Alþýðublaðið - 24.05.1995, Side 7

Alþýðublaðið - 24.05.1995, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 24. MAI 1995 ALÞÝÐU BLAÐID 7 D e n n i i n aJ ■ Glæsileg listaverkabók um Leif Breidfjörð Hann er fa gmaður ý áBi m fram i fing lurgóma -segir Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur sem skrifartexta bókarinnar. Aðalsteinn: Efast um að það sé neinn listamaður á Norðurlöndum sem hafi rykti Leifs Breiðfjörð á alþjóðavettvangi. A-mynd: E.ÓI. „Leifur Breiðfjörð er fagmaður fram í fingurgóma. Það sem ein- kennir hann einna helst er hvað hann hefur klára og fína skreytigáfu. Hann er mjög næmur fyrir aðstæðum hvar sem er og finnur hvað er passandi fyrir mótív og liti og frábær teikn- ari,“ sagði Aðalsteinn Ingóifsson listfræðingur í spjalli við Alþýðu- blaðið. Mál og menning hefur gefið út bók um glerlistamanninn Leif Breið- fjörð og er hún prýdd fjölda lit- mynda af listaverkum Leifs. Aðal- steinn Ingólfsson skrifar texta bókar- innar sem auk íslensku er prentaður á ensku og þýsku. „Glerlistin er sérheimur með eigin stefnum og straumum en endurspegl- ar þó líka það sem geriskí megin- straumum myndlistar. Stfllega séð þá vegur Leifur svolítið salt á milli enska skólans og þýska skólans. Enski skólinn er mjög náttúrukennd- ur, blóm og gróandi ýmis konar. Þýski skólinn er meira upp á harða formfræði og stranga uppbyggingu. Leifur er býsna þekkt nafn í heimi glerlistar og ég efast um að það sé neinn listamaður á Norðurlöndum sem hafi hans rykti á alþjóðavett- vangi,“ sagði Aðalsteinn. Hefur Leifur unnið mörg verk fyrir útlendinga? „Ég man ekki eftir öðrum gler- listamanni á Norðurlöndum sem hef- ur fengið eins mörg verkefni í Evr- ópu og Leifur. Hann hefur til dæmis gert fjölmarga glugga í Þýskalandi, bæði geistlegrar tegundar og svo fyr- ir spilavíti og opinberar byggingar. Hann er með mjög góðan umboðs- mann, lækni að nafni Schanbacher, sem er jafnframt galleríisti. Hann hefur gert mikið í því að koma Leifi að þar sem þarf að glerja í Þýska- landi." Erum við íslendingar ekki nokkuð einangraðir í þessari list- grein? „Jú, við eigum þar ekkert sem heitir hefð. Leifur er fyrsti atvinnu- maðurinn í þessu og tekur þetta sem fagmaður frá upphafi til enda. Þeir sem höfðu áður fengist við glerlist, eins og Nína Tryggvadóttir og Gerður Helgadóttir voru fyrst og fremst myndlistarmenn sem tóku þetta sem aukagetu. Þær létu gler- verkstæði úti í heimi vinna mikið fyrir sig og voru ekki með puttana í þessu frá upphafi til enda eins og Leifur." Er glerlistin útbreidd í Evrópu? ,Já, þetta er ein alelsta myndlistin. Gotnesku kirkjumar vom allar með steindu gleri og það er svo nú á tutt- ugustu öld sem það er að ganga í endumýjun lífdaga. Sérstaklega var það eftir síðara stríð þegar allt var í kaldakoli og menn voru að byggja upp. Þá vaknaði þessi þörf til að hafa svona glugga í nýjum byggingum. Þjóðverjar hafa verið þar einna fremstir í flokki og síðan Frakkar. Glerlistin er sérveröld innan mynd- listarinnar en mjög útbreidd. Hins vegar er ekki á vísan að róa í þessum efnum. Menn leggja yfirleitt ekki í þessa vinnu við glerlistaverk nema þeir séu nokkuð vissir um að geta selt þau. Það er í sumum tilfellum margra mánaða vinna að setja saman glugga. En Leifur hefur líka unnið giugga fyrir einstaklinga sem hengja þá upp í stofunum." I bókinni um Leif Breiðfjörð rekur Aðalsteinn Ingólfsson feril Leifs og fjallar um mörg listaverk hans. Þar segir á einum stað: „Af stofnanaverkum Leifs hin síð- ari ár ber ugglaust hæst glerverkið í Flugstöð Leifs Eiríkssonar (1987) og glugga í Þjóðarbókhlöðu (1994). Flugstöðvargluggarnir eru tvær fimmhyrndar glermyndir, samtals um 70 fermetrar að stærð, stærsta verk Leifs til þessa. Glermyndirnar hanga með 45° halla niður úr loftinu beggja vegna í aðalsal byggingarinn- ar, sú stærri gegnt norðurglugga, en sú minni við suðurglugga. Hér er gamla flugdrekahugmyndin endur- borin í réttu samhengi, sem stórbrot- ið tákn fyrir flugþrá mannsins. Leið- arstef í báðum skermunum eru risa- vaxin höfuð er horfa til stjamanna, eins og í minningu helstu flugkappa sögunnar frá íkarusi til geimfar- anna, en í kjölfari/útblæstri þeirra svífa vonir mannanna, vættir lands- ins og fuglar himinsins. Megin- áherslur í myndunum eru eins konar endurómur af byggingarstflnum allt um kring, en auk þess ríma gulir og rauðir litatónar þeirra við ríkjandi liti í salnum. Ópalgler og gular kúlur eru felldar inn í skermana og vakna til lífsins að kvöldlagi þegar rafmagns- ljósum er beint að þeim. I afgreiðslusal Þjóðarbókhlöðu er að finna nýjustu útfærslu Leifs á þeim háleitu hugsjónaverkum sem birtast í Flugstöðvarskermunum. Þar er um myndþrennu að ræða er nefn- ist Mannsandinn: Fortíð-nútíð-fram- tíð, þrjú höfuð, hvert á eigin stalli eða grísk-rómverskri súlu, og vísar hvert þeirra til tímabils í íslandssög- unni. Yst til vinstri er fomt höfuð og dimmúðugt, markað gotneskri skrift handritanna, nánar tiltekið tilvitnun í Ólafs sögu helga, en fyrir miðju er sólbjart höfuð nútíðar, letrað tölvu- tákni sem vísar til ljóðlína eftir Jón- as Hallgrímsson. Yst til hægri er svipur framtíðar, án leturs eða merkjamáls af nokkru tagi, enda óvíst með hvaða hætti Islendinga- sögur framtíðar verða skráðar." Eins og áður er komið fram eru listaverk eftir Leif Breiðfjörð þekkt víða erlendis. f bókinni segir Aðal- steinn ffá einu kunnasta verki Leifs á erlendri gmnd: „Mesta frægðarför á ferli sínum fór Leifur til Edinborgar árið 1983, þar sem hann var beðinn um að gera Skotum 5x10 metra glugga í minn- ingu Roberts Burns, þjóðskálds Skota, til uppsetningar í' St. Giles, höfuðkirkju skosku kirkjudeildarinn- ar. Þá hafði 50 tillögum glerlista- manna, margra heimsfrægra, verið hafnað. Leifur fékk frjálsar hendur um út- færslu verksins, en minnugur þess sem Sax Shaw hafði innprentað hon- um forðum daga, dró hann að sér miklar heimildir um Burns, skáld- skap hans og samtíð, áður en hann hófst handa um teiknivinnu. Leifur þurfti að fella gler sitt inn í umgjörð- ina sem fyrir var, 19. aldar smíð í nýgotneskum stfl, taka tillit til hlut- falla og litbrigða í kirkjunni allri, og sjá til þess að helstu atriði verksins væru læsileg úr talsverðri fjarlægð, utan kirkju sem innan. í verki sínu gengur Leifur út frá hugmyndum þar sem skarast áhuga- mál Roberts Burns og kenningar kristinnar kirkju. Leiðarvísir St. Gil- es dómkirkjunnar segir eftirfarandi um úrlausn hans: „I verkinu eru tvisvar sinnum fimm ferhyrndir gluggar, hver ofan á öðrum, með gotneskri flúrskreytingu efst. Leifur tekur nokkurt tillit til þessarar form- gerðar, en deilir glugganum samt niður í þrjár láréttar einingar. Neðri gluggarnir fimm eru lofgjörð um náttúruna, samanber ljóð Bums: Again rejoicing Nature sees Her role assume its vemal lines: Her leafy locks wave in the breeze, All freshly steep 'd in moming dews. Efri gluggamir fimm vísa til „sam- félagsins og bræðralags manna“: It’s comin yetfor a’that, That man to man the world o’er Shall brithers befora’ that. Fyrir gotnesku flúrskreytingunni miðri er tákn alvalds ástarinnar og lfldst skjannabjartri sól, sem minnir á fræga ljóðlínu Bums: My love is like a red, red rose. Nú blasir þessi steindi gluggi við öllum þeim sem ganga The Royal Mile, þekktustu götu Edinborgar; laðar að sér fjölda gesta, vekur umtal og ekki síst athygli á íslenskri list- sköpun af alþjóðlegri stærð.“ ■ Mikil bókmenntahátíð verður haldin á íslandi í september og fjöldi foringja úr heimi alheimsbókmenntanna eru væntanlegirtil landsins. Yfirskriftin er sannfræði og skáldskapur Gaarder, Nasrin, Epstein og öll hin í bókmenntaveislu Örnólfur Thorsson: Fyrirtæki hins íslenska atvinnulifs eru, þegar á reynir, menningarleg mörg hver. A-mynd: E.ÓI. „Nú þegar eru 24 nöfn staðfest," segir Ömólfur Thorsson um þá höf- unda sem væntanlegir em til landsins í september en þá verður mikil bók- menntahátíð haldin. Hún er fjórða sinnar tegundar sem haldin er en sú fyrsta var árið 1985 þannig að fyrir- bærið er orðið 10 ára. Undirbúnings- nefndin var með blaðamannafund síð- astliðinn mánudag til að kynna gem- inginn, „ekki er ráð nema í tíma sé tekið," segir Ömólfur en hann á sæti í nefndinni. Og hann bætir því við að ætíð hafi verið lagt er út frá einhveij- um kenniorðum og síðast voru það bama- og unglingabækur sem vom til gmndvallar. „Núna er yfirskriftin: Sannfrœði og skáldskapur sem er tilraun til að þýða Fact & fiction. Margir höfundar heim- spekirita og sagnfræðirita em væntan- legir og síðan eiginlegir skáldsagna- höfundar. Sá frægasti er vísast Jostein Gaarder, sá sem skrifaði metsölubók- ina Veröld Soffíu, skáldsögu um heim- spekina." Ömólfur nefnir einnig skáldkonuna og lækninn Tasmilu Nasrin frá Bangladesh til sögunnar en verk henn- ar hafa skipað henni á bannlista hrein- trúarmanna múhameðsofstækismanna. Hún er nú búsett í Svíþjóð. Norræna húsið er í fyrirsvari fyrir hátíðina og forstjóri þess, Torben Rasmussen er yfirvaldið. Það er stór hópur sem skipar undirbúningsnefnd- ina, að stofni til hinn sami og fyrir tíu árum. Hópurinn er samansettur af menningarvitum ýmisskonar: rithöf- undum, bókmenntafræðingum, for- leggjumm, ritstjómm... Starfið felst meðal annars í því að afla ljár og Öm- ólfur segir að Norræni menningar- málasjóðurinn styrki hátíðina rausnar- lega, Norræna húsið, Ríki og borg. „Auk þess fyrirtæki hins íslenska at- vinnulífs sem eru, þegar á reynir, menningarleg mörg hver.“ Dagskráin verður með áþekku sniði’ og verið hefur, upplestrar á hverju kvöldi í Þjóðleikhúskjallaranum frá sunnudegi og út vikuna 10. til 16 sept- ember. Þar koma ffam gestir og þeirra íslensku þýðarar, íslenskir rithöfúndar og aðrir. „Þetta er sá liður sem hefur lukkast hvað best,“ segir Örnólfur. „Það hefur tekist vel að fá áhorfend- ur.“ Síðan verður dagskrá í Norræna húsinu að deginum til. Hún skiptist í þijá parta: Pallborðsumræður um ýmis efúi, samtöl og höfundakynningar, (ís- lenskur og erlendur), fyrirlestrar. Fjórði liðurinn er svo skólaheimsókn- ir. Ömólfur bendir sérstaklega á síð- asta daginn sem verður helgaður bók- menntakynningu en þau mál hafa ver- ið mikið til umræðu hérlendis, það er að segja, hvemig fagurbókmenntum vegni í heimi útgáfunnar og kannski ekki síður hvemig hægt sé að koma ís- lenskum bókmenntum á framfæri er- lendis. Von er á þremur til fjórum er- lendum forleggjurum: Epstein frá Random House, MícCrum útgáfu- stjóri hjá Faber og Michael Kriiger frá Hanser í Þýskalandi. Þeir taka þátt í umræðum sem verða fýrir hádegi en eftir hádegi mæta fúlltrúar ffá norræn- um bókastofum sem eru einskonar bókmenntakynningastofur. „Þessi mál hafa verið í deigltmni hér heima und- anfarið, nú er meðal annars nefnd á vegum menntamálaráðuneytis að velta fyrir sér hvemig þessum málurn verði best fyrir komið. Vegur íslenskra bók- mennta hefur farið vaxandi erlendis, sífellt fleiri höfundar ná árangri en stuðningur opinberra aðila hér heima hefur verið mjög lítill. Frændur okkar á Norðurlöndum hafa talsverða reynslu í þessum efnum, þannig hafa Norðmenn til dæmis og Finnar náð miklum árangri. Þessi laugardagsumr- æða verður vonandi til að hvetja ís- lensk stjómvöld enn frekar til þess að setja hér á laggir íslenska bókmennta- stofu,“ segir Órnólfur Thorsson að lokum. ■

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.