Alþýðublaðið - 26.04.1995, Qupperneq 1
Ólína Þorvarðardóttir: Fæst ord
bera minnsta ábyrgð. A- mynd: E.ÓI.
■ Þjóðvaki - hreyfing
fólksins
Ólína
hætt
„Ástæða þess að ég hef sagt mig
úr Þjóðvaka lýtur að starfsháttum
hreyflngarinnar og skipulagi. Eg
ætla ekki að hafa fleiri orð um
þetta. Fæst orð bera minnsta
ábyrgð,“ sagði Ólína Þorvarðardótt-
ir í samtali við Alþýðublaðið.
Ólína vildi ekki frekar tjá sig
um úrsögn sína úr Þjóðvaka en
tók fram að ekki væri um mál-
efnaágreining að ræða. Heimildir
innan Þjóðvaka herma að ágrein-
ingur hafl komið upp vegna skip-
unar ritnefndar að málgagni Þjóð-
vaka sem Ólína ritstýrði. Sömu
heimildir segja að Ólína hafi viljað
fá fullt starf sem ritstjóri mál-
gagnsins en þeirri ósk verið hafn-
að.
Aðspurð sagðist Ólína ekki vita
til þess að eiginmaður hennar, Sig-
urður Pétursson, væri á leið út úr
Þjóðvaka. Hann hafl hins vegar
fullan skilning á afstöðu hennar og
styðji hana.
■ Seðlabanki íslands
55 milljónir í yfir-
vinnu og bflastyrki
í ársreikningi Seðlabankans
fyrir síðasta ár kemur fram að
rekstrarkostnaður bankans nam
651 milljón króna. Þar eru laun
og launatcngd gjöld stærsti lið-
urinn eða um 420 milljónir. Föst
yfirvinna, önnur yfirvinna og
bifreiðastyrkir samtals að upp-
hæð 55 milljónir króna bættust
við launagreiðslur sem námu
liðlega 289 milljónum króna.
Til viðbótar þessu námu eftir-
launagreiðslur liðlega 30 millj-
ónum og Iaunatengd gjöld 46
milljónum. Orlof og orlofsfram-
lag nam 628 þúsundum króna.
Laun og launatengd gjöld Seðla-
bankans námu því samtals lið-
lega 421 milljón króna í fyrra.
Af öðrum útgjaldaliðum
Svavar formaður Alþýðubandalagsþingflokks
Á fundi þingflokks Alþýðubandalagsins í gær var Svavar Gestsson
kjörinn formaður þingflokksins í stað Ragnars Arnalds sem ekki gaf
kost á sér til endurkjörs. Varaformaður var kosinn Kristinn H. Gunnars-
son og Bryndís Hlöðversdóttir tók við embætti ritara. A-mynd: E.ÓI.
bankans má nefna að öryggis-
varsla kostaði 6,3 milljónir og
aðkeyptur akstur nam litlu
minni upphæð eða sex milljón-
um króna. Rekstur bankans á
eigin bifreiðum kostaði aðra
eins upphæð. Vegna bóka- og
myntsafns og listaverka voru
greiddar nær 14 milljónir.
Gestamóttaka og fundahöld
kostuðu bankann rúmlega 12
milljónir króna. Ferðakostnað-
ur nam 25,6 milljónum og til
gjafa og styrkja fóru 8,3 milljón-
ir. Loks má geta þess að undir
liðinn starfsmannaþjónusta eru
bókfærð útgjöld að upphæð
tæpar 11 milljónir króna og
fræðslumál kostuðu 8,5 milljón-
ir.
Valgerður formaður Framsóknarþingflokks
Á fundi þingflokks Framsóknarflokksins í gær var Valgerður Sverris-
dóttir frá Lómatjörn kjörin formaður þingflokksins. Hún er fyrsta kon-
an sem gegnir því embætti hjá Framsóknarflokknum. Siv Friðleifsdótt-
ir var kjörin varaformaður og Ólafur Örn Haraldsson mun gegna stöðu
ritara. Á myndinni ræðir Valgerður við Stefán Guðmundsson og Siv
glottir við tönn, í baksýn röltir undirleitur félagsmálaráðherrann og
fyrrverandi þingflokksformaðurinn, Páli Pétursson frá Höllustöðum.
A-mynd: E.ÓI.
Kúrdar: Pjóð án
griðlands
Leiðari 2
Tvist og bast
um Balka-
skagann
Hrafn Jökulsson 2
■ ■
Omurlegt að
fylgjast með
Framsókn
Magnús Árni 3
Allaballar
og Framsókn
Slúður 3
Hjónaband
Davíðs og Dóra
Madama Tobba 4
Andrés
Magnússon
þrítugur
Slúður 4
Höfundur sem
kóar með per-
sónum sínum
■ Pólitísk stefnumótun á kostnað faglegrar hagstjórnar Seðlabankans
Óþjált og seinvirkt stjórntæki
-segir Þröstur Ólafsson, formaður bankaráðs, og vill aukið sjálfstæði bankans.
„Það er óviðunandi í nútíma al-
þjóðlegu efnahagslegu umhverfi að
bíða í marga mánuði með nauðsyn-
legar markaðslegar leiðréttingar.
Þetta getur gert lítilfjörlega leiðrétt-
ingarþörf að peningapólitískum
vanda sem leiðir til ójafnaðar á fjár-
málamarkaðnum," sagði Þröstur
Ólafsson, formaður bankaráðs
Seðlabankans, í ræðu á ársfundi
bankans á mánudaginn.
„Stjómmálamönnum er enginn
greiði gerður með þessu og efna-
hagslífið stendur sannarlega ekki í
neinni þakkarskuld við svo óþjált og
seinvirkt stjómtæki. Þess vegna
verður að leggja áherslu á að starfs-
umgjörð Seðlabankans verði breytt
og bætt með aukið sjálfstæði hans í
huga, sem leiði til betra jafnvægis og
meiri stöðugleika á fjármálamark-
aði,“ sagði Þröstur.
f ræðu sinni ljallaði Þröstur Ólafs-
son nánar um stöðu Seðlabankans í
stjómkerfí efnahagsmála hérlendis.
Hann sagði bankann án efa eitt allra
mikilvægasta stjómtæki hins opin-
bera í efnahagsmálum. Þetta stjóm-
tæki þyrfti að uppfylla þær kröfur
sem til þess eru gerðar.
„Eftir því sem hagkerfi heimsins
verður opnara og ftjálsræðið verður
meira ráðandi í starfsháttum við-
skiptalífsins þá er þörf á mun skýrari
verkaskiptingu milli faglegrar hag-
stjómar og pólitískrar stefnumótun-
ar. Islensk stjómvöld hafa lengi átt í
erfíðleikum með að gera greinarmun
á þessu tvennu og hafa því í of ríkum
mæli skipt sér af faglegri hagstjóm
en látið lengri tíma stefnumótun reka
á reiðanum.
Ástæðan fyrir þessu er sú að af-
skiptasemi og inngrip í niðurstöður
markaðarins hafa átt sterkan hljóm-
gmnn í hugmyndafræði stjómmála-
flokkanna. Því hefur fylgt vantrú á
að markaðsöflin gætu leitt hagkerfið
til jafnvægis og velmegunar. Stjóm-
málamenn hafa í of miklum mæli
ekki látið sér nægja að setja leikregl-
umar heldur fremur viljað taka þátt í
leiknum - og þá á pólitískum for-
sendum.
Þrátt fyrir það sem hér hefúr verið
sagt hefur markaðsvæðingu íslensks
efnahagslífs fleygt fram á síðustu ár-
um. Mikilvægum áföngum hefur
verið náð í þá átt að koma á nútíma-
legum Ijármagnsmarkaði á íslandi.
Þegar krafan um aukið sjálfstæði
Seðlabankans er til umræðu þá er
það þessi aðgreining milli faglegrar
hagstjómar og pólitískrar stefnumót-
unar sem menn vilja hafa skýrari,"
sagði Þröstur meðal annars.
Á ársfundinum kom fram að af-
koma Seðlabankans var hagstæð
Qórða árið í röð. Hagnaður fyrir skatt
til ríkissjóðs var 1.325 milljónir
króna á síðasta ári en hafði verið
2.721 milljón árið 1993. Eiginlegur
rekstrarkostnaður hækkaði unt tæp
10% og nam 650 milljónum króna.
Þröstur Ólafsson: Það er óviðun-
andi í nútíma alþjóðlegu efna-
hagslegu umhverfi að bíða í
marga mánuði með nauðsynleg-
ar markaðslegar leiðréttingar.
A-mynd: E.ÓI.
Einar Oddur: Spyrjum um fram-
kvæmdir þegar þar að kemur.
■ Einar Oddur Krist-
jánsson alþingismaður
um sjávarútvegsstefnu
stjórnarinnar
Ekki valtað
yfir sjónarmið
Vestfirðinga
„Við sömdum um þetta, en meg-
inatriðið er nú ekki stjómarsáttmál-
inn. Aðalatriðið er verkefnaskrá
sjávarútvegsráðuneytisins. Við emm
sáttir við hana. Við fómm í það að ná
samkomulagi og það tókst,“ sagði
Einar Oddur Kristjánsson, alþing-
ismaður Sjálfstæðisflokksins, að-
spurður um álit hans á afgreiðslu
sjávarútvegsmála í stjómarsáttmál-
anum. En sér Einar Oddur þá framá
breytingar að hans höfði á sjávarút-
vegsstefnunni? „Við ætlum okkur að
ganga til verks og í þessari stöðu
spyrjum við um framkvæntdir þegar
þar að kemur. Það er af og frá að bú-
ið sé að valta yfir sjónarmið Vest-
firðinga í sjávarútvegsmálunum."
Þorvaldur Þorsteins 5
Ffllinn í postu-
línsbúðinni
Tyrkirog Kúrdar6
3.400 milljóna
megabæta
heimilistölva
IBM-fréttir 6
77 ára milljarða-
mæringur
Kirk Kerkorian 7
„Pað er margur
maðurinn sem
svíkur"
Milovan Djilas 8
„Meðvitaðir um
stærra sam-
hengi hlutanna"
Jónas Gunnar8
■ Aðalfundur Rithöfundasambands Islands
Stjórnin endurkjörin
Á aðalfundi Rithöfundasam- stjómar til að endurskoða lögin um
bands Islands sem haldinn var á
laugardaginn vom þau Kristín
Steinsdóttir og Hjörtur Pálsson
endurkjörin sem meðstjómendur.
Kristín fékk 44 atkvæði og Hjört-
ur 40. Lárus Már Björnsson bauð
sig fram sem meðstjómanda en
fékk aðeins átta atkvæði. Ekki var
kosið um fieiri stjómarmenn á þess-
um aðalfundi. Egill Egilsson var
endurkjörinn varamaður í stjóm
með 33 atkvæðum. Láms Már bauð
sig einnig fram sem varamaður og
fékk 12 atkvæði.
Fundurinn fór friðsamlega fram
nema hvað Rúnar Ármann Art-
húrsson var óánægður með að til-
laga sem hann kom með var ekki
tekin til afgreiðslu. Tillagan gerði
ráð fyrir að stofnuð yrði nefnd utan
Launasjóð rithöfunda og má segja
að tillagan
hafi verið
vantraust á
stjórn Rithöf-
undasam-
bandsins. Að-
alfundurinn
var hins veg-
ar búinn að
samþykkja að
fela stjóminni
Ingibjörg Haralds- endurskoðun
dóttir hefur veriö la8anna °S
því var tillag-
an ekki tekin á
dagskrá.
Formaður
Rithöfundasambandsins er Ingi-
björg Haraldsdóttir.
endurkjörin sem
formaður RSÍ.
A-mynd: E.ÓI.