Alþýðublaðið - 15.08.1995, Qupperneq 1
■ Mörg dæmi um verðhækkanir í kjölfar GATT-samningsins þrátt fyrir yfirlýsingar
um að engar hækkaniryrðu
Mistök í framkvæmdinni
- segir Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Verslunarráðs.
„Það var margtekið fram að það
ætti engin vara að hækka í verði með
GATT-samningnum. Það em hinsveg-
ar dæmi um hækkanir og fram-
kvæmdin hefur því ekki verið án mis-
taka og það verður að taka á þeim
þegar tækifæri gefst,“ sagði Vilhjálm-
ur Egilsson framkvæmdastjóri Versl-
unarráðs í samtali við blaðið.
Verslunarráð hefur nýlega óskað
álits Eftirlitsstofnunar EFTA á því
hvort íslenska áfengislöggjöfin stand-
ist ákvæði EES-samningsins, en ráðið
dregur mjög í efa að svo sé. Hinsvegar
hafa komið fram ýmsar brotalamir á
framkvæmd laganna um GATT-
samninginn án þess að Verslunarráð
hafi látið í sér heyra. Nægir þar að
nefna miklar verðhækkanir á sumum
tegundum grænmetjs og nú er upplýst
að innflutt jólatré munu hækka um
60% vegna skatta sem stjórnvöld
leggja á þau í tengslum við GATT-
samninginn. Þessar hækkanir ganga
þvert á markmið samningsins.
„Við höfum ekki mikið gert í þess-
um málum opinberlega. En þegar það
hafa komið upp mál sem eru ekki í
samræmi við það sem um var talað
höfum við haft samband við landbún-
aðarráðuneytið og spurt hvað væri á
seyði,“ sagði Vilhjálmur. Hann var
spurður hvort Verslunarráð hefði látíð
hækkanir gjalda á innflutt grænmeti til
sín taka. „Það komu upp einhver
svona mál þegar þetta byrjaði og þá
fengum við þau svör að þetta væri að
sumu leyti spurning um niðurbrot í
tollflokka sem ætlunin væri að taka á.
Varðandi pasta þá sögðust þeir vera
nota heimild í EES-samningnum til að
leggja á verðjöfnunargjöld. Þetta eru
þau mál sem hafa rekið á okkar fjörur
en ég taldi að þeir myndu bara leysa
þessi tollflokkavandamál. Það eru ein-
stök dæmi um vörur sem hafa hækkað
í kjölfar GATT-samningsins og ég lít
svo á að það sé í gildi stefna um að
taka á þeim málum."
En hvað með 60% hœkkun á inn-
fluttum jólatrjám?
„Þetta er eitt af því sem þarf að fara
yfir. Þegar mistök koma í ljós við
breytingar á tollskránni verður að
kippa þeim í lag. Við lítum svo á að
yfirlýsingin um að ekkert eigi að
hækka við gildistöku GATT-samn-
ingsins hljóti að standa og gerum því
ekki stórmál útaf mistökum ef þau
verða leiðrétt. Verði þau ekki leiðrétt
er það ákveðin stefnubreyting sem er
þá sjálfstætt mál sem þarf að vinna í,“
sagði Vilhjálmur Egilsson.
„Við höfum ekki mikið gert í þess-
um málum opinberlega.
Alfar, vættir og
þursar marsera
á föstudaginn
Fjölnir Bragason, Birgitta Jóns-
dóttir, Jón Sæmundur, Halldór
Auðarson og Jóna Hilmars-
dóttir voru að vinna í Iðnó í
gær. Óháð listahátíð verður
sett föstudaginn 18. ágúst á af-
mæli Reykjavíkurborgar með
mikilli landvættagöngu frá
Hlemmi og Skólavörðuholti
niður á Ingólfstorg. Þema
göngunnar tengist álfum,
vættum, þursum og öðrum
goðsagnaverum úr íslenskri
þjóðtrú. Iðnó verður miðstöð
hátíðarinnar og nú hefur kraft-
mikið fólk unnið að endurbót-
um á húsinu í sex vikur svo
það er nothæf listamiðstöð.
Húsið hefur verið þrifið, veggir
hafa verið klæddir og málaðir
og nýjar rafmagnsleiðslur
lagðar. Myndlistasýning í Iðnó
verður opin alla daga frá klukk-
an tvö til sjö og lengur þegar
tónleikar eru á kvöldin. Óháða
listahátíðin stendur frá 18. ág-
ústtil 3. september.
■ Könnun Verslunarráðs varðandi símaskrána
Vi 11 u r og st i
Leiðréttingaskrá kemur út í dag.
Af 159 aðilum innan Verslunarráðs
segja 19,5% að skráning fyrirtækis
þeirra í símaskrána sé ekki í samræmi
við beiðni og 31,4% sögðu reynslu af
viðskiptum sínum við símaskrána at-
hugaverða. Rúm 52% töldu óþarft að
skipta símaskránni í tvennt. Síminn
hefúr nú gefið út leiðréttingaskrá þar
sem 600 villur í símaskránni eru leið-
réttar.
Þetta kemur fram í niðurstöðum
könnunar sem Verslunarráð gerði með
því að senda fýrirspumir tíl 305 aðila
innan ráðsins. Svör bárust frá 159 eða
52,1% þeirra sem spurðir voru. Rúm
77% sögðu skráningu íyrirtækja þeirra
í símaskrána í samræmi við beiðni en
19,5% sögðu svo ekki vera. Liðlega
r ð s a m
60% gerðu ekki athugasemdir við við-
skipti sín við símaskrána en það gerðu
hins vegar rúm 31%. Almennt var
kvartað undan of löngum skilafresti
vegna upplýsinga, úreltum vinnu-
brögðum og óljósri ábyrgð, stirðum
samskiptum og alls konar villum. Af
þessum athugasemdum voru 16 taldar
mjög alvarlegs eðlis þar sem raskað
s kipti
var verulega hagsmunum viðkomandi
símnotenda. Rúm 18% fyrirtækja í
könnunni töldu skiptingu símaskrár-
innar skaðlega.
Póst- og símamálastofnunin setur
leiðréttingaskrá íyrir símaskrána í póst
í dag og er henni dreift á öll heimili og
fyrirtæki í landinu. Alls voru tæplega
600 villur leiðréttar.
Björn Bjarnason
Stjórnmálakerfi
deyja en listin
lifir
Sigurður Tómas
Björgvinsson
Frumleg úrræði
ríkisstjórnar
Forystugrein
Ábyrgð
Morgunblaðsins
■ Skrif Helgarpóstsins
um Vilborgu Yrsu
Sigurðardóttur
Alvar-
legt
brotá
siða-
reglum
Siðanefnd Blaðamannafélags ís-
lands hefur úrskurðað að umfjöll-
un Helgarpóstsins í apríl síðast
liðnum um Vilborgu Yrsu Sigurð-
ardóttur sé brot á siðareglum
Blaðamannafélagsins og að brotið
sé alvarlegt. Siðanefnd telur að
Helgarpósturinn hafi í umfjöllun
sinni ekki fylgt ákvæðum um
vönduð vinnubrögð og fyllstu til-
litssemi í vandasömum málum.
Umfjöllun Helgarpóstsins 20.
aprfl birtist á tæpri opnu undir
fyrirsögninni „Yrsa eltir ástmann
á flótta undan dómi í stóra kóka-
ínmálinu“. Á forsíðu er vísað til
efnisins með stórri mynd af Vil-
borgu Yrsu og aðalfyrirsögninni
„Kókaínparið í Kanada“. Umfjöll-
un blaðsins var kærð til siða-
nefndar og hinir kærðu eru
Styrmir Guðlaugsson fyrrverandi
aðstoðarritstjóri, Ævar Örn Jós-
epsson blaðamaður og Gunnar
Smári Egilsson fyrrverandi rit-
stjóri. í greinargerð siðancfndar
segir meðal annars:
„Við gerð úttektarinnar um Vil-
borgu Yrsu virðast kærðu hafa
lagt upp með ákveðna fyrirfram-
gefna mynd af söguhetju sinni,
tínt fram þær staðreyndir og sög-
ur sem studdu þessa mynd en látið
vera að kanna aðra stigu sem
hugsanlega hefðu leitt til upplýs-
inga á skjön við upphaflega til-
gátu.“