Alþýðublaðið - 25.04.1995, Síða 8
v * ar ~w t Vrii“1 íTk W M HT¥k * *
\WRE VF/iZ/ 4 - 8 farþega og hjólastólabílar SÉöSÍi ílsÍœöí Íwwð* 5 88 55 22 MÞYBUBUDIB \RRE VFILL/ 4 - 8 farþega og hjólastólabílar iiíé héé iáÉi liÉy 5 88 55 22
Þriðjudagur 25. apríl 1995 61. tölublað - 76. árgangur Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
„Sagan sýnir að stöðnun fylgir jafnan samstjórn Framsóknar
og Sjálfstæðisflokks... og það er hálfgerður hlunkabragur á
stjórninni allri." A-mynd: E.ÓI.
Davíð Oddsson. „Karl-
greyið lenti í þeim
ógöngum að ríkisstjórn-
in hélt velli, og hann
þurfti tíma til að losa sig
úr þeim. Honum tókst
það að vísu venju frem-
ur óhönduglega."
Halldór Ásgrímsson.
„Ég tel að Halldór hafi
leikið illilega af sér í
myndun sjálfrar stjórn-
arinnar. Kosningamál
Framsóknar finnast
varla í stefnuyfirlýsingu
stjórnarinnar." A-mynd: E.ÓI.
Siv Friðleifsdóttir hefði
verið sterkur ráðherra,
„en Halldór reyndist
meiri bókhaldari en
stjórnmálamaður. Hið
nýja andlit varð að lok-
um Páll Pétursson."
A-mynd: E.ÓI.
„Grimmur, herskár, en
málefnalegur. Hlutskipti
Alþýðuflokksins verður
ekki beiskja eða biturð
Ólafs Ragnars Gríms-
sonar og Jóhönnu Sig-
urðardóttur." A-myndir: E.ÓI.
„Ég hef lengi elskað
Margréti Frímannsdótt-
ur og stóð fyrrum í pólit-
ísku ástarsambandi við
Svanfríði Jónasdóttur."
Þorsteinn Pálsson.
„Greining Þorsteins var
rétt: hann sagði að
mestu andstæðurnar í
stjórnmálum dagsins
væru Alþýðuflokkur og
Sjálfstæðisflokkur."
A-mynd: E.ÓI.
A- mynd: E.ÓI.
■ Össur Skarphéðinsson stjórnarandstæðingur um nýtt hlutverk sitt í
stjórnmálum. „Ég legg að sjálfsögðu í það djúpa merkingu, að náttúruvætt-
irnir skuli sjá svo um að fyrsti dagurinn í stjórnarandstöðu skuli vera fyrsti
sólardagur sumarsins," segir Össur í samtali við Alþýðublaðiö
„Mér líður einsog
bolakálfi sem er
sleppt út úr fjósi"
Össur Skarphéðinsson: Ég held að það muni eiga afskaplega vel við
mig að kynnast stjórnarandstöðu af eigin raun. Ég hlakka líka til þessa
verks...Mér líður satt að segja einsog bolakálfi sem er sleppt út úr fjósi
á góðum vordegi. A-mynd: E.ÓI.
„Einu sinni sagði Svavar Gestsson
um mig að ég væri fæddur til að vera í
stjómarandstöðu. Hann hefur sagt
margt vitlausara, að minnsta kosti held
ég að það muni eiga afskaplega vel við
mig að kynnast stjómarandstöðu af
eigin raun. Ég hlakka lfka til þessa
verks og legg að sjálfsögðu í það djúpa
merkingu, að náttúruvættimir skuli sjá
svo um að fyrsti dagurinn í stjómar-
andstöðu skuli vera fyrsti sólardagur
sumarsins. Mér iíður satt að segja ein-
sog bolakálfi sem er sleppt út úr fjósi á
góðum vordegi." Þetta sagði fyrrver-
andi umhverfisráðherra, Össur
Skarphéðinsson, um það hvemig
honum liði í nýju hlutverki sem einn af
oddamönnum stjómarandstöðunnar.
En má ekki alveg eins segja að
sólin skíni í á nýja ríkisstjóm?
„Vissulega. Enda óska ég nýrri rfk-
isstjóm velfamaðar. Ég á margar góð-
ar minningar af samstarfi mínu við
gamla kollega, sakna meira að segja
sumra, þó ég hefði kosið að slit sam-
starfsins hefðu verið með öðmm hætti.
Ég hef ekki átt jreim vinnubrögðum að
venjast af hendi Davíðs Oddssonar
„Nei, ég er ekki fullkomlega sátt
við stöðu kvenna í Sjálfstæðis-
flokknum. Ég hefði viljað sjá hana
betri. En ég vil hinsvegar líka horfa
framávið. Það koma tímar og það
koma ráð. Það er hinsvegar komin
niðurstaða í málið og því er ekkert
annað að gera en að sætta sig við
hana. Tillögur í ráðherraembættin
sýna vel hvað staðan var þröng. Það
sér og skilur hver sem vill,“ sagði
Sigríður Anna Þórðardóttir, al-
þingismaður Sjálfstæðisflokksins, í
samtali við Alþýðublaðið.
sem við kynntumst þá, en svona er
bara lífið. Ofitast nokkuð gott. Það em
líka ágætir menn af hálfu Framsóknar-
flokksins í ríkisstjóminni, og ég efa
ekki að þeir munu leggja sig alla fram.
En þessi ríkisstjóm var eiginlega skráð
í stjömurnar; öll áhersla Davíðs Odds-
sonar síðustu vikuna fyrir kosningar
um sterka tveggja flokka stjóm var í
rauninni ekkert annað en ákall httns
um samstarf við Framsókn. Svo lenti
karlgreyið í þeim ógöngum að ríkis-
stjómin hélt velli, og hann þurfti tíma
til að losa sig úr þeim. Honum tókst
það að vísu venju fremur óhönduglega
og hefði vitaskuld átt að gera það með
drengilegri hætú. En það er bara hans
mál og hans samvisku. Ég geri hvorki
að sýta það né erfa.“
Var þetta rökrétt niðurstaða af
kosningunum?
„Stjómmál á íslandi lúta öðm en
rökum. En það var nánast enginn mál-
efnaágreiningur millum Framsóknar-
flokksins og sjálfstæðismanna, og ekki
óeðlilegt að þeir læsm sig saman.
Greining Þorsteins Pálssonar fyrir
kosningamar var rétt: hann sagði að
„Barátta sjálfstæðiskvenna var
mjög öflug í kosningabaráttunni og
þar mátti heyra nýjan tón sem tekið
var eftir - sérstaklega úr röðum
ungra sjálfstæðiskvenna. En á heild-
ina litið kemur það niður á konum
hversu miklu munar á þátttökufjölda
þeirra og karla. Rótina að stöðunni
núna má að nokkm leyti rekja til
prófkjara sem haldin vom til að
skipa á framboðslistana; konur náðu
þar ekki sætum sem hefðu gefið ráð-
herrasæti nú við myndun ríkisstjóm-
arinnar. Við konur munum því safna
mestu andstæðumar í stjómmálum
dagsins væm Alþýðuflokkur og Sjálf-
stæðisflokkur. Einsog Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur þróast síðustu árin,
Jtegar í ljós kom að í Davíð Oddssyni
blundaði lftill framsóknarmaður sem
að lokum braust út og yfirtók forsætis-
ráðherrann, þá er þetta einfaldlega rétt
hjá Þorsteini.”
En hvað fannst þér um fram-
komu Halklórs Asgrímssonar. Nú
er því haldið fram að hann hafi í
raun svikið vinstri flokkana?
„Eg hef ekkert um það að segja.
Halldór Asgrímsson skuldaði Alþýðu-
flokknum ekki neitt. Hann gerði það
sem hann taldi réttast frá sjónarhóli
Framsóknarflokksins. Miðað við þær
eymafíkjur sem Halldór Ásgrímsson
hefur fengið frá Ólafi Ragnari, sem
virðist vakna á morgnana með Halldór
á heilanum, þá hallast ég að því að
hann hafi gert rétt frá sjónarhóli síns
flokks. Hitt er annað, að ég tel að Hall-
dór hafi leikið illilega af sér í myndun
sjállfar stjómarinnar. Kosningamál
Framsóknar finnast varla í stefnuyfir-
lýsingu stjómarinnar. Og miðað við
liði og vinna áfram að framgangi
kvenna innan flokksins. Og það má
náttúrlega ekki gleyma því Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur í gegnum ár-
in gegnt brautryðjendahlutverki í
þessum málum og til dæmis á síðasta
kjörtímabili gegndi kona úr okkar
röðum embætti forseta Alþingis,"
sagði Sigríður Anna ennfremur.
,,Ég er mjög ánægð með þessa rík-
isstjóm einsog hún var mynduð.
Staðreyndin er sú, að í prófkjörum
innan Sjálfstæðisflokksins lentu
engar konur í sætum sem hefðu gef-
ið ráðherrasæti. Þetta er ekki bara
spuming um stöðu kvenna og karla
heldur hvemig útkoma fólks sem
einstaklinga er. Það eru mun færri
konur en karlar sem taka þátt í stjóm-
þann góða sigur sem hann vann á möl-
inni á grundvelli nýrra og ferskra
stjómmálamanna, þáfmnst méróskilj-
anlegt að hann skuli ekki hafa treyst
þann sigur með því að gera Siv Frið-
leifsdóttur að ráðherra. Hún var raun-
ar óskadraumur minn um nýjan um-
hverfisráðherra; vann þar að auki afar
glæsilegan sigur. Það hefði verið
snjallt og áræðið hjá Halldóri og hefði
treyst flokkinn mjög á suðvesturhom-
inu. Enda fundum við það vel hér í
Reykjavík að Siv var að skora langt út
fyrir sitt kjördæmi. En Halldór reynd-
ist meiri bókhaldari en stjómmálamað-
ur. Hið nýja andlit Framsóknar varð að
lokum Páll Pétursson, sem einkum er
þekktur að því í íslandssögunni að
hafa manna lengst verið á móti lita-
sjónvarpinu."
Þú sagðir í útvarpi, að þetta yrði
stjóm stöðnunar. Hversvegna?
„Sagan sýnir að stöðnun fylgir jafn-
an samstjóm Framsóknar og Sjálf-
stæðisflokks. Kyrrstöðu stafar af
stjómarsáttmálanum, og það er hálf-
gerður hlunkabragur á stjóminni allri.
En að öðm leyti held ég að þetta hafi
málum og þar með í prófkjörum, en
barátta kvenna innan flokksins hefur
alls ekki bmgðist, sagði Jóhanna
Vilhjálmsdóttir, einn af forkólfum
Sjálfstæðra kvenna, í spjalli við Al-
þýöublaðið.
„Við viljum sjá fleiri konur taka
þátt í stjómmálum - ekki bara í Sjálf-
stæðisflokknum heldur öllunt flokk-
um - en það er ekki rétt að mínu mati
að hampa konum einungis vegna
þess að þær em konur heldur verður
að meta þær einsog annað fólk af
verðleikum. eigin verðleikum. Ég er
ósammála þeirri afstöðu Sigríðar
Önnu Þórðardóttur, að staða
kvenna í Sjálfstæðisflokknum sé
óviðunandi. Ég er fúllkomlega sátt
við þessa stöðu miðað við útkomu
ekkert með stefnur flokkanna að gera,
heldur liggi þetta í eðli þeirra. Báðir
ern breiðar kirkjur, þar sem mjög and-
stæð sjónarmið er að finna innan hvors
flokks. Þau ntunu togast á í hveiju
stórmálinu á fætur öðm, og niðurstað-
an verður óbreytt ástand. Tökum
dæmi: Ríkisstjómin ætlar að einka-
væða bankana. En hveijir vom helstu
andstæðingar þess á síðasta kjörtíma-
bili? Þeir hétu Guðni Ágústsson, Páll
Pétursson, og f þann hóp má tína líka
Egil á Seljavöllum. Einar Krístinn
Guðfinnsson og Einar Oddur vilja
gjörbreyta sjávarútvegskerfmu, og
raunar líka Siv Friðleifsdótúr og
Hjálmar Ámason. Gegn því standa
auðvitað framsóknarmennimir tveir,
Halldór Ásgrímsson og Þorsteinn
Pálsson. Niðurstaðan verður í besta
falli einhver málamyndabreyting á
banndögum krókabáta, sem engu
skipúr. Þeir nafnar að vestan verða síð-
Sigríður Anna Þórðardóttir: Ég
hefði viljað sjá stöðu kvenna inn-
an Sjálfstæðisflokksins betri.
kvenna í prófkjömm og miðað við
þátttökuhlutfall þeirra í stjómmálum
almennt," sagði Jóhanna að lokum.
an að svara kjósendum á Vestfjörðum
fyrir fyrri yfirlýsingar um að þeir
myndu aldrei styðja stjóm sem fylgir
kvótakerfmu. Svona má auðvitað tína
hvert stórmálið af öðm. Hin breiða
fylking stjómarinnar felur vissulega í
sér styrk hins mikla meirihluta, en líka
veikleika mjög ólíkra og andstæðra
sjónarmiða."
Hvernig verður Alþýðuflokkur-
inn í stjómarandstöðu?
„Grimmur, herskár, en málefnaleg-
ur. Hlutskipti okkar verður ekki
beiskja eða biturð Óiafs Ragnars
Grímssonar og Jóhönnu Sigurðar-
dóttur, eða sífur Kristínar Ástgeirs-
dóttur. Við munum ekki leggjast í
persónulegar árásir einsog virðist aðal
ýmissa þeirra sem sagan hefur dæmt
til eilífrar stjómarandstöðu. Áhersla
okkur verður á að halda okkar sér-
stöðu, og halda áfram að vera hug-
myndabanki íslenskra stjómmála. Ég
sé raunar af stjómarsáttmálanum að
efúrmenn okkar hafa tekið sitthvað að
láni af okkar innistæðu. Um það er
ekki nema gott eitt að segja.“
Hvaða samstarfsmenn h'st þér
best á hjá hinum stjórnarandstöðu-
flokkunum?
„Ég hef lengi elskað Margréti Frí-
mannsdóttur og stóð fymim í pólit-
ísku ástarsambandi við Svanfríði Jón-
asdóttur. En hún tók á þeim ámm Ól-
af Ragnar framyfir mig. Það stóð þó
stutt. En mitt pólitíska hjarta er stórt.“
Hvað segirðu svo þegar þú horfir
yfir síðustu tvö árin?
,JÉg er glaður yfir að hafa fengið
þetta tækifæri til að setja örlítil spor í
umhverfisvemd á íslandi. Þessi ár
vom líklega bestu ár ævinnar, en það
stafar nú ekki fyrst og ffemst af pólitík-
inni heldur fjölskyldunni, þar sem
mesúr sigrar unnust sem lengi verða í
minnum hafðir á Vesturgötu 73. T.S.
Eliot sagði í „Four Quartets" að í sér-
hveijum endi felist nýtt upphaf. Þann-
ig líður mér á þessum fyrsta sólardegi
sumarsins."
■ Eru konur í Sjálfstæðisflokknum ánægðar með stöðu kvenna í flokknum að lokinni stjórnarmyndun?
/fNei, ég er ekki fullkomlega sátt"
- segir Sigríður Anna Þórðardóttir alþingismaður.
„Ég er ósammála Sigríði Önnu," segir Jóhanna Vil-
hjálmsdóttir, einn af forkólfum Sjálfstæðra kvenna.