Alþýðublaðið - 01.03.1995, Page 5

Alþýðublaðið - 01.03.1995, Page 5
MIÐVIKUDAGUR 1.MARS 1995 ALÞYÐUBLAÐIÐ 5 1 HHB ! I ;í »|H| - Ilíé HHh |c "■ ssm p*! Iw |HR 1 Stefán Einarsson kokkur: 28 ár til sjós - 28 árum of lengí! inu. Núverandi fyrirkomulag sé ekki svo ólíkt lénsskipulagi fyrri tíma þegar menn gátu gerst leigu- Fiskistofnar séu ekki eins tak- markaðir og af sé látið. Kvótakerf- ið, sem líti vel út á blaði en sé af- vera frjálsar. Kvótakerfi á hins- vegar að vera áfram við lýði, svo sem í veiðum á loðnu, rækjum og öðru slíku,“ segja þeir. Fleiri atriði í sjávarútvegsstefn- unni eru þeir félagar ekki sáttir við. Þeir segja nauðsynlegt að all- ur fiskur fari um markað. Það eitt tryggi eðlilega verðmyndun og hækki jafnvel laun sjómanna. Þeg- ar kvóti, útgerð og vinnsla sé öll á hendi sama aðila sé augljóst að sá hinn sanii hafi alfarið á hendi hvert skiptaverð aflans sé - og það sé ekki sanngjarnt. Marglit Ijósaborg á midunum Meðan á þessum gagn- merka skoðanalestri sjómannanna tveggja stóð, sigldi Guðmundur á um það bil 12 mílna hraða austur með suðurströndinni. Við nálguð- umst loðnuna. Og spennan urn borð jókst. Fréttir bárust af þvf að Heilir í Þorlákshöfn og byrjað að dæla loðnunni á vörubíla sem síðan óku henni til Granda í Reykjavík. Óskar Friðriksson og Kristján Möller: Burt með kvótakerfið. liðar hjá lénsherrunum; sægreifun- um, sem svo eru kallaðir. Fiskurinn verdur að fara um markad Óskar og Kristján eru þeirrar skoðunar að kvótakerfið hafi í grundvallaratriðum brugðist. leitt í raun, hafi hinsvegar skapað „vaxandi og bullandi atvinnu- leysi“, einsog þeir orða það. „Það á að taka upp sóknarmark á bol- fiskveiðum, ákveðið hámark á að vera á veiðum úr þeim stofnum, svo sem á þorski, en að öðru leyti eiga veiðar úr þessum stofnum að skip væru að fá ágæt köst út af Dyrhólaey - sem á meðal sjó- manna gengur alla jafna undir nafninu Portland. A þær slóðir vorum við komnir um klukkan eitt um nóttina. Ut um brúargluggann mátti á miðunum sjá marglita ljósaborg Sölvi B. Harðarson með fiskinn sem hegðar sér óútreiknanlega. allra þessara skipa. Inn í þessa um- gjörð kemur svo með nokkurra mínútna millibili veikur ljósgeisli frá Dyrhólaeyjarvita. Einnig sjást týrur frá sveitabæjum í Dyrhóla-, Hvols- og Péturseyjahverfum í Mýrdalnum. Við skipshlið sveim- ar múkkinn í leit að æti. Svo marg- ir eru þeir að ekki festir tölu á. Má þannig skipa múkkanum í hóp þeirra þriggja náttúrufyrirbrigða á Islandi sem til þessa hafa verið sögð óteljandi: Breiðafjarðareyja, Vatnsdalshóla og vatnanna á Arn- arvatnsheiði. Nú er von um veiði - og það all- góða. Stemmningin í brúnni á Guðmundi var seiðmögnuð, ein- sog hér er að framan lýst. Karlinn, Grímur skipstjóri, setti upp der- húfu sem hann kallaði veiðihúf- una. Hún veit ævinlega á góðan alla sé hún á höfði höfð. Það var sannreynt þarna aðfararnótt laug- ardagsins. Fyrst var nótinni kastað um klukkan eitt um nóttina. I því kasti fengust um 200 tonn af loðnu. AIl- anum var dælt um borð og nótin dregin inn. Síðan var stímt nokkrar ntílur og nótinni kastað þar aftur. 1 því kasti fengust um 400 tonn í nótina. Heildaraílinn í þessum túr losaði því um 600 tonn. Rökræðum frestad og farið í koju Stímið var sett aftur á Þorláks- höfn um klukkan fjögur um nóttina. Og nú víkur sögunni niður í borðsal. Klukkan er hálf fimm að nóttu. Eftir þessa hressilegu atla- hrotu setjast menn niður yfir kaffi- bolla og kokkurinn hefur fundið til fullt af brauði með allavega áleggi: osti, tómötum, skinku og rækjusal- ati. Þessu skófla menn í sig og drekka kaffí með. Þeir rökræða svo urn dagskrá sjónvarpsins. Bein sending er frá Alþingi þar sem síð- asta lota þingstarfa stendur yfir. Ingi Björn Albertsson var í ræðu- stól og rökræddi frumvarp um tób- aksvarnir. Hann talaði góða stund. Um klukkan fimm fór hann úr ræðustól og þá var fundi þingsins frestað. Um svipað leyti frestuðu skipverjar á Guðmundi öllurn frek- ari rökræðum og fóru í kojur sínar. Loðnan gefur vel í aðra hönd fyrir allt þjóðarbúið Klukkan er hálf níu að morgni og komin er dagskíma. Grímur Jón skipstjóri stendur sína vakt við stjórnvölinn og siglir beina leið eftir radarnum. Okkur miðar hægt, en þó vel og örugglega til Þorláks- hafnar. Uppi í brú er talað unt alla skapaða hluti. Þórður vélstjóri blandar sér í umræðurnar. Hann gagnrýnir fiskveiðistjórnunina og kvótakerfið. Oánægja með það heyrist vi'ða - og þá hvar sent menn í flokki eða fylkingu standa. Við rennum okkur inn í hafnar- kjaftinn í Þorlákshöfn um klukkan tíu á laugardagsmorgni. Löndunar- gengi er á kajanum og er til í tusk- ið. Vörubílar bíða þar einnig þeir munu aka aflanunr til Granda hf. í Reykjavík sem hefur keypt þessa loðnu til vinnslu. Hennar bíða þar margar vinnufúsar hendur. Skapa þannig rnikil verðmæti. A loðnuvertíð fá sjómenn, land- verkafólk og raunar þjóðarbúið allt vel í aðra hönd. Lífið er loðna.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.