Alþýðubandalagsins og óháða safnaðarins." Ætlar þú að starfa áfram innan Alþýðubandalagsins? „Ég er fulltrúi í kjördæmisráði og Ögmundur: Var úthlutað sæti á framboðslista Alþýðubandalags- ins löngu áður en óháði söfnuður- inn varðtil. ég ætla að mæta á fund sem boðaður er í ráðinu á þriðjudaginn (í dag) og eftir þann fund mun ég meta fram- haldið. Ég er náttúrlega fyrst og fremst félagi í Sósíalistafélaginu sem á aðild að Alþýðubandalaginu. Það er ekkert launungarmál að ég er fé- lagi í Sósíalistafélaginu fyrst og fremst vegna þess að ég álít Alþýðu- bandalagið í heild hafa f'ærst ekki frá vinstri til hægri heldur frá miðju til hægri. Fyrir mér var þetta kannski spuming um samstarf Sósíalistafé- lagsins og Alþýðubandalagsins og að Sósíalistafélagið gæti haft mann- bætandi áhrif á Alþýðubandalagið. Ekki veitir af.“ Þad fer ekkert starf fram innan flokksins „Ég tek bara undir með Álfheiði Ingadóttur sent sagði í Alþýðuhlað- inu að það færi ekkert starf fram inn- an Alþýðubandalagsins. Og það er bágt til þess að vita að það litla starf sem fer fram er heldur til ógagns og upplausnar. En þeir virðast starfa eft- ir þeim nótum að það sé betra að gera illt en ekki neitt þá loksins þeir reyna að gera eitthvað." Hvað áttu við með því? „Dropinn sem fyllti mælinn og varð til þess að ég sagði mig úr kjör- nefndinni þann 12. janúar voru til- tekin atvik. Þar var komið störfum kjömefndar að farið var að eiga við þau sæti sem ekki var búið að taka frá með dularfullum hætti. Ég fór þess á leit að fulltrúi Sósíalistafé- lagsins, Þórir Karl Jónsson, vara- fonriaður Iðnnemasambandsins, fengi 5. sætið. Því var ekki tekið illa og ég taldi að fyrir þessu lægi mjög ákveðinn stuðningurþeirra sem hafa verið að stilla upp utan nefndarinnar. En þeir ágætu menn höfðu víst lofað uppí ermina því það var búið að bjóða nokkuð mörgum þetta sæti. Það var farið út í ósköp bamalegt plott á Bylgjunni gagngert til að sverta Þóri Karl. Notaðar vom bamalegar og dónalegar aðferðir sem áttu að miða að því að halda honum frá listanum án þess að ég gengi úr kjömefndinni. Ég einfaldlega nenni ekki að standa í svona vitleysisvinnubrögð- um. Það var mjög leikið tveimur skjöldum í þessu máli gagnvart mér og Þóri Karli. Ég ræddi við Svavar um þessa skipan í 5. sætið og tel að hann hafi heitið fullunt stuðningi við málið. Daginn eftir var frétt á Bylgj- unni um málið en þar var farið kolr- angt með staðreyndir. Mér er sagt að þessi leki hafi komið frá ábyrgum aðilum í kjömefndinni. Mér var nóg boðið. Ekki bara hvemig farið var með fulltrúa Sósíalistafélagsins heldur vom vinnubrögðin svo fárán- leg að ég tel mig of greinda mann- eskju til að vinna með fólki sem fer svona heimskulega að ráði sínu, fyr- ir utan siðleysið. Ég sagði mig form- lega úr kjörnefndinni," sagði Stefan- ía Þorgrímsdóttir. Vinningstölur laugardaginn: 21.jan. 1995 j Aðaltölur: 16 23 24 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING BÓNUSTALA: EB5 af 5 o | 4.463.096 O CO g+4af5 5 | 90.960 Heildarupphæð þessa viku: R1 4 af 5 109 7.190 kr. 7.501.306 Qj 3af 5 4.285f 420 UPPLÝSINGAR, SÍMSVARI 91- 68 15 11 LUKKULINA 99 10 00 - TEXTAVARP 451

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.