Alþýðublaðið - 24.05.1995, Page 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ1995
s k o ð a n i r
MMUBIMÐ
20923. tölublað
Hverfisgötu 8-10
Útgefandi
Ritstjórar
Fréttastjóri
Umbrot
Prentun
Reykjavík Sími 625566
Alprent
Hrafn Jökulsson
SigurðurTómas Björgvinsson
Stefán Hrafn Hagalín
Gagarín hf.
ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 625566
Fax 629244
Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Kaldarástir
Einu sinni skrifaði Guðbergur Bergsson bók sem hét Astir sam-
lyndra hjóna. Sá bókartitill verður bersýnilega ekki notaður til að
lýsa samkomulaginu á stjómarheimilinu. Þó ríkisstjómin sé að-
eins fárra vikna gömul hefur htið borið á samlyndi: þess í stað
hefur stuttur ferill hennar einkennst af átökum.og ágreiningi.
Jómfrúaræða Kristjáns Pálssonar, nýs þingmanns sjálfstæðis-
manna, var lögð undir heiftarlega árás á Ingibjörgu Páhnadóttur
heilbrigðisráðherra. Kristján ásakaði ráðherrann um að vera
ábyrg fýrir mikilli skerðingu „á þjónustu sem bitnar strax mjög
harkalega á öldruðum og bamshafandi konum.“ Og nýi þingmað-
urinn klykkti út með eftirfarandi setningu: „Svona gemm við
ekki, hæstvirtur heilbrigðisráðherra.“
Meiri tíðindum sætti þó hlutur Guðmundar Bjamasonar, land-
búnaðarráðherra, í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra.
Guðmundur lýsti þar með skorinorðum hætti að viðskilnaður
Halldórs Blöndals í tengslum við málefni sauðfjárbænda væri
enganveginn viðunandi. Orð hans var ekki hægt að skilja öðm
vísi en svo, að annaðhvort hefði fyrirrennarinn ekki haft áhuga á
því að ráðast til atlögu við vanda sauðfjárbænda, eða skort til
þess pólitískan kjark.
Ræða Guðmundar Bjamasonar er vafalítið einsdæmi. Elstu
menn þingsins muna ekki eftir því að nýr ráðherra noti fyrstu
embættisræðu sína til að gagnrýna forvera sinn fyrir slælega
lfammistöðu - sem situr með honum ríkisstjóm.
Hvemig halda menn að ffamhaldið verði?
Bullandi ágreiningur
Úr skammri lífssögu ríkisstjómarinnar sætir nú mestum tíðind-
um, að logandi ágreiningur geisar um stjóm fiskveiða innan þing-
flokka stjómarliðsins.
Einsog þjóðin man þá lofuðu þingmenn Sjálfstæðisflokksins á
Vestfjörðum að þeir myndu ekki styðja ríkisstjóm sem héldi ffam
óbreyttu kvótakerfi. Þeir lofuðu jafiiffamt að breyta því kerfi sem
krókabátar búa við, og rétta verulega hlut smábáta á aflamarki.
Reyknesingar í Framsóknarflokki höfðu uppi svipuð loforð. Og
nú er komið að því að standa við stóm orðin.
Þar stendur hinsvegar hnífurinn í Þorsteini Pálssyni. Hann hef-
ur engan hug á því að hjálpa „vinum“ sínum að vestan til að
komast úr snömnni. Það þjónar einfaldlega ekki hagsmunum sæ-
greifanna, sem hann byggir á hnignandi áhrif sín innan Sjálfstæð-
isflokksins. Þessvegna gengur hvorki né rekur.
Agreiningxmnn um sjávarútvegsmálin er einfaldlega svo mikill
innan stjórnarflokkanna að ekki hefur enn tekist að vinna ffum-
vörp um málið, þrátt fyrir stífa sáttafundi.
Allt bendir því til að þingið þurfi að sitja iðjulítið ffam á sumar,
meðan verið er að jafna ágreining innan stjómarflokkanna.
Bj ar gvætturinn
Einar Oddur Kristjánsson má muna tímana tvenna. Hann var
helsti liðsoddi Þorsteins Pálssonar á landsfundinum, þegar Davíð
felldi hann sem formann. Nú launar Þorsteinn liðveisluna forð-
um.
Fyrst gerir hann Einar Odd að ómerkingi með því að festa hann
frekar í snömnni, sem Einar fléttaði með yfirlýsingum sínum um
kvótakerfið í kosningabaráttunni fyrir vestan. Beint ofan í það
setur hann upp leikrit til að koma í veg fyrir að Einar Oddur verði
formaður sjávarútvegsnefndar Alþingis, og afhendir stöðuna Al-
þýðubandalaginu. Höfundur leikritsins er að sjálfsögðu hinn
gagnmerki skuggaráðherra sjávarútvegsins, Kristján Ragnarsson,
enda fréttu sumir þingmenn tíðindin úr höfðustöðvum LIÚ.
Guð hjálpi þeim, sem eiga mikið af svona vinum. ■
I„Eflaust verður reynt að halda því fram að ráðherraseta Ingibjargar sé
plús fyrir framsóknarkonur. Sumsé að þær hagnist á því að kona varð
ráðherra, ekki af því að hún var hæfust, heldur af því að hún var fram-
sóknarkona. Það er öfugsnúið bókhald og skringilegur femínismi."
Bjargvættir vanhæfra kvenna
Það verður líklega lífseigasta arf-
leifð Kvennalistans að genginn er í
gildi einhver óformlegur kvennakvóti
í pólitík. Það er viðtekið lögmál, að
velja verði tiltekinn fjölda kvenna í
áhrifastöður, burtséð frá því hvort þær
eru hæfastar til þeirra eða ekki. Sem
þýðir á mannamáli: þær em nauðsyn-
legar, þótt ekki sé nema til skrauts.
Heldur er það snautleg arfleifð femín-
istanna.
Gestaboð |
Karl Th.
Birgisson
skrifar
Síðasta fómarlamb þessa var Sjálf-
stæðisflokkurinn, sem lenti í krísu
þegar kom að því að velja forystu-
menn flokksins á nýju kjörtímabili.
Allir sem um málið fjölluðu vom á
því að það væri konum sérstakt áfall
að Ólafur Garðar varð forseti Alþingis
í stað Salóme.
Aftur og aftur heyrði ég að sjálf-
stæðiskonur (eða „sjálfstæðar konur“,
hvað sem það nú annars þýðir) hefðu
„misst“ forseta Alþingis þegar Ólafur
tók við af Salóme. Og að það þyrfti að
bæta upp með einhveijum hætti.
Augnablik, gott fólk: nákvæmlega
hveiju töpuðu sjálfstæðiskonur þegar
Salóme hætti? Getur einhver bent mér
á hvað sjálfstæðiskonur grœddu á því
að Salóme var forseti? (Eða ef út í það
er farið: getur einhver bent mér á hver
græddi yfirleitt nokkuð á því að Sal-
óme varð forseti? Varla hún sjálf,
launalág og seinna þingsætislaus í
þokkabót.) En auðvitað skiptir það
ekki máli: konur áttu að „fá“ þingfor-
seta ef þær „fengu“ ekki ráðherra. Ef
ekki þingforseta, þá þingflokksfor-
mann. Ef ekki þingflokksformann, þá
að minnsta kosti nefndarformann. Óg
svo framvegis.
Aðrir lentu reyndar í viðlíka vanda,
ekki sízt framsóknarmenn; þeir urðu
að finna konu í ráðherrastól. Niður-
staðan varð Ingibjörg Pálmadóttir
heilbrigðisráðherra, ákvörðun sem allt
bendir til að hafi ekki verið byggð á
hæíhi hennar eða reynslu.
Hvaða konur hagnast annars af ráð-
herrasetu Ingibjargar Pálmadóttur?
Ekki konur sem borga skatta í alltof
dýrt heilbrigðiskerfi og ekki konur
sem verða veikar á landsbyggðinni, ef
marka má umræður á Alþingi í fyrra-
dag. En eflaust verður reynt að halda
því fram að ráðherraseta Ingibjargar
sé plús fyrir ffamsóknarkonur. Sumsé
að þær hagnist á því að kona varð ráð-
herra, ekki af því að hún var hæfust,
heldur af því að hún var ffamsóknar-
kona. (Með hæfilegri illgirni mætti
álykta að aðrar vanhæfar ffamsóknar-
konur eygi nú von.) Það er öfugsnúið
bókhald og skringilegur femínismi.
Með sömu röksemdafærslu liggur
beint við að ég kvarti fyrir hönd karl-
manna vegna kynjasamsetningar í
þingflokki Þjóðvaka. Þar eru þrjár
konur á móti einum karli. Veit þetta
fólk ekki að karlmenn eru um helm-
ingur mannkyns og að þetta er langt
frá því hlutfalli sem tíðkast á Norður-
löndunum, sem þó eru lengst komin í
jafnréttisátt? Þessi rök mætti semsé
færa, en einhvem veginn finnst mér
karlmenn ekki hafa tapað neinu sér-
staklega við þessa niðurstöðu. Enda
eru rökin bull og kerfið vitlaust -
móðgun við konur sem komast áfram
af eigin verðleikum og dónaskapur
gagnvart hæfum karlmönnum sem er
fómað á altari kvennakvótanna.
Mig gmnar reyndar að það hafi ekki
verið kvennakvótinn einn sem réði
ferðinni um sálarkreppu flokkanna,
heldur hafi þetta líka verið viðbrögð
við samvizkubitinu sem er að plaga
alla flokka út af eina alvörujafhréttis-
málinu í kosningabaráttunni: launa-
muni kynjanna. Við þeim raunvera-
lega og alvarlega vanda hafði enginn
flokkur svar (nema hugsanlega
Kvennalistinn, enda má vel ímynda
sér að sá flokkur hefði þurrkazt út ef
málið hefði ekki verið svo mikið til
umræðu) og það var afar áberandi úr-
ræðaleysi.
Kapphlaupið um að setja konur í
áhrifastöður má nefnilega líka skilja
sem örvæntingarfulla tilraun flokk-
anna til að sýna að þeir séu nú þrátt
fyrir allt engar karlrembusamkomur,
þótt ekki kunni þeir leiðir til lausnar í
þessu mannréttindamáli. Og konur
nýttu sér vitanlega út í æsar samvizku-
bit karlanna með kröfugerð á hendur
þeim, - en það er svosem gömul tak-
tík og ný. Getur það virkilega verið
niðurstaðan: að Kvennalistinn, sem
var stofnaður til að greiða leið kvenna
í þjóðfélaginu, hafi náð því markmiði
að hluta til - með því að neyða karl-
ana til að hefja til virðingar mish'tið
hæfar konur?
Ja, sveiattan. ■
Höfundur er hestasveinn.
Atburðir dagsins
1794 Robespierre sleppur lífs
þegar honum er sýnt annað
banatilræðið á skömmum tíma.
1941 Hood, stærsla herskip
heims, sökk um 250 mílur
vestur af Reykjanesi eftir or-
ustu við þýska herskipið Bis-
marck. 1418 fórust en þremur
var bjargað. 1974 Duke Elling-
ton, einn ástsælasti jazzisti ald-
arinnar, deyr. 1988 Snjókoma í
Sýrlandi í fyrsta skipti í 50 ár.
Afmælisbörn dagsins
Gabriel Fahrenheit þýskur
eðlisfræðingur, 1686. Jean
Paul Marat einn af leiðtogum
á tímum frönsku byltingarinn-
ar, 1743. Victoría Bretadrottn-
ing, 1819. Bob Dylan banda-
rískur rokkari, 1941.
Annáisbrot dagsins
í Novembri mánuði þess árs
hvarf maður undir Eyjafjöllum,
Brandur að nafni, en fannst
dauður seinna, blár og blóðrisa
við sjó. Geta menn til, að
draugur sá muni hann drepið
hafa, er þar áður grandaði fleir-
um.
Sjávarborgarannáll, 1638.
Krafa dagsins
Ég hef alltaf vitað, að ég gæti
ekki skrifað neitt, sem full-
nægði þeim ytrustu kröfum,
sem ég gerði til skáldskapar.
Og hvers virði var mér það þá
að leggja lífið í sölumar fyrir
það. Eg held, að allir eigi að
yrkja eða skrifa einhverskonar
skáldskap, en guð forði veröld-
inni frá því, að það væri allt
prentað!
Siguröur Nordal, samtal viö Nlatt-
hías Johannessen.
Málsháttur dagsins
Þrisvar hefur allt orðið forðum.
Orð dagsins
Efiir látinn mig ég met
mér það helzl að kosti,
á mér hœgra augað grét,
er hið vinstra brosti.
Páll Ólafsson.
Skák dagsins
Þá er komið að endatafli vik-
unnar. Svartur virðist býsna að-
þrengdur og aukþess peði und-
ir. En Serbinn Kontic, sem
hefur svart og á leik gegn landa
sínum llincic fann snjalla leið
ú) að tryggja sér jafntefli. Hvað
gerir svartur?
1. ... Hf5! Jafnar taflið. Drepi
hvíti kóngurinn fellur hrókur-
inn á h7 og svarta peðið rennur
upp í borð. 2. a6 Ha5 2. Ha7
Hxg5!! Jafntefli. Svarta peðið á
h2 gerir gæfumuninn.