Alþýðublaðið - 24.05.1995, Page 8
» *
WffiEVffll/
4 - 8 farþega og hjólastólabílar
MÐUBLMl
* *
'm.WFILL/
4 - 8 farþega og hjólastólabílar
5 88 55 22
Miðvikudagur 24. maí 1995
77. tölublað - 76. árgangur
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
■ MADUR VIKUNNARer Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra sem staðið hefur í eldlínunni
síðustu daga. Jakob Bjarnar Grétarsson talaði við vini, samherja og pólitíska andstæðinga...
Vinnufíkillinn síkáti
\i
i
Það er Ijóst að Ingibjörg Pálmadótt-
ir tók ekki að sér auðveldasta ráðu-
neytið. Það kom mönnum sem
fylgst hafa með þinginu ekki á óvart
að Ingibjörg yrði ráðherra í sam-
steypustjóm Framsóknarflokks og
Sjálfstæðisflokks. Það var mönnum
hinsvegar nokkurt undrunarefni að
þingmaðurinn af Vesturlandi, sem
aðeins hefur setið fjögur ár á Al-
þingi, skyldi fá í sinn hlut eitt erflð-
asta ráðuneyti ríkisstjómarinnar.
En hver er Ingibjörg Pálmadóttir?
Alþýðublaðið hringdi í góðan hóp
manna sem þekkja hana bæði í leik
og í starfi. Það var samdóma álit allra
að Ingibjörg sé dugnaðarforkur og
falli ekki verk úr hendi. „Hún er ósér-
hlífm,“ segir Magnús Stefánsson sá
trausti vinur og þingmaður Framsókn-
arflokksins. „Hún vinnur vel í þeim
málum sem hún tekur sér fyrir hend-
ur. Hún er mannblendin og á auðvelt
með að nálgast fólk. Hún er brosmild,
kát og hress. Hún er góður starfsfé-
lagi.“
Þegar Magnús var beðinn um að
nefna galla þá taldi hann áhugann
geta orðið fuU mikinn. „Það er spum-
ing hvort hún færist of mikið í fang
og taki að sér of mörg verkefni. Hún
kann ekki að segja nei og það getur
komið niður á því sem hún er að
gera.“
I sama streng tekur Pálmi Har-
aldsson, sonur Ingibjargar og knatt-
spymuhetja á Skaganum. „Hún á til
að ofkeyra sig og veit ekki hvenær
hún á að hætta. Hún tekur stundum of
mikið að sér.“ Pálmi nefnir jákvæðni
fyrst af öUu þegar hann er spurður um
helstu kosti móður sinnar: „Hún er
lífsglöð og alltaf brosandi. Hún er
mikill vinnufíkill og getur ekki setið
auðum höndum og kemur miklu í
verk.“
Eiginmaður Ingibjargar, Haraldur
Sturlaugsson forstjóri, hafði svipaða
sögu að segja. Haraldur sagðist
reyndar ekki endilega vera rétti mað-
urinn til að tjá sig um konu sína en
sagði þó þetta: „Við höfum verið gift
í 23 ár og öll þessi ár hefur verið nóg
að gera hjá okkur. Ég er vel giftur. Ég
man ekki eftir neinum sérstökum
ókostum í svipinn. En það er kannski
vegna þess að það er svo langt síðan
ég sá hana síðast." Hann segir að
þessir funm karlmenn sem Ingibjörg
býr með hafi haft það sem prinsipp að
kvarta ekki þó að það hafi verið mikið
að gera hjá henni.
Guðjón Guðmundsson, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokks á Vesturlandi, er
greinilega ánægður með þessa fimm
því hann segir plúsinn við Ingibjörgu
vera: „Létt lund og elskuleg fram-
koma. Svo er hún vel gift og fram-
leiðir góða knattspyrnumenn.
Mínusinn er takmarkalaus metnaður
sem leiðir til þess að hún færist full-
mikið í fang.“
Gísli S. Einarsson, þingmaður Al-
þýðuflokks á Vesturlandi, hefúr þekkt
Ingibjörgu í áratug og segir hana seig-
ari en margur hyggur. „Hvað sem
hver segir hefur hún haft pólitískt nef
til að komast í þá stöðu sem hún nú
gegnir og það án þess að það sé sér-
stakur bægslagangur í kringum hana.“
Mínusinn telur Gísli vera ákveðið
bráðræði. „Hún mætti hugsa sig betur
um áður en hún svarar. Hún er hins
vegar fljót að biðjast velvirðingar ef
hún segir eitthvað sem kemur illa út.
Hún þarf á öllu sínu að halda til að
komast í gegnum þetta sem hún hefur
færst í fang.“
Jón Krístjánsson, samflokksmað-
ur hennar, þingmaður og ritstjóri
hafði fátt út á hana að setja. „Hún hef-
ur sjálfsagt sína galla eins og aðrir, ég
hef ekki hugsað út í þá sérstaklega."
Jón var hinsvegar tilbúinn að nefna
kostina: ,JEinn af hennar helstu kost-
um sé dugnaður og lagni í almennum
samskiptum. Hún hefur verið nýtur
liðsmaður í okkar þingflokki og af-
skaplega dugleg og þægilegt að vinna
með henni.“
Össur Skarphéðinsson, þingmað-
ur Alþýðuflokksins í Reykjavík, hafði
þetta um kostina að segja: „Hún er
skemmtileg og hlý og það hlýtur að
vera gaman að vera giftur henni. Allt
hennar líf hefur markast af óvanalegri
farsæld og slíkt fólk hefur tilhneig-
ingu til að vera farsælt þegar það
kemur í ný og erfið störf. Þess vegna
held ég að Ingibjörg kunni að koma á
óvart sem heilbrigðisráðherra þó
fýrstu skref hennar gefi ekki tilefni til
að ætla það. Tvímælalaust reikna ég
henni það til tekna að eiga skemmti-
legan bróður sem einnig er þingmað-
ur.“
Varðandi galla var Össur einna
helst á því að hún væri full mjúk:
„Mér sýnist hún eiga erfitt með að
skilja að hún er orðin ráðherra og þarf
því að marka sína eigin sjálfstæðu
stefnu andspænis misvitrum embætt-
ismönnum. Hún á að leiða en ekki
vera leidd. Hún verður að auka þyngd
sína með því að auka sjálfstæði sitt.“
Nú, hinn skemmtilegi bróðir Ingi-
bjargar, ísólfur Gylfi Pálmason,
þingmaður Framsóknarflokksins á
Suðurlandi, var markviss þegar kom
að kostum stóru systur: ,JDugleg, ein-
örð, ákveðin, skapgóð og skemmtileg
og föst fyrir.“ Hann vildi halda því
fyrir sjálfan sig hvort hún hefði tekið í
hnakkadrambið á Iitla bróður í æsku,
en um galla Ingibjargar sagði hann:
„Lösturinn er kannski sá að henni
hættir til að vilja gera of mikið sjálf.“
Valgerður Sverrisdóttir frá
Lómatjörn, formaður þingflokks
Framsóknarflokksins, var á þvf að
fjöldi kosta prýddu Ingibjörgu. „Hún
er sérstaklega þægileg í umgengni,
skemmtileg og fljót að átta sig á aðal-
atriðum mála. Ingibjörg er sólargeisli
í öllum félagsskap, hún er svo létt og
skemmtileg. Hún er góð manneskja.
Hún tekur vel leiðbeiningum og
hlustar vel á ráðgjöf og gerir sér grein
fyrir því að á sumum sviðum þarf
maður á ráðgjöf að halda. Það er mik-
ill kostur."
Þegar Valgerður var beðin um að
nefha ókost við Ingibjörgu kom nokk-
uð óvænt uppúr dúrnum: „Hún er
ekki flink að keyra bfl.“ Valgerður
sagði að þegar þær væru saman í bfl
þá fyndi hún iðulega þörf hjá sér að
skipta sér að aksturslaginu. „Þá er
heldur ekki hennar sterkasta hlið að
raða hlutum skipulega en hún finnur
nú samt alltaf allt sem hún er að leita
að.“
Guðrún Helgadóttir, varaþing-
maður Alþýðubandalagsins í Reykja-
vík, sat með Ingibjörgu á þingi í ljög-
ur ár og segir hana ákaflega væna
manneskju: „Ég kann afskaplega vel
við Ingibjörgu. Hún er geðþekk
manneskja og hefur góða nærveru.
Hún er áreiðanlega í stjómmálum af
áhuga á velferð landsmanna og ekkert
nema gott um það að segja.“
Þegar kom að því að nefna galla
sagði Guðrún: ,J>að verður að segjast
eins og er að Ingibjörg er ekki sérlega
þjálfaður ræðumaður. Hún þyrfti satt
að segja að aga svolítið betur ræðu-
mennsku sína. En það er nokkuð sem
vel er hægt að þjálfa með sér og vafa-
laust gerir Ingibjörg það. Og ég vil
taka það ffam að hún er ekkert ein um
þetta og þeir finnast svo sem verri á
þingi." ■
Guðrún Helgadóttir: Kunnugir innan bókaheimsins veðja á að hún verði
fyrir valinu. a -mynd: E.ÓI.
■ Islensku barnabókaverðlaunin
Hver hreppir tvöhundruð-
þúsundkallinn?
fslensku bamabókaverðlaunin verða
afhent í dag klukkan fjögur í Þjóðar-
bókhlöðunni. Verðlaunin em 200 þús-
und krónur auk venjulegra höfundar-
launa og í tilkynningu sem aðstandend-
ur hafa sent frá sér kemur fram að
verðlaunahafinn sé enginn nýliði með
pennann. Það rfldr því óvenju mikil
spenna og menn spá og spekúlera hver
verði til að hreppa hnossið. Þeirri kenn-
ingu hefur helst verið haldið á loft að
það verði Guðrún Helgadóttir og er
það rökstutt þannig að hún fór frá
bókaforlaginu Iðunni til Vöku-Helga-
fells í vetur. Það er einmitt Vaka-
Helgafell sem stendur fyrir verðlauna-
afhendingunni ásamt öðrum aðilum.
En það kemur sem sagt í ljós í dag þeg-
ar verðlaunabókin kemur út.
Hingað til hafa það verið óþekktir
höfundar sem hafa verið hreppt verð-
launin utan tveir. Stofnað var til vejð-
launanna í tilefni af 70 ára afmæli Ár-
manns Kr. Einarssonar, eins helsta
bamabókahöfundar okkar íslendinga.
Bækur hans um þá Óla og Magga,
Árna í Hraunkoti og fleiri lifa munu
lifa lengi með þjóðinni.
Þeir sem hafa fengið verðlaunin em í
þessi í réttri tímaröð frá árinu 1986:
Guðmundur Ólafsson (Emil og
Skundi), Kristín Steinsdóttir (Fransk-
brauð með sultu), Kristín Loftsdóttir
(Fugl í búri), Heiður Baldursdóttir
(Álagadalurinn), Karl Helgason (í
pokahorninu), Iðunn Steinsdóttir
(Gegnum þyrnigerðið), Friðrik
Erlingsson (Benjamín dúfa), Elías
Snæland (Brak og brestir) og Guðrún
H. Eiríksdóttir (Röndóttir spóar).
■ Listaklúbbur Leikhússkjallarans
Haukur Morthens. Dagskrá verður í
Leikhússkjallaranum á mánudags-
kvöldið til minningar um þennan
snilling íslenskrar dægutónlistar.
A-mynd: E.ÓI.
Minning um
Síðasta dagskrá Listaklúbbs Leikhús-
skjallarans í vetur verður mánudaginn
29. maí og er hún helguð Hauki heitn-
um Morthens, einum af okkar ástsæl-
ustu dægurlagasöngvurum fýrr og síðar.
Sagt verður frá ferli Hauks og mörg af
hans vinsælustu lögum sungin: Bjössi á
mjólkurbílnum, Simbi sjómaður, Til eru
fræ „og fleiri góð,“ einsog það er orðað f
tilkynningu.
Flytjendur þetta kvöld em leikaramir
Hinrik Ólafsson, Valgeir Skagfjörð og
Vigdís Gunnarsdóttir. Einnig koma
fram Kormákur Geirharðsson slag-
verksleikari og Einar Sigurðsson
bassaleikari.
Starf Listaklúbbsins hefur verið mjög
blómlegt í vetur - dagskrárnar fjöl-
breyttar - og skiptir fjöldi þeirra lista-
manna sem troðið hafa upp á vegum
klúbbsins hundmðum.
, J>að þótti ekki fýsilegt að standa fýrir
uppákomum á mánudagskvöldum, en
það er óhætt að segja að tilraunin hefur
tekist og Listaklúbburinn er kominn til
að vera,“ segir jafnframt í tilkynning-
unni. I haust hefst starfið svo að nýju
með Bókmenntahátíð í Reykjavík sem
haldin verður í Listaklúbbnum dagana
11. til 15. september.
Dagskrár Listaklúbbsins hefjast
klukkan 20:30 og er aðgangseyrir 500
krónur fýrir almenning, en 300 krónur
fýrir félaga klúbbsins.
Hauk
Nýja brúin yfir Lækinn: Ráðgert að
útbúa göngustíg á lækjarbakkan-
um undir henni.
■ Hafnarfjörður
Brú á Lækinn
Ný brú yfir lækinn í Hafnarfirði
verður formlega tekin í notkun í dag
með því að börn af leikskólanum
Hlíðarbergi ganga fylktu liði yfir
hana. Brúin tengir Setbergshverfið við
nýja hverfið í Mosahlíð.
Upphaflega hafði verið ráðgert að
veita læknum um ræsi undir veginn
sem tengir þessi tvö hverfi en á fúndi
bæjarráðs í september síðast liðnum
var samþykkt að ráðast í brúarsmíð-
ina. Með brúnni aukast möguleikar á
notkun útivistarsvæðisins á Stekkjar-
hrauni, sem liggur milli hverfanna.
Brúin er samsett af fjórum stálbitum
sem tengdir eru við steypta sökkla við
hvom enda brúarinnar. Éfhisval og út-
lit brúarinnar er með það í huga að
undirstrika ákveðnar andstæður,
byggð - óhreyft land, manngert - nátt-
úrulegt.
Hönnuðir brúarinnar^ eru
Jakob Líndal og Kristján Ásgeirs-
son arkitektar og verkfræðistofa
Bjöms og Stefáns. Brúarvígslan hefst
klukkan 15.