Alþýðublaðið - 26.04.1995, Síða 6
ALÞYÐU BLAÐiÐ
m
MIÐVIKUDAGUR 26. APRIL 1995
lAldamótin geta orðið nettengdum
tölvueigendum dýrkeypt
Niðurtalning hafin
vegna tölvuhruns
Á meðan almúginn jafnt sem
þotuliðið undirbýr gríðarleg
veisluhöld og flugeldasýningar
vegna árþúsundamótanna sem
nálgast ört eru tölvusérfræðingar
í óða önn við að búa
sig undir sprengingar
af öðru tagi. Þegar
klukkuvísarnir lauma
sér yfir miðnættið
1999/2000 munu þús-
undir ef ekki milljónir
tölva ganga af göflun-
um. Ófáir af þessu
þörfustu þjónum nú-
tímamannsins eru
nefnilega ekki undir
það búin að fást við fjögurra stafa
dagsetningar; það er að segja
þær telja aðeins síðustu tvö dag-
ana í ártalinu þannig að á eftir
1999 fara þær aftur að telja frá ár-
inu 1900. Þetta á svosem ekki að
verða neitt óyfirstíganlegt vanda-
mál fyrir eigendur ónettengdra
einmenningstölva, en netkerfi - á
borð við þau sem fyrir eru í fjár-
sýslustofnunum (sem fara að
reikna kolvitlausa vexti), á opin-
berum stofnunum
(sem munu fara með
allar dagsetningar og
útreikninga byggða á
þeim í tóma vitleysu)
og á Alþýdubladinu
i. tft (við erum að vísu enn
//.„ ekki búnir að uppgötva
hvað nákvæmlega
hrynur hér) - geta lent
í hroðalegum erfiðleik-
“ “ um. Tölvufyrirtækjaris-
ar hafa í öllu falli fyrir löngu áttað
sig á mögulegu stórslysi og gera
nú allt hvað þeir geta til að lag-
færa umrædd netkerfi og koma í
veg fyrir skaðann. En varúð: Nið-
urtalning er hafin vegna tölvu-
hruns og endirinn er í nánd...
■ Nýr minniskubburfrá IBM-tölvurisanum sam-
svarar 150 metra háum stafla af vélrituðum síðum
Megabætin hrannast upp
Ef einhverjirtölvunerðir héldu að
720 megabæta hörðu diskarnir
þeirra gerðu þá að meiri mönnum
er eins gottfyrir þá að endurskoða
afstöðu sína. IBM-tölvurisinn -
sama fyrirtæki og kynnti fyrsta
harða diskinn til sögunnar árið
1956 - hefur sett nýtt geymslu-
minnismet: 3 milljarðar bæta á
fertommu! Slík minnisþjöppun
gerir það að verkum að lítill og af-
ar hversdagslegur harður diskur í
heimilistölvu getur geymt upplýs-
ingar sem nema meira en 3.400
milljónum megabæta. Það jafnast
á við næstum því 150 metra háan
stafla af vélrituðum blaðsíðum.
ímyndið ykkur margfeldnisbylting-
una. Venjulegar heimilistölvur af
nýlegri teg-
und búayfir
150 til 200
megabæta
m i n n i .
Þessir nýju
ofurmega-
bætakubb-
ar eru
væntanleg-
ir frá rann-
sóknastof-
um IBM á
markað inn-
an þriggja
[ til fimm ára
og munu vafalaust gjörbylta tölvu-
iðnaðinum. (Ohhh..., einu sinni
enn!)
■ Fjáröflun Elísabetar II Bretlandsdrottningar
Fyrst Buckingham, nú Kensington
Fyrst opnaði Elísabet II Bret-
landsdrottning Buckingham-höll
til sýnis fyrir aðvífandi ferðamenn
og tók fyrir smáskilding. Nú hefur
hún hinsvegar stigið enn stærra
skref í átt til almúgans og leitar að
leigjendum. Elísabet hefur nefni-
lega ákveðið, að bjóða til leigu 60
herbergi í Kensington-höll sem er
heimili forsmáðu prinsessunnar
Díönu og Hampton Court er áður
hýsti einkaþjóna drottningarinn-
ar. Fyrstu tvö hýbýlin til að koma
á leigumarkaðinn eru tvö sam-
liggjandi herbergi í Kensington-
höll og smábýli eitt við Hampton
Court. Og leigan? Jú, litlar 340
þúsund krónur. Það skal þó tekið
fram að þeir leigjendur drottning-
ar sem höfðu vonast til hitta aðal-
inn úti við póstkassann munu
verða fyrir vonbrigðum: málum
er víst þannig fyrirkomið að íbúð-
irnar eru fyrir utan það rammgirta
öryggissvæði sem umlykur kon-
ungsfjölskylduna...
Ffllinn í posti
■ Hinn 20. mars síðastliðinn gerði 35 þúsund manna her-
afli lýrklands innrás í Irak og hefur nú á valdi sínu tæplega
300 kílómetra langa ræmu meðfram landamærunum. Til-
gangurinn er að koma í veg fyrir framgang og umferð
PKK-skæruliðasveita herskárra Kúrda um landamærin og
að uppræta bækistöðvar þeirra í norðurhluta Iraks. Að-
gerðirnar hafa heppnast ágætlega hernaðarlega séð - þrátt
fyrir að vera full harkalegar og víðtækar að margra mati
miðað við eðli málsins og hversu viðkvæmt svæðið er. En
diplómatískur kostnaður við þær eykst með hverjum degi.
Tyrkir sæta nú stöðugt vaxandi gagnrýni á alþjóðlegum
vettvangi og yfirvöld í Ankara fylgjast með skelfingu
hvernig únynd landsins í mannréttindamálum verður ljót-
ari með hverjum deginum sem líður - og ekki var hún beys-
in fyrir. Mat stjórnmálaskýrenda á stöðunni er að Týrkir
muni sennilega sigra í stríðinu, en örugglega tapa vinum
sínum um leið.
þessu - afhroð Sovétmanna í Afghan-
istan er öllum ennþá ferskt í minni.
Hundruðir PKK-skæruliða til viðbót-
ar hafa fallið að undanfömu í gríðar-
lega hörðum bardögum í suðaustur-
hluta Tyrklands. Þar em Kúrdunum
allar bjargir bannaðar því Tyrkjum
hefur tekist að koma í veg fyrir flótta
þeirra til vanabundinna felustaða
handan við landamæri Tyrklands og
íraks. í kringum liðna helgi tóku síðan
að berast óljósar fregnir um að harðir
bardagar geysuðu milli stríðsaðila í
íraska héraðinu Hakuk þar sem tyrk-
neskar hersveitir reyna hvað þær geta
til að kom í veg fyrir að skæmliðar
Kúrda flýi til frans. ,4 þeim aðgerðum
sem nú standa yfir höfum við náð
valdi yfir miklum birgðum sem Kúrd-
ar höfðu sankað að sér í gegnum árin
og myndu endast heilum her lengi
vel,“ segir Erim hershöfðingi er
Á grasi vaxinni hæð við rætur stór-
fenglegra fjalla er loftið þmngið sæt-
um ilmi blómstrandi möndlutijáa og
geitur og sauðfé rölta um á beit. En
það em engar fallegar hugsanir um
vorið sem þjóta í gegnum huga manna
sem dvelja um þessar mundir á því
stríðssvæði sem norðurhluti íraks -
íraska Kúrdistan - er orðið. Rennileg-
ar - og banvænar - Black Hawk þyrl-
ur sveima yftr höfðum tyrkneskra her-
manna á meðan þeir gera skyndárásir
eftir þröngstígum og torfæmm fjtúla-
slóðum í leit að slóttugum skæmlið-
um úr röðum hins tyrkneska Kúrdíska
verkamannaflokks (PKK). PKK-
skæmliðasveitimar hafa um langa
hríð notast við frösku hlið landmæra-
svæðis Tyrklands og Iraks til að fela
sig fyrir yfirvöldum í Tyrklandi og til
að koma sér upp móðurstöðvum og
þjálfunarbúðum. Nú er þetta hæli
þeirra ekki lengur ömggt. Kraftmiklar
og hávaðasamar vélar M-60 skrið-
dreka og btynvagna Tyrkjanna skera
þunnt fjallaloftið og það heyrist vart
mannsins mál. Hvert sem litið er gef-
ur á að Iíta fylkingar tyrkneskra her-
manna og rytjulegar tjaldbúðir sem
slegið hefur verið upp í snatri. f
fjarska heyrast sprengingar, dmnumar
skekja hlustimar og í kjölfarið fylgja
gulir rykstrókar þar sem tyrkneski
herinn hefur verið að hreinsa jarð-
sprengjusvæði. Það fer mikið fyrir
tyrkneska hemum í þessum aðgerðum
og þeir láta einskis ófireistað til að ná
settu marki á þessu ofurviðkvæma
landsvæði. Vem þeirra í írak hefúr
verið líkt við vem ffisins í postulíns-
búðinni.
Hiiseyin Erim hershöfðingi sýpur
á tei og keðjureykir sígarettur á meðan
í Aðalfundur Lyfjaverslunar íslands tí.
Aðalfundur Lyjjaverslunar íslands hf. verður haldinn í Háskólabíói
íReykjavík laugardaginn 29. apríl 1995 og hefst hann kl. 10.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 14. gr. samþykkta félagsins.
2. Breytingar á samþykktum félagsins til samræmis við lög nr. 2/1995 um
hlutafélög og niðurfelling ákvæðis um lágmarksmætingu á aðalfundi.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillcgur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, þurfa að vera komnar
í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund.
Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og reikningar félagsins, munu liggja
frammi á skrifstofu félagsins 7 dögum fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á skrifstofu
félagsins, Borgartúni 7 á 2. hæð, dagana 24.-28. apríl kl. 9-12 og 13-16.
Hluthöfum er vinsamlegast bent á að vitja fundargagna sinna fyrir kl. 16
Jostudaginn 28. apríl.
Innihald eins af vopnabúrum PKK-skæruliðasveitanna hefur hér verið
lagt út til sýnis eftir að hersveitir Tyrkja gengu fram á birgðirnar fyrir
stuttu. Ljóst er að PKK hefur beðið mikið afhroð frá því að bardagar
hófust í írak fyrir mánuði síðan.
hann útskýrir af þolinmæði verkeíhið
sem liggur fyrir þeim 35 þúsund her-
mönnum Tyrkja sem gerðu innrás í ír-
ak fyrir mánuði síðan - 20. mars.
Varðsveitir íraskra Kúrda sem venju-
lega gæta landamæranna fyrir innrás-
um tyrkneskra Kúrda vom að beijast
sín á milli, segir Erim. „Og sú stað-
reynd gerði herskáum uppreisnar-
sveitum PKK kleift að fara sínar eigin
leiðir í hemaðarskyni um landamærin
inní Tyrkland án afskipta varðsveit-
anna. Valdatómið meðfram landa-
mæmnum var fullkomlega óásættan-
legt ástand hvað okkur snerti, þannig
að ég er hæstánægður með þær að-
gerðir sem við emm með í gangi hér á
svæðinu," segir hershöfðinginn.
Tyrkneskir hermenn hafa náð 290
kfiómetra langa ræmu af írösku land-
svæði á sitt vald og nær hún 40 kfió-
metra irmí landið. f að því er virðist til-
viljanakenndum árekstmm við
léttvopnaðan og þar með afar
hreyfanlegan óvinaherinn höfðu
Tyrkir - samkvæmt þeirra eigin
útreikningum - drepið vel yfir
400 PKK-skæruliða til og með
síðustu viku, en misst 36 af eig-
in liði. Þetta telst feykilega góð-
ur árangur í skæmliðastríði sem
Stjórn Lyfjaverslunar íslands hf
stjómar 20. brynvörðu sveitinni.
„Okkur hefúr tekist að eyðileggja liðs-
anda þeirra og alla vígstöðu."
Ymsir stjómmálamenn og frétta-
skýrendur velta því hinsvegar fyrir sér
hvort þessar aðgerðir Tyrkja séu
hreinlega ómaksins virði. Til að
mynda hefur innrásin f írak valdið
óbætanlegum skaða á tengslum Tyrk-
lands við NATO-bandamenn sína í
Evrópu og dregið vemlega úr vonum
Tyrkja til þess að laga sig enn frekar
að jteim sammna sem nú á sér stað
innan Evrópusambandsins. Þýskaland
skar á alla hemaðaraðstoð til Tyrk-
lands í kjölfar árásarinnar 20. mars og
utanríkisráðherrann Klaus Kinkel
hefur margítrekað þá kröfu Þjóðveija,
að Tyrkir dragi herlið sitt tilbaka eins
fljótt og auðið er. Evrópuþingið í
Strasborg hefur hótað að neita þrálát-
um beiðnum Tyrklands um þátttöku í
tollabandalagi Evrópusambandsins
nema Tyrkimir dragi allt herlið sitt til-
baka frá írak og það ekki seinna en
strax. Holland hefur einnig lagt sitt af
mörkum til að hnýta í ríkisstjóm
Tyrklands íyrir stríðsreksturinn og
leyfði í síðustu viku Kúrdískum and-
ófsmönnum vfðsvegar að úr heimin-
um að koma á fót þingi í útlegð í hol-
lensku borginni Haag. Þessari grófu -
en þó diplómatísku - móðgun Hol-
lendinganna gagnvart ríkisstjóm
Tyrklands og forsætisráðherra hennar,
Tansu Ciller, var umsvifalaust mætt
með því að Ciller kallaði sendiherra
Tyrklands í Hollandi heim til Ankara
vegna skrafs og ráðagerða.
Þrátt íyrir að Bandaríkin hafi kom-
ið Tyrkjum til vamar í Jtessum mála-
rekstri þá hefur jafnvel stuðningur ris-
ans í vestri verið veittur af hálfúm
huga og mikið hik sýnist komið á þá
Washington menn. Aðstoðamtanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, Strobe
Talbott, sagði við háskólanemendur í
einni heimsókn sinni á þær slóðir, að
„Bandaríkin skilja þá brýnu nauðsyn
fyrir Tyrkland að meðhöndla PKK á
óvæginn hátt - sérstaklega þar sem
PKK er ekkert annað en grimmdarieg
samtök hryðjuverkamanna - en á
sama tíma viljum við leggja þunga
áherslu á gífurlegt mikilvægi þess að
tyrkneska ríkisstjómin standi fýllilega
við þær skuldbindingar sínar, að að-
gerðir þessar verði takmarkaðar hvað
varðar allt umfang og þann tíma sem
þær kunna að taka.“ Á mannamáli
þýðir þetta einfaldlega, að stríðsrekst-
ur Tyrkja sem kemur jafnt niður í
mannfalli á PKK-skæmliðunum og
almennum borgumnt úr röðum Kúrda
verður ekki liðinn af Bandaríkjunum.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti mun
þannig af öllum líkindum koma
áþekkum skilaboðum á framfæri þeg-
ar tyrkneski forsætisráðherrann Ciller
heimsækir Washington í þessari viku.
Leiðtogar tyrkneska hersins segja
hinsvegar þessar áhyggjur umheims-
ins af stríðinu á hendur skæmliðahers
PKK vera allar á misskilningi byggð-
ar. „Bandamenn okkar verða að gera
það upp við sig hvort sé mikilvægara:
60 milljónir Tyrkja og Kúrda eða
nokkur þúsund hryðjuverkamenn,"
segir Erim hershöfðingi ómyrkur í
máli. Og það sem einna mestu máli
skiptir að mati hershöfðingjans er, að
hemaðaraðgerðimar hafa heppnast
ágætlega - allavega fram til þessa.
AðgerðirTyrkja hafa lamað hemaðar-
styrk og stöðu PKK í norðurhluta ír-
aks, komið í veg fyrir árlega ffamsókn
þeirra inní Tyrkland að vori og það
sem mikilvægast er: hemaðaraðgerðir
Tyrkja í írak hafa neytt stríðandi aðila
innan raða íraskra Kúrda til að semja
sín á milli um ffið. En einmitt þessar
deilur voru upphaf nauðsynlegra að-
gerða Tyrkja fyrir mánuði síðan, segir
Erim.
Hinar stríðandi fylkingar sem hér
um ræðir - Kúrdíski lýðræðisflokkur-
inn (KDP) sem Massoud Barzani
leiðir og Ættjarðarsamfylking Kúrd-
istan sem Jalal Talabani stýrir- tóku
skjótt og örugglega við stjómtaumun-
um í norðurhluta íraks í kjölfar Persa-
flóastríðsins, en hafa nú átt í illvígum
innbyrðisdeilum allt frá því í maí
1994. Hersveitir KDP gæta landa-
mæranna að öllu jöfnu, en vom dregn-
ar frá landamærunum til að hjálpa til
við glfma við uppreisnarsveitir Tala-
■ Sérstætt framboð í þingkosningunum í Perú
Rassapólitíkin
svínvirkar
enn a ný
Kjósendur í nýafstöðnum þingkosningum í
Perú gátu ekki með nokkru móti látið eitt sér-
stæðasta framboðið sem þar kom fram fara
framhjá sér. Hin umdeilda tala 13 var kyrfilega
auglýst hjá frambjóðanda þessum og heppn-
aðist kosningabragðið ágætlega. Nú þegar
hún hefur verið kosin á þing í Perú segir nekt-
ardansmærin Susy Diaz, að hún muni nú
snúa sér að stjórnmálunum á alvarlegan hátt og hafa strangasta sið-
ferði í fyrirrúmi. „Ég held að stjórnmálin eigi skilið mun meiri alvöru-
gefni og virðingu en hingað til," segir hún og gefur sitt fyrsta loforð
sem þingmanns: „Ég mun ekki framar sýna á mér rassinn." Diaz
þessi bauð sig fram í Lima, höfuðborg Perú, og ók villt og galið um
alla borg og hélt borgarafundi úti undir berum himni (!) - að sjálf-
sögðu ásamt fáklæddum félögum sínum úr nektardansmeyjastétt.
=n hvernig stjórnmálamaður er hún að eigin mati. „Ég er pólitískt
írein mey"...
■ Nýjasta kvikmynda-
stjarna Frakklands
Þegar hin 19 ára Marie Gillain er
vond er hún frábærlega góð, en
þegar hún er góð er hún jafn dá-
samleg. í frönsku kvikmyndinni
L'Appat er þessi nýjasta kvik-
myndastjarna Frakka fullkomlega
afslöppuð kona sem kaldrifjuð tek-
ur þátt í verstu ódæðisverkum. í
næstu viku kemur hún fram á leik-
sviði í París og endurtekur hlutverk
sitt í leikritsútgáfu Dagbókar Önnu
Frank, sem hrærði áhorfendur þeg-