Alþýðublaðið - 24.05.1995, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o ð a n i r
Fjósamaðurinn í félagsmálaráðuneytinu...
Þegar ég var ungur drengur var ég
einsog allir aðrir sífellt spurður að því,
hvað mig langaði að verða þegar ég
yrði stór. Stundum langaði mig til
þess að verða slökkviliðsmaður,
stundum veðurfræðingur og stundum
klósettkafari (þegar ég var vondu
skapi). Síðan varð ég eldri og fór í
menntaskóla og svo í háskólann að
læra sálffæði og félagsráðgjöf.
Pallborðið
Og hvað með það?
Ég fór í skóla vegna þess að ég var
orðinn leiður á að fá bara vinnu við að
múra og mála hús eða afgreiða iðnað-
arvaming í búð. Ekki það að ég líti
niður á þessi störf: frekar að ég vildi
nýta þá hæfileika sem ég þóttist búa
yfir. Síðan þegar ég er að ljúka námi
fæ ég vinnu sem ég er ánægður með
og passar við þá menntun sem ég afl-
aði mér.
Svona á gangur fífsins að vera.
Þessum hugsunum skaut upp í koll-
inn á mér þegar verkaskipting hinnar
nýju ríkisstjórnar lýðveldisins var
kynnt fyrir þjóðinni sem enn var með
í maganum eftir páskaeggjaátið.
Það sem sérstaklega vakti athygli
mína var skipan Páls Braga Pétursson-
ar, hins dugmikla bónda á Höllustöð-
um, í sæti félagsmálaráðherra.
Páll Bragi er efalaust mjög góður
bóndi og kann vel það fag að reka bú
sitt með sóma, jafnvel úr fjarlægð.
Hann veit örugglega muninn á helstu
húsdýrunum og veit hvað þau borða
og hvenær þau eiga að vera inni eða
úti og hvenær á að mjólka rollumar og
rýja kýmar (eða var það öfugt?).
Páll Bragi býr enda yfir mikilli
reynslu á þessu sviði þó ekki sé mér
„Þess vegna á að veljast í þetta starf maður
sem hefur menntun og þekkingu á þessu
sviði...Við getum varla búist við því að Páll
Bragi, bóndi á Höllustöðum, komi með nýjar
og frumlegar lausnir. Ekki af því að hann hafi
ekki vilja til þess heldur af því að hann hefur
ekki þann bakgrunn sem þarf."
kunnugt um nánari menntun manns-
ins.
Þessar hugsanir mínar komu svo
saman í þann punkt að ég varð glaður
yfir því að ekki hafa allir áhuga á
sama starfmu, því ekkert kann ég í því
að vera bóndi og því gott til þess að
vita að aðrir hafi áhuga á þeim störf-
um.
En þetta vakti hinsvegar óneitan-
iega upp hjá mér spuminguna: hvers
vegna þurfti endilega Páll Bragi að
verða félagsmálaráðherra?
Nú hefur hann enga menntun á
þessu sviði og til að gera litla reynslu
af störfum á þessu sviði að því er ég
best veit.
Er eitthvað grín hér á ferð hjá djók-
urunum í Framsóknarflokknum eða er
hér bara um venjulegar valdapotsredd-
ingar að ræða?
Og ég bara spyr: af hveiju í ósköp-
unum er verið að halda hér uppi rán-
dýrum háskóla sem ungar út mennta-
fólki á færibandi ef ekki er þörf fyrir
hugvit þeirra?
Ef það er nóg fyrir yfrrmann félags-
mála á ísiandi að hafa mjólkað kýr og
slegið tún á traktor frá sambandinu þá
er engin þörf á að henda peningum í
menntamenn. Menntun verður hvort
eð er einskis virði þegar þeir sem
völdin hafa skilja ekki tilgang hennar.
Það er kannski bara betra að vera án
hennar því þá þarf maður ekki að vera
á bömmer yfrr vitleysu eins og þess-
ari.
Við þurfum að fara að spá meira r
það hver passar í hvaða starf: það er
ekki í lagi að gera ómenntaðan bónda
að yfrrmanni félagsmála á íslandi.
Við skulum ekki gleyma því að
yfirmaður félagsmála á ekki að fá
starfið vegna þess að hann hefur lengi
starfað í pólitflc og hefur verið hlýðinn
flokksmaskínunni og góður. Félags-
málaráðuneytið var nefhilega ekki bú-
ið til fyrir stjórnmálamenn svo þeir
gætu ráðstafað því til handa þurfandi
flokksfélögum.
Tilgangur félagsmálaráðuneytisins
er að hafa yfirumsjón með félagsmál-
um á Islandi og sjá til þess að þegn-
amir búi við sæmilegt félags- og vel-
ferðarkerfi.
Það er ekki lítið starf.
Þess vegna á að veljast í þetta starf
maður sem hefur menntun og þekk-
ingu á þessu sviði. A þann einan hátt
er hægt að ætlast til þess að framþróun
verði í málaflokknum.
Við getum varla búist við því að
Páll Bragi, bóndi á Höllustöðum,
komi með nýjar og frumlegar lausnir.
Ekki af þvr að hann hafi ekki vilja til
þess heldur af því að hann hefur ekki
þann bakgrunn sem þarf.
Á meðan við lítum á ráðuneyti sem
bitlinga fyrir flokkshollustu verður
aldrei um neina framþróun að ræða.
Við munum bara halda áfram að
hjakka í sama farinu. Ég yrði ekkert
rosalega hissa ef Páls Bragi myndi
setja fram áætlun um húsnæðismál
sem bæri yfirskriftina „Bitið framan
hægra“.
Bitið framan hægra.,,
Höfundur er félagsráðgjafanemi.
n Aánudagspósturinn
I v/birti í síðasta tölublaði
sínu leiðréttingu við smá-
frétt sem greindi frá því að
skrifstofur Heimsmyndar í
Hafnarstræti hefðu verið
innsiglaðar og starfsfólk
þurft að leita til leigusala til
að nálgast persónulegar
eigur sínar. Það var sem-
sagt dregið til baka og sagt
að skrifstofurnar hefðu ver-
ið fluttar í Skipholt þar sem
Almenna bókafélagið, fyrir-
tæki Friðriks Friðriksson-
ar, eiganda Heimsmyndar,
hefur aðsetur. Eitthvað
virðast ritstjórinn Karl Th.
Birgisson og kokkurinn sí-
káti, Sigurður Hall, sem
annast hefur sælkerasíður
tímaritsins, eiga erfitt með
að slíta sig frá miðborginni.
Síðast sást til þeirra félaga
rýna saman í ferðatölvu
þess síðarnefnda á Hótel
Borg í fyrradag, sem má
heita undarlegt í Ijósi þess
að þpir eiga að vera komnir
með nýja aðstöðu upp í
Skipholti...
Tilkoma nýja staðarins í
Austurstræti hefurvald-
ið nokkrum skjálfta í veit-
ingabransanum. Nokkuð
mun það hafa vafist fyrir
þeim Halli Helgasyni og
Helga Björnssyni að finna
nafn á nýja staðinn. Nú er
hins vegar niðurstaða feng-
in og varð nafnið Astró
fyrirvalinu. Sem reyndar
minnir í fyrstu á astraltertu-
gubbið sem Stuðmenn
sungu um hérforðum...
ITímanum í gær var kostu-
leg klausa sem ástæða er
til að birta í heild: „Nýir
húsbændur í utanríkisráðu-
neytinu virðast vekja hrifn-
ingu starfsmanna utanríkis-
þjónustunnar og er talað
um að mun betri starfsandi
sé í ráðuneytinu hjá öllum
þorra starfsmanna. Segja
menn að nú sjáist starfs-
menn utanríkisþjónustu
lýðveldisins jafnvel brosa á
Laugaveginum á leið í
vinnuna, nokkuð sem ekki
hefur gerst lengi." Það er
ekki að spyrja að Halldóri
Ásgrímssyni, þeim annál-
aða gleðigjafa...
Ein óvæntasta metsölu-
bók síðustu vertíðar var
Villtir svanir eftir kínverska
rithöfundinn Jung Chang í
þýðingu Hjörleifs Svein-
björnssonar. í bókinni
segir höfundurinn í senn
sögu fjölskyldu sinnar og
sögu Kína á þessari öld frá
sjónarhóli þriggja kynslóða
kvenna, sjálfrar sín, móður
og ömmu. Nú geta hinir
fjölmörgu aðdáendur Jung
Chang glaðst yfir því að
höfundurinn er á leið til
landsins á vegum Máls og
menningar. Á föstudaginn
ætlar hún að árita bók sína
í verslun IVIM og á laugar-
dag klukkan tvö verður
dagskrá í Háskólabíói, þar-
sem Hjörleifur les úr bók-
inni en síðan mun Chang
flytja erindi um bók sína (á
ensku) og að því loknu
svara fyrirspurnum...
"FarSide" oftir Gary Larson.
„Jæja, þá. Einu sinni enn, en svo er það líka beint í háttinn."
„Hurðu, Dóri. Helduru að það séu einhverjir birnir í þessum
gamla helli?" „Ég veit'ða ekki, Dabbi. Komum og gáum."
Arnfríður Smáradóttir,
húsmóðir: ÍBV verður meist-
ari 1. deildar og Vfldngur vinn-
ur 2. deild.
Vigdís Arsælsdóttir, skrif-
stofumaður: Það verða mínir
menn í Fram í 1. deild og
Stjaman vinnur 2. deild.
Ragnar Karlsson, verslun-
armaður: Fram að sjálfsögðu
í 1. deild og Stjarnan vinnur
síðan 2. deild af því þeir eru í
bláu.
Andri Kristinsson, nemi:
Skaginn sigrar í 1. deild og ég
vona að KA vinni 2. deild.
Þorbergur Helgason, hót-
elstarfsmaður: Valur sigrar í
I. deild og Stjaman vinnur 2.
deild.
v i t i m e n n
Allir segja að þetta hafi veríð besta
keppnin sem haldin hefur verið og
gestrisnin með þeim ódæmum að
íslensku stúlkurnar eru orðnar víð-
frægar um allan boltaleikjaheim-
inn.
Oddur Ólafsson í Tímanum í gær.
Mér er nær að halda að ráðherr-
ann hafi komist í handrítið hjá Ara
[Edwaldj því þessi málflutningur er
mjög í þeim anda ómerkilegra út-
úrsnúninga sem hann hefur tamið
sér í seinni tíð.
Jón Steinar Gunnlaugsson aö skrifa um sinn
gamla vin og Eimreiöarklíkufélaga, Þorstein
Pálsson. Mogginn í gær.
Sagt er að KR-ingar muni spila 5-0
vöm í sumar.
Loki í gær.
Við erum algjörlega á móti því að
markaðssetja Súðavík.
Sigríður Hrönn Elíasdóttir á Súðavík, en útlit er
fyrir aö margir erlendir og innlendir ferðamenn
leggi leiö sína til bæjarins í kjölfar snjóflóösins í
vetur. DV í gær.
Ég tek undir skoðun Ólafs G. Ein-
arssonar um að þingmaður láti af
þingmennsku verði hann ráðherra.
Guðni Ágústsson þingmaöur Framsóknar. DV í
gær.
Það er ekki hægt að sitja hjá þegar
maður, sem hefur verið svo heils-
hugar og duglegur í starfi, verður
fyrir jafnalvarlegri gagnrýni og
birtist í grein þessari, sem virðist
bæði vera einhliða og ósanngjöm.
Stephanie Williams, sem rekur alþjóölega um-
boðsskrifstofu fyrir listamenn, um umfjöllun
Mannlífs um Jakob Frímann Magnússon menn-
ingarfulltrúa í Lundúnum.
Vefnum
Villtir á Vefnum hafa gjörsam-
lega tapað sér uppá síðkastið eftir
að hafa uppgötvað fleiri og fleiri
leiðir til að eyða hverjum einasta
eiri á Netinu. (Hugsið ykkur bilun-
ina: það er varla að við getum
nurlað saman fyrir Jameson á
barnum!) Málið er að sífellt marg-
breytilegri möguleikar gefast til
þess atarna og hér koma fáein
URL til viðbótar við þau sem við
gáfum ykkur um daginn!
■ Listamanna-Gallerýið
http://offworld.wwa.com/
■ Gæludýrabangsasjoppan
http://193.118.187.101/
help/bear/info
■ lnternet-"Kringlan"
http://www.gate.net/
'dmusic/aim.html
■ Lúxuskökubúðin
http://193.118.l87.101/
help/renaiss/info
■ Apple Macintosh-Sjoppan
http://www.micromedia.
co.uk/callhav/default.htm
■ Týndra-Vina-Línan
http://www.ais.net:
80/finafriend/
■ Græju-Gjafa-Listinn
http://www.innovations.
co.uk/giftpoint
veröld ísaks
f bandaríska borgarastríðinu notuðu
herlæknar ópíum gjaman sem verkja-
lyf. f stríðslok er varlega áætlað að
hundrað þúsund hermenn hafi verið
orðnir háðir ópfum - og þá taldi þjóð-
in einungis ijörtfu milljónir. Þrátt fyr-
ir að eiturlyfjavandamálið sé ærið í
Bandaríkjum dagsins í dag þá þýðir
þetta það, að eiturlyfjaffldamir vom
hlutfallslega miklu fleiri í þá daga.
Byggt á Isoac Asimov's
Book of Facts.