Alþýðublaðið - 01.03.1995, Síða 1
Stuðningsmenn Þorkels Steinars innan Þjóðvaka á Suðurlandi
mættu ævareiðir á fund um framboðslistann í gærkvöldi
„Við sættum okkur
ekki við ofbeldi"
- segir Þorkell Steinar Ellertsson sem taldi fundinn geta endað með ósköpum og
boðað væri til hans með ólögmætum hætti.
Þorkell Steinar Ellertsson: Við sættum okkur ekki við það ofbeldi sem
haft er í frammi að undirlagi Láru V. Júlíusdóttur lögfræðings og sérlegs
aðstoðarmanns Jóhönnu Sigurðardóttur. A-mynd: e.ói.
„Það stefnir hratt í það að þessi
fundur seni halda á í kvöld endi með
ósköpum. Við ætlum ekki að taka
því þegjandi að fá ekki að segja
skoðun okkar á röðun á framboðs-
listann. Við sættum okkur ékki við
það ofbeldi sem haft er í frammi að
undirlagi Láru V. Júlíusdóttur lög-
fræðings og sérlegs aðstoðarmanns
Jóhönnu Sigurðardóttur," sagði
Þorkell Steinar Ellertsson bóndi á
Ármóti á Rangárvöllum í samtali við
Alþýðublaðið seint í gærdag.
Átökin innan Þjóðvaka á Suður-
landi mögnuðust mjög í gær þegar
Alþýðublaðið birti viðtal við Þorkel
Steinar þar sem hann greindi frá því
að miðstjóm Þjóðvaka hefði beitt
þrýstingi til að sniðganga niðurstöðu
tilnefninga um skipan 1. sæti fram-
boðslista Þjóðvaka í kjördæminu.
Þar fékk Þorkell 50 prósent fleiri til-
nefningar en Þorsteinn Hjartarson
skólastjóri á Skeiðum. Stjórn Suður-
landsdeildar Þjóðvaka ætlar að
leggja frarn tillögu um skipan þrigg-
ja efstu sætanna á félagsfundi í kvöld
þar sem Þorsteinn er í I. sæti.
„Þessi fundur í kvöld er boðaður
með sólarhrings fyrirvara sem er al-
gjörlega ólöglegt. Það var ekki fyrr
en á mánudagskvöld sem farið var
að hringja út og boða fundinn og mér
er kunnugt um marga félagsmenn
sem ekki hafa fengið neina hring-
ingu. Mérer líka kunnugt um að Þor-
steinn Hjartarson hefur ásamt fylgd-
arliði verið á harðaspretti við að
safna fólki sem aldrei hefur komið
nálægt Þjóðvaka til að koma á fund-
inn í kvöld og greiða atkvæði. Enda
er nóg að menn lýsi yfir stuðningi
við Þjóðvaka til að mega greiða at-
kvæði.
Samkvæmt mínum upplýsingum
á ekki að leyfa neinar umræður um
listann á fundinum í kvöld. Það á
ekki að leyfa neinar breytingartillög-
ur heldur. Menn niega bara segja já
eða nei við þessum lista. Ef listinn
verður felldur ætlar stjóm félagsins
að vtsa málinu til miðstjómar Þjóð-
vaka í Reykjavík og biðja hana að
stilla upp lista. Þetla er orðið yfir-
gengilegt mál,“ sagði Þorkell Stein-
ar.
Hann sagði að þegar það hefði
legið fyrir hvernig stjómin ætlaði að
standa að listanum, hefði tíundi hluti
félagsmanna sent kröfu um að boðað
yrði til fundar með félagsmönnum
með eðlilegum fyrirvara til að ræða
framboðsmálin. Það væri skylt að
verða við slíkri ósk samkvæmt lög-
um félagsins. Því hefði verið hafnað
og þess í stað boðað til fundarins í
kvöld í hasti. Þorkell Steinar sagðist
mæta með þá af sínum fylgismönn-
um sem hann næði til. Það væri ljóst
að þessar otbeldisaðgerðir fæm ekki
þegjandi t' gegn á fundinum. Hann
fór hörðum orðum um andlýðræðis-
leg vinnubrögð Þjóðvaka varðandi
framboðsmálin sem væru í hrópandi
mótsögn við allt talið um opin og
heiðarleg vinnubrögð.
Sjá umfjöllun á baksídu.
Smábátaeigendur eru afar óhressir með aðgerðaleysi Þorsteins
Pálssonar sjávarútvegsráðherra
Kvótabátar verða að
fá auknar heimildir
- segir Arthur Bogason formaður Landssambands
smábátaeigenda.
Það verður einfaldlega að auka
veiðiheimildir kvótabátanna eða
gefa þeim einhvem ákveðinn tíma úr
fiskveiðiárinu þar sem þeir gætu til
dæmis veitt með krókum. Má þar
nefna hugmynd um að kvótabátarnir
gætu fengið handfæraleyfi yftr sum-
armánuðina sem teldi ekki inn í
kvótakerfið. Ég tel að Þorsteinn
Pálsson sjávarútvegsráðherra hafi
heintild til að gera slíkt en hann hef-
ur ekki gert það og virðist ekki lík-
legur til að gera það,“ sagði Arthur
Bogason formaður Landssambands
smábátaeigenda í samtali við Al-
þýðublaðið.
Arthur sagði nokkrar leiðir færar
til auka kvóta smábátanna. „Það er
til dæmis til þessi svokallaði jöfnun-
arsjóður sem á að notast til jöfnunar
þegar tnikil vá er fyrir dyrum á ein-
hverjum stöðum. Hann á alfarið að
renna til þessara báta í stað þess að
renna til hvers einasta skips sem er
með þorskveiðiheimildir. Það má
Iíka einfaldlega færa aflaheimildir
frá þeim hluta llotans sem getur
sannarlega bjargað sér á annan hált
meðan svona þrengingar eru í þorsk-
inunt. Þá á ég við togara og frystitog-
ara sem hafa nteira að segja farið og
veitt tugþúsundir tonna af þorski
annars staðar í heiminum. Það væri
því engin goðgá að minnka þeirra
þorskveiðiheimildir tímabundið,"
sagði Arthur.
Varðandi viðbrögð stjórnmála-
manna við óskum smábátamanna
um úrbætur sagði Arthur að Alþýðu-
flokksmenn hefðu verið hliðhollir
smábátaeigendum. Hins vegarhefðu
kratar ekki verið alráðir en raunar
væri að linna fylgi við smábátaeig-
endur í öllum flokkum. Það
yrði gengið eftir því í kosninga-
baráttunni að frambjóðendur
gleymdu ekki smábátamönnum.
Arlhur sagði krókabáta nýkomna
úr tveggja mánaða fríi sem löggjaf-
inn gæfi þeim alltaf um áramót. Tíð-
in hefði verið afspymu leiðinleg frá
því banninu lauk 31. janúar. Hins
vegar hefði víða verið gott fiskerí þá
bátarnir hefðu komist á sjó. Þeir sem
hefðu kvóta væm nú að reyna að ná
sínum kvóta því á þessunt árstíma
væri gott fiskverð og fiskurinn verð-
mikill.
„Við erum afar óhressir með að
þeir smábátar sem em í kvótakerfmu
skyldu ekki fá neinar alvömleiðrétt-
ingar. Einu aðgerðimar sem stjóm-
völd gerðu á síðasta löggjafarþingi
var að opna einhverjar gluiur í Fisk-
veiðisjóð til lántöku og koma með
40 milljón króna styrk til þeirra sem
hafa orðið fyrir þessum skerðingum.
Miðað við það milljarðatap sem
menn hafa orðið fyrir eru 40 milljón-
Arthur: Alþýðuflokksmenn hlið-
hollir smábátaeigendum en krat-
arnir hafa ekki fengið að ráða einir.
A-mynd: E.ÓI.
ir auðvitað eins og krækiber í
ónefndan stað. Hins vegar má segja
að stjómvöld hafi með þessu viður-
kennt þann vanda sem við er að etja
og við ætlumst til þess að þeir sem
setjast á Alþingi næst taki af alvöru á
þessum málum en ekki með þessari
hálfvelgju," sagði Arthur Bogason.
Loðnuævintýri...
Gígja VE siglir inn í Vestmannaeyjahöfn með fullfermi af loðnu um síð-
ustu helgi. I blaðinu i dag er hressileg frásögn Sigurðar Boga Sævarsson-
ar af veiðitúr með Guðmundi VE. Allt um það á miðopnu. A-mynd: e.ói.
Aðild Péturs Bjarnasonar á ísafirði
að Framsóknarflokknum að enda
r
„Eg segi mig úr
flokknum um helgina"
Þá verður framboðslisti Péturs lagður fram
og stefnumálin kynnt.
„Ég sá þau ummæli Guðmundar
Bjarnasonar í Alþýðublaðinu að
það jafngilti úrsögn úr Framsóknar-
llokknum að fara í framboð fyrir
önnur stjómmálasamtök. Þetta er
hárrétt hjá Guðmundi. Ég segi mig
úr flokknum um helgina þegar fram-
boðslistinn verður lagður fram,“
sagði Pétur Bjarnason fræðslustjóri
á Isafirði í samtali við Alþýðublaðið í
gær. Pétur sagði í samtali við blaðið
á dögunum að hann sæi ekki ástæðu
til að segja sig úr Framsóknarflokkn-
um að sinni þótt hann ætlaði að
bjóða fram sérlista. Guðmundur
Bjarnason varaformaður flokksins
sagði af því tilefni að samkvæmt lög-
um flokksins jafngilti það úrsögn fari
flokksmaður í frantboð fyrir annan
stjórnmálaflokk eða stjórnmálasam-
tök. Pétur Bjamason sagði í gær að
hann hefði ekki verið að velta þessu
sérstaklega fyrir sér meðan hann
hefði ekki tilkynnt framboð sitt
formlega. Það yrði gert um næstu
helgi. Þá yrði opnuð kosningaskrif-
stofa, stefnumál lögð fram og frant-
boðslistinn kynntur. Það væri því
eðlilegt að láta úrsögn úr Framsókn-
arflokknum fylgja. „Enda getur
rnaður víst ekki verið í einum flokki
og boðið síðan fram gegn honum. En
að vísu var Sigurlaug Bjarnadóttir
áfram í Sjálfstæðisflokknum og mið-
stjórn hans þegar hún bauð fram sér-
lista hér á sínum tíma,“ sagði Pétur.
Stefán Gíslason sveitarstjóri á
Hólmavfk mun skipa 2. sætið á fram-
boðslista Péturs og vom þeir félagar
að vísitera á Ströndum fyrir
skömrnu. Að sögn Pétur fengu þeir
góðar viðtökur hjá kjósendum.
Jóhann risi á Internetinu
Jóhann Svarfdælingur Péturs-
son, stærsti maður heims um sína
daga, getur nú öðlast frægð á ný. I
Eyfirska fréttablaðinu er sagt frá
því að Júlíus Júlíusson hefur tekið
saman margvíslegar upplýsingar
um Jóhann risa og komið þeim á
Internetið - tölvuvæddu upplýs-
ingahraðbrautina sem liggur nú
um gjörvalla veröld.
Að sögn hlaðsins fékk Júlíus þá
hugmynd að koma Dalvík að á
netinu og leitaði þessvegna fanga í
sögu frægasta íbúa staðarins fyrr
og síðar. Hann lét ekki sitja við
orðin tóm, heldur leitaði eftir
stuðningi frá Dalvíkurbæ til að
saga Jóhanns geti orðið aðgengileg
þeim 30 milljónum sem hafa að-
gang að Intcrnetinu.