Alþýðublaðið - 24.01.1995, Page 7
ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
Reynið nú að troða þessu inní
hausinn á ykkur í eitt skipti fyrir
öll: Lögreglan er ekki staðsett
þarna til að skapa upplausn, held-
ur til að viðhalda upplausn.
Richard Daley, borgarstjon Chicago.
Sestu niður og farðu út.
Borgarstjóri í Birmingham við óstýrilátan
borgarfulltrúa.
Hann lifir Iangt uni efni fram,
en hann hefur efni á því.
Samuel Goldwyn.
Ekki yrða á mig á meðan
ég er að trufla.
Michael Curtiz.
Ef ég segi ósatt þá er það bara
vegna þess, að ég held mig vera að
segja sannleikann.
Phil Gaglardi, umferðarmálaráðherra
Bresku Kólumbíu í Kanada.
Hvað var Watergate?
Smávegis hieranir!
Richard Nixon.
Jæja, David, drýgðirðu hór með
einhverjum dömum um helgina?
Richard Nixon, við kvennagulhð
David Frost skömmu fyrir sjónvarpsviðtal
við Nixon í þætti Frost.
Ef glæpum myndi fækka
um 100 prósent væru þeir
samtsem áður fimmtíu sinnum
tíðari en eðlilegt er.
John Bowman, borgarfulltrui í Washington,
um hina háu glæpatíðni í borginni.
Sumir þáttanna hafa vitaskuld
verið Ieikræn meistaraverk, en
það eina sem við fáum hinsvegar
að sjá er hin neikvæða hlið
kiarnorkustyrjaldar.
Barry Goldwater, bandarískur öldunga-
deildarþingmaður, í umræðum um sjónvarps-
þætti um kjamorkustyrjöldina.
Ég var ekki að ljúga, heldur
sagði ég hluti sem síðar meir
virtust vera ósannir.
Richard Nixon, í blaðaviðtali
um Watergate árið 1978.
Allir þeir sem berjast fyrir
frjálsum fóstureyðingum voru
einhvern tímann fóstur.
Peter Grace, bandarískur stjórnmálamaður,
í inngangi að ræðu fyrrverandi forseta
Bandaríkjanna, Ronald Reagan.
Ég tek snjallan heimskingja
fram yfir heimskan snilling
hvenær sem er.
Samuel Goldwvn.
við öll mín mismæli“
Steinþegiði! Þið eruð alitaf
að trufla mig á meðan ég er
að gera mistök.
Michael Curtiz.
Okkur fannst orðið „dráp“ hafa
of víðtæka merkingu.
Útskýring talsmanns bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins á afhverju orðið „dráp“ var
tekið útúr mannréttindaskýrslum og „ólögleg
eða gerræðisleg svipting lífs“ sett í staðinn.
Þetta er stórkostiegur dagur
fyrir Frakkland!
Richard Nixon, við útför Charles de Gaulle.
Leyndarmálið á bak við sigur-
tímabil er að fjölga sigrum og á
sama tíma fækka töpum.
John Lowenstein, bandarískur
ruðningsleikmaður.
Það reyndist nauðsynlegt
að leggja þorpið í rúst til að
bjarga því.
Yfirmaður í bandaríska hemum
í Víetnam-stríðinu.
AHri heilbrigðisaðstoð til yðar
verður hætt frá og með
24.09.1984 vegna dauða yðar.
Bréf frá hcilbrigðisyfirvöldum í Iowa.
Vissulega voru þetta mikil mistök.
Það sýnir ákveðinn skort á kurt-
eisi að drepa fólk þegar páfinn
biður okkur um að gera það ekki.
Embættismaður í Gvatemala um aftökur á
pólitískum föngum skömmu fyrir opinbera
heimsókn páfans til landsins.
Díoxíð-eitrun hefúr yfirleitt ekki
alvarlegar afleiðingar á heilsu
fólks, en hún gæti verið banvæn.
Skýrsla frá Dow Cfiemical-efnafyrirtækinu.
Og það sem er mest um vert:
Eg er sammála öllu því sem
ég hef sagt.
Piet KoorhofT sendiherra Suður-Afríku
í Bandaríkjunum.
Það ríkir ekki ritskoðun í
Suður-Afríku. Það sem við höfum
gert er að takmarka það sem
dagblöðin geta sagt frá.
Louis Nel, fyrrum upplýsingaráðherra
Suður-Afríku.
Gerald Ford var kommúnisti.
Ronald Reagan í ræðu. Hann gaf síðar til
kynna að hann ætlaði að segja þingmaður
(Congressman varð Communist).
Kallið þér þetta handrit? Látið
mig fá nokkra 5000- dollara-á-
viku-handritshöfunda og ég skal
skrifa þetta sjálfur.
Joe rasternak.
Við erum ekki tilbúin til að takast
á við nokkurn ófyrirsjáanlegan
atburð, sem á - eða á ekki - eftir
að gerast.
Dan Quayle í blaðaviðtali.
Það þarf að vernda heiðarlega
kaupsýslumenn fyrir hinum ófyr-
irleitna almúga.
Lester Maddox, þáverandi ríkisstjóri Georg-
íu, um afhverju Georgía ætti ekki að koma
sér upp neytendasamtökum.
Fjöldi fólks á mínum aldri er
dáið um þetta leyti.
Casey Stengel, bandarísk hafnaboitahetja.
Ég girnist Pólverja líkamlega.
Röng þýðing yfirlýsingar í ræðu Jinimy
Carter, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, í
Póllandi árið 1977.
Ég á í skilgreiningalegum
vanda með orðið „ofbeIdi“. Ég
veit eiginlega ekki hvað orðið
„ofbe!di“ þýðir.
William Colby, forstjóri CIA.
Það eru ekki mínir útreikningar
sem ég byggi mál mitt á. Þeir
koma frá aðila sem veit hvað
hann er að gera.
Bandarískur þingmaður í umræðum.
Gagnvart mér eruð þið öll
hamingjusamir útilegumenn
(happy campers). Hamingjusamir
útilegumenn eruð þið, hamingju-
samir útilegumenn hafið þið verið
og hvað mig varðar, þá verðið
þið alltaf hamingjusamir
útilegumenn.
Dan Quayle, í ræðu sem hann hélt yfir hópi
Samóa á ferðalagi sínu um KyrrahaFið.
Rétturinn til að þjást er
eitt af gleðiefnum hins frjálsa
markaðskerfis.
Howard Pyle, aðstoðarmaður Dwight
Eisenhower - forseta Bandaríkjanna, um
atvinnuástandið í Detroit.
Ef enskan var nógu góð fyrir
Jesú Krist, þá er hún nógu
góð fyrir mig.
Bandarískur þingmaður í samtali við doktor
David Edwards, forstöðumann alríkisnefnd-
ar um málnotkun, um þá nauðsyn viðskipta-
sinnaðrar þjóðar að hafa tök á nokkrum
tungumálum.
Auðvitað lít ég út fyrir að vera
einsog hver annar hvítur maður.
En hjarta mitt er jafn svart og
hvers annars hér inni.
George Wallace, forsetaframbjóðandi í
Bandaríkjunum, í kosningaræðu sem hann
hélt yfir þeldökkum hlustendum.
Það sem hann gerir í frítíma
sínum er algjörlega undir
honum komið.
Harlon Copeland, lögreglustjóri í Texas,
þegar undirmaður hans var gripinn við að
bera sig fyrir framan böm.
Kína er víðfeðmt land og þar
búa margir Kínverjar.
Charles de Gaulle.
Misrétti er ómissandi hluti af
stórfengleika Bandaríkjanna. Að
rnínu mati fæðir ranglæti af sér
frelsi og færir fólki tækifæri sem
það annars hefði ekki.
Lester Maddox, fyrrverandi
ríkisstjóri Georgíu.
Ég fer aldrei í nýtt par af
skóm fyrr en ég hef gengið í
þeim í iimm ár.
Samuel Goldwyn.
Við bjóðum fram flokkinn einsog
risavaxið tjald. Hvernig við ger-
um það innan stefnuskrár okkar,
í inngangi stefnuskrár okkar, eða
hvernig sem það nú verður, það á
eftir að koma í Ijós. En þeim
skilaboðum verður að koma til
skila á stórkostlega skýran hátt.
Dan Quayle.
Flugræningjum á að veita snögg
réttarhöld samkvæmt lögum og
reglum á viðkomandi flugvelli og
síðan á að hengja þá.
Edward Davis, lögreglustjóri
Los Angeles árið 1973.
Ég hef fundið fyrir
Bandaríkjamcnn hvar sem ég
hef ferðast um þetta land.
Alf Landon, í ræðu sem hann flutti í forseta-
kosningabaráttu sinni gegn Franklin Delano
Roosevelt.
Á meðan þið eruð fjarverandi
munu kvikmyndastjörnur taka
konur ykkar; Robert Redford er
á stefnumóti með unnustum ykk-
ar, Tom Selleck kyssir dömurnar
ykkar og Bart Simpson hefur
samfarir við eiginkonur ykkar.
Bugdud Betly, íraskur útvarpsmaður,
til hermanna í Persafióastríðinu.
Gil Hodges er svo sterkur að
hann gæti rifið augnabrúnir þín-
ar af með einu handtaki.
Casey Stengel, bandariskur
hafnaboltaþjálfari.
Einn maður getur ekki verið á
tveimur stöðum samtímis - nema
hann sé fugl.
Boyle Roche lávarður.
Það væri góð hugmynd ef þér
tækjuð með yður bankabókina
niður í kjarnorkubyrgið.
Bandarisk aðvörun vegna
kjamorkustyrjaldar.
Sástu andlit mitt greinilega
þegar ég stal af þér töskunni?
Meintur þjómr (sem sá sjálfur um málsvöm
sína í réttarhöldum þar sem hann var ásakað-
ur um töskuþjófnað) við meint fómarlamb
sitt. Hann hlaut tíu ára fangelsisdóm.
Þegar mig vanhagar um álit
yðar, þá læt ég yður vita hvað
það á að vera.
Saniuel Goldwyn, við ungan
handritshöfund.
Þetta eru mestu hörmungarnar
sem hafa dunið á Kaliforníu síðan
ég var kosinn.
Pat Brown, ríkisstjóri Kalifomíu,
um gríðarleg flóð.
Þessi tegund vopns getur haft
áhrif á íbúafjöldann í heild sinni.
Ronald Reagan.
Lítil tekjuinnkoma virðist
vera lykilástæðan fyrir því að
einhver sem venjulega vinnur
fullan vinnudag kemur frá
fátækri fjölskyldu.
Niðurstöður skýrslu um fátækt
í Bandaríkjunum.
Eg fékk frábæra hugmynd í
morgun, en mér geðjaðist
ekki að henni.
Saniucl Goldwyn, við aðstoðarmann sinn.
- sagði Quayle,
varaforseti
Bandaríkjanna,
kokhraustur við
fréttamenn sem
gagnrýndu hann
fyrir að verða í
sífellu fótaskortur
á tungunni...
Það er á engan hátt mögulegt fyr-
ir manneskju að vera á tveimur
stöðum samtímis, sérstaklega ekki
ef miklar fjarlægðir eru á milli.
Amado Guerrero, mexíkanskur dómari, um
Ijarvistarsönnun sakbomings.
Ég vil láta bóka það, hcrra forseti
borgarstjórnar, að öll siökkvitæki
verði skoðuð tíu dögum fyrir
hvern einasta bruna.
Bandarískur borgarfulltrúi í umræðum.
Þessi gríðarlega óvcnjulegi maður
skildi engin börn eftir sig, nema
bróður sinn, sem var drepinn á
sama tíma.
Æviágrip Robespierrre, fransks byltingar-
manns, sem birtist í írsku dagblaði á 19. öld.
Ég vil ganga úr skugga um, að
allir þeir sem hafa atvinnu vilji
í raun hafa atvinnu.
George Bush, í sinni fyrsti
forsetakosningabaráttu.
Forsetinn vill ekki hafa já-menn
eða já-konur í kringum sig.
Þegar hann segir nei, þá
segjum við öll nei.
Elizabeth Dole, blaðafulltrúi
Ronald Reagan og síðar atvinnumálaráðherra
í stjóm George Bush.
Við erum um þessar mundir,
að reyna ná atvinnuleysis-
prósentunni upp. Eg hcld
okkur muni takast það.
Ronald Reagan.
Eina ieiðin til að stöðva þess
bylgju sjálfsmorða er að gera þau
að stórglæp og refsa fyrir með
dauðarefsingu.
írskur þingmaour.
Það skiptir engu máli hvað
hann leggur fyrir sig, það verður
aldrei neitt úr honunt.
Einn al' kennurum Albert Einstein, í áliti sínu
til föður Einstein um framtíð drengsins.
Læknarnir röntgenmynduðu á
inér hausinn og fundu ekkert.
Dizzy Dean, bandarískur hafnaboltaleikmað-
ur, um líðan sína eftir að hann fékk bolta í
höfuðið í úrslitakeppninni 1934.
Við gerum of mörg röng mistök.
Yogi Berra, um hversvegna Yankees töpuðu
úrslitakeppni hafnabolta árið 1960.
Ég held að hið frjálsa hagkerfi sé
of mikilvægt til að skiija það eftir
í höndum hins sjálfvirka og tilvilj-
anakennda markaðar.
Richard Kelly, bandarískur þingmaður.
Ég hef ekki á tilfmningunni, að
við höfum gert nokkuð rangt með
því að taka þetta stórkostlega
land frá þeim. Það var mikill
fjöldi fólks sem vantaði nýtt Iand
á þessum tíma, og indíánarnir
voru á eigingjarnan hátt að reyna
halda því útaf fyrir sig.
John Wayne, bandanskur leikari
í kúrekamyndum.
Vér erum fullkomlcga
meðvitaðir um samkynhneigðar-
vandamál karlmanna þessa lands
- það er vitaskuld minniháttar -
en vér erum hinsvegar þess full-
vissir að ekki cin einasta lesbía
fyrirfinnst á Englandi.
Chamberlain lávarður,
breskur stjómmálamaður.
Þetta er ekki spurning um
líf og dauða. Þetta er miklu
mikilvægara en það.
Lou Duva, um væntanlegan oardaga hans
við hnefaleikameistarann Mike Tyson.
Líkurnar á því að við vinnum
engan leik á þessu keppnistíma-
bili eru 999 á móti 100.
Bandarískur ruðningsþjálfari við íþrótta-
fréttamanninn Phil Pepe.
Náið þá í nokkra til viðbótar
af verndarsvæðinu.
Samuel Goldwyn, þegar honum var sagt að
í kúrekamynd sem hann var að framleiða
vantaði nokkra innfædda Bandaríkjamenn.
Hver sem er getur náð
kosningu sem ríkisstjóri.
Ég er lifandi sönnun þess.
Joe Frank Harris, ríkisstjóri Georgíu í tvö
kjörtímabil, í umræðum um hver myndi feta
í fótspor hans.
Vegna leiðinlegrar prentvillu
var Dukakis ríkisstjóri
rangnefndur í þriðju málsgrein
sem Mike Tyson.
Leiðrétting í bandarískri bók.
Aðvörun: Notist aldrei í svefni.
Aðvörun sem fylgdi bandarískri hárþurrku.
Almenningur getur farið til hel-
vítis! Ég er hingað kominn sem
fulltrúi fóiksins.
Öldungadeildarþingmaður frá
New Jersey í Bandaríkjunum.
Hclmingur lyganna sem
andstæðingarnir segja um
okkur eru ósannar.
Boyle Roche lávarður.
Ég segi þetta oft þrátt fyrir að ég
ætti kannski ekki að gera það:
Munurinn á nauðgun og tælingu
er sölumennska.
Bill Carpenter, borgarstjóri Independence
í Missouri, Bandaríkjunum.
Forsetanum er vel kunnugt um
það sem er á seyði. Eg er hinsveg-
ar ekki þar með að segja að eitt-
hvað sé á seyði.
Ron Ziegler, um þann orðróm að
Bandaríkjaher væri að gera árásir yFir
landamæri Laos.
Systir mín á von á barni og ég
veit ekki hvort ég er að verða
frændi eða frænka.
Chuck Nevit, bandarískur
körfuknattleiksmaður.
Það eina sem ég sé eftir,
er að heimsókn yðar hafi ekki
verið styttri.
Aberdeen lávarður, breskur
stjómmálamaður, að reyna vera
kumpánalegur við ríkisstjóra írlands sem
kom í heimsókn haustið 1911.
Staðreyndir eru heimskulegar.
Ronald Reagan, að vitna vitlaust í
John Adams í ræðu á þingi rcpúblikana.
Ron Ziegler: Þannig að þetta var á
heildina litið alveg frábært ár, ef
neikvæðu hliðarnar eru frátaldar!
Spyrjandi: Hvaða neikvæðu hlið-
ar? Ron Ziegler: Watergate!
Ron Ziegler, um afreksverk stjórnar Nixon.
Ég trúi því að við séum á leiðinni
til aukins frelsis og lýðræðis. Ég
trúi því einnig, að af þessari braut
verði ekki hægt að snúa. En það
gæti breyst!
Dan Quayle.