Alþýðublaðið - 02.03.1995, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 2. MARS 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
Eg á mér draum...
Pallborðið
Aðalheiður
Sigursveinsdóttir
skrifar
Allt frá því að hagfræðingurínn
John Maynard Keynes kom fram
með þær hagfræðikenningar að n"k-
issjóð mætti reka með halla hafa rík-
isstjómir margra landa steypt um-
bjóðendum sínum ofan í botnlausan
skuldagíg.
En hagfræðingurinn sagði meira,
hann sagði eðlilegt að „ríkið“ færði
út kvfarnar í þjóðfélaginu á sam-
dráttar- og krepputímum en losaði
síðan um böndin í góðæri.
Þetta hefur hins vegar reynst
mörgum erfitt, enda hafa ráðamenn
tekið kenningar Keynes mismikið
sér til fyrinriyndar.
Ætla mætti að ungt fólk hugsi ekki
mikið um það hvemig það getur bú-
ið best í haginn fyrir barnabörn sín.
En er það svo?
Nýlega var gerð könnun meðal
námsmanna í Háskóla Islands, til að
kanna hug þeirra til stjómmála. Það
sem kom mörgum á óvart var megn
óánægja með ríkisfjármálin og efna-
hagsstjómina í landinu.
Þetta hugsandi fólk gerir sér nefni-
lega grein fyrir því að ráðamenn
þessarar þjóðar hafa ekki bara sökkt
þeim, heldur einnig næstu og þar-
næstu kynslóð í botnlausar skuldir.
Undanfarið hefur verið þó nokkur
vakning um þessi mál meðal al-
mennings, ekki bara hér á landi,
heldur um allan heim. Skemmst er
að minnast þingkosninganna í
Bandaríkjunum, þar sem repúblikan-
ar boðuðu hallalausan ríkisrekstur.
En hvar stöndum við íslendingar í
dag? Staðan er
allt annað en
giæsileg.
Nær óslitið
frá árinu 1981
hefur ríkið verið
rekið með halla,
tekin hafa verið
lán hjá þeim
sem erfa skulu
landið. Þessar
upphæðir em
ekki smáar og
nú er svo komið
að við skuldum
tugi milljarða á
milljarða ofan,
bara í ár greið-
um við tólf
milljarða í vexti
og afborganir af
lánum, og vait
sér fyrir endann
á skuldahalan-
um.
Nú hafa töl-
umar loksins
náð að lækka ör-
lítið, en hvað
gerist næst?
Hvemig fer
næstu fjögur ár-
in? Mun okkur
takast að halda
áfram að saxa á _________________________________
okku"hreLkga „Hugsandi fólk gerir sér nefnilega grein fyrir því að ráðamenn þessarar
eungtc}afnað þjóðar hafa ekki bara sökkt þeim, heldur einnig næstu og þarnæstu
auðviíað átS kynslóð í botnlausar skuldir....Ég á mér þann draum, ásamt öðrum
tfkiaá ÞvfnZ un§um jafnaðarmönnum, að ráðandi kynslóðir haldi ekki uppi
Fyrir nokkru lífskjörum sínum á kostnað komandi kynslóða.“
ályktaði sam-
bandsstjórn
Ungra jafnaðar-
manna um ríkissjóðsvandann og völdum að skila ríkissjóði með halla um ungum jafnaðarmönnum, að kostnað komandi kynslóða.
krafðist þess að sett verði í stjómar- yfir kjörtímabil. ráðandi kynslóðir haldi ekki Höfundur er formaður Félags
skrána ákvæði sem bannar stjóm- Ég á mér þann draum, ásamt öðr- uppi lífskjörum sínum á ungra jafnaðarmanna á Akureyri.
DAGSINS
sem við kennarar emjum
Íslenskur skáldskapur hefur
aldrei verið gefinn út í
jafnmiklum mæli í útlöndum
og síðustu misseri. Nú er út-
lit fyrir að verðlaunabók
Einars Más Guðmunds-
sonar - Englar alheimsins -
verði gefin út víða um lönd.
Utgáfa í mörgum Evrópu-
löndum er komin á rekspöl
og við heyrum
að bandarísk
forlög sýni
sögu Einars
Más mik-
inn áhuga.
Islenskar
skáldsögur
hafa ekki
verið áber-
andi á
Bandaríkja-
markaði síðan
á velmektardög-
um Halldórs Laxness, ef
frá er talityskáldsaga Olafs
Jóhanns Ólafssonar sem
hlotið hefur ágætar viðtökur.
Það er semsagt útlit fyrir að
Englar alheimsins fljúgi
víða...
\ ðeins
/xmeira
um Einar Má
Guðmundsson
Ræða hans við
afhendingu
bókmennta-
verðlauna
Norðurlanda-
ráðs vakti
óskipta athygli, og
þótti skáldið fara á
kostum. Lokaorð
hans féllu líka vel í
kramið: Norden er i
orden...
77" vennalistinn
rSJrélt blaða-
mannafúnd í
gær til að
kynna kosn-
ingastefnuskrá
sína. I ljósi ömur-
legrar stöðu í skoð-
anakönnunum þyk-
ir kosningaslagorð
Kvennó nokkuð skond-
ið: Kvennalistinn - á leið í
ríkisstjóm. Innan flokksins
leita konur nú vitaskuld allra
leiða til að rétta úr kút
Kvennó en
verkefnið er
risavaxið: Fylg-
ið er að engu
orðið, alstaðar
annarsstaðar en í
Reykjavfk, þarsem
tað nemur nokkrum
prósentum. A
Reykjanesi virðist
ekki ætla að bera ár-
angur að tefla fram
Kristínu Halldórsdóttur
og þykir nú mörgum efamál
að rétt hafi verið að ýta
Helgu Sigur jónsdóttur til
hliðar. Hún vann góðan
kosningasigur í bæjarstjóm-
arkosningunum í fyrra-
vor, en eftir að fram-
boð Kristínar kom
fram hefur fylgið
hmnið niður í
rúm 3% í þessu
öðru helsta vfgi
Kvennalistans.
Gárungamir valin-
kunnu hafa enda á
orði, að Kvennó ætti
fremur að fá sér slagorð
við hæft: Kvennalistinn - á
leið af Alþingi...
Hinumegin
„Því miður, herra Hreinn, ástandið er mun verra en okkur grun-
aði. - Röntgenmyndirnar sem við tókum í gær af olnboga þín-
um sýna, að þú hefur ekki það sem við köllum vitlausa beinið.
Við töluðum við sálfræðing sjúkrahússins og höfum gert ráð-
stafanir svo þið getið rætt þetta mál í fyllstu einlægni að ítar-
legri skoðun lokinni. Síðan verður þú lagður inná handlækn-
ingadeildina til frekari rannsókna."
og hvar sem að dyrum við lemjum
Ólafur þegir
en Indriði segir
að ekki sé neitt til að semja um.
Þaim úrskurð er einfalt að meta
allir sem vilja, það geta
það kemurfram beint,
klappað og lireint
að kermarar þurfi ekki að éta.
Þau stöifscm að Óli kann ekki
ei œtlast má til að liantt þekki
því'fyndist mér rétt
hanti fengi þann sprett
að fást við tvo „sjöundu “ bekki.
Það ka'ini við andlegu kaunin
og kannski að þá yrði raunin.
eg álít það vist
og efa það síst
að áttfalda myndi hann launin.
Þessa limru setti Ármann Þor-
grímsson í Glerárskóla á Akureyri
inná íslensku tölvuhraðbrautina
Menntanetið fyrir skemmstu.
FÍmm á förnum VegÍ Hvað finnst þér um niðurstöður kosninganna? (Spurt í Háskóla íslands.)
Áslaug Gunnlaugsdóttir, lög-
fræðinemi: Ég er ekkert sérstak-
lega ánægð, enda kaus ég Vöku.
Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir, lög-
fræðinemi: Ég er ósátt við þessi
úrslit því langseta Röskvu í meiri-
hluta er að verða dálítið þreytandi.
Trausti Kristjánsson, verk-
fræðinemi: Úrslitin komu mér á
óvart.
Guðmundur Jósepsson, tölv-
unarfræðinemi: Ég veit ekkert um
þessar kosningar.
Friðrika Stefánsdóttir, frönsku-
nemi: Þetta eru frábærar niðurstöð-
ur. Röskva hefur staðið sig svo vel,
að þau eiga þetta skilið.
Viti menn
Nick Leeson knésetti Barings
rneð því að leggja undir
27 milljarða dollara eða sem
svarar tæpum 1800 milljörð-
um íslenskra króna í
spákaupmennsku sinni
með japönsk hlutabréf
og verðbréf sem hann hélt
vísvitandi leyndri fyrir
yflrmönnum sínum, að því er
yfírmenn bankans segja.
DV í gær.
Fréttablaðið Tíminn hefur
meiri áhuga á því hverjir eru
ekki í öðru sætinu heldur en
því hver er í öðru sætinu.
Þetta afgreiðir málið 100
prósent af minni hálfu og allar
kenningar Tímans um það eru
ósköp einfaldlega gegnum
þeirra grænu fíokksgleraugu.
Mörður Árnason um fréttaflutning
Timans af framboðsraunum Þjóðvaka
í Reykjavík. DV í gær.
Enn einu sinni verið að
svíkja láglaunafólkið.
Sigurður T. Sigurðsson
verkalýðsleiðtogi. DV í gær.
Æskilegast að stytta ræður
og útkljá mál í nefndum.
Salome Þorkelsdóttir fyrrum
þingforseti. Mogginn í gær.
í okkar huga er þetta mál
einfalt: hafa stjórnmálaflokk-
ar á íslandi þor til þess að láta
á það reyna í samningum við
ESB hvort mikilvægustu
þjóðarhagsmunir verði
tryggðir? Hafa þeir
framtíðarsýn eða eru þeir
fastir í neti fortíðarinnar?
Össur Skarphéðinsson
umhverfisráðherra. Mogginn í gær.
Tímamót í dagvistarmálum
háskólastúdenta.
Fyrirsögn í Tímanum i gær.
Skipulega unnið gegn
þátttöku okkar.
Magnús Scheving nýbakaður Evrópu-
meistari í þolfimi. Mogginn í gær.
Veröld ísaks
Fjórtán árum áður en Titanic lagði
af stað í jómfrúarferð sína - á apríl-
degi árið 1912 - frá ensku borginni
Southampton áleiðis til New York
var gefin út skáldsaga með nafninu
Futility (Tilgangsleysi) sem fjallaði
um stórkostlega glæsilegt og
ósökkvandi farþegaskip er sigldi um
Atlantshaf. Búnaður og stærð þessa
magnaða skáldsagnaskips var
algjörlega sambærilegur Titanic og
bæði höfðu rjóma samkvæmislífsins
um borð - og auðvitað voru alltof
fáir björgunarbátar á skipinu. Einn
kaldan apríldag rekst síðan farþega-
skipið á borgarísjaka og sekkur til
botns í Atlantshafinu. Og hvað
skyldi farþegaskipið í þessari skáld-
sögu eftir Morgan Robertson hafa
heitið? Jú, auðvitað...: Titan.