Alþýðublaðið - 01.09.1995, Blaðsíða 2
2
ALÞÝÐU BLAÐIÐ
FOSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1995
s k o ð a n i r
ÍIMÐIIBLMIID
20978. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjórar Hrafn Jökulsson
SigurðurTómas Björgvinsson
Fréttastjóri Stefán Hrafn Hagalín
Auglýsingastjóri Ámundi Ámundason
Umbrot Gagarín hf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
GABB-samningurinn og
verkalýðshreyfíngin
Miðstjóm Alþýðusambands íslands sendi í fyrradag frá sér
ályktun þarsem útfærsla ríkisstjómarinnar á GATT-samningnum
er gagnrýnd mjög harkalega. Bent er á, að vænst hafi verið nýrra
aðhaldsaðgerða til hagræðingar og lækkunar á kostnaði í íslensk-
um landbúnaði - raunin sé hinsvegar sú að stefnt sé að því veita
íslenskum landbúnaði aukna vemd. íslenskir framleiðendur séu
ekki beittir neinu aðhaldi, einsog að var stefnt; og ASÍ „krefst
þess að stjómvöld búi íslenskum landbúnaði umhverfi sem leiði
til hagræðingar og verðlækkunar á afurðum.“
Með ályktun sinni nú er ASÍ að taka undir þá hvössu gagnrýni
sem kom fram af hálfu Alþýðuflokksins á vorþinginu, þegar rík-
isstjómin lagði ffam útfærslu sína á GATT. Síðustu mánuði hefur
síðan hvert dæmið rekið annað, sem sýna hvílíkan blekkingarleik
framsóknarmennimir í stjómarráðinu stunda. GATT-samningur-
inn, sem ætlað er að efla fríverslun og lækka tolla, er hér á landi
notaður til að torvelda innflutning og hækka tollamúrinn um-
hverfis landið. Neytendur sitja eftir með sárt ennnið - en bænd-
um er áfram haldið í kæfandi faðmlagi vemdarstefnu sem að lok-
um mun ganga af íslenskum landbúnaði dauðum. í ályktun mið-
stjómar ASÍ er þetta orðað þannig, að íslensk landbúnaðarfram-
leiðsla eigi aðeins framtíð fyrir sér, ef hún býður uppá vömr á
samkeppnishæfu verði.
Ríkisstjóm Davíðs Oddssonar hefur landsmenn að fíflum í
þessu máli. Það er óskiljanlegt að þingmenn Sjálfstæðisflokksins,
sérstaklega á suðvesturhominu, skuli þegja þunnu hljóði þegar
traðkað er með þessum hætti á neytendum. Niðurstaða ríkis-
stjómarinnar fólst í því, að búa strax til 30% verðmismun milli
innflutnings og innlendrar framleiðslu. Það er varlega að orði
komist í ályktun ASÍ þegar sagt er að það sé „langt frá því að
vera í samræmi við þær væntingar sem vom uppi um útfærslu
GATT-samningsins hér á landi.“
Með framgöngu sinni í GATT-málinu hafa núverandi forystu-
menn Sjálfstæðisflokksins sýnt einu sinni enn að þeir em mestir
Framsóknarmenn á íslandi.
„Æskan eyðilögð“
Á sunnudag munu
sjálfboðaliðar Rauða
krossins ganga í hús
um allt land og safna
fé til styrktar konum
og börnum í Júgó-
slavíu sálugu og Ví-
etnam. Það er ömur-
leg staðreynd að böm
er helstu fómarlömb
stríðs: þúsundir bama
í Bosníu hafa týnt
lífi, hundmð þúsunda em landflótta. í Alþýðublaðinu í gær var
vitnað í doktor Predrag Finci, sem var prófessor í heimspeki við
háskólann í Sarajevo. Hann skrifaði sumarið 1992: „Þegar þessu
stríði lýkur - ef því lýkur nokkumtíma - munum við aldrei geta
minnst á það án þess að um okkur fari hrollur; hver draumur
verður martröð. Tímabil er glatað, æskan eyðilögð.“
Áðuren stríðið hófst var íbúatala Bosníu-Herzegóvinu fjórar og
hálf milljón. Mannfallið er ægilegt: Að minnsta kosti 250 þúsund
liggja í valnum. Flest em fómarlömbin óbreyttir borgarar. Meira
en helmingur íbúa Bosníu er landflótta; fólk sem til skamms tíma
lifði venjulegu lífi en hefst nú við í flóttamannabúðum án þess að
vita hvað morgundagurinn ber í skauti sér.
Alþýðublaðið hvetur lesendur sína tií þess að taka þátt í söfnun
Rauða krossins. ■
„Maður sér þá stundum þessa drengi sem
eru í réttu fötunum til þessarar iðkunar,
hafa réttu hárgreiðslurnar, eyrnalokkana,
húfurnar, kunna réttu hugtökin um stökkin,
eiga réttu hjólabrettin, en þótt þetta æði
hafi nú geisað í fimm ár þá er það næstum
því hrífandi hversu fyrirmunað veslings
drengjunum er að tolla uppá þessum brett-
um. Þeir detta alltaf strax. Hoppin mistak-
ast alltaf, undantekningarlaust, öll."
HH 3l.fi 85
Þar sem alltaf er rok
Eftir því sem nýjum mannvirkjum
fjölgar hér í höfuðstaðnum rennur æ
betur upp fyrir manni hversu fallegt og
reisulegt ráðhúsið okkar við tjömina
er. í rauninni. Alveg ber það af öðrum
mannvirkjum sem risið hafa síðan.
Hið hundleiðinlega Ingólfstorg til
Vikupiltar
Guðmundur
Andri
Thorsson
skrifar
dæmis. Þetta gráa kókskiltatorg. Þetta
Hlöllabátsins óvinnandi virki - þetta
róstbífsins land þar sem alltaf er eitt-
hvert bréf með remúlaðislettum að
fjúka; þar sem alltaf er rok. Þegar
maður gengur þama um fer maður að
hugsa eins og sjálfur listpáfi skattborg-
aranna Guðmundur Guðmundarson:
hvað kostaði þetta? Til hvers er þetta?
Á þetta nú að vera fallegt? Sennilega
ekki - hins vegar á þetta vísast að vera
nútímalegt og höfða til unglinganna
sem svo brýnt þykir laða í bæinn um
helgamætur eins og Þorbjöm Magnús-
son leiddi vel í ljós í snjallri grein í
Sunnudagsmogganum. Ingólfstorg er
beinh'nis hannað til hjólabrettahopps,
heilt torg hefur verið búið til fyrir
þessa skemmtun, og segið svo að ekki
sé sífellt gengið undir þessum ung-
lingum.
Maður sér þá stundum þessa drengi
sem em í réttu fötunum til þessarar
iðkunar, hafa réttu hárgreiðslumar,
eymalokkana, húfumar, kunna réttu
hugtökin um stökkin, eiga réttu hjóla-
brettin, en þótt þetta æði hafi nú geis-
að í fimm ár þá er það næstum því
hrífandi hversu fyrirmunað veslings
drengjunum er að tolla uppá þessum
brettum. Þeir detta alltaf strax. Hoppin
mistakast alltaf, undantekningarlaust,
öll. Ég hef enn ekki séð hjólabretta-
hopp takast hér á íslandi, samt sé ég
þetta reynt oft á dag - að vísu var ég
að ífétta í þessum skrifuðum orðum af
einu hoppi sem heppnaðist í Kópavog-
inum, en það er þá hið eina. Að þetta
sé táknmynd fyrir Islendinga í heimin-
um? Islendinga í nútímanum? Islend-
inga í Evrópu? Ekki endilega: senni-
lega liggur hjólabrettahopp bara ekki
alveg nógu vel fyrir okkur, við emm
ekkert góð í að hoppa eins og gengi
okkar í frjálsum íþróttum bendir raun-
ar einnig til, þar kunnum við bara að
grýta hlutum og draga bíla.
Ingólfstorgið, hvenær mun það
komast inn í væminn dægurlagatexta
um fyrsta fundinn? Hver mun minnast
vorkvölds á Ingólfstorgi? Þar er alltaf
rok og það vekur dapurlegar hugrenn-
ingar með manni þegar maður er að
lötra gegnum Reykjavík, gráu Reykja-
vík. Það gerir Perlan líka sem enginn
mun heldur yrkja um væminn texta
nema Davíð Oddsson í lagi handa
Björgvini Halldórssyni fyrir næstu
kosningar. Þama gnæfir hún á hæðinni
eins og helgidómur án Guðs, tákn-
mynd sem hefur sjálfa sig að tákn-
miði, musteri sem reist er sjálfu sér og
snýst í hringi og er þar með gullkálfúr-
inn að dansa í kringum sjálfan sig.
Hún er minnisvarði um velmektarár
verktakanna þegar handa þeim var
ákveðið að reisa „bara eitthvað". Það
er ráðhúsið að sínu leyti líka því marg-
ur fitnaði eflaust á byggingu þess en
samt hefur það einhverja dýpri merk-
ingu.
Það er mjög fallegt. Frá öllum sjón-
arhornum, í öllum veðrum, á öllum
árstímum; alltaf er eitthvað sem gleður
augað við það. Braggalagað form þess
er líka mjög mikilvægt þama í vatninu
því þar er syndugasta byggingarlag Is-
landssögunnar þvegið, göfgað, það er
mikilvægt innlegg í það að Reykvfk-
ingar sættist við eigin sögu, sættist við
sjálfa sig, sættist við það að rífa sig
upp úr heimabyggð ffá kindum, fjalli,
heimasætu á næsta bæ og hrepps-
nefndarsetu til þess að fara suður og
búa í bragga sem kaninn skildi eftir
sig.
Ekki hugsar maður svona merkileg-
ar hugsanir þegar maður gengur um
Ingólfstorgið leiða, eða Kvosina yfir-
leitt sem hnignar bara og hnignar ár
frá ári því enn hafa menn ekki haft
döngun í sér til að byggja yfir allt heila
klabbið. Eina ljósglætan í þróun mið-
bæjarins var þegar McDonald’s reisti
úr rústum Hressingarskálann sem
kominn var í ömurlega niðumíðslu
svo að örh'til von er þó til að sjá í sjálf-
um miðbæ Reykjavíkur eitthvað ann-
að fólk en eiturlyfjaætur, tötrughypjur,
fýllibyttur, mslafötutínara og dettandi
böm á hjólabrettum. ■
t e m b e r
Atburðir dagsins
1715 Sólkonungurinn, Lúðvík
XIV, deyr eftir glæsilegan en
blóði drifinn feril. Hann varð
77 ára og ríkti í 54 ár. 1939
Þjóðverjar gera innrás í Pól-
land, og marka með þvf upphaf
seinna heimsstríðs. 1930 Kvik-
myndahúsin í Reykjavík hófu
sýningar talmynda. 1958 Fisk-
veiðilögsagan færð úr fjóram í
12 sjómílur. 1972 Fiskveiðilög-
sagan færð út í 50 sjómílur.
Afmælisbörn dagsins
Amilcare Ponchielli 1834,
ítalskur tónsmiður. Edgar Rice
Burroughs 1875, bandarískur
höfuridur Tarzan- bókanna.
Marilyn Miller 1898, banda-
rísk leikkona, dansari og söng-
kona.
Annálsbrot dagsins
Á alþingi brenndur Lassenius
Diðrichsson að saklitlu, að
sumir héldu. Kom þá stórmikið
regn á alþingi, svo eldurinn
vildi þrisvar slokkna. Þessi
maður var úr Barðastrandar-
sýslu, og klagaði Eggert
Bjömsson hann mjög. Eggert
lærbrotnaði þá, nær af alþingi
reisti.
Sjávarborgarannáll 1675.
Ljós dagsins
Margir bæjarbúar þustu út á
götu með blað og bók í hönd.
Þeir vildu reyna hvort lesbjart
yrði við Ijóskerin.
Úr endurminningum Knuds Zim-
sens borgarstjóra: í dag eru 85 ár
síöan kveikt var á gasljósum í
fyrsta sinn á götum Reykjavíkur.
Lokaorð dagsins
Þvert á rhóti.
Hinstu orð norska léikskáldsins
Henriks Ibsens (1828- 1906). Eigin-
kona Ibsens haföi sagt aö hann liti
betur út.
Málsháttur dagsins
Litlu nýt er nauðlofun.
Orð dagsins
Sakleysið hreint eins og
helgilín
var hjúpur fegurðar jiinnar,
sem reykelsisilmur var
ástin þin
á altari sálar minnar.
Jónas Guðlaugsson.
Skák dagsins
í dag eru nákvæmlega 23 ár
síðan Fischer bar sigurorð af
Spassky í heimsmeistaraein-
vígi þeirra í skák í Reykjavrk.
Einvígið hólst 11. júlí: Fischer
hlaut 12,5 vinning en Spassky
8,5. En við ætlum að sjá annan
heimsmeistara tapa Vassily
Smyslov; hann er 74 ára og
elstúr þátttakenda ,á Friðriks-
mótinu sem hefst um helgina.
Leonid Stein stýrði hvítu
mönnunum í þessari skák í
Moskvu 1972. Stein (1934-73)
var Úkraínumaður og um sína
daga einn sterkasti skákmaður
Sovétríkjanna: snjall sóknar-
skákmaður sem tefldi í anda
gömlu, rómantísku meistar-
anna.
Hvítur leikur og vinnur.
1. Hh8l! Hg6 2. fxg6 Hxh8 3.
Bc6 Hg8 4. Bxd7+ Ke7 5. Bf5
fxg6 6. Hd7+ Kf6 7. Bd3 Ha8
og Smyslov gafst upp um leið.