Alþýðublaðið - 01.09.1995, Side 7
FOSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1995
ALÞÝÐUBLAÐH)
7
áleitnar spurninqar
■ Vísbendingaleikur Alþýðublaðsins
Alþýðublaðið heldur í dag áfram með laufléttan spumingaleik, þarsem reynir á hversu mannglöggir lesendur eru. Spurt
er um menn úr öllum áttum; íslendinga jafnt sem útlendinga; lífs og liðna. Spumingamar em 10 og em gefnar þijár vís-
bendingar með hverri spumingu. Sá sem svarar rétt eftir fyrstu vísbendingu fær þijú stig, tvö stig fást fyrir rétt svar eftir
aðra vísbendingu og eitt stig ef svarið kemur eftir þriðju vísbendingu. Lesendur geta mælt þekkingu sína við svör keppend-
anna Páls Benediktssonar og Jóns Birgis Péturssonar, hér að neðan.
FYRSTA VÍSBENDING ÖNNUR VÍSBENDING ÞRIDJA VÍSBENDING
1 Hann hefur gefið út fjölda bóka, meðal annars Vökunótt fuglsins, Veður rœður akri og Flýgur öm yfir. Hann heftir líka skrifað samtalsbækur við Þórberg Þórðarson, Tómas Guðmundsson, Halldór Laxness og fleiri. ■ ' Hann hefur ritstýrt dagblaði síðan 1959, lengur en nokkur annar starfandi ritstjóri.
CN Við spyrjum um kommúnistaforingja. Eitt af dulnefnum hans var „Walter“. Hann leiddi baráttu landa sinna gegn Þjóðverjum í scinna stríði. Hann dó 1980 og borgarastríð geisar í ríkinu sem hann stjórnaði um áratugaskeið.
00 Faðir hans var fyrsti maðurinn sem kjörinn var á þing fyrir Aiþýðuflokkinn. Ilann er lögfræðingur, og þeir sem leita réttar síns gagnvart hinu opinbera snúa sér gjarnan til hans. Hann er umboðsmaður Alþingis.
Kvikmyndaleikstjóri (1899-1980) - fyrsta mynd hans hét The Pleasure Garden og var gerð 1925. Hann var íturvaxinn og honum brá yfirleitt iyrir í myndum sínum. Hann var meistari spennunnar, einsog Psycho er til marks um.
5 Hann var aðstoðarmaður fjármálaráðherra 1983-87 en hefur síðan setið á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Kona hans hefur tekið mikinn þátt í borgarmálum fyrir sama flokk. Hann er formaður þingflokks sjálfstæðismanna.
co Við spyrjum um Breta sem var fréttaritari í Búastríðinu, en var kjörinn á breska þingið árið 1900, ungur að aldri. Á árunum fyrír seinna stríð varaði hann sífellt við Hitler, en talaði fyrir daufum eyrum. Hann varð forsætisráðherra Breta 1940, og sagan segir að hann hafi drukkið eina viskíflösku á dag. >
7 Handboltakappi sem lék með Göppingen í Þýskalandi 1973- 74. Hann var kjörinn íþróttamaður áríns 1968. Hann var stórskytta með FH og landsiiðinu.
00 Hann var tónskáld, uppi á árunum 1770-1827. Hann tileinkaði Napólcon þriðju sinfómu sína, en snerist hugur þegar Napóleon krýndi sig keisara. Nýlega var sýnd í bíó kvikmynd þarsem Gary Oldman fór með hlutverk snillingsins.
9 Hann Iauk prófi í blaðamennsku frá háskóla í Norður- Karólína árið 1945. Hann var ritstjóri Alþýðublaðsins 1958-63 og gerði blaðið að stórveldi. Hann er frábær teiknari og skapaði meðal annars hina ódauðlegu Siggu Viggu.
10 Hann var hermaður af baskneskum aðalsættum, en eftir hann að særðist í orrustu valdi hann annað lífsstarf. Hann var uppi árunurn 1491-1556 og átti mikinn þátt í vörn og gagnsókn páfa gegn mótmælendum. Hann var stofnandi Jesúítareglunnar.
Jón Birgir
vinnur
Pál 20-16
f síðasta vísbendingaleik kepptu Páll
Benediktsson fréttamaður á Ríkisút-
varpinu og Jón Birgir Pétursson
blaðamaður á Tímanum og lauk viður-
eign þeirra með jafntefli. Þeir halda
keppninni því áfram.
1. Páll og Jón Birgir vissu báðir svarið
eftir aðra vísbendingu og fengu því
hvor um sig 2 stig.
2. Páll fékk aftur 2 stig en
Jón Birgir 1.
3. Páll fékk 1 stig en Jón Birgir 2.
Páll: gerði jafn-
tefli við Jón
Birgi síðast, en
tapaði nú.
Jón Birgir: tókst
að sigra Pál nú
og heldur því
áfram.
Staðan er jöfh: 5-5.
4. Páll gataði en Jón Birgir vissi svarið
eftir aðra vísbendingu og fékk 2 stig.
Staðan: Páll 5, Jón Birgir 7.
5. Páll og Jón Birgir vissu báðir
svarið eftir fyrstu vísbendingu og
fengu 3 stig hvor. Staðan: Páll 8,
Jón Birgir 10.
6. Aftur svömðu báðir eftir fyrstu
vísbendingu. Staðan: Páll 11,
Jón Birgir 13.
7. Páll fékk 2 stig og Jón Birgir
sömuleiðis. Staðan: 13-15.
8. Páll og Jón Birgir svömðu báðir
eftir fyrstu vísbendingu og fengu
hvor um sig 3 stig.
9. Páll vissi ekki svarið og fékk
ekkert stig en Jón Birgir fékk 2 stig.
Staðan: Páll 16, Jón Birgir 20.
10. Hvorki Páll né Jón Birgir vissu
svarið. Lokastaða: Jón Birgir sigrar
með 20 stigum á móti 16.
e|oÁo~| sn|iBu6| 'Ol uossjocþsy 'p nsjg '6 uaAoipaag '8 uossujetsnBH jioq niipjnqo "9
apjBBH jpg '9 jpooippH 'V uosspunjop jminBg ■£ oiji zojg djsop ~z uassauuBpop sbjijhbiai ‘i UOAS JJL3H
■ Félagarnir Jón Baldvin Hannibalsson og Svavar
Gestsson voru manna mest áberandi í fréttaumfjöllun
vikunnar sem er að renna sitt skeið - og Stefán Hrafn
Hagalín gabbaði þá í gær til að tjá sig um hvorn annan
Menn vikunnar
Á mdnudagskvöld boðaði Alþýðu-
bandalagsfélag Reykjavíkur til fundar
með Jóni Baldvin Hannibalssyni for-
manni Alþýðuflokksins og Svavari
Gestssyni þingmanni Alþýðubanda-
lagsins. Mikill dhugi var d fundinum
og komust fœrri að en vildu. Til hans
var boðað vegna nýútkominnar bókar
Svavars, Sjónarrönd - Jafnaðarstejh-
an, viðhorf.
leiðtoga Alþýðuflokksins ffá upphafi,
jafnvel framar en faðir sinn. Enda var
Hannibal rekinn úr Alþýðuflokknum.
Ég spái því afturámóti að Jón verði
ekki rekinn úr Alþýðuflokknum. Að
því leytinu til verður hann föðurbetr-
ungur; það er segja, ef það er betra...
Ég kann nú alltaf vel að meta það við
Hannibal að hann var rekinn úr Al-
þýðuflokknum."
■ Svavar um Jón Baldvin
„Eg spai þvi
að Jón verði
ekki rekinn úr
Alþýðuflokknum'
, Jón er ekki hversdagslegur maður.
Sem pólitíkus er hann frískur og hug-
myndaauðugur - og ég held að það
megi segja, að okkur sé að mörgu
leyti vel til vina. Við höfum vitaskuld
hildi háð og átt margar orðasennur um
ævina, en höfum ekki flogist á öðru-
vísi.“
„Okkur hefur gengið misjafnlega
vel að starfa saman og þar hafa komið
erfiðir kaflar. Ég var til dæmis mjög
ósáttur við afstöðu hans í menningar-
og menntamálum þegar ég var
menntamálaráðherra. Mér fannst hann
sýna þeim málaflokkum alveg ótrú-
lega lítinn skilning. Afhverju? Jón
þykist stundum vita allt best - meira
en hann veit - afþví að hann var
skólastjóri þama fyrir vestan. Þessi
fullvissa um að vita alltaf best, birtist
stundum í fari hans sem ósvífni. En ég
er nú ekki að erfa svoleiðis hluti; tek
þá bara einsog þeir eru.“
„Ég veit ekkert hvaða eftirmæli
hann hlýtur sem stjórnmálamaður, en
hann er auðvitað langöflugasti maður-
inn sem Alþýðuflokkurinn getur haft
fyrir formann - og hefur verið það
núna um langt skeið. Hann virðist
vera þarna með ótrúlega litla sam-
keppni. Ég spái þó að þetta eigi eftir
að breytast ef Alþýðuflokkurinn verð-
ur lengi í stjómarandstöðu; kannski
fljótlega uppúr næsta flokksþingi sem
ég spái hinsvegar að hann muni lifa
af.“
„Jón skortir ekki beint þrek til að
vera í stjómarandstöðu, heldur miklu
fremur seiglu. Það getur verið svo
andskoti hundleiðinlegt að vera í
stjómarandstöðu, ég þekki það mjög
vel. Hann þarf að finna sér eitthvað
aukaverkefni, líktog að skrifa bók eða
eitthvað þessháttar - sem ég held að
sé náttúrlega löngu tími tilkominn að
hann geri.“
„Hann er mjög framarlega í hópi
■ Jón Baldvin um Svavar
„Svavar er fullur
af kiliönskum
sjalfbirgingi"
,A4er hefúr ffá fyrstu kynnum fallið
vel við Svavar. Partur af þvf er að
Svavar er fúllur af kiljönskum sjálf-
birgingi sem kemur út sem mátulegur
stráksskapur og fer honum vel á þess-
um aldri. Sem stjómmálamaður hefur
Svavar marga ótvíræða kosti. Hann er
vinnusamur, fylginn sér og seigur. Sem
málflytjanda gef ég honum þá einkunn,
að hann hefur bestu framsögn á Al-
þingi íslendinga - og þar má oft sjá
góða spretti eða tilþrif. Það gerist æ
sjaldnar meðal stjómmálamanna og ég
met það mikils.“
,,Ég held að áhrifagimin - stundum
frammi fyrir sér verri mönnum - hljóú
að teljast ljóður á ráði Svavars. Ég held
að uppeldið hjá Einar og Magnúsi hafi
verið honum dýrkeypt, þeir hafi mótað
hann um of - og að hann hafi eiginlega
ekki notið sín eða haft sjálfstraust og
kjark til að bijótast undan áhrifavaldi
þeirra. Hitt er minna mál, að hann er
afspymuvondur hagffæðingur, en veit
ekkert af því sjálfur."
„Samstarf okkar hefúr að mínu mati
verið oft og tíðum ágætt - með þeim
fyrirvara að ég hef enn ekki verið með
honum í flokki."
„Það er til rómantisk hlið á Svavari,
samanber kiljönskuna. Og sem
menntamálaráðherra vildi hann gera
öllum gott. Aðalveikleiki hans þá, var
að hann gerði sér ekki grein fýrir því,
að þú verður stundum að tyfta þá sem
þér er vel við. Þetta vita gamlir skóla-
stjórar sem hafa verið útá landi og rek-
ið heimavist. Sennilega hefði ég þurft
að tyfta Svavar heilmikið til ef hann
hefði komið til mín í skóla.“
„Eftirmæli Svavars sem stjómmála-
manns ráðast algjörlega af endasprett-
inum hjá honum. Ef honum gengur vel
að aflæra uppeldi verrfeðrunganna þá
geta eftirmælin orðið góð, því hann
hefur eiginlega alla burði til að gera
betur. Það verður oft góður gæðingur
úr böldnum fola.“ ■
MENNINGARMÁLANEFND
REYKJAVÍKURBORGAR
Styrkir til
menningarstarfsemi
Menningarmálanefnd Reykjavíkur auglýsir eftir um-
sóknum um styrki til menningarstarfsemi í borginni.
Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöðum sem
fást hjá ritara nefndarinnar sem einnig veitir allar nán-
ari upplýsingar í síma 552-6131.
Umsóknirnar skulu hafa borist Menningarmálanefnd
Reykjavíkur, Kjarvalsstöðum, v. Flókagötu, 105
Reykjavík, fyrir 20. september 1995.