Alþýðublaðið - 22.02.1995, Side 4

Alþýðublaðið - 22.02.1995, Side 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1995 + MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1995 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5 Rannveig Guðmundsdóttir félagsmálaráðherra var formaður menningar- málanefndar Norðurlandaráðs í þrjú ár eða allt þar til hún tók við ráðherraembætti. Aukið samstarf Norðurlandanna á sviði vímuefnavarna og baráttu gegn kynþáttahatri og ofbeldi er meðal þess sem menningar- málanefndin mun leggja til á þingi Norðurlandaráðs um næstu helgi. Guðbjartur Finnbjörnsson ræddi við Rannveigu um málið Stórauknar varnirgegn vímuefnum, kynþáttahatri og ofbeldi Menningarmálanefnd Norður- landaráðs mun væntanlega flytja til- lögu á Norðurlandaráðsþinginu sem haldið verður í Reykjavík um næstu mánaðamót, um aukið samstarf Norðurlanda á sviði vímuefnavama og baráttu gegn kynþáttahatri og of- beldi. I tillögunni er sérstök áhersla lögð á að ná til barna og unglinga. Verður meðal annars lagt til að ár- lega verði varið fé til að framleiða kvikmyndir og útvarps- og sjón- varpsefni til að stuðla að jákvæðari og heilbrigðari ltfsviðhorfum ung- menna á Norðurlöndum. Rannveig Guðmundsdóttir fé- lagsmálaráðherra var formaður menningarmálanefndarinnar í tæp þrjú ár, eða þar til hún tók við starfi félagsmálaráðherra. A hún stóran þátt j að móta þessa tillögu. „A þeim tíma sem ég var formað- ur menningarmálanefndarinnar sam- þykkti ráðherranefnd Norðurlands- ráðs að leggja meiri áherslu á sam- starf á sviði menningar- og mennta- mála. Stefnt var að því að um helm- ingur fjárlaga Norðurlandaráðs færi til menningar, menntunar og rann- sókna,“ segir Rannveig. „Það hefur verið til framkvæmda- áætlun hjá Norðurlandaráði um sam- eiginlegar vímuefnavamir um langt skeið, en í fyrravetur vann laganefnd Norðurlandsráðs tillögu um nýja og aukna áætlun um samstarf landanna á þessu sviði. I framhaldi af tillögu laganefndar ákvað menningarmála- nefnd að vinna sína eigin tillögu um það hvemig nota mætti kvikmyndir og sjónvarpsefni til að ná til bama og unglinga með vímuefnavamir og til að reyna að spoma við kynþáttahatri og ofbeldi. Þess má geta að Norður- landaráð leggur einnig mikla áherslu á samvinnu á sviði kvikmynda og sjónvarpsframleiðslu. Segja má að með þessu sé verið að slá margar flugur í einu höggi. Vandaðar nor- rænar kvikmyndir eða fræðslumynd- ir má til dæmis nota við tungumála- kennslu í skólum auk þess sem við getum leitt bömin okkar til þeirrar hugsunar að beita ekki ofbeldi, leggja ekki einhvem í einelti eða neyta vímuefna og á sama tíma búa til góðar norrænar myndir sem hægt væri að sýna hvar sem er. Síðast en ekki síst er lögð áhersla á norræna samkennd. Norðurlöndin hafa sér- stöðu í heiminum vegna þess hve lýðræðisleg þau em, þar sem mann- eskjan er f fyrirrúmi og nýtur virð- ingar. Það er þetta sem við þurfum að kenna bömunum okkar,“ segir Rannveig. Ofbeldi orðid sjálfsagdur hlutur Ráðherrann segir að góð samstaða hafi verið í menningarmálanefndinni um tillöguna. Það átti að flytja hana á síðasta þingi Norðurlandaráðs sem haldið var í Tromsö í Noregi en sök- um anna vannst ekki tími til þess. „Mér finnst það leitt að hafa ekki Tökum notaða bíla sem greiðslu upp í nýja og bjóðum ýmsa aðra greiðslumöguleika. Tekið hefur verið tillit til vaxta í útreikningi á mánaðargreiðslum. ÁRMÚLA 13 • SÍMI: 568 12 00 • BEINN SÍMI: 553 12 36 LADA SPORT Frá 949.000,- kr. 237.250,- kr. út ocf, I 24.101,- kr. í 36 mánuði. Rannveig Guðmundsdóttir: Á einum áratug hefur ofbeldi aukist til muna í þjóðfétaginu og er umfjöllun um ofbeldi orðin þannig að fólk er farið að taka því eins og sjálfsögðum hlut. Þetta er það sem börnin okkar alast upp við. Það verður að spyrna á móti. getað fylgt þessu máli eftir, því það hefur verið mikið áhugamál mitt að koma þessari tillögu í höfn. En ég verð auðvitað á þinginu og gleðst mjög ef tillagan verður samþykkt. Þetta er nefndartillaga og ef hún verður lögð fyrir á þinginu er afar ólíklegt að hún verði ekki samþykkt. Mér finnst þetta mjög mikilvægt mál þó svo að það virki ekki stórt. Með því að samþykkja þessa tillögu emm við að sýna samvinnuna í verki og þurfum ekki að vera hver í sínu homi að kljást við þessi vandamál," segir Rannveig. Hún heldur áfram: „Það er þýðingarmikið að Norðurlöndin haldi áfram að vinna saman að þessu verkefni sem og öðmm. Þetta em lík þjóðfélög sem vilja meðal annars að fólk haldi mannlegri reisn. Þetta em þjóðfélög sem vilja að allir hafi vinnu, allir búi sómasamlega og bömin fái gott uppeldi, góða skóla- göngu og fái jöfn tækifæri óháð efnahag.“ Vímuefnaneysla, kynþáttahatur og ofbeldi segir Rannveig vera af- leiðingar einhvers konar vanlíðanar. „Boðskapurinn til bama hefur ef til vill ekki verið sá réttasti hingað til. Það em til dæmis mörg slæm skila- boð í sumum myndböndum og kvik- myndum sem böm og unglingar horfa á í dag. Það hefur ef til vill ekki reynt á útlendingahatur hér á Islandi en ég held að við íslendingar séum frekar umburðarlynd þjóð. Þó er al- veg Ijóst að bara á einum áratug hef- ur ofbeldi aukist til muna í þjóðfé- laginu og er umfjöllun um ofbeldi orðin þannig að fólk er farið að taka því eins og sjálfsögðum hlut. Þetta er það sem börnin okkar alast upp við. Það verður að spyma á móti þessu og koma með jákvæð skilaboð," segir Rannveig Guðmundsdóttir að lok- um. Höfundur er nemi í hagnýtri fjölmiölafræöi við Háskóla íslands. Kaffileikhúsið Kósýsló f gegn Hljómsveitin Kósý sló kyrfílega í gegn á sunnu- dagskvöldið í Kaffileik- húsinu í Hlaðvarpanum. Húsfyllir var og hver ein- asti stóll í húsinu setinn; fjöldi gesta þurfti að láta sér að nægja að standa uppá annan endann við veggi hússins. Stemmn- ingin þótti frábær og ætl- aði lófataki aldrei að linna í lok tónleikanna. Af þessum sökum verða tónleikamir endurteknir í kvöld, miðvikudag, klukkan 21:00 og er fólk hvatt til að hafa vaðið fyrir neðan sig og panta tímanlega í síma 19055. Hljómsveitin Kósý er gestum Kaffileikhússins annars að góðu kunn því hún hefur gjaman kom- ið fram eftir sýningar þess. Sveit- ina skipa fjórir MR-ingar á aldr- inum 18 til 19 ára og koma þeir víða við í lagavali og túlkun. Má þar finna íslenskar dægurflugur innan um suðræna slagara og franska kaffihúsatónlist í bland við norræn einsemdarljóð, fjör- Hljómsveitin Kósý í banastuði: Úlf- ur Eldjárn, Ragnar Kjartansson, Markús Þór Andrésson og Magnús Ragnarsson. uga hópsöngva, poppsmelli frá Bret- landseyjum og jafnvel smá klassík að hætti Beethoven og Mozart. Inná milli laga bregða piltamir á leik, sýna galdrabrögð, segja brandara og spjalla við áhorfendur. Allt er þetta gert með formerkjum notalegheit- anna - einsog nafn hljómsveitarinnar gefur jú til að kynna. Hvað er Vöku-manneskja og Eimskipsstarfsmaður að gera í framboði fyrir Alþýðuflokkinn? Er þetta ekki frekar óvenjuleg blanda? ,JE\, veistu hvað... Eg held ég hafi bara alltaf verið jafnaðarmaður. Eg fékk hinsvegarekki pólitískt upp- eldi og eini kratinn sem ég veit um með fullvissu í ættinni er amma mín sem var frá Isafirði. En jú, jú, það er dálítið óvenjulegt að Vöku-menn fari í framboð fyrir Alþýðuflokkinn, en sýnir vel hversu víðsýnn og breið- ur flokkurinn í rauninni er.“ Hefurðu þá lengi fylgst með Al- þýðuflokknum? „Mér hefur alltaf litist vel á Al- þýðuflokkinn. Fundist hann kjark- mikill og framsýnn og oftast verið sammála umræðunni innan hans.“ Það hefur væntanlega verið leit- að til þín um að gefa kost á þér framboð; velktist svarið lengi fyrir þér? „Ekki var það svo. Þetta var viku- ferli og þá taldi ég mig reiðubúna og sagði já.“ Ertu bjartsýn á gengi jafnaðar- manna í kosningunum? , Já, hiklaust er ég það. Mjög bjart- sýn. Eg held til dæmis að Alþýðu- flokkurinn eigi góðan hljómgrunn meðal unga fólksins sem er orðið þreytt á hinni hefðbundnu og gamal- dags stjómmálabaráttu. Ég hef trú á að Alþýðuflokkurinn eigi nú góða sóknarmöguleika meðal þessa hóps með sinni framsæknu stefnu. Við tölum sama tungumálið. Evrópu- sambandið er ofarlega á baugi hjá ungu fólki til dæmis. Það hefur held ég minni áhuga á sjávarútvegs- og landbúnaðarmálum. Þetta gildir þó frekar um ungt fólk í Reykjavík, en úti á landi þar sem dæmið snýst sjálf- sagt við.“ Hvað er það í Evrópusam- bandsumræðunni sem heillar yngra fólkið? „Kannski em það borgarljósin, ha. Nei, annars. Ég held að hugmyndin um frjálsari og opnari tengsl á öllum sviðum menningarinnar - þar með- talin er menntun og atvinna að sjálf- sögðu - sé það sem helst heillar unga fólkið. Þegar menn síðan eldast að- eins, fara að kaupa sjálfir í matinn og þessháttar, þá er það matarverðið sem er afar mikilvægt í umræðunni því við horfum framá 30 til 40 pró- sent lækkun matarverð við inngöngu í Evrópusambandið. Stefna Islend- inga á að vera, að sækja um aðild, láta reyna á hvemig samning við fá- um og láta síðan þjóðina segja álit sitt á honum - samþykkja eða hafna - í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þannig ber að kanna kosti og galla Evrópu- sambandsaðildar: með umsókn, en ekki með því að neita ræða málið.“ Þú sagðir unga fólkið lítinn áhuga hafa á sjávarútvcgi og land- búnaði; er það kannski yfirhöfuð áhugalaust um stjórnmál? ,Að sumu leyti held ég, að ungu fólki finnist stjómmálin ekki koma sér beint við og að atkvæði þeirra skipti ekki máli. Þessu viðhorfi þurfa stjómmálamennimir að breyta. Ef til vill finnst ungu fólki einnig erfitt að treysta stjómmálamönnum sem oft og tíðum virðast segja eitt í dag og annað á morgun; hagræða Hrönn Hrafnsdóttir er 27 ára og skipar 5. sæti á framboðslista Alþýðuflokksins í Reykjavík til Alþingis. Hún er alin upp í Svíþjóð og Breið- holtinu, gekk í hinn húmaníska Menntaskóla við Hamrahlíð, en fór síðan í al-praktíska viðskiptafræði við Háskóla íslands..., starfar nú sem fulltrúi í starfsþróunardeild Eimskfps. Hrönn var á sínum tíma á kafi í stúdenta- pólitíkinni og vann þá með hægrimönnunum í Vöku, en rýkur nú sem staðfastur hægrikrati í framboð fyrir Alþýðuflokkinn (kannski segir þar til sín uppeldið sem hún Hlaut hjá félagslega sinnuðum foreldrunum?). Konan var villingur á sínum yngri árum, hefur verið í fjögur ár í sambúð og á einn kött. Á náttborði hennar lúra andstæðurnar augljósar: Tundurdufl - 13 erótískar smásögur, feminísk bissnesskvennahandbók og nýlesin Biblían. Stefán Hrafn Hagalín ræddi við Hrönn skömmu fyrir miðnætti í gær og togaði uppúr henni hittíog þetta. Hann er þó litlu nær um hvort konan er kjarkmikið kamelljón eða töfrandi ljósálfur; sennilega sitt lítið af hvoru... sannleikanum dálítið sér í vil.“ Er þctta þín reynsla af stjórn- málanrönnum; cru þeir í raun breyskari en annað fólk? „Nei. Stjórnmálamenn eru venju- legt fólk og gera sín rnistök einsog aðrir. Munurinn felst hinsvegar í því að stjómmálamenn og gjörðir þeirra eru alltaf fyrir almannasjónum. Það er hægt að gera ýmis mistök annars- staðar en í stjómmálum án þess að sjónvarpsvélarnar mæti strax á stað- inn.“ Er almenningur þá ef til vill að gera ósanngjarnar kröfur til stjórnmálamanna; í raun og veru meiri kröfur en það gerir til sjálfs síns? ,Já, ég býst við því. En stjórn- málamenn vita af þessum kröfum og eiga reyna standa undir þeim. Er ekki skylda allra að gera sitt besta? Það var enginn sem neyddi þá til að fara útí stjómmál, þannig að það er erfitt að vorkenna þeim fyrir vikið.“ Hvaða aðferð virkaði best í Há- skólanum til að virkja unga fólkið til að taka þátt í kosningum: ákvarðanatöku um sitt eigið líf? „Sennilega virkar ávallt best að ná persónulegri snertingu við hvem og einn. Það er ekki til neinn einn sann- leikur í þessu máli, en maður-á- mann-aðferðin er heilladrjúgust. Bestum árangri náðum við þegar við gáfum okkur tfma til að hlusta og tókum mark á því sem fólkið var að segja um áhyggjur sínar og það sem skipti máli fyrir líf þeirra. Annars ber að taka ráðleggingar mínar um bar- áttuaðferðir með fyrirvara þar sem Vaka var ávallt í minnihluta á meðan ég var þarna við nám.“ Hefurðu annars lengi haft áhuga á félagsmálum af þessu tagi? „Ég tók nú frekar lítinn þátt í fé- lagsh'linu í MH á sínunt tíma því ég var svo mikið að vinna með skólan- um. Veit svosem ekki afhverju þetta þróaðist svona, ég tók til dæmis mik- inn þátt í félagslífinu í gaggó, var í nemendaráði og þess háttar. Kannski var þetta svona í MH vegna þess að ég kynntist þar manninum mínum, Hjalta, og mikill tími fór í tilhugalíf- ið. Þegar ég kom svo í Háskóla ís- lands breyttist þetta og ég tók mikinn þátt í félagslífinu, var í Vöku og gegndi embætti formanns félags við- skiptafræðinema. Félagsmálastússið átti gjörsamlega hug minn allan á nýjan leik og mér seinkaði á endan- um með útskrift þangað til um haust- ið. Mér fannst það samt alveg þess virði. Stórskemmtilegur tími og gaman að upplifa þessa baráttu frá fyrstu hendi.“ Hvað segirðu um þá fullyrðingu að langstærstur hluti stúdcntapól- itíkurinnar fari í umræðu um allraminnstu smáatriðin? „Smáatriðaumræðan fylgir hvert sem maður fer. Stúdentapólitíkin á sína plúsa og mínusa - líktog allt annað.“ En nú virðast fylkingarnar tvær, Vaka og Röskva, nokkuð samstíga og sammála um helstu grundvallaratriðin. Afhverju þá að standa í þessu stríði? „Mér finnst punnkturinn vera sá, að þama eru tvær fylkingar sem veita hvor annarri aðhald. Það er gott og nauðsynlegt mál fyrir lýðræðið. Röskva þarf aðhald einsog Vaka þyrfti aðhald væri hún í meirihluta í Stúdentaráði. Munurinn liggur hins- vegar að miklu leyti í fólkinu því ég held að það sé grundvallarmismunur á hugsunarhætti hjá fólki í hreyfing- unum tveimur." Eftir að þú klárar viðskipta- fræðina í Iiáskólanum þá fórstu beint að vinna hjá Eimskip; hvað ertu að gera þar? „Ég starfa sem fulltrúi í starfsþró- unardeild og livað geri ég þar? Reikna út launin, á ýmis samskipti við starfsmenn vegna orlofs, veik- inda, tek á móti nýjum starfsmönn- um, og svo framvegis. Ég er í þessu daglega rexi og pexi. Þetta er fjöl- breytilegt starf í stóm og miklu fyrir- tæki þar sem alltaf er nóg að gerast. Ég hef samskipti við svo stóran og breiðan hóp af fólki - llestalla í fyrir- tækinu - og félagslífið er mjög gott. Þetta er hinsvegar náttúrlega brjáluð vinna og nóg að gera. Ég veit ekki hvort ég verð hjá Eimskip um allan aldur og ævi. Það verður bara að ráð- ast.“ Bara svona á inilli okkar tveggja...: Hvað er Hörður Sigur- gestsson eiginlega með í laun? „Ég hef ekki hugmynd um það og þótt ég vissi það myndi ég aldrei nokkum tímann segja þér frá því: þetta er trúnaðarmál." Dreymir ykkur viðskiptafræði- nemana ekki alla um sjálfstæðan atvinnurekstur? „Nei, rannsóknir sýna að við- skiptafræðingar em í raun áhættu- fælinn hópur. Kannski er það vegna þess að námið er svo hagnýtt og menn vita allt um áhættuna sem þar liggur að baki. Eins held ég að þeir sem ætli í sjálfstæðan atvinnurekstur drífi sig í það, frekar en að fara í við- skiptafræðina. Annars blundar þetta sjáífsagt í manni. Biýst kannski fram þegar ég verð eldri. Maður hefur sjálfstæðan atvinnurekstur svona á bakvið eyrað - þarf víst töluvert eig- infé í slík ævintýri." Hvað gerirðu þegar þú ert ekki að vinna eða á pólitískum fund- um; hver eru áhugamálin? „Ég les nú frekar mikið og hef allt- af gert það.“ Hvað lestu? ,Æi, bara allskonar bækur. Ég tók mig nú til um daginn og las Biblíuna. Á náttborðinu hvílir síðan Tmtd- urdufl - þrettán erótískar smásögur eftir höfunda einsog Einar Kára- son, Auði Haralds, Sjón, Guðberg og Hallgrím Helgason. Jú, þama á náttborðinu er síðan Changing Woman, Changing Work, svona kvenrembu-bissnessbók.“ Ertu meðvituð kona, kannski femínisti? „Hvaða kona er ekki femínisti?" Ja, er það ekki töluvert meðvit- uð kona sem er að lesa þessar þrjár bækur í einu? „Jú, ætli það ekki.“ Sýnist þér til að mynda að Al- þýðuflokkurinn ætti að gera eitt- hvað á borð við það sem þessi hóp- ur innan Sjálfstæðisflokksins er að gera, Sjálfstæðar konur? „Það er þörf fyrir breyttar áherslur í kvennabaráttunni og mér finnst þetta ágætt hjá þeim. Það var vissu- lega kominn tími til að einkaleyfi Kvennalistans á kvenréttindabarátt- unni væri afnumið. Mögulega fer þessi barátta nú að ná til stærri hóps úr því hægrisinnaðar konur em fam- ar að ræða þessa hluti; að konur geti átt sinn starfsframa, eigi rétt á sömu möguleikum og karlar og svo fram- vegis. Mér þykir vænt um þessa um- ræðu hjá Sjálfstæðum konum. En mér sýnist nú að Alþýðuflokkurinn standi nokkuð vel í þessum málum og ímynd hans og stefna gagnvart þessum máluni virðist betri en hjá öðmm st jórnmálaflokkum." Nú kemurðu úr Vöku sem er stimpluð sem hægrifélagsskapur á meðan Röskva er á vinstri kantin- um. Ertu hægrikrati? „Já, ég myndi hiklaust segja að ég væri hægrikrati. Fyrir utan Alþýðu- fiokkinn þá liggja mínar skoðanir nær hugmyndafræði Sjálfstæðis- flokksins en annarra. Innganga í Sjálfstæðisflokkinn kæmi þó aldrei til greina.“ Heldurðu þá að stefna Alþýðu- flokksins eigi að mörgu leyti betri hljómgrunn hjá hægrisinnuðu fófki en vinstrisinnuðu; frjálst markaðskerfi með skýrum leik- reglum, hemill á ríkisútgjöldum og þessháttar? „Örugglega. Það eru afar margir hægra megin í stjómmálalitrófinu sem telja Alþýðuflokkinn sinn flokk frekar en Sjálfstæðisflokkinn. Ann- ars er ef til vill ekki alveg að marka mig í þessum málum því að fólkið sem ég umgengst mest - til dæmis vinahópurinn - liggur einhverra hluta vegna meira hægra megin í stjómmálunum. Það liggur nú hlut- arins eðli að viðskiptafræðin er frek- ar kapítah'skt fag. I raun og vem er þarna í viðskiptafræðinni í Háskól- anum verið að kenna hægri- mennsku." Afhverju fórstu í viðskipta- fræði? „Mig langaði til að gera eitthvað praktískt með líf mitt.“ Oskaplega hljómar það leiðin- lega; þig hefur þá ekkert langað í þessi meira húmanísku fræði? „Jú, jú, en ég hugsa að ég leyfi mér það ekki fyrr en ég verð eldri. Ég fer á sextugsaldri í bókmennta- fræðina." Já, þú lest auðvitað svo mikið. Hvernig flnnst þér annars Tund- urdufi? „Hún var ágæt, ég hafði gaman af henni.“ Hvað með hina bókin - Chang- ing Woman, Changing Work - um hvað fjallar hún? „Það er kannski erfitt að útskýra það, en hún fjallar í raun og vem um hvemig konur eigi að haga sér í heimi karlmannsins án þess að missa kvenleikann. Það em svo margar konur á framabraut sem verða ein- hverskonar karlakonur. Við megum hinsvegar ekki gleyma því að við er- um konur og höfum þarafleiðandi kvenlega eiginleika þrátt fyrir að við ætlum okkur að komast áfram í líf- inu.“ Þú sagðir mér áðan að þú hefðir kynnst manninum þínum í MH. Segðu mér aðeins frá hvernig það kom til, en fyrst þó frá heimilis- högunum sívinsælu. „Ég er gift Hjalta Sigurðarsyni, sölustjóri hjá Sælgætisgerðinni Mónu. Við höfum verið gift í fjögur ár, eigum okkar eigin íbúð og einn kött, en emm bamlaus enn sem kom- ið er. Ég og Hjalti kynntumst í áfang- anunt sögu 101 í MH. Hann mætti alltaf of seint tíma þannig að ég komst ekki hjá því að taka eftir hon- um og þetta var eiginlega ást við fyrstu sín. Foreldrar mi'nir heita Hrafn Jónsson og Fjóla Ólafsdótt- ir, bæði eru kennarar, hann í Þing- hólsskóla í Kópavogi, en hún í Fóst- urskóla íslands. Stjúpfaðir minn heitir Þorsteinn Eggertsson, textahöfundurinn landsfrægi. Stórskemmtilegur karakteit Ég á einn albróður, heitir Ólafur Hrafnsson og er bakari og tölv- ugúrú. Hálfsystir mín er Anna Hera Björnsdóttir, nemi í æf- ingaskólanum. Stjúpsystur á ég síðan tvær, Völu og SofKu Þor- steinsdætur.“ Þið eruð barnlaus hjón í ágætum störfum. Eruð þið svona dæmigert ungt fólk á framabraut? „Já, það má kannski skilgreina okkur þannig.“ Mikið að gera? „Alltof mikið.“ Skelfilegt líf er það ekki? ,Jú, þetta er skelfilegt líf. Ég hugsa að ég hætti þessu bara. Nei, annars." Gefst þá ekki lítill tími í hvort annað? Jú og nei. Ætli við njótum ekki bara betur þessara fáu samvem- stunda sem okkur gefst." Eruð þið kannski að kaupa ykkur íbúð ofaná alltsaman? „Við emm reyndar komin langt með að eignast eina slíka. Við keypt- um okkur íbúð áður en ég fór í við- skiptafræðina, ég tók mér eitt ár í frí frá námi eftir menntaskólann og vann þá fulla vinnu. Við vomm þannig bara komin á nokkuð gott ról áður en ég fór í Háskólann.“ Þig hefur ekkert langað í fram- haldsnám í útlöndum? „Ég er í sjálfu sér að gæla við það. Við sjáum til.“ Hvert fara viðskiptafræðingar í framhaldsnám, Bandaríkjanna eða Bretlands? „Mig myndi nú helst langa til Sví- þjóðar. Ég bjó í Gautaborg þegar ég var lítil og ólst þar upp á milli eins og níu ára aldurs á meðan foreldrar mín- ir vom í námi. Þetta er mitt annað heimaland og ég væri til í að búa þar í nokkur ár sem fullorðin manneskja. Svíþjóð er sæluríki bamanna, leik- vellir á hveiju homi. Ég man eftir því að þegar tveimur ámm yngri bróðir minn kom til Islands þá kallaði hann þetta Sjoppulandið." Já, við höfum sjoppurnar á meðan Svíarnir hafa leikskólana. Og svo komstu heim, fluttist í vill- ingahvcrfið Breiðholtið og gckkst í Breiðholtsskóla. Varstu villingur? „Svolítill. Þegar ég var ungling- ur.“ Foreldrar þínir eru kennarar; þetta er nú varla rétta umhverfiö til að ala upp hægrisinnaðan jafn- aðarmann - eða hvað? „Nei, ætli það. Pabbi cr nú frekar vinstrisinnaður." Afhverju gera börn foreldrum sínum þetta svona oft: að fara ná- kvæmlega í hina áttina þegar kemur að því að mynda sér stjórn- málaskoðun? „Maður kynnist öfgunum svo vel í aðra áttina að maður vill sjá hvað er hinumegin. Manni þyrstir í hinar öf- garnar. Kannski fá börn leið á því að fá bara annað sjónarmiðið.“ Býstu við að líf þitt taki ein- hverjum breytingum 8. apríl? „Já, ég vona að ég verði einn af þátttakendunum í mikilli sigurhátíð Alþýðufiokksins eftir óvænta en verðskuldaða velgengni t' kosning- unum. Það á örugglega eftir að hafa áhrif á líf mitt.“ Hvað finnst Hjalta. eiginmanni þínum, um þetta stjórnmálabrölt þitt? „Hann er nú ekkert yfir sig hrifinn - enda ntun hægrisinnaðri en ég. Ég held að hann hefði frekar viljað að ég eyddi fri'tíma mínum með honum.“ Heldurðu að hann kjósi þig - og Alþýðuflokkinn svona í leiðinni? Ja, við skulum segja að ég sé að vinna í því. Við tökumst svoh'tið á um þessa hluti, en ég ætla leyfa mér að vona það besta og að ég hafi sigur að lokunt í áróðursstríðinu héma heima. Það er ekkert öruggt þó í þeim efnum.“ Hvað segja foreldrar þínir um framboð þitt - þau eru kannski heldur ekki ánægð vegna þess að þau eru vinstrisinnaðri en þú? „Mikið rétt. Ég er eiginlega á milli tveggja elda. Annars er mamma mjög ánægð með þetta og pabbi er hálfhlutlaus í þessu máli. Ég held að mamma hafi alltaf verið jafnaðar- maður í sér og reyndar fleiri í ætt- inni. Stjúpi minn er lfka mikill krati.“ Hefur þér ekkert verið strítt á framboðsmálunum í vinnunni hjá Eimskip - þessu sjálfstæðis- mannafyrirtæki? Jú, mikil ósköp. Þetta er helblátt fyrirtæki, sumir illkvittnir kalla mig meira að segja gervi-sjálfstæðiskonu atþví ég var í Vöku, en er nú í fram- boði fyrir Alþýðuflokkinn." Þú stendur þá í ströngu á öllum vígstöðvum? „Það er svo gaman að því að hafa nóg að gera. Ég þoli ekki þegar fólk heldur að ég sé einhver ein ákveðin ntanngerð sem hægt sé að ganga að vísri.“ Nú ertu í fimmta sætinu og metnaðargjarnt fólk stefnir alltaf framávið; vcrðurðu ekki bara komin á þing eftir rúm fjögur ár? „Það verður Iífið að leiða í ljós. Ég er mikil bardagamanneskja." LADA Frá 677.000,- kr.: 169.250,- kr. út og 17.281 ,-kr. í 36 mánuði. Tökum notaða bíla sem greiðslu $ upp I nýja og bjóðum ýmsa aðra - - * greiðslumöguleika. Tekið hefur verið tillit til vaxta í útreikningi á mánaðargreiðslum. ÁRMÚLA 13 • SÍMI: 568 12 00 • BEINN SÍMI: 553 12 36 +

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.