Alþýðublaðið - 01.03.1995, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 01.03.1995, Qupperneq 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1.MARS 1995 JAFNAÐARMENN Á REYKJANESI Framboðslistakynning Kynning á frambjóðendum á lista Alþýðuflokks- ins - Jafnaðarmannaflokks íslands - á Reykjanesi fer fram næstkomandi föstudag, 3. mars, klukkan 21:00 í Félagsheimili Kópavogs, Fannborg 2 (suðurdyr-veislusal- ur á neðstu hæð). Auk kynningar á frambjóðendum verða skemmtiatriði, söngur og dans á dagskránni. Allir stuðningsmenn jafnaðarmanna eru velkomnir. Nánari upplýsingar eru géfnar í síma 91-44700. Stjórnin. JAFNAÐARMENN A VESTURLANDI Kosningaskrifstofa opnuð Kosningaskrifstofa Alþýðuflokksins á Akranesi verður opn- uð föstudaginn 3. mars í félagsheimilinu Röst. Sími 93-11716. Leitið upplýsinga. ALÞYÐUFLOKKURINN JAFNAÐARMENN Á SUÐURNESJUM Kosningaskrifstofa opnuð Kosningaskrifstofa jafnaðarmanna á Suðurnesjum hefur verið opnuð að Hafnargötu 88 í Keflavík (gamla ÁTVR-hús- ið). Opið verður alla daga frá klukkan 10:00 til 20:00. Símarnir eru 92-11180 og 92-11380. Kosningastjóri er Hilmar Hafsteinsson og starfsmaður kosningaskrifstofunnar er Erlingur Hannesson. Kosningastjórnin. JAFNAÐARMENN Á VESTURLANDI Góugleðin nálgast Alþýðuflokksfélag Akraness heldur sína árlegu góugleði í félagsheimilinu Röst, laugardaginn 11. mars. Allir jafnaðarmenn eru velkomnir. Dagskráin verður nánar auglýst síðar. Baráttukveðjur. Stjórnin. Auglýsing um fram- lagningu skattskrár 1994 og virðisauka- skattskrá fyrir rekstrarárið 1993 í samræmi við 2. mgr. 98. gr. laga nr. 75/1981 um tekju- skatt og eignarskatt er hér með auglýst að álagningu skatta og kærumeðferð er lokið á alla aðila sem skatt- skyldir eru skv. framangreindum lögum, sbr. 1. kafla laga nr. 75/1981. í samræmi við 46. gr. laga nr. 50/1988, með síðari breyt- ingum, um virðisaukaskatt, er hér með auglýst að virð- isaukaskattskrá fyrir rekstrarárið 1993, liggur frammi en í henni er tilgreindur ákvarðaður virðisaukaskattur eða endurgreiddur virðisaukaskattur hvers skattskylds aðila. Skattskrár og virðisaukaskattskrár verða lagðar fram í öllum skattumdæmum fimmtudaginn 2. mars 1995 og liggja frammi hjá skattstjórum í hverju umdæmi og hjá umboðsmönnum skattstjóra í hverju sveitarfélagi dag- ana 2. marstil 15. mars að báðum dögum meðtöldum. 1. mars 1994. Skattstjórinn í Reykjavík. Gestur Steinþórsson. Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi. Stefán Skjaldarson. Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi. Elín Árnadóttir. Skattstjórinn í IMorðurlandsumdæmi vestra. Bogi Sigurbjörnsson. Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi eystra. Sveinbjörn Sveinbjörnsson. Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi. Karl Lauritzson. Skattstjórinn í Suðurlandsumdæmi. Hreinn Sveinsson. Skattstjórinn í Vestmannaeyjum. Ingi T. Björnsson. Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi. Sigmundur Stefánsson. UNGIR JAFNAÐARMENN Sæluvist í sveitinni! Kosningastjórn Ungra jafnaöarmanna efnir til sæluvistar í sveitinni um næstu helgi (föstudaginn 3. mars til sunnudags- ins 5. mars) í þremur bústöðum sem leigðir hafa verið við Bif- röst í Borgarfirði. Tilgangurinn með ferðinni er sá, að þjappa saman öllum ung- um frambjóðendum (á aldrinum 0 til 35 ára), svo og öðrum ungum jafnaðarmönnum sem hyggjast taka þátt í baráttunni þessar síðustu vikur fyrir alþingiskosningarnar 8. apríl. Með öðrum orðum: Allir eru velkomnir. Til að halda verði á pakkanum niðri verða engar skipulagðar rútuferðir á svæðið og ekki sameiginlegur matur, heldur þurfa ungir jafnaðarmenn að koma sér þangað á einkabílum eða með BSÍ og hafa með sér eigin fæði. Á laugardeginum er skipulögð dagskrá frá klukkan 10:00 til miðnættis. Dagskrá þessi felst í skemmtun, innivist, skemmt- un, útivist, skemmtun, fyrirlestrum, skemmtun, sýnikennslu, skemmtun, hópvinnu, skemmtun, einstaklingsframtaki. Mest- megnis mun þó dagskráin samanstanda af ábyrgðarlausu gríni og glensi frá morgni til morguns - og skemmtun. Þar sem aðeins er hægt að koma um fimmtíu manns fyrir í bú- stöðunum þremur eru áhugasamir hvattir til að skrá sig fyrir hádegi á fimmtudag á skrifstofum SUJ í síma 552-9244, þar sem Baldur Stefánsson, kosningastjóri Ungra jafnaðar- manna, tekur óður og uppvægur á móti pöntunum. HVERJIR VERÐA ÞAR? Frambjóðendur Ungra jafnaðarmanna og þeir sem ekki komust í framboð, þeir sem unnu kosning- arnar í Háskólanum og þeir sem töpuðu, fallega fólkið og Ijóta fólkið, heppna fólkið og óheppna fólkið, skemmtilega fólkið og nerðirnir, tilvonandi þingmenn og þeir sem ekki eiga séns, for- ingjarnir og fótgönguliðið, gafflarnir og skeiðarnar. Og allir hinir. Kosningastjórnin. RAÐAUGLYSINGAR Utankjörfundaratkvædagreidsla í Reykjavík vegna kosninga til Alþingis, sem boðað hefur verið til þann 8. apríl næstkomandi, verður fyrst um sinn á skrifstofu embættisins, að Skógarhlíð 6, Reykjavík, á skrifstofutíma, kl. 9:30-15:30. Væntanlegum kjósendum er bent á að hafa með sér full- nægjandi skilríki. Sýslumaðurinn í Reykjavík. I ■ *,■ .í&SRíWSfe * . m ■áWW FRAMMK til á&krifendaleike! Á nasstu fjórum vikum verða dregin út^T nöfn áskrifenda blaðsíns vikulega Dregin verða út 2 nöfn í hverju kjördasmi og nöfn hinna heppnu birtaet í Alþýðublaðinu á miðvikudögum og föstuJögum. :yrstu vinningshafamir eru úr Norðurlandskjördasmi vestra: Hálfdán Sveinsson (Norðurgötu 4 - 58>0 Siglufirði) og Sjörn Sigurbjörnsson (Fellstúni 12 - 550 Sauðárkróki). V'inníngarnir eru gjafabréf á vöruúttekt í Skátabúðinni O/^ /OiO/O - að kron u r *-• á ekrifsr-ofur A! 3tu 8-10, sími 91-625! blaððíns í Alpýðuhúðinu í Keykjavík, myndðendir 91-629244. áskrífendur - nýir sem gamlir - eru í pottinum.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.