Alþýðublaðið - 22.02.1995, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
Efnahagsbatinn nýttur til lífskjarajöfnunar, segir Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra og
formaður Alþýðuflokksins, í viðtali við Sœmund Guðvinsson um niðurstöður kjarasamninganna
Tíu milljarðar til kjarajöfrtunar
Afnám lánskjaravísitölu og hækkun skattfrelsismarka.
„Um miðnæturskeið á mánudag-
inn gekk ríkisstjómin endanlega frá
stefnuyfirlýsingu í tilefni kjarasamn-
inganna. Þá lá fyrir að kjarasamning-
ar höfðu tekist. Kjarni þeirra samn-
inga var í anda þeirrar stefnu sem
aukaflokksþing Alþýðuflokksins
markaði: Efnahagsbatinn upp á tíu
milljarða er nýttur til kjarabóta sem
einkennast af fastri krónutölu og sér-
stökum kaupauka til hinna lægst
launuðu án þess að stefna stöðug-
leikanum til framtíðar íhættu,“ sagði
Jón Baldvin Hannibalsson, utan-
ríkisráðherra og fonnaður Alþýðu-
flokksins, í viðtali við Alþýðublaðið
í gær um nýgerða kjarasamninga.
„Þegar þetta lá fyrir spilaði ríkis-
stjómin út spilum sínum: Afnám
lánskjaravísitölu og skattfrádráttur
fyrir Ijögur prósent iðgjöld launþega
í lífeyrissjóði, sem hækkar skattfrels-
ismörkin í yfir 60 þúsund krónur.
Þessir kjarasamningar innsigla að sá
árangur í efnahagsmálum sem þessi
ríkisstjóm hefur náð með þrautseigju
og þolinmæði - með þvf að standa
fast við framtíðarstefnu og víkja ekki
af þeim vegi með undirtektum við
gylliboð og skmm - hefur skilað ár-
angri. Þetta eru þáttaskil. Lífskjara-
jöfnun af þessu tagi hefur ekki áður
tekist í kjarasamningum svo lengi
sem elstu menn muna,“ sagði Jón
Baldvin.
Farid ad tillögum
Alþýduflokksins
„Þessi niðurstaða hlýtur að vera
okkur jafnaðarmönnum alveg sér-
stakt ánægjuefni. Astæðan er sú að
niðurstaðan í þessum samningum
bæði að því er varðar samkomulag-
inu við kjarasamningaborðið og út-
spil ríkisstjómarinnar er nákvæm-
lega í þeim anda sem aukaflokksþing
Alþýðuflokks þann 4. febrúar síðast
liðinn samþykkti. Eg minni á eftir-
farandi orð í ályktun Ilokksþingsins
sem hét: Leiðir til jöfnunar lífskjara
- hækkun lægstu launa hafi forgang.
Þar stóð:
„Efnahagsbatinn er staðreynd.
Þjóðartekjumar jukust unt tvö pró-
sent árið 1994. Nú er spáð allt að þrjú
prósent hagvexti á yfirstandandi ári.
Þetta þýðir að við höfum að minnsta
kosti 10 milljarða til ráðstöfunar til
kjarabóta, til jöfnunar lífskjara, í
kjarasamningum."
Þetta er nákvæmlega sú upphæð
sem kjarasamningamir taka til. Þetta
er þess vegna meiriháttar fjármagns-
tilfærsla til hinna lægst launuðu í
þjóðfélaginu. í lífskjaraályktun Al-
þýðuflokksins segir ennfremur: „Við
eigum að nýta efnahagsbatann til
kjarajöfnunar. Skynsamlegt er að
launahækkanir komi í áföngunt á
samningstímanum. Launahækkunin
verði föst krónutala. Þeir sem hafa til
dæmis laun undir ákveðinni upphæð
á mánuði fái sérstaka viðbótarhækk-
un. Þessi aðferð leiðir til þess að þeir
launalægstu fá mun meiri kjarabót
en hinir sem hærri launin hafa.
Kjarasamningar í þessunr anda skila
auknum kaupmætti án verðbólgu."
Þessi orð em eins og nákvæm
verklýsing á niðurstöðu kjarasamn-
inganna. Þetta hefur nákvæmlega
gengið eftir,“ sagði Jón Baldvin
Hannibalsson.
Þetta gekk eftir
í viðtalinu rifjaði Jón Baldvin
frekar upp ályktanir aukaflokksþings
Alþýðuflokksins og sagði þá meðal
annars:
„Það má minna á að í inngangs-
orðum okkar ályktunar var vikið að
þremur málum. í fyrsta lagi: „Al-
þýðuflokkurinn vill breytingu á eða
jafnvel afnám lánskjaravísitölunn-
ar.!‘ Þetta hefur gengið eftir. Enn-
fremur: „Alþýðuflokkurinn vill jafn-
framt breyta skattkerfrnu á markviss-
an hátt til jöfnunar lífskjara í land-
inu.“ - Þetta hefur gengið nákvæm-
lega eftir og þá á ég sérstaklega við
skattfrádrátt vegna iðgjaldagreiðslna
launþega í lífeyrissjóði sem er jafn-
framt til þess að hækka skattfrelsis-
mörkin og koma þeirn yfir 60 þús-
und króna markið.
í þriðja lagi vil ég vitna í ályktun
aukaflokksþingsins þar sem segir:
„Alþýðuflokkurinn vill jafnframt
stuðla að auknum kaupmætti með
lækkun á verði ýmissar vöru og
þjónustu meðal annars þjónustu hins
opinbera." I yfirlýsingu ríkisstjórnar-
innar í tengslum við kjarasamning-
ana segir í 9. lið: „Ríkisstjórnin mun
skipa nefnd sem geri tillögur um að-
gerðir til að lækka framfærslukostn-
að heimilanna. Nefndinni verður sér-
staklega falið að leita leiða til að
lækka vöruverð á landsbyggðinni.“
I ályktun aukaflokksþingsins
sagði urn þetta efni:“Alþýðuflokkur-
inn leggur til að ríkisstjórnin skipi
samstarfsnefnd með aðilum vinnu-
markaðarins til að gera tillögur um
aðferðir og aðgerðir til að lækka
framfærslukostnað heimilanna sam-
hliða skynsamlegum kjarasamning-
um. Alþýðuflokkurinn leggur til að
skoðuð verði sérstaklega ríkjandi
verðmyndun varðandi orkuverð,
símakostnað, fiutningskostnað, far-
gjöld og tryggingakostnað. Allt eru
þetta svið sem búa við einokun eða
fakeppni, þar sem unnt er að halda
uppi óhagkvæmum rekstri í skjóli
þess. Allir vega þessir útgjaldaliðir
Nýgerðir kjarasamningar vinnuveitenda og launþega og hlutur ríkisins í
þeim er nákvæmlega á þeim nótum sem lagt var tii á aukaflokksþingi Al-
þýðuflokksins í byrjun mánaðarins. Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkis-
ráðherra og formaður Alþýðuflokksins, fylgdist með í fyrrakvöld þegar
Davíð Oddsson forsætisráðherra og Benedikt Davíðsson forseti ASÍ inn-
sigluðu samkomulag ríkisins og launþegasamtaka. Mynd: Sverrir viiheimsson.
„Um miðnæturskeið á mánudaginn gekk ríkisstjórnin endanlega frá
stefnuyfirlýsingu í tilefni kjarasamninganna. Þá lá fyrir að kjara-
samningar höfðu tekist. Kjarni þeirra samninga var í anda þeirrar
stefnu sem aukaflokksþing Alþýðuflokksins markaði: Efnahagsbatinn
upp á tíu milljarða er nýttur til kjarabóta sem einkennast af fastri
krónutölu og sérstökum kaupauka til hinna lægst launuðu án þess
að stefna stöðugleikanum til framtíðar í hættu,“ segir Jón Baldvin
Hannibalsson í viðtali við Alþýðublaðið.
þungt í framfærslukostnaði heimil-
anna. Láta mun nærri að þeir vöru-
og þjónustuflokkar, sem hér hafa
verið nefndir myndi beint og óbeint
unr 15% af einkaneyslu venjulegrar
íjölskyldu, sem samkvæmt útgjalda-
mynstri vísitölufjölskyldunnar mætti
meta til 250 til 300 þúsund króna á
ári.“
I okkar ályktun sögðum við: „Það
eru þvf margar leiðir til að skila efna-
hagsbatanum f launaumslögin.
Tryggja hvort tveggja í senn: Bættan
kaupmátt og jöfnun lífskjara, án
nýrrar verðbólguhringekju." Þetta er
nákvæmlega það sem hefur gerst í
þessum samningum.
Að því er varðar hlut landsbyggð-
arfólks er ástæða til að minna á að í
yfirlýsingu ríkisstjómarinnar er tekið
af skarið um frekari aðgerðir til jöfn-
unar á húshitunarkostnaði á köldu ^
svæðunum í samanburði við hita- w
veitusvæðin. Þar sýndi ríkisstjómin g
þá fyrirhyggju að fmmkvæði iðnað- ?
arráðhetTa að hafa heintildargrein á 4
fjárlögum um 50 milljóna króna
framlag að því lilskyldu að orkufyr-
irtækin komi með mótframlag í
formi afsláttar á gjaldskrá. Þetta mun
ganga eftir.“
Gervilausnum hafnad
Þessu næst vék Jón Baldvin að
hlut ríkisstjómarinnar við gerð kjara-
samninganna og sagði:
„Ef við lítum nú á málið í heild og
spyrjum um hlut ríkisstjómarinnar í
þessum málum og hlut aðila vinnu-
markaðarins má segja að með þess-
um samningum og útspili ríkisstjórn-
arinnar hafi verið staðfest að það er
sátt um að hafna uppboða- og gervi-
lausnaleiðum.
Það er samkomulag um að hlusta
ekki á töfralausnir og það er sam-
komulag um að reyna að gera samn-
inga sem hafa það að meginmark-
miði að um sé að ræða varanlegan
kaupmáttarauka í stað sýndar-
mennskuhækkana.
Ríkisstjórnin hefur, þegar við lít-
um á málið í heild frá og með yfirlýs-
ingu hennar frá 10. desember, lagt
mikið af mörkum í þessu máli. Eg
minni á hækkun og framlengingu
hátekjuskattsins. Eg niinni á tilboð
ríkisstjómarinnar til stjómarand-
stöðuflokkanna og aðila vinnumark-
aðarins um að skipa fulltrúa í nefnd
til þess að ná samstöðu um útfærslu á
fjármagnstekjuskatti sem taki gildi
uin næstu áramót. Það er stórkostlegt
réttlætismál af þeirri einföldu ástæðu
að hingað til hafa vaxtatekjur af íjár-
ntagni verið skattfrjálsar jafnframt
því sem ríkið hefur firrt Ijármagns-
eigendur allri áhættu í formi láns-
kjaravísitölutengingar. Nú hefur það
gerst að fulltrúar stjómarandstöðu-
flokkanna og aðilar vinnumarkaðar-
ins hafa samþykkt að taka sæti í
slíkri nefnd. Að vísu er mér tjáð að
formaður Framsóknarflokksins sé
þareinnábáti.
Ríkisstjórnin hefur til viðbótar
gert hvort tveggja að afnenta tví-
sköttun á lífeyri með öllu og tryggt
hækkun skattleysismarka. Gripið til
ráðstafana til að jafna húshitunar-
kostnað. Stjórnin hefur þegar beitt
sér með verulegum árangri gegn
skattsvikum. Sennilega er ekki hægt
að nefna dæmi um það í tíð fyrri rfk-
isstjórna að jafn mikill árangur hafi
náðst í þeim efnunt. Þar á rneðal
Iiggja nú fyrir þinginu á lokadögum
þrenn frumvöip sem fela í sér hert
viðurlög við skattsvikum og bók-
haldsbrotum.“
Áþreifanlegur árangur
„Þá er að geta þess að ríkisstjómin
hefur í þessu úlspili stnu ákveðið að
tryggja áfranthaldandi Ijármagn til
þess að stuðla að lausn á vanskilum
og greiðsluvanda lántakenda í hús-
bréfakerfinu. Fyrir utan það að fé-
lagsmálaráðherra mun á næstu dög-
um fá niðurstöðu úttektar Seðla-
banka og Hagfræðistofnunar Há-
skólans á því máli sem verður grund-
völlur frekari ákvörðunar að því er
það varðar. Alþýðuflokkurinn beitti
sér fyrir því fyrir rúmu ári að lögfesta
húsaleigubætur.
Þegar við lítum á myndina í heild
er niðurstaðan þessi: Efnahagsárang-
urinn, verðbólgan horfin, stöðug-
Ieikinn tryggður, gengið traust, sam-
keppnisstaðan ekki verið jafn öflug
áratugum saman, vöxtur í iðnaðar-
og þjónustugreinum, mikill vöxtur í
úrvinnslu fiskafurða á grundvelli
EES-samningsins og þessi árangur
sem þegar hefur leitt til elhahagsbata
nýttur til kjarajöfnunar.
Menn geta síðan borið saman há-
stemmdar yfirborðstillögur stjómar-
andstöðufiokkanna sem byggja á
skyndilausnum og töfrabrögðum
fyrir kosningar og þeim áþreifanlega
árangri sem stjómarflokkamir hafa
hér með náð undir lok kjörtímabils
og segir allt sem segja þarf um ár-
angurinn sem náðst hefur á erfiðum
tímum þrátt fyrir þrengingar og
harða gagnrýni á undanförnum ár-
um,“ sagði Jón Baldvin Hannibals-
Vegna góðra un
við áskrifendaeöfnu
MPYÐUBLA
-StAWK fKAMUK
til áekrifendaieikel
Á nasstu fjórum vikum verða dregin út^“ nöfn áskrifenda blaðsins vikulega.
Dregin verða út 2 nöfn í hverju kjördasmi oq nöfn hinna heppnu
birtast í Alþýðublaðinu á miðvikudögum og föstudögum.
Násstu víríningshafar eru úr Vestljarðakjördasmi:
Hansína Einaredóttir (Engjavegi 29, 400 ísafirði)
Björn Gíslason (Brunnum 13, 450 Fatreksfirði)
Vínningarnir eru gjafabréf á vöruúttekt
f Skátabúðinní O/") /'■)/")/'■)
að krónur L/L/L/9 ~
vmað á &krifstofur Atoýðublaðsins í Alpýðuhúsinu í Reykjavík,
&'\m\ 91-625Ó66, mytidsendir 91-629244.
dur- nýir sem gamlir- eru í pottinum.