Alþýðublaðið - 13.07.1995, Page 2
2
ALÞÝÐUBLAÐHD
FIMMTUDAGUR 13. JÚLÍ1995
s k o ð a n
MMDVBLADID
20950. tölublað
Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjórar Hrafn Jökulsson
SigurðurTómas Björgvinsson
Frettastjóri Stefán Hrafn Hagalín
Auglýsingastjóri Ámundi Ámundason
Umbrot Gagarín hf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglysingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Lýðræðið er
nokkuð þungt í vöfuni
Alþýðublaðið skýrði frá því í gær að meirihluti fjárlaganefndar hefði
hafnað beiðni Þjóðvaka um áheymarfulltrúa í nefndina. Það er fráleit
ákvörðun. Þjóðvaki er eini stjómmálaflokkurinn sem ekki á fulltrúa í
þessari mikilvægustu nefnd Alþingis, og því eðlileg og sanngjöm krafa að
flokkurinn fái að fylgjast með því sem þar er vélað.
Jón Kristjánsson þingmaður Framsóknar, sem varð formaður nefndar-
innar eftir mikið taugastríð milli stjómarflokkanna í vor, færir furðuleg
rök fyrir því að beiðni Þjóðvaka var hafnað. Hann sagði í samtali við Al-
þýðublaðið í gær að fjárlaganefnd sé orðin fjölmenn, þarsem hún er skip-
uð ellefu fulltrúum og því að verða „nokkuð þung í vöfum“. Málfluming-
ur af þessu tagi er tæpast samboðinn Jóni Kristjánssyni, sem hingaðtil
hefúr haft orð á sér fyrir sanngimi og lipurð í samningum. Þetta minnir
hinsvegar á skringilegar yfirlýsingar Davíðs Oddssonar í þjóðhátíðar-
ávarpinu fræga, þarsem hann sagði að lýðræðið væri „meingölluð stjóm-
unaraðferð, en nýtur þess jafnan að önnur skárri hefur hvergi fundist."
Viðhorf forsætisráðherrans til lýðræðis virðast því miður vera bráðsmit-
andi, úr því prúðmennið Jón Kristjánsson telur það nú orðið of þungt í
vöfum.
Gísli S. Einarsson, fulltrúi Alþýðuflokksins í fjárlaganefnd, og alþýðu-
bandalagsmaðurinn Margrét Frímannsdóttir studdu beiðni Þjóðvaka. Af-
staða Kristins H. Gunnarssonar, annars fúlltrúa Alþýðubandalagsins, er
hinsvegar sérkapítuli. Hann valdi það aumlega hlutskipti að sitja hjá - og
gekk þannig í lið með fúlltrúum ríkisstjómarinnar. í Alþýðublaðinu í gær
segist hann ekki tilbúinn að „taka undir það sjónarmið að allir eigi að fá
áheymarfulltrúa alls staðar.“ Stjómmálaskörungurinn af Vestfjörðum
bætir síðan um betur og segir: „Við sem emm í pólitík verðum alltaf að
velja og hafna en afstaða Jóhönnu Sigurðardóttur er sú að hún vill velja
og velja.“
í þessum orðum felst að persónulegt mat Kristins H. Gunnarssonar á
Jóhönnu Sigurðardóttur réði því hvemig hann greiddi atkvæði. Málið
snýst hinsvegar ekki um persónu Jóhönnu. Það snýst um aðgang lýðræð-
islega kjörinna fulltrúa á Alþingi að mikilvægum upplýsingum.
Með afstöðu sinni hefur Kristinn H. Gunnarsson skipað sér í flokk með
þeim stjómmálamönnum sem finnst lýðræðið „meingölluð stjómunarað-
ferð“ og „nokkuð þungt í vöfúm“.
Hveitibrauðsdögum lokið
Skoðanakönnun DV í gær gefúr eindregið til kynna að hveitibrauðs-
dögum Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar sé lokið. Hinn 11.
maí kváðust tæplega 80% kjósenda styðja stjómina. Nú, aðeins tveimur
mánuðum síðar, er fylgið komið niður í 65%. Andstæðingum stjómarinn-
ar hefúr að sama skapi vaxið fiskur um hrygg. í maí var aðeins fimmtung-
ur kjósenda andvígur stjóminni, en í gær kom fram að 35% landsmanna
em þegar búnir að fá sig fullsadda á helmingaskiptastjóm Davíðs og Hall-
dórs. Fylgishmnið er engin tilviljun. Æ fleimm er orðið ljóst að ríkis-
stjómin er aðeins bandalag íhaldsins og afturhaldsins um óbreytt ástand.
Það er heldur engin tilviljun að Alþýðuflokkurinn er eini stjómarand-
stöðuflokkurinn sem hefur bætt við sig fylgi síðan í kosningunum. Frá
fyrsta degi stjómarsamstarfsins hafa alþýðuflokksmenn verið oddvitar
stjómarandstöðunnar, og haldið uppi beittri og málefnalegri gagnrýni.
Lítið hefur hinsvegar spurst til hinna flokkanna, enda dalar Alþýðubanda-
lagið vemlega, Kvennalistinn tapar og Þjóðvaki er í þann veginn að
þurrkast út. Af þessu er ljóst hvaða flokk kjósendur hafa valið til að leiða
harða stjómarandstöðu.
Smánarblettur
Borgin Srebrenica í Bosníu-Herzegóvinu var hemumin af Serbum,
þrátt fyrir að vera „griðasvæði Sameinuðu þjóðanna“. Tugþúsundir
óbreyttra borgara em nú á flótta til Tuzla - þarsem 400 þúsund manns
hafa verið í herkví í þijú ár. Leiðtogar heimsins lýstu „reiði og undmn"
yfir töku Srebrenica. Þeim hefði verið sæmst að þegja: þeirra er ábyrgðin.
Fall Srebrenica markar straumhvörf í harmleiknum á Balkanskaga. Nú
á umsvifalaust að kalla hið svokallaða „friðargæslulið" burt frá Bosníu,
og gera réttkjörinni stjóm Jandsins kleift að verjast Serbum. ■
Flóttinn frá framtíðinni
- Um bókina Sjónarröndeftir Svavar Gestsson.
Friedrich Nietzsche sagði að trúin á
kenningamar væri stærsti bölvaldur
mannkynsins. Nietzsche dó árið 1900
og því má spyija: Hvað hefði maður-
inn sagt um 20. öldina? Það hefur í
reynd verið eitt helsta viðfangsefni 20.
aldar manna að eyðileggja hugsjónir
og kenningar 19. aldarinnar. Helsta
ffamlag 20. aldarinnar er tæknin.
(testefc^að ^ |
Bókin Sjónarrönd eftir Svavar
Gestsson er uppgjör manns við kenn-
ingu sem hann tileinkaði sér ungur.
Það uppgjör gengur svo langt að hann
tekur undir gagnrýni Rósu Luxem-
burg á kenningar Marx og Leníns.
Mér sýnist bókin heiðarleg hvað þetta
varðar, en um leið opinberar hún
helstu veikleika Alþýðubandalagsins
og raunar flestra sem kenna sig við fé-
lagshyggju, vinstristefnu, jafnaðar-
stefnu eða hvað þeir kalla það nú á
tímum.
Flestir þekkja hatrammar deilur
kommúnista og sósíaldemókrata frá
fjórða tug aldarinnar og síðan. Báðir
litu á sig sem deild í alþjóðlegri hreyf-
ingu og ræktu vel slík tengsl, komm-
únistar við Sovétríkin en sósíaldemó-
kratar við bræðraflokka í nágranna-
löndunum. Báðir þurftu fjárhagsað-
stoð sem trúlega skýrir nokkuð ósjálf-
stæði þeirra. Árið 1938 var búin til
„samfylking" samkvæmt skeyti frá
Moskvu og Sósíalistaflokkurinn stofn-
aður. Þá varð Héðinn Valdimarsson
einn helsti leiðtogi þess flokks, en
Sósíalistaflokkurinn hélt áffam tengsl-
um við Moskvu einsog ekkert hefði
gerst. Héðinn þoldi það ekki og fór.
Þetta var mikil ógæfa því Héðinn var
að mínu áliti ffemsti leiðtogi íslenskar
alþýðu á þessari öld. Seinna var þetta
endurtekið með Hannibal en það fór
sömu leiðina.
Hvorki Sósíalistaflokkur né Al-
þýðuflokkur gegndu því hlutverki sem
jafnaðarmannaflokkar gegndu á Norð-
urlöndum og það gerir Alþýðubanda-
lagið ekki heldur. Of marga leiðtoga
þeirra hefúr skort „nærsýni“. Þeir hafa
verið svo alþjóðlegir að vandamálin
hér hafa setið um of á hakanum. Vita-
skuld er víðsýni mikill kostur á stjóm-
málamönnum, en svo „víðsýnir" geta
menn orðið að þeir sjá ekki niðurá
tæmar á sér. Annar veikleiki íslenskra
sósíalista er hrokinn. Eftirað Héðinn
fór vora fyrrum samherjar hans sam-
mála um að útskúfa honum sem svik-
ara. Sú hreyfing verður aldrei sterk
sem ekki þolir skoðanaskipti og firjálsa
hugsun. Og sú hreyfing nær ekki
þroska sem alltaf sér helsta óvininn í
næsta manni, sem kannski hefur aðrar
áherslur. Það er eflaust rétt að íslensk-
ir sósíalistar slitu tengslin við
Austur-Evrópu 1968, en kenningin
sat eftir í hausnum á þeim.
En bók Svavars Gestssonar er ekki
uppgjör við þetta. Hann talar ekki fyr-
ir sameiningu og segir reyndar að því
meir sem menn tali um sameininguna,
því minni verði flokkamir. Þetta er eitt
dæmið um fjarhyglina, eða fjarlægð-
ina frá fólkinu. Það eiga margir illt
með að skipta um forrit í höfðinu á
sér.
Um hvað fjallar þá bókin? Hér
verður efni hennar vitaskuld ekki rak-
ið, en í örstuttu máli skiptist hún í
lauslegan sögulegan aðdraganda,
óskilgreinda samtíð og ekki síst fram-
tíðarsýn höfuftdar, sem er veigamesti
og áhugaverðasti þáttur bókarinnar.
Umfjöllun um samtíðina og aðdrag-
anda hennar er ósköp fátækleg, raunar
svo að með ólfkindum er. Höfundur
notar hefðbundin hugtök einsog hægri
og vinstri, þótt hann renni gran í inni-
haldsleysi þeirra. Fyrir utan annað;
hvar á að staðsetja kvennahreyfmgar
eða umhverfisverndarfólk í þessu
mynstri, eða „íhaldssama kommún-
ista“! Þá viðurkennir höfundur að ekki
sé lengur deilt um eignarhald, sem
fyijum var trúaratriði.
I tilraunum sínum tilað skýra þjóð-
félagsbreytingar síðustu ára, segir höf-
undur að „eftir umbrotin 1968 til 1989
er þörf fyrir nýtt landnám". Hvaða
umbrot? Um fortíðina segir hann:
,Jlér hefur flest leikið í lyndi allt ffá
því nýsköpunarstjómin lagði grand-
völl að því hagkerfi sem við búum
við.“ Hér var semsagt allt í blóma og
„verkalýðurinn gekk hnarreistur inn
og út af vinnustöðunum". Og þessi
gleðitíð stóð allt til ársins 1987 að at-
vinnuleysið kom til sögunnar. Þetta
nálgast að minnsta kosti sögufölsun.
Og umbrotin: Hippatíminn hófst
hér um 1968 og var um margt
skemmtilegur, en stóð aðeins fáein ár.
f kjölfarið kom iðnaðarhávaði með
grimmu áreiti, flæði eitureíúa, ofbeld-
is og öfga af ýmsu tagi. Niðurstaðan
er ólæsi og þekkingarskortur, sum-
staðar nánast andleg eyðimörk þarsem
fjöldi ungs fólks hefur orðið úti í sand-
storminum. Það er makalaust að núna
fyrst skuli gerð tilraun tilað koma hér
á samfelldum skóladegi fyrir börn,
ekki síst þegar haft er í huga að ís-
lenskt þjóðfélag er orðið nær hreint
þéttbýhssamfélag í fyrsta sinn í sög-
unni. Nú búa aðeins 8% þjóðarinnar
utan þéttbýlissvæða.
Og varðandi hin hnarreistu: Vissu-
lega var áttundi áratugurinn uppgripa-
tími með verðbólgu og óverðtryggð
lán sem ótæpilega var neytt. Slík
„sælutíð" gat ekki staðið lengi, og
vorið 1979 samþykkti Alþingi verð-
tryggingu lána. Þetta var slík grund-
vallarbreyting að þurft hefði að kynna
hana rækilega og breyta ýmsu í kjöl-
farið, meðal annars húsnæðisstefn-
unni. Hvoragt var gert. Fólk og fyrir-
tæki héldu áfram að fjárfesta einsog
ekkert hefði gerst. 1983 kom fyrsti
skellurinn. Kaup hinna hnarreistu var
lækkað um 25% og vísitala tekin af.
Þarmeð var láglaunastefnan staðfest. í
áratug ríkti hér allt í senn: verðbólga,
oxurvextir og verðtrygging, ásamt lág-
launastefnu. Afleiðingamar hafa ekki
„Skilningsleysið á
vanda samtíðarinnar
beinlínis æpir af síðum
bókarinnar," segir
Jón Kjartansson um
Sjónarrönd Svavars
Gestssonar.
látið á sér standa. Árið 1988 voru
stofnuð Samtök fólks í greiðsluerfið-
leikum og störfúðu af nokkram krafti.
Þar vora ekki hnarreistir menn á ferð.
Þetta var afleiðing nýrra húsnæðislaga
frá 1986, en það hef ég kallað rugl
aldarinnar. Lána átti allri þjóðinni op-
inbera peninga til húsnæðiskaupa og
með niðurgreiddum vöxtum. Auðvit-
að gat efnað fólk hagnast á þessu, en
heimih almennnings vora lögð í rúst
þúsundum saman. Þeirri hrinu er ekki
lokið enn, þótt dregið hafi úr vandan-
um með mildandi aðgerðum. Er eitt-
hvert vit í því að fjárfesta í húsum
með þessum hætti? Hús era forgengi-
leg og háð markaðsverði.
Ekki var staðan betri hjá fyrirtækj-
unum. Samkvæmt skýrslu fiá Aflvaka
Reykjavíkur sem birt var nú í vor hafa
skuldir að upphæð 81 milljarður verið
afskrifaðar frá 1985. Mér er sagt að
enn séu um 40 milljarðar á floti í kerf-
inu óuppgerðir, sem enginn geri ráð
fyrir að verði borgaðir. Svavar talar
mikið um atvinnuleysi, en virðist ekki
tengja það við þá meðferð á peningum
sem hér var minnst á.
Vissulega má taka undir margt í
þessari bók og það hygg ég að flestir
geti. En skilningsleysið á vanda sam-
tíðarinnar beinlínis æpir af síðum bók-
arinnar. Svavar er ekki einn um það
nú um stundir að leita sæluríkis fortíð-
arinnar eða draumaríkis framtíðar, í
flótta frá samtíðinni. Þetta er nánast
sameiginlegt vandamál jieirra sem
kenna sig við félagshyggju af ein-
hveiju tagi. ■
Höfundur er rithöfundur.
Atburðir dagsins
1793 Jean Paul Marat, einn
af leiðtogum frönsku bylt-
ingarinnar, stunginn til bana
í baði af Charlotte Corday.
1930 Fyrsta heimsmeistara-
keppnin í knattspyrnu haldin
í Montevideo í Úrúgvæ.
1955 Ruth Ellis, ensk
tveggja barna móðir, hengd
fyrir að bana ástmanni sín-
um. Ellis var síðust kvenna
tekin af lífi á Bretlandi.
1990 Boris Jeltsín segir sig
úr Kommúnistaflokki Sovét-
ríkjanna til að mótmæla
stefnu Gorbatsjovs.
Afmælisbörn dagsins
Sidney Webb enskur hag-
fræðingur sem meðal annars
átti þátt í stofnun Fabían-fé-
lagsins og London School of
Economics, 1859. Harrison
Ford bandarískur kvik-
myndaleikari, 1942.
Róttur dagsins
Ýmis fleiri sérkennileg og
sögufræg nöfn bera hænurn-
ar hans Hagalíns. Til dæmis
voru á borðum til hádegis-
verðar einn daginn þær Kata
og Kleópatra. Kvaðst Haga-
lín hafa lógað þeim vegna
ósæmilegrar hegðunar
þeirra.
Ingólfur Kristjánsson
um Guðmund Gíslason
Hagalín rithöfund.
Annálsbrot dagsins
Svo miklir þerrar, að öngvir
mundu þvílíka. Þá varð Óx-
ará og margar aðrar smáar
rennslur aldeilis þurrar,
hverjar menn ei vissu nokk-
urn tíma þornað hafa, og
víða drap sig fénaður í pytt-
um til að ná vatni.
Ölfusvatnsannáll, 1740.
Máisháttur dagsins
Njáls bíta ráðin.
Orð dagsins
Eg er eins og veröld vill
velta, kdtur, hljóður.
Þegar við mig er hún ill,
ekki' er eg heldur góður.
Sigurður Breiöfjörð.
Skák dagsins
Ftacnik er nú stigahæstur
stórmeistara í Slóvakíu, með
2605 ELO-stig - sem er til
dæmis meira en íslensku
skákmennirnir hafa. Hann
tefldi gullfallega skák gegn
argentíska alþjóðameistaran-
um Spangenberg á Ólymp-
íumótinu í Moskvu á síðasta
ári. Ftacnik hefur svart og á
leik - og þvílíkur leikur!
Hvað gerir svartur eiginlega?
1. ... Dg3!! Snilld, enda gafst
Spangenberg upp án frekari
umsvifa. Það er sama hvemig
hvítur bregst við: 2. Dxd4
Dxh3+ 3. Bh2 Bxg2+ eða 2.
Bh6+ Ke8 3. Ba4+ Ke7 eða 2.
Db4+ Bc5 3. Dxc5+ bxc5 4.
Bxg3 Rxg3+ 5. Kh2 Rxfl+ 6.
Kgl Kxe8. Ekki dugar heldur
að drepa einfaldlega drottning-
una með biskup, því þá val-
hoppar svarti riddarinn um með
banvænan brand.