Alþýðublaðið - 01.03.1995, Page 8

Alþýðublaðið - 01.03.1995, Page 8
MMDUBLMO Miðvikudagur 1. mars 1995 34. tölublað - 76. árgangur Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk Stjórn Þjóðvaka á Suðurlandi lagði fram tillögu um skipan efstu sæti framboðslistans í gærkvöldi Þorsteinn í 1. sæti Þorkatli Steinari Ellertssyni var boðið 3. sætið en hann hafnaði því og er ekki á listanum. Á almennum félagsfundi Þjóð- vaka á Suðurlandi í gærkvöldi lagði stjóm félagsins fram tillögu um skip- an þriggja efstu sæta á framboðslista í kjördæminu. Samkvæmt tillögunni mun Þorsteinn Hjartarson skóla- stjóri á Skeiðum skipa 1. sæti listans. Þorkatli Steinari Ellertssyni bónda var boðið 3. sæti listans en hann hafnaði því boði og er ekki á fram- boðslistanum. Þorkell hafði áður fengið flestar tilnefningar í 1. sæti listans eins og hann greindi frá í Al- þýðublaðinu í gær. Samkvæmt tillögu stjómarinnar mun Ragnheiður Jónasdóttir á Hvolsvelli skipa 2. sæti listans. I 3. sæti verður Hreiðar Hermannsson á Selfossi. Ekki var gerð tillaga um röðun í fleiri sæti á fundinum í gær- kvöldi sem fram fór í Þingborg. Samkvæmt áreiðanlegum heimild- um blaðsins var búið að ákveða að gera tillögu um að Þuríður Georgs- dóttir í Vestmannaeyjum skipaði 4. sætið. Á síðustu stundu var hætt við þá tillögu og ákveðið að leggja að- eins fram tillögu um þrjú fyrst sætin. Kristín Erna Arnardóttir for- maður deildar Þjóðvaka á Suður- landi sagði í samtali við Alþýðublað- ið í gær, að hún hefði gjaman viljað hafa Þorkel Steinar f þessum hópi. Hann hefði hins vegar hafnað boði um 3. sætið og dregið sig til baka af því hann var ekki settur í 1. sæti. Þorkell St. Ellertsson sagði í við- tali sem birtist í Alþýðublaðinu í gær, að fyrir nokkm hefði farið fram tilnefning meðal félagsmanna Þjóð- vaka á Suðurlandi um skipan efstu manna á framboðslista. Hann hefði fengið 50 prósent fleiri tilnefningar en Þorsteinn Hjartarson í I. sæti, en síðan hefði komið fram óvæntur og verulegur þrýstingur frá miðstjóm Þjóðvaka á höfuðborgarsvæðinu um að fara ekki eftir þessari niðurstöðu. „Miðstjóm Þjóðvaka í Reykjavík hefur sjálfsagt sína skoðun á þessum málum og verður að svara fyrir hana. En það hefur ekki verið um neinn þrýsting að ræða og aldrei verið sagt annað en þetta væri á okkar valdi. Við í stjórn félagsins eyddum mikl- um tíma í að fjalla um röðun á listann og vorum ákveðin i' að gera þetta eft- ir bestu sannfæringu. Þetta er vanda- samt verkefni, sérstaklega þegar fleiri en einn sækjast eftir ákveðnu sæti. Okkur ber að taka mið af þeim tilnefningum sem vom gerðar en þær em ekki bindandi. Við emm með stórt kjördæmi og verðum að taka til- lit til bæði kynja og svæða. En tillaga stjómar um röðun þriggja efstu sæta verður lögð fyrir félagsfund i kvöld og þá kemur vilji félagsmanna í ljós,“ sagði Kristín Ema. Þorkell Steinar sagði í viðtalinu við Alþýðublaðið að ólíklegt væri að hans fylgismenn sættu sig ekki við að hann fengi ekki það sæti sem hann hetði verið tilnefndur í. Kristín Ema var spurð hvort hún óttaðist klofning í Þjóðvaka vegna þessa máls. Hún vildi ckki svara því á ann- an hátt en þann að hún harmaði að ekki náðist samkomulag sem allir gátu sætt sig við. Þorsteinn Hjartarson sagði í sam- tali við blaðið í gær að það hefði allt- af legið fyrir að þær tilnefningar sem fram fóm ættu aðeins að vera til hlið- sjónar. Það hefði komið sér mjög á óvart að Þorkell Steinar hefði tjáð sig um málið í Alþýðublaðinu og það valdið sér vonbrigðum. Enda hefði sumt af því sem hann sagði verið trúnaðarmál. En Þorkell gæti reynt að fella listann á fundinum í kvöld ef hann vildi. Stjóm Þjóðvaka á Suður- landi legði fram þann lista sem hún teldi sterkastan fyrir kjördæmið og þar fengi hann lýðræðislega af- greiðslu. „Gullkistan“ List á Laugarvatni Dagana 17. júní til 2. júlí í sumar verður haldinn að Laug- arvatni listviðburður sem hiotið hefur yfirskriftina Gullkistan. Listamönnum í öllum listgrein- um er boðið að sýna þar við- fangsefni sín og hafa þeir frest til 15. mars að tilkynna þátttöku. Uppákoman mun að mestu fara fram innan veggja Héraðsskól- ans að Laugarvatni, byggingar sem um áratugaskeið hefur ver- ið tákn Laugarvatns. Listamcnn geta nýtt sér þar herbergi, ganga og sali hússins, einnig gamla sundlaug og íþróttahús. Að sögn talsmanna Gullkist- unnar, Óldu Sigurðardóttur og Kristveigar Halldórsdóttur, er tilgangurinn með þessu fram- taki margþættur, en þó má þar einkum nefna eftirfarandi at- riði: Að vekja athygli á húsi Héraðsskólans að Laugarvatni, en húsið hefur lengi verið tákn skólasetursins Laugarvatns og tengist merkum kafla í mennt- unarsögu Islendinga. Einnig var þar lengi rekið glæsilegt sumar- hótel. Nokkur óvissa ríkir um hvað gera eigi við húsið, en von- andi verður því ætlað hlutverk í samræmi við þann stórhug sem varð til þess að það reis á sínum tíma. Nánari upplýsingar fást hjá Öldu í síma 98-61146 og Krist- veigu í síma 98-61261. Baksviðs á Norðurlandaráðsþingi Var Ingvar Carlsson að stelast til að reykja ? Yfir því velti starfsfólk Þær voru ekki mjög óhressar, þær Ása Hreggviðsdóttir þjónustustjóri Háskólabíós og Esther Steinsson umsjónarmaður ungliða á Norður- landaráðsþingi, þegar Alþýðublaðið hitti þær á ferð og flugi um sali Norðurlandaráðsþingsins í gær. Ása var í óða önn með Ajax- brúsann að þurrka af hverju sem fyrir varð og Esther var að leita að einhverjum ætlaði ekki í móttöku ríkisstjómar- innar á Hótel Sögu um kvöldið. „Þetta gengur bara vel. Skandina- vareru svo snyrtilegir," sagði Ása og átti við að þeir kámuðu ekki svo mikið út veggi Háskólabíós. „Auð- vitað er alltaf skemmtilegt þegar það eru 7-800 manns í húsinu. Maður kemst ekki hjá því að hitta einhvem sem maður vill tala við,“ sagði Esther. ,íg hitti til að mynda Ingvar Carlsson niðri í kjallara áðan,“ greip Ása fram í. „Hann var að hvíla sig innan um skúringadósimar. Og kannski var hann að stelast til að reykja." Tvær ánægðar á Norðurlandaþingi: Ása Hreggviðsdóttir þjónustustjóri Háskólabíós og Esther Steinsson umsjónarmaður ungliða. a-mynd: e.ói. Esther sagði að sér finndist Carl Bildt fremur veiklulegur eftir að henn lent í stjómarandstöðu. „Það sem er svo skemmtilegt við þessi Norðurlandaráðsþing er að maður hittir sama fólkið ár eftir ár.“ Að- spurð um hvort að Norðurlandasam- starfið einskorðaðist kannski við þessa sem kæniu ár eftir ár á Norður- landaráðsþing neitaði hún harðlega. „Nei, nei, það er miklu víðfeðmara en það.“ Útvarp Radíó- vitinn FM 91r7 I dag, miðvikudaginn 2. mars, hefjast formlegar útsendingar frá nýrri útvarpsstöð sem fengið hef- ur nafnið Radíóvitinn FM 91,7, enda er stöðin staðsett í félags- miðstöðinni Vitanum í Hafnar- firði. Opnunarkvöldið er kallað Stjömukvöld því þá verður bein útsending frá tónleikum fimm bíl- skúrsbanda sem allar hafa verð- andi stjömur innanborðs. Um er að ræða hljómsveitir sem æfa á Hrauninu, en svo er aðstaðan köll- uð sem Æskulýðsráð býður hljómsveitunum upp á. Tónleik- amir sem útvarpað er frá verða í Vitanum í kvöld og hefjast klukk- an 20:00, húsinu verður lokað um 22:30. Allir unglingar á aldrinum 13 til 16 ára eru velkomnir, að- gangseyrir er 100 krónur. Ut- varpsstöðin Radíóvitinn mun út- varpa fjögur kvöld vikunnar - frá mánudegi til fimmtudags - á milli 19:00 og 22:30 á FM 91,7. Allt efni sem útvarpað verður er unnið af unglingum í gmnnskólum Hafnaríjarðar. I hverjum skóla, þar sem er unglingastig, er rekinn útvarpsklúbbur og þar fer fram undirbúningsvinna á dagskrá. Síðan fá allir tækifæri til að vera með eigin þátt. Allur útsendingar- tími er nú fullbókaður. Forstöðu- maður Vitans er Geir Bjarnason. Snjóflóðahætta í Ölfushreppi Almannavamanefnd Ölfus- hrepps vill vekja athygli á því að á hinum vinsælum útivistarsvæðum við Þrengsli og Hellisheiði, -og víðar í hreppnum, er þó nokkur snjóflóðahætta í brekkum og gilj- um. Eykst þessi hætta verulega við umferð fólks um þau svæði þar sem mikill snjór er, hvort sem er fótgangandi, á skíðum, vélsleð- um eða jeppum. Því beinir nefnd- in því til útivistarfólks á þessum svæði að það hafi allan vara á og forðist sérstaklega að vera á ferð í brekkum og giljum þar sem hengjumyndun er eða þykkt snjc> lag. Varast ber að fara um ótroðn- ar brekkur, og göngufólki er ráð- lagt að vera ekki eitt á ferð á vara- sömum svæðum. Einar Már Guðmundsson tók við Bókmenntaverðlaunum Norðurlandaráðs í gær. Skáldsaga hans, Englar alheimsins, fer nú sigurför um víðan völl. a mVniEði Einar Már Guðmundsson á þingi Norður- landaráðs í gær Ljóðalestur „með nordískum axent" Einar Már Guðmundsson var ekki í vandræðum með að þmma yf- ir dolföllnum blaðamönnum í Há- skólabíói ljóð eftir sjálfan sig þýtt á dönsku „með nordískum axent,“ eins og hann sagði það. I gær var blaða- mannafundur með verðlaunahöfum bókmennta- og tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs, sem vora afhent við hátíðlega athöfn í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi. Einar átti að segja nokkur orð í upphafi, en hann lét verk sitt tala í staðinn eins og áður sagði. Eric Ericson. Svíinn er hlaut tónlistar- verðlaunin fyrir starf sitt að kóramál- um, gantaðist með það að hann ætti kannski að syngja sína kynningu, en af því varð ekki. I staðinn sagði liann okkur kórahefðin á Norðurlöndum væri rík og hefði í gegnum tíðina verið borin uppi af alþýðuhreyfing- unum. Bókmenntaverðlaun Norður- landaráðs voru afhent í fyrsta skipti árið 1961 og fyrstu tónlistarverð- launin komu í hópinn Ijórum árum síðar. Paganini, Giuliani og Þorkell á Háskóla- tónleikum Gerður Gunnarsdóttir fiðluleikari og Einar Kr. Einarsson gítarleikari flytja verk eftir Niccolo Paganini, Mauro Guiliani og Þorkel Sigurbjörns- son á Háskólatónleikum í dag, miðvikudaginn 1. mars. Tónleikarnir hefj- ast klukkan 12:30, hand- höfum stúdentaskírtein- is er boðinn ókeypis að- gangur, en aðgangseyrir fyrir aðra er 300 krónur. A-mynd: E.ÓI. Villa í skýrslu Skáís Margrét Frímannsdóttir með 5,5 meðaleinkunn í skoðanakönnun Skáls, sem Al- þýðublaðið birti á föstudaginn, þar- sem kjósendur á Suðurlandi voru beðnir að gefa þingmönnum kjör- dæmisins einkunnar, slæddist ein prentvilla frá Skáís einsog fram kemur í eftirfarandi tilkynningu frá fyrirtækinu: „Það staðfestist hér með, að inn í skýrslu sem Skáls, Skoðanakannanir á Islandi hf., vann fyrir Alþýðublað- ið, meðal annars um vinsældir ráð- herra í Suðurlandskjördæmi, slædd- ist prentvilla. Meðaleinkunn Margr- étar Frímannsdóttur var sögð í skýrslunni 4,1 en átti með réttu að vera 5,5. Aðrar meðaleinkunnir í skýrslunni eru rétt tilgreindar. Við hörmum þessi mistök. Þetta er hvorki í fyrsta né síðasta skiptið sem Margrét: 5,5 í meðaleinkunn - ekki 4,1 einsog fram kom i skýrslu Skáls. prentvillupúkinn gerir mönnum skráveifu. Fyrir hönd Skáls, Bragi Jóseps- son.“

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.