Alþýðublaðið - 30.08.1995, Blaðsíða 8
MWIHIRIIHHI
Miðvikudagur 30. ágúst 1995 130. tölublað - 76. árgangur Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
■ Námsflokkar Reykjavíkur eru sívaxandi borgarstofnun. Þeir voru stofnaðir árið 1939 og í ár munu á
þriðja þúsund manns stunda þar nám af ýmsu tagi. Stefán Hrafn Hagalín ræddi í gær við Guðrúnu
Halldórsdóttur, hinn skelegga skólastjóra, um starfið, námið-og vitaskuld pínulítið um pólitíkina...
'm&FILL/
4 - 8 farþega og hjólastólabílar
XWREVFit//
4-8 far|iega og hjólastólabílar
„Við erum öryggisventill
fyrir skólakerfið" |1 k
.........
Guðrún Halldórsdóttir, skólastjóri Námsflokka Reykjavíkur: Eftirlætis-
augnablik mín í starfinu koma þegar maður sér fólk koma til Námsflokk-
anna með brotna sjálfsmynd og vaxa síðan og blómstra gegnum námið.
Þetta gefur manni gríðarlega mikið. A- mynd: ÓI.Þ.
Námsflokkar Reykjavíkur voru
stofnaðir árið 1939 fyrir forgöngu
borgarstjómar Reykjavíkur og braut-
ryðjandans Ágústs Sigurðssonar, en
það var einmitt Ágúst sem kynntist
þessu námsformi á erlendri grundu og
sýndi löndum sínum heimkominn
fram á ágæti þess. Ágúst var síðan
skólastjóri Námsflokkanna um 27 ára
skeið og þeir hafa alla tíð verið borg-
arstofnun þrátt fyrir að hafa fengið
styrki frá ríkinu til ákveðinna verk-
eftia. „Ég held að ég verði að segja, að
við höfum alltaf notið skilnings borg-
aryfirvalda þó hann hafi náttúrlega
verið mismikill frá einum tíma til ann-
ars. Þegar öldungadeildirnar og
áfangakerfið komu þannig til sögunn-
ar virtist fólk halda að þar væri fundin
töffalausn, en síðan hefur komið í ljós
að svo er ekki og við höfum ágætlega
haldið velli; erum reyndar stöðugt að
stækka við okkur,“ sagði Guðrún
Halldórsdóttir, skólastjóri Náms-
flokka Reykjavíkur frá árinu 1972, í
spjalli við Alþýðublaðið í gær.
Guðrún hefur að vísu tekið sér tvö
stutt hlé frá störfum sínum við Náms-
flokkana. f fyrra skiptið kom hún fyrir
Kvennalistann inná þing þegar Guð-
rúnu Agnarsdóttur var skipt út og í
síðara skiptið þegar Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir dró sig alfarið yfir á víg-
völl borgarmálanna.
En hvað er að frétta af Náms-
flokkunum, Guðrún?
„Það hefur verið mjög merkilegt
starf í gangi í sumar. Nýbúanámskeið-
in hafa verið á fullu í allt sumar og
lauk núna í ágúst. Þá tóku við nám-
skeið fyrir ófaglærða starfsmenn í
skólum Reykjavíkurborgar og af þess-
um fyrstu starfsnámskeiðum okkar
fyrir borgina ætlum við að útskrifa á
annað hundrað manns nú síðar í haust.
Þátttakan var mjög mikil, enda tíma-
mótaverkefni þama á ferðinni. Þetta
er náttúrlega ágætis viðbót og skólinn
er á þennan hátt starfandi meinhluta
ársins. Það er rétt sex vikna tímabil
yfir hásumarið þegar við erum ekki
starfandi af fullum dampi.“
Er þetta starf skólastjóra þá ekki
orðið hálf hvíldarlaust?
,Jú, það má segja það.“ (hlær)
Hvað er svo á döfinni fyrir vetur-
inn framundan?
„Við erum til dæmis að koma með
tvær nýjar og spennandi greinar í
fræðadeildirnar: kvikmyndarýni og
auglýsingasálfræði. Það er Oddur
Albertsson, fyrrverandi skólastjóri
Reykholtsskóla, sem sér um hvoru-
tveggja. Hann kenndi hjá okkur áður.“
„Gamall“ Námsflokkamaður að
snúa aftur á heimaslóðirnar...
,,Já. Og við erum hæstánægð með
að hafa endurheimt hann - þrátt fyrir
að okkur fmnist þetta Reykholtsmál
alltsaman raunalegt. Oddur hefur
kennt hjá okkur í allt sumar og verið
mjög vinsæll."
En þið eruð samt alltaf með þessa
gömlu, góðu föstu liði. Hvað fela
þeir í sér?
„Skólinn skiptist í höfuðgreinar.
Það er að segja ftjálst frístundanám -
bóklegt, verklegt og listrænt - þarsem
ávallt taka þátt í kringum átta- til níu-
hundruð manns. Og svo erum við
með fræðadeildimar og þar er okkar
helsta sérkenni að við byrjum neðar
en aðrir. Við byijum á kjallaranum, ef
þaxmig má taka til orða. Það er alltaf
þónokkuð af fólki sem hefur nýtt sér
þennan möguleika og komið í átt-
unda- eða níunda bekkjamám. Margir
vilja gjaman bæta við sig þekkingu af
grunnskólastigi sem það nær sér ekki í
annarsstaðar; hvorki á menntaskóla-
né öldungadeildastigi. Ennfremur
bjóðum við uppá fomám - og höfum
gert það frá því uppúr 1970 - þarsem
við fáum til okkar mörghundruð
manns; fólk sem ýmist hefur ekki náð
tíunda bekkjarprófi eða fólk sem vill
þá bæta við sig áðuren það heldur
áfram."
Hefurðu einhverjar tölur hand-
bœrar um jjölda nemenda hjá ykkur
á þessu ári?
„Nei. Ég á erfitt með að sjá það
núna. En ég sé að nemendur í verk-
eða starfsnámi verða að minnsta kosti
um áttahundruð talsins. Ef að líkum
lætur verður um sexhundruð manns í
prófanámi og einsog ég -sagði áðan:
um átta- til níuhundruð í frístunda-
námi. Þannig að þú sérð það, að hjá
okkur stunda hátt í þijú þúsund manns
nám á þessu ári. Við höfum löngum
verið ein stærsta fullorðinsfræðslu-
stofnun landsins og emm jafnframt sú
elsta þvf Bréfaskólinn var ekki stofn-
aður fyrren ári síðar. Ennífemur lang-
ar mig að nefna til smáþætti í náminu
einsog fýrir lesblinda eða þá sem ekki
hafa náð lesfæmi í skólanámi. Það er
alltaf nokkuð sótt í áfanga sem þessa.“
Er þetta hefðin hjá Námsflokkun-
um; að grípa inní á nokkrum þeirra
staða þarsem skólakerfið hefur
brugðist á einhvern hátt?
, Já. Ég lít svo á. Við emm öryggis-
ventill fyrir skólakerfið og við höfum
verið svo lánsöm að geta sinnt því
fólki sem lent hefur í blindgötu og
þarfnast aðstoðar í námi.“
Nú hefur þú setið sem þingkona
Kvennalistans á þingi. Er þetta enn-
þá eðlileg framabraut fyrir íslenska
skólastjóra: að enda inná þingi?
(hlær) lrJa, það er ekkert sjálfgefið.
Þessi störf em til dæmis ólík að því
leyti að inná þingi er of mikið gert af
því að bregða fæti fyrir andstæðinga
af vitlausum lit, á meðan skólastarfið
gengur útá þá meginhugsjón að allir
hjálpast að til að ná settu marki. Þetta
var það sem mér brá mest við að upp-
götva þegar ég settist á þing: að mál
em ekki góð nema réttur þingmaður
flytji þau.“
En þú fórst aftur inní þennan
hildarleik... Var það til að fá blóð-
bragðið á ný á tunguna eftir logn-
mollu skólastarfsins?
„Blóðbragð og ekki blóðbragð. Það
er hægt að gera marga góða hluti inná
þingi, einsog gefur að skilja. Starfið í
nefndum þingsins er til að mynda
miklum mun jákvæðara en í sjálfum
þingsalnum - og líkara skólastarfinu
að því leyti. Því miður færist hjúpur
leikrænna tilburða yfir suma þing-
menn þegar í ræðustól Alþingis er
komið.“
Að lokum langar mig að snúa að-
eins að skólanum aftur og spyrja þig
um eftirlœtisaugnablik þín í starfinu.
„Það er þegar maður sér fólk koma
til Námsflokkanna með brotna sjálfs-
mynd, niðurbrotið og öryggislaust. Að
sjá þessar manneskjur vaxa og
blómstra gegnum námið gefur manni
gríðarlega mikið. Það em mikil for-
réttindi að fá að fýlgjast með slíku og
aðstoða við verki. Maður ætti í raun
og veru að þakka þeim sérstaklega
fýrir.“ ■
■ Nýr framkvæmdastjóri Sambands ungra jafnaðarmanna, Magnús Ámi
Magnússon, í stuttu spjalli um starfið og stefnuna
„SUJ er pólitískur hugmynda
brunnur Alþýðuf lokksins"
Nýr framkvæmdastjóri hefur tekið
við á skrifstofu Sambands ungra jafh-
aðarmanna af Baldri Stefánssyni sem
hefur látið af störfum. Sá „nýi“ er að
vísu gamalreyndur í faginu, Magnús
Árni Magnússon, fyrrnm formaður
Sambandsins og nú varaþingmaður
Alþýðuflokksins í Reykjavík. Alþýðu-
blaðið spjallaði stuttlega við Magnús í
gær í tilefni af endurkomu hans á
skrifstofuna.
„Starfsemi Sambands ungra jafnað-
armanna er með talsvert öðru sniði
svona rétt eftir kosningar, en fáum
mánuðum fýrr. Nú eru menn í óðaönn
að ná áttum í hinu nýja pólitíska
landslagi. Mikill fjöldi ungs fólks kom
og vann fýrir Alþýðuflokkinn í kosn-
ingabaráttunni og það er okkar hlut-
verk að sjá til þess að þetta fólk týnist
ekki burt vegna doða og verkefna-
skorts," sagði Magnús Ami aðspurður
um helstu verkefnin ffamundan.
Sambandið mun halda aukaþing í
október þar sem farið verður yfir mál-
efhastöðuna. „Fram að því þingi verða
ótal opnir fundir. Einnig höfum við
hugsað okkur að hrinda af stað herferð
fýrir umburðarlyndi gagnvart fólki af
erlendum uppruna. Við rákum okkur
víða á það í kosningabaráttunni að
skilningsleysis gætti þegar talið barst
að annarri menningu en okkar og
fæstum þótti það tiltökumál er for-
ystumenn í íslenskum stjómmálum
höfðu uppi orðbragð sem sæmir helst
snoðkollum og fótboltabullum."
Nú hefur þú verið íflokki sem hef-
ur átt aðild að ríkisstjóm nœstum all-
an þann tíma sem þú hefur tekið þátt
í stjómmálum. Hvemig tilfinning er
að vera ístjómarandstöðu?
„Við í Sambandinu finnum nú sjálf-
sagt minna fýrir breytingunni en flest-
ir aðrir. Það er helst að fjölmiðlar sýni
okkur ekki eins mikla athygli, en það
nálgast það að vera af hinu góða eftir
fárviðrið undanfarin ár. Við munum
síðan halda áffam á sömu braut: SUJ
er pólitískur hugmyndabrunnur
Alþýðuflokksins nú, eins og alltaf
fyrr. f okkar röðum em margir sem
eru mikið að velta fyrir sér hug-
myndafræði jafnaðarmanna, enda
annar hver nýliði stjómmála- eða hag-
fræðinemi."
Þið komuð fram með Evrópu-
stefnu flokksins þegar árið 1990 og
hafið undanfarín ár verið áberandi í
umrœðunni um samstarf á vinstri-
vœngnum. Nú hefur Jón Baldvin tek-
ið að sér Ijósmóðurhlutverk nýrrar
jafnaðarmannahreyfingar. Náið þið
á endanum öllu ykkar fram innan
flökksins?
„Þessi mál sem þú nefhir em þess
eðlis að þau geta ekki verið einkaeign
neins hóps og í raun enginn sem getur
eignað sér þau ffemur en annar. Hafa
menn ekki verið að tala um samein-
ingu á vinstri vængnum töluvert
lengi? Það ræðst talsvert af því hvem-
ig málin skipast í formannskjöri Al-
þýðubandalagsins hvort eitthvað
Magnús Arni Magnússon, „nýr" framkvæmdastjóri SUJ: Menn eru núna
í óðaönn að ná áttum í hinu nýja pólitíska landslagi. A-mynd: E.ÓI.
meira verður úr nú en áður. Stein-
grímur Jóhann Sigfússon er Kklegri
til að vilja stýra harðsnúnum smá-
flokki vinstrisósíalista, en að sam-
krullast eitthvað með okkur jafhaðar-
mönnum - sem ég held reyndar að
hann fyrirlíti."
Þannig að þú styður Margréti
Frímannsdóttur?
„Nú veit maður ekki fýrir víst hvar
hún stendur í þessum málum og þó
hún segði eitthvað hreint út um það þá
er ekki víst að hún væri í aðstöðu til
að framkvæma það sem formaður Al-
þýðubandalagsins. Ég held hinsvegar
að ekkert þýði að tala við Steingrím
Joð.“
Þú ert búinn að vera í SUJ í tœp
tíu ár. Hvað œtlarðu að standa í
þessu lengi?
,fió ég sé búinn að vera í tæp tíu ár
eins og þú segir, þá er ég nú ekki
mjög ævafom maður. Ég er tuttugu og
sjö ára garnall. En þegar þú spyrð
hvað ég æth að vera í þessu lengi, þá
hlýtur nú að fara að styttast í að maður
segi þetta gott innan SUJ. Ætli þetta
stúss í vetur séu ekki fjörkippimir.“ ■