Alþýðublaðið - 21.06.1995, Blaðsíða 3
MiÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
Ný matargerð
Eftirfarandi ljóðlínur eða leirburður
eftir smekk komu í huga minn er ég
vaknaði eftir hádegi sunnudaginn 9.
apríl síðastliðinn:
Eg erframsóknarfjós
mína framtíðarsýn má þvífinna
á botni á
KEA-kjötbolludós
Höfundur er ókunnur. Mér til vor-
kunnar má minna á að samkvæmt
sænskum/bandarískum auglýsinga-
könnunum bylja yfir 1.500 skilaboð
eða auglýsingar dag hvern á meðal-
neytenda. Hvað skyldu slík boð hafa
verið mörg í þessum siðustu alþingis-
kosningum?
Pallborðið |
Halldór E.
Sigurbjörnsson
skrifar
Alþýðuflokkurinn bauð kjósendum
ekki upp á neinar kjötbollur kraum-
andi í sósu, eins og Framsóknatflokk-
amir tveir (einn?), heldur bauð hann
upp á la nouvelle cuisine, það er frem-
ur lítið á diskinn en allt meinhollt,
skýrt, sundurgreinanlegt, ódýrt (!) og
án eftirkasta í framtíðinni. Kjósendur
þáðu ekki kostaboðið en stungu göfl-
um sínum fremur í óskilgreint og
leyndardómsfullt innihald kjötbollu-
dósarinnar. Hvað leynist i gumsinu?
Því fá íslendingar að kynnast næstu
árin.
Aðdragandi alþingiskosninga 1995
var næsta sögulegur. Jóhanna bauð sig
fram til formanns en sveik síðan bæði
og klauf. Guðmundur Arni lenti
skömmu síðar í harðari ólgusjó fjöl-
miðlamanna en dæmi eru um áður í
íslenskri stjómmálasögu. Jón Baldvin
fór svo alla leið á botninn á vinsælda-
lista íslenskra stjórnmálamanna og
fylgi flokksins gott sem hvarf um
skeið. A nýju ári kom hins vegar í ljós
að áreiðanleiki skoðanakannanna er
oft lítill er þúsundir tóku þátt í full síð-
búnu prófkjöri Alþýðuflokksins á
Reykjanesi. Á aukafíokksþingi náði
síðan Evrópusambandsmálið fram að
ganga ásamt öðrum eldfimum áherslu-
málum, var þá orðið helst til stutt í
kosningar.
Sú harkalega lending sem Alþýðu-
flokkurinn varð fyrir, það er að missa
stjómartaumana og komast í stjómar-
andstöðu, ætti að verða forystumönn-
um flokksins hæftleg áminning. Nú er
þeim vonandi ljóst að þeir tilheyra
flokki sem samanstendur af flokks-
mönnum sem gera til þeirra kröfur og
til þess að á þá sé hlustað. Enginn af
núverandi þingmönnum tfokksins á
sjálfgefið kall til ákveðins sætis á
framboðslista flokksins fyrir næstu al-
þingiskosningar með þau kosningaúr-
slit á bakinu er fyrir liggja. Ætti sú
staðreynd að vera nægileg til þess að
þeir haldi sig á táberginu næstu ár.
Þar sem svo fór sem fór þá er Al-
þýðuflokkurinn einnig sem betur fer
laus í bili við tcekifœriskrata, bitlinga-
krata og þriggja nátta krata sem því
miður hafa á umliðnum árum átt
greiðan aðgang að framámönnum
flokksins og jafnvel til æðstu metorða.
Hefur það verið flokknum til tjóns
jafht inn á við sem út á við.
Umfjöllun um flokksstarf í Alþýðu-
flokknum - Jafnaðarmannaflokki ís-
lands - og hvað betur má fara fer best
í spumarformi:
I. Er eðlilegt og uppbyggilegt að
flokksstarf í öðrum stjómmálaflokk-
um, klofningstilburðir eða ekker't
framlag til flokksstarfs í Alþýðu-
flokknum sé verðlaunað með virðing-
arstöðum eða embættum utan eða inn-
an flokks svo og með sæti á framboðs-
lista flokksins?
II. Er ekki full þörf á „naflaskoðun"
á skipulagi Alþýðuflokksins, manna-
haldi og vinnubrögðum öllum?
Samkvæmt sögulegri hefð Alþýðu-
flokksins ætti Jón Baldvin eða kallinn
{ brúnni ekki að þurfa að kemba hær-
V
Samkvæmt sögulegri hefð Alþýðuflokksins
ætti Jón Baldvin eða kallinn í brúnni ekki að
þurfa að kemba hærurnar á næsta flokksþingi
... Láti flokkurinn af hefðinni þá koma ýmsir
kandídatar til sögunnar: Guðmundur Árni,
Össur Skarphéðinsson, Sighvatur Björgvins-
son, Rannveig Guðmundsdóttir og á kaffihús-
um hefur Ingibjörg Sólrún verið nefnd.
umar á næsta flokksþingi. Það er hins
vegar ekki hægt að segja að hann hafí
ekki fiskað. Ef hann hefði landað í
Eyjum á krókaleyfisbát eftir síðustu
veiðiferð þá myndu sjógarpamir þar
hafa sagt að er hann lagðist að
bryggju: „Þú ftskaðir nú sæmilega í
dag kallinn þrátt fyrir allt.“
Láti flokkurinn af hefðinni þá koma
ýmsir kandídatar til sögunnar. Guð-
mundur Árni á sem varaformaður
kröfu á formannstign auk þess sem
hann stóð af sér stærsta fjölmiðla-
áhlaup samtímans. Aðrir hafa verið
nefndir og má þá fyrstan telja Össur
Skarphéðinsson. Virðist þá einkum
hafa verið miðað við það skemmti-
gildi sem Össur hefur sem ræðumað-
ur. Sighvatur Björgvinsson á eflaust
tilvísun á formannsstólinn að sumra
mati. Þá hefur nafn Rannveigar Guð-
mundsdóttir borið á góma og þá helst
sem málamiðlun stríðandi afla og
konu með flekklausan stjómmálaferil.
Á kaffthúsum hefur Ingibjörg Sólrún
verið nefnd og væri það ekki í fyrsta
skiptið sem flokkurinn leysti innan-
húsmál sín með utanaðkomandi að-
stoð eins og það kallast. Hver sem val-
inn verður { brúna þá verður hann/hún
að uppfylla tvenn skilyrði:
f fyrsta lagi verður hann/hún að
fiska að minnsta kosti sæmilega og
í annan stað verður hann/hún að
vera fær um að efla flokksstarfið,
fjölga í áhöfninni og halda öllum um
borð.
Við bíðum í lúkamum.
Höfundur var prófkjörsstjóri Rannveigar
Guðmundsdóttur 1995 og í alþingis-
kosningunum einn af kosningastjórum
Alþýðuflokksins á Reykjanesi.
Það er eins gott að ekki
þurfi að kalla saman Al-
þingi i skyndi í þessari viku.
Um leið og vorþinginu lauk
voru mjög margir þingmenn
farnir rakleitttil útlanda. Rit-
stjórn Alþýðubladsins fékk
að kenna á ferðagleðinni í
gær, þegar til stóð að fá álit
frá nokkrum þingmönnum
Alþýðuflokksins. Jón Bald-
vin Hannibalsson var far-
inn til Þýskalands, Rann-
veig Guðmundsdóttir er
austur í Indónesíu, Össur
Skarphéðinsson í París. Þá
eru þeir Lúðvík Bergvins-
son og Guðmundur Árni
Stefánsson líka á faralds-
fæti, og talið var að Sig-
hvatur Björgvinsson væri
farinn utan. Eftir var einn
þingmaður Alþýðuflokksins
og hann hopaði hvergi,
Gísli S. Einarsson, margra
manna maki af Akranesi...
Allt er á huldu um pólitík-
ina í Hafnarfirði, þótt
kunnugir telji að bæjarfull-
trúarnir noti tækifærið á
vinabæjarmótinu í Noregi til
að vingast hver við annan.
Margt er skrafað um að
Guðmundur Árni Stef-
ánsson taki
aftur við bæj-
arstjórastöð-
unni, en hann
var óskoraður
og sigursæll
leiðtogi jafnað-
armanna í
Hafnarfirði uns
hann gerðist
ráðherra og
þingmaður
fyrirtveimur
árum. Úr her-
búðum Alþýðubandalagsins
heyrum við, að allaballar
séu reiðubúnir að skoða
þennan möguleika með
opnum huga...
Uppsagnir Ellerts B.
Schrams og Guð-
mundar Magnússonar á
Dl/áttu sér talsverðan að-
draganda. DV hefur talað
verulega í sölu að undan-
förnu og auglýsingatekjur
hafa skroppið saman. Á
sama tíma hefur Morgun-
bladið haldið sjó og vel það.
Það virðist hinsvegar vera
Hetgarpósturínn-Mánudags-
pósturínn sem er senuþjóf-
urinn á fjölmiðlamarkaðin-
um. Þvert á hrakspár hefur
blaðið dafnað eftir uppstokk-
un snemma vors. í sjoppun-
um, sem eru marktækastar í
þessum efnum, heyrum við
að blaðið renni út. Valda-
hlutföll í íslenskum fjöl-
miðlaheimi gætu því verið
að breytast verulega...
"FarSide" eftir Gary Larson.
„Æi, Hulda...! Þetta kemur bara ekkert áhrifamikid út á
filmunni þegar þú gerir þetta svona. Reyndu nú að halda
uppi heilanum, Hulda. Stóra heiianum...
það rétt ákvörðun hjá forráðamönnum ÍBK að reka Inga Björn Albertsson?
Uros Ivanovich, ríkis-
starfsmaður: Nei. Ég veit að
Ingi Björn er einn af okkar
bestu þjálfurum og góður full-
trúi íþróttarinnar.
Halla Karlsdóttir, skrif-
stofumaður: Já, mér fannst
það fyllilega rétt ákvörðun að
reka Inga Bjöm Albertsson.
Erlingur Jóhannesson,
leikari: Já, það fannst mér
vegna þess að Ingi Bjöm vann
ekki samkvæmt þeim mark-
miðum sem stjórn félagsins
Sigurður Ragnarsson, sál-
fræðingur: Nei, alls ekki. Það
var mjög undarlega staðið að
þessu máli.
Frímann Sigurðsson,
brúðubílstjóri: Nei, þeir
hefðu ekki átt að reka Inga
Bjöm.
m e n n
Jafnréttissinninn Helgi Hálfdanar-
son vill að heilbrigð kvenfrelsisbar-
átta gangi út á það að konur berjist
fyrir því að komast aftur heim þar
sem þær „venjulegu frjálshuga
konur“ eru þrælar utan heimilis af
nauð og eigi sér þann draum að
gera heimilið að menningarat-
hvarfi. Þrátt fyrir háan aldur virð-
ist Helgi hafa óvenjulega mikla
þekkingu á þvi hvaða drauma
„venjulegar“ frjálshuga konur
eiga sér.
Stöllurnar Kolfinna Baldvinsdóttir og Jóhanna
Vilhjálmsdóttir hafa nú hætt sér í þaö óðs
manns æöi að eiga í Mogga-ritdeilu viö Helga
Hálfdanarson atvinnu-ritdeilu-mann sem veit
ekkort yndislegra en að rífast útí eitt um undar-
legustu hluti. Enda mun hann vera einn fárra ís-
lendinga sem komið hefur sér upp alter-egóitil
að rífast við á síðum dagblaðanna.
Ungir Islendingar eru æðislega
fallegir, efnilegir, menntaðir og
ungir. Unga kynslóðin er betur af
guði gerð en þær sem slitu sauð-
skinnsskónum á hrjóstrum vegleys-
unnar og svellbólstrum jarðbanna.
Þetta vita allir og þeir sem sækjast
eftir atkvæðum krakkanna fara
mörgum fögrum orðum um æsku-
blómann sem gefur svo fögur fyrir-
heit um eigið framtíðarheill og
þjóðarinnar, sem forsætisráðherr-
ann heldur að sprangi um með
skotthúfu og rauðan skúf í peysu.
En þjóðin hefur svikið þá sem
landið erfa. Steinunn Óskarsdóttir,
formaður Þjóðhátíðarnefndar
Reykjavíkur, flutti átakanlegar
ásakanir um meðferðina á unga
fólkinu í votviðrinu 17. júní síðast-
liðinn.
Oddur Ólafsson vandaði sig sérstaklega við að
rakka niður þjóðhátíðarræöu ÍTR-formannsins
Steinunnar Valdísar í Tíma- pistli sínum í gær.
Klykkti síöan út með oröunum: „Gamlingjarnir
eiga einleik i stöðunni: Borgið skuldirnar áöur
en þið deyið. Þá mun æskunni vel farnast."
Villtir
og Vefararnir
■ Það er þriggja kvikmynda kvöíd
framundan hjá Villtum og kó: Klukkan
17:00 verður farið á Bullets Over
Broadway í Regnboganum, klukkan
18:50 ætlum við að hlaupa yfir í
Stjörnubió á Immortal Beloved og
ættum svo að ná bróðurpartinum af
Die Hard With a Vengeance klukkan
21:00 í Bíóborginni. Að því loknu er
ekki úr vegi að líta á snillingana Birgi
„bíennal" Andrésson og Bjarna
„vísirós" Þórarinsson á Café List
eða 22... ■ Vefararnir hafa grafið upp
Veffang G7- fundar leiðtoga sjö
helstu iðnríkja heims sem haldinn var
fyrir stuttu. Stjórnmálafríkin geta því
smellt sér inná ISPO-sörver fram-
kvæmdanefndar Evrópusambandsins
- http://www.ispo.cec.be - lesið
meðal annars flestar ræðurnar sem
fluttar voru á fundinum, kynnt sér
lokaniðurstöður og látið í sér heyra
með heimsástandið. ■ Nú er loksins
komin til sögunnar heimasiða Græn-
metisréttindasamtakanna. Spurn-
ing: „Hvað er eiginlega grænmeti?"
Svar: „Grænmeti er friðarsinnað og
býr þétt saman í traustum fjölskyldu-
hópum. Grænmeti er hæglátt í eðli
sínu." Upplýsingar eru einnig gefnar
á heimasíðunni um hættulega hópa
sem fjandsamlegir eru grænmeti -
Samtök grænmetisætna munu vera
þau allra hryllilegustu. Ennfremur er
sagt frá kvikmyndum sem fela i sér
neikvæða og jákvæða umfjöllun um
grænmeti: Benny & Joon hafði þann-
ig atriði þarsem ógæfumaðurinn
Johnny Depp kramdi kartöflu með
tennisspaða, en í The Good Earth
mátti hinsvegar sjá margar yndislegar
senur með villtu og frjálsu káli. Græn-
metisréttindasamtökin er að finna á
http://www.cam.org/~acl.veg.
html... TAKE THATi
veröld ísaks
Þegar Wright-bræðumir buðu Banda-
ríkjaher fyrst ílugvél sína sem fýrst
tók sig á loft árið 1903 vom embætt-
ismenn vægast sagt vantrúaðir á grip-
inn og meinta flughæfni hans. Reynd-
ar var neikvæðni hersins svo yfir-
þyrmandi að þeir komu ekki að sjá
reynsluflug fyrr en árið 1908. Eftir að
metflug Orwille Wright í Bandaríkj-
unum og síðan metflug Wilbur
Wright í Frakklandi færðu bræðmn-
um heimsfrægð, samþykkti herinn
loksins árið 1909 að taka flugvélina
til notkunar.
Byggt á Isaac Asimov's
Book of Facts.