Alþýðublaðið - 02.03.1995, Side 1
Fimmtudagur 2. mars 1995
Stofnað 1919
35. tölublað - 76. árgangur
Afnotaréttur að fiskimiðunum talinn jafngilda eignarrétti, segir
Kristján Ragnarsson formaður LIU um skattlagningu fiskikvóta
Verið að festa eignarrétt
útgerðarmanna í sessi
- segir Lúðvík Bergvinsson, yfirlögfræðingur umhverfisráðuneytisins og 1. maður
á lista Alþýðuflokksins á Suðurlandi.
„Eins og framkvæmdin hefur ver-
ið er hætt við að það sé smám saman
verið að festa eignarrétt útgerðar-
manna á kvóta í sessi. Alla vega er
ljóst að þessi framkvæmd skapar
réttaróvissu. Þar er ég að vísa til
dóms Hæstaréttar um að eignfæra
kvóta, álits Ríkisendurskoðunar og
úrskurðar sýslumannsins í Reykja-
vík um að greiða skuli crfðafjárskatt
af kvóta, framsalsheimildir laganna
um fískveiðistjórnun og hugmynd-
um Þorsteins Pálssonar sjávarút-
vegsráðherra um veðsetningu
kvóta.“ sagði Lúðvík Bergvinsson,
yfirlögfræðingur umhverfisráðu-
neytisins og I. maður á lista Alþýðu-
flokksins á Suðurlandi, í samtali við
Alþýðublaðið. „Þessi ruglingslega
framkvæmd, sem samræmist ekki 1.
grein fiskveiðistjómunarlaganna,
getur leitt til þess að útgerðarmenn
telji aflaheimildir eign í skilningi 67.
greinar stjómarskrárinnar. Yrði það
niðurstaðan þyrfti rikið að greiða
himinháar skaðabætur vilji menn
breyta núverandi fiskveiðistjómun-
arkerfi. Þetta er því alvarlegt mál
sagði Lúðvík.
Það álit Ríkisendurskoðunar til
sýslumannsins í Reykjavík að greiða
skuli erfðafjárskatt af fiskikvóta hef-
ur vakið mikla athygli. Með þvf virð-
ist enn frekar rennt stoðum undir það
að útgerðarmenn teljist eigendur
fiskikvóta þótt sameign þjóðarinnar
á fiskimiðunum sé lögbundin.
„Fjármálaráðherra gerir kröfu um
að við eignfærum kvóta og afskrif-
um. Hæstiréttur staðfesti þetta en að
vísu með styttri fymingartíma en
ráðherra gerði kröfu til. Síðan kemur
þetta álit Ríkisendurskoðunar, en sú
stofnun er angi af löggjafarvaldinu.
Mér finnst ntjög erfitt að gera kröfu
um að við eignfærum hluti sem yrðu
svo teknir af okkur á morgun. Við
höfum aldrei gert kröfu um annað en
vera handhafar afnotaréttar. Hann er
hins vegar talinn jafngilda eignarrétti
og því þurfum að borga af þessu
skatta," sagði Kristján Ragnarsson
formaður LIU í samtali við blaðið í
gær.
Lúðvík Bergvinsson minnti á til-
lögur Alþýðuflokksins varðandi
stjóm fiskveiða. Þar væri lagt til að
taka upp veiðileyfagjald sem yrði
greitt árlega og þar með væri ekki
hætta á að kvótinn gengi í erfðir. Síð-
an væri það tillaga Alþýðuflokksins
um að festa sameign þjóðarinnar á
fiskimiðunum í stjómarskrána sem
kæmi í veg fyrir þessa eignamyndun
á auðlindinni.
„Við verðum að sætta okkur við
þessa skattlagningu sem um er að
ræða. Það sem er jákvætt í þessum
úrskurðum er að þeir festa þetta í
sessi og þá vita menn að hverju þeir
ganga. Þetta er þá komið til að vera,“
sagði Kristján Ragnarsson.
*
Kosningar stúdenta við Háskóla Islands
fíöskva vann yfirburðasigur
- og hlaut 60% atkvæða, 8 menn kjörna og hefur þannig alls 17 fulltrúa í Stúdentaráði. Vaka hlaut 38% atkvæða,
5 fulltrúa kjörna og hefur nú alls 12 fulltrúa í ráðinu. Sé tekið tillit til kosninga til Háskólaráðs (háskólaráðs-
fulltrúar sitja í Stúdentaráði) þar sem sitthvor hreyfingin fékk mann kjörinn, þá sigraði Röskva kosningarnar 9-6.
Úrslitatölur í kosningum stúdenta
við Háskóla Islands til Stúdentaráðs
og Háskólaráðs vom gerð kunngerð
um klukkan þijú í gærmorgun. Tvær
fylkingar buðu fram lista: Röskva -
samtök félagshyggjufólks við Há-
skóla Islands og Vaka - félag lýð-
ræðissinnaðra stúdenta. 5.518 manns
voru á kjörskrá, en 2.952 neyttu at-
kvæðisréttar síns þannig að kjörsókn
var einungis 53,5%. I kosningum til
Stúdentaráðs fékk Röskva 1.671 at-
kvæði (60%) og 8 menn kjöma, en
Vaka hlaut 1.097 atkvæði (38%) og 5
menn kjöma. Röskva hefur nú yfir-
burðastöðu í Stúdentaráði eða 17
menn af 30, Vaka hefur 12 og Óháði
listinn áfram einn. I kosningum til
Háskólaráðs hlaut Röskva 1.689 at-
kvæði, en Vaka 1.105 atkvæði og fé-
lögin verða því áfram með sitthvom
fulltrúann í ráðinu. Fulltrúar í Há-
skólaráði ganga sjálfkrafa inní
Stúdentaráð þannig að í raun hljóðaði
kosningasigur Röskvu uppá 9-6 sem
er stærsti kosningasigur sem unnist
hefur kosningum stúdenta við Há-
skólann síðan 1932.
Arndís Kristjánsson sagnfræði-
nemi skipaði 1. sæti Röskvu til Stúd-
entaráðs og Þóra Arnórsdóttir líf-
fræðinemi I. sæti til Háskólaráðs. 1.
sæti Vöku til Stúdentaráðs skipaði
Sveinn Guðmarsson landafræði-
nemi og Ingvi Hrafn Óskarsson
lögfræðinemi 1. sæti til Háskólaráðs.
Alþýðublaðið ræddi við Þóm Amórs-
dóttur í gær og spurði fyrst hvað
hefði skapað stórsigur Röskvu.
„Það var fyrst og fremst brjáluð
vinna þess stóra
hóps sem að
baráttunni stóð,
góð stefnuskrá
og einfaldlega
frabært starf
Röskvu á liðn-
um árum. Ég get
nefnt í því sam-
bandi sumar-
misseri, þjóðar-
átakið, póst- Þóra Arnórsdóttir.
kortaherferð, A-m»nd:E.ói.
þriggja ára framkvæmdaáætlun, rétt-
indaskrá, breytingar á úthlutunarregl-
um LIN og fjölgun dagvistunarplássa
fyrir böm stúdenta."
Hvaða þýðingu hefur kosninga-
sigurinn fyrir Röskvu?
„Nú brettum við upp ermar og
hefjumst handa. Röskva ntun halda
sínu striki hvað varðar efndir á kosn-
ingaloforðum. Það tók örlítinn tíma
að láta þessar ótmlegu tölur síast inn.
Vissulega komu þær á óvart, en ef ég
á að vera hreinskilin þá finnst mér við
eiga þetta fyllilega skilið.“
Þú ert nýnemi við skólann og
ferð strax á oddinn í kosningabar-
áttu. Hvernig er líðanin?
„Þessi stutta kosningabarátta hefur
verið alveg rnagnað tímabil, en ég
viðurkenni að námið hefur setið al-
gerlega á hakanum sfðustu vikur.
Þegar úrslitin vom kunngerð lá hins
vegar ljóst fyrir að þetta er búið að
vera þess virði. Sigurvíman er rétt að
renna af manni núna. Það eina sem
skyggir örlítið á gleðina er þessi slaka
kjörsókn, en hún var rúm 50%.“
Páll Magnússon hættur á Morgunpóstinum
„Höfum náð meiri
árangri en Alþýðublaðið"
- segir Gunnar Sméúi Egilsson, sem nú er einn
ritstjóri blaðsiris. Vísar því á bug að Morgunpósturinn
eigi í rekstrarerfiðleikum. Blaðamönnum sagt upp.
„Ég nenni nú ekki að fara tala ein-
sog í einhverri minningargrein, en
það er nú bara þannig að þegar maður
vinnur með fólki, þá er sama hvað
maður reynir að vera hlutlaus; manni
er yfirleitt vel við fólk,“ sagði Gunn-
ar Smári Egilsson ritstjóri Morgun-
póstsins, aðspurður hvort hann myndi
sakna Páls Magnússonar, sem sagði
óvænt upp störfum sem ritstjóri
blaðsins. Gunnar Smári staðfesti að
blaðamönnum hefði verið sagt upp,
en sagði að það tengdist ekki rekstri
blaðsins. „Það var ákveðnum blaða-
mönnum sagt upp, en það tengist ekki
rekstri eða stöðu blaðsins. Þetta er
persónulegt mál blaðamannanna."
Gunnar Smári vísaði því á bug að
Morgunpósturinn ætti í vemlegum
rekstrarerfiðleikum, og kvað sölu-
áform ekki hafa bmgðist. Hann sagð-
Gunnar Smári: [Þaðl er sama hvað
maður reynir að vera hlutlaus; manni
er yfirleitt vel við fólk. A-mynd: E.ÓI.
ist eftir atvikum ánægður með rekstur
blaðsins, blaðið væri aðeins fimm
mánaða og enn í mótun. „Við eigum
eftir að gera margt. Við höfum náð
meiri árangri en Alþýðublaðið í 70
ára sögu. Mér þætti vænt um ef þú
vildir bæta þessu við, ef ég má ein-
hveiju ráða um svör mín.“
Ekki náðust úrslit í átökum Þjóðvaka um fram-
boðslistann á Suðurlandi á almennum félagsfundi
r
Afram kosið milli
Þorkels og Þorsteins
Atkvæði af fundinum sett í geymslu og þeir félags-
menn sem ekki sóttu fundinn fá að greiða atkvæði.
Ekki tókst að sætta stríðandi fylk-
ingar Þjóðvaka á Suðurlandi á al-
mennum félagsfundi í fyrrakvöld.
Þorkell Steinar Ellertsson og Þor-
steinn Hjartarson berjast því áfram
um 1. sæti framboðslistans í fram-
haldsatkvæðagreiðslu og þar verður
einnig kosið milli tveggja kvenna um
2. sæti listans: Ragnheiðar Jónas-
dóttur og Elínar Magnúsdóttur.
Úrslit eiga að liggja fyrir á laugar-
dagskvöld.
Tæplega hundrað manns mættu á
fundinn sem haldinn var í Þingborg.
Var þar margt af nýju fólki úr báðum
örmum Þjóðvakadeildarinnar á Suð-
urlandi, enda mikið smalað fyrir
fundinn. Rangæingar voru þama fjöl-
mennir og mátti kenna þar í hópi
marga fylgismenn Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks. Kynnt var til-
laga um Mörð Arnason úr Reykja-
vík sem fundarstjóra ásamt Unnari
Þór Böðvarssyni frá Hvolsvelli.
Unnar Þór kemur úr röðum Alþýðu-
bandalagsins sem og kona hans,
Ragnheiður Jónasdóttir. Tillagan um
Mörð mæltist misjafnlega fyrir og
varð að greiða atkvæði um hana. Svo
fór að Mörður var samþykktur sem
fúndarstjóri með 59 atkvæðum, en 37
vom á móti. Stjóm félagsins lagði
fram tillögu um skipan þriggja efstu
sæta framboðslistans. Þar var Þor-
steinn Hjartarson skólastjóri í I. sæti,
Ragnheiður Jónasdóttir á Hvolsvelli í
2. sæti og Hreiðar Hermannsson á
Selfossi í 3. sæti. Rangæingar lýstu
óánægju með að ekki væri bónda að
finna í efstu sætum. Þá kom fram
breytingartillaga um Þorkel Steinar
Ellertsson bónda í Ármóti í 1. sæti og
ennfremur kptft tillaga úr sal um El-
ínu Magnúsdóttur á Stokkseyri í 2.
sæti. Elín er sögð standa utan við
fylkingar Þorkels og Þorsteins og er
þá væntanlega fulltrúi þriðja aimsins
í Þjóðvaka. I tilnefningum félags-
rnanna um röðun í efstu sætin sem
fram fór fyrir nokkm fékk Þorkell
Steinar langflest atkvæði í I. sætið en
Þorsteinn hafnaði í 6. sæti, sam-
kvæmt heimildum blaðsins. Til fund-
arins hafði verið boðað með skömnt-
um fyrirvara og Þorkell Steinar sagði
í Alþýðublaðinu í gær að ekki hefðu
allir fylgismenn hans fengið boð um
fúndinn. Fundarstjórar skutu nú á
fundi með Þorsteini Hjartarsyni og
Þorkatli Steinari og þar var tekin
ákvörðun um að fram færi atkvæða-
greiðsla á fundinum um framkomnar
tillögur um skipan í tvö efstu sætin.
Atkvæðin yrðu hins vegar ekki talin
að sinni heldur geymd. Óllum skráð-
um félagsmönnum Þjóðvaka á Suð-
urlandi sem ekki komu á fundinn
yrðu si'ðan sendir atkvæðaseðlar og
þeim gefinn kostur á að greiða at-
kvæði. Fundurinn samþykkti þessa
ákvörðun. Samtals eni um 150
manns á félagaskrá og verður ekki
bætt við á hana meðan þessi viðbót-
aratkvæðagreiðsla fer fram. Henni
lýkur klukkuna 19 álaugardaginn. Þá
verða öll atkvæðin talin og úrslit
kunngerð. Einfaldur meirihluti ræð-
ur. Kristín Ema Arnardóttir, for-
maður Þjóðvaka á Suðurlandi, sagði í
samtali við blaðið í gær að hún væri
ánægð með að samkomulag náðist
um þessa tilhögun. Góður andi hefði
verið á fundinum þrátt fyrir ágreining
um skipan efstu sæta. Þorkell Steinar
Ellertsson sagði í Alþýðublaðinu fyr-
ir fundinn að þar ætti að leggja fram
tillögur stjómar um efstu sæti listans
til samþykkis eða synjunar og breyt-
ingartillögur yrðu ekki leyfðar. Unn-
ar Þór Böðvarsson sagði í samtali við
blaðið í gær að þótt ummæli um að
viðhafa þá hefðu slík vinnubrögð
ekki komið til álita. Unnar var spurð-
ur hvaða ástæða hefði verið að sækja
fundarstjóra til Reykjavíkur. „Allir
listar Þjóðvaka eiga að samþykkjast í
Reykjavík og hér vom uppi ákveðnar
deilur. Á þeim forsendum var reynt
að fá þama óvilhallan mann því hann
er nánast ekki að finna í þessunt röð-
um hér. Það þurfti að fá mann með
mikla þjálfun og kunnáttu til að ráða
við það verkefni að stýra fundinum.
Eg tel því að það hafi verið rétt
ákvörðun að biðja Mörð um að
koma. En auðvitað er allt svona mjög
viðkvæmt á landsbyggðinni," sagði
Unnar Þór.