Alþýðublaðið - 05.09.1995, Qupperneq 8
MyYÐUBIMÍ =K
Þriðjudagur 5. september 1995
133. tölublað - 76. árgangur
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
■ Sameining jafnaðarmanna
Getnaður og meðganga fyrst
-segir Kristín Ástgeirsdóttir, þingkona Kvennalistans.
„Áður en Jón Baldvin fer að sinna
störfum ljósmóður þarf getnaður og
meðganga að eiga sér stað. Stóra
spurningin er sú hvað menn vilja í
þessum málum en orð eru til alls fyrst
og það þarf að hleypa sem flestum að
umræðunni," sagði Kristín Ástgeirs-
dóttir, þingkona Kvennalistans.
„Þeir sem hafa áhuga á frekari
samvinnu og hugsanlegum samruna
núverandi stjórnarandstöðuflokka
þurfa að setjast niður og ræða saman.
Það er augljóst að það er vaxandi
þrýstingur á að þetta verði gert. Mér
fannst hann ekki vera fyrir hendi fyrir
síðustu þingkosningar en nú er þrýst-
ingurinn kominn á það stig að ekki
verður komist hjá því að ræða málin.
En um hvað á að tala og hvað er það
sem sameinar og hvað er það sem
sundrar og er yfirleitt einhver grund-
völlur fyrir frekari samvinnu? Það er
þetta sem menn verða að gera upp við
sig. Allir þessir fjórir flokkar eru í
ákveðnum tilvistarvanda og ekki
hægt að horfa framhjá því,“ sagði
Kristín.
„Á fundinum á Kornhlöðuloftinu
fannst mér Jón Baldvin gera tilraun
til að koma með greiningu á því hvað
skilur í milli og hvar átakalínurnar
liggja. Þar eru ýmis mjög erfið mál
eins og til dæmis Evrópumálin. En
menn þurfa að mætast á jafnréttis-
grundvelli og fara yfir stöðuna. Ég
held að það verði að vera ljóst fyrir
næstu þingkosningar hvað úr verður í
þessu máli,“ sagði Kristín ennfremur.
Hún kvaðst ekki vilja spá neinu um
það að svo stöddu hvað kæmi út úr
viðræðum um sameiningu og benti á
að taka þyrfti á ýmsum málum.
„Alþýðubandalagið og Alþýðu-
flokkurinn byggja á gömlum söguleg-
um grunni. Þótt menn séu að reyna að
slíðra sverðin þá er auðvitað grunnt á
Kristín: Menn eiga að ræða málin vrtt
og breitt, hleypa sem allra flestum að
þeirri umræðu, kasta spurningum út
í samfélagið og ná upp umræðu áður
en lengra verður haldið. A-mvnd: e.ói.
því góða milli þessara flokka. Sagan
talar sínu máli og er alltaf á bak við
og undir niðri. Síðan er Kvennalistinn
með sína sérstöðu, sínar feminisku
áherslur. Hingað til hafa þessir flokk-
ar ekki viljað gera veg kvenna sér-
staklega mikinn. Hvað þá að þeir geri
sér grein fyrir að þetta er spuming um
breyttar áherslur, breytt vinnubrögð
og nýjar hugmyndir. En vitaskuld
þarf að ræða þetta allt. En það á ekki
að gera með þeim hætti að einhverjir
forystumenn setjist niður heldur eins
og gert var á fundinum á mánudags-
kvöldið. Menn eiga að ræða málin
vítt og breitt, hleypa sem allra flest-
um að þeirri umræðu, kasta spuming-
um út í samfélagið og ná upp um-
ræðu áður en lengra verður haldið.
Jarðvegurinn verður að vera til staðar
og það kemur þá fljótt í ljóst hvort
gmndvöllur er íyrir hendi eða ekki,“
sagði Kristín Ástgeirsdóttir.
■ Yfirlitssýning á verkum Kjarvals frá aldamótum til 1930
Engar byltingarkenndar breytingar
á vitnesKju um Jóhannes Kjarva'
- en fleiri heimildir en áður hafa verið til á einum stað, segir Kristín Gunnarsdóttir listfræðingur í samtali við Alþýðublaðið.
„Núna ætlum við að sýna verk frá aldamótum til 1930. Sýningin verður byggð upp í tímaröð og það ætti að gefa
fólki kost á að rekja sig í gegnum feril hans," segir Kristín Guðnadóttir sýningarstjóri. Hér stendur Kjarval við
eitt af eldri verkum sínum. A-mynd: Jóhann Vilberg
„Sýningarstjóri sér um sýninguna
og er ábyrgur fyrir undirbúningsvinnu
og rannsóknavinnu. Ég skrifa grein í
sýningarskrána, sé um val verka og
upphengingu," sagði Kristín Gunn-
arsdóttir listfræðingur í samtali við
Alþýðublaðið, en hún er sýningar-
stjóri yfirlitssýningar á verkum
Jóhannesar Kjarval sem verður
opnuð á Kjarvalsstöðum 16. septem-
ber næstkomandi.
„Undanfarin ár hefur farið fram
mikil gagnasöfnun innan safnsins,
heimilda um Kjarval hefur verið leit-
að. Við höfum safnað öllum skrifleg-
um heimildum um hann; bréfum frá
honum og til hans, öllu útgefnu efni
eftir hann - þetta voru undirstöðumar
að rannsóknavinnunni. Gagnasöfnun-
in var viss homsteinn að nýjum rann-
sóknum."
Hafa rannsóknirnar leitt eitthvað
nýtt í Ijós?
„Þær hafa ekki dregið fram neinar
byltingarkenndar breytingar á vitn-
eskju um Kjarval. En það er búið að
endurgera æviferil hans; við gátum
leiðrétt ýmis ártöl og atburði í æviferli
hans því við höfðum aðgang að fleiri
gögnum en áður hefur verið.
Við höfum getað varpað vissu ljósi
á vinnubrögð hans. Til dæmis fundust
mjög athygliverðar ljósmyndir sem
hann notaði sem uppistöðu við gerð
veggmyndar í Landsbankanum. Þetta
er merkileg heimild um að hann hafi
notað ljósmyndimar sem írumheimild
við gerð verkanna. Við teljum mjög
líklegt að hann hafi tekið ljósmynd-
imar sjálfur, svo skissaði hann út frá
þeim - þær skissur hefur safnið átt
lengi - og gerir loks verkin á veggina.
Svona getum við rakið þrjú stig i
vinnuferli þessara verka.
Að vissu leyti hefur verið hægt að
endurmeta þetta tímabil - frá alda-
mótum til 1930 - í lífi Kjarvals. Ég
hef skrifað grein um helstu áhrifa-
valda hans og merki þeirra í stflþrifum
hans, sem verður birt í sýningar-
skránni."
Hverjir voru helstu áhrifavaldar
Kjarvals ?
„Kjarval fer til London fyrst árið
1902. Þar kynnist hann Turner og
Blake - það em fyrstu kynni hans af
heimsmenningunni, sem höfðu mikil
áhrif á hann. Hann dvaldi um nokk-
urra mánaða skeið í London, ætlaði
iyrst að reyna að komast í nám þar, en
það tókst ekki. Á vordögum fór hann
þá til Kaupmannahafnar þar sem hann
komst inn í Tækneskole og seinna inn
í Akademíuna. í Kaupmannahöfn
kynnist hann enn nýjum menningar-
heimi; hann var mjög upptekinn af
danskri samtímalist, dönskum mó-
dernisma og kúbisma. Hann býr í
Kaupmannahöfn í tíu ár, en dvelur
nokkur sumur á íslandi. 1920 fór hann
í námsferð til Rómar og sest að á ís-
landi 1922.“
Er ekki alltaf verið að halda Kjar-
valssýningar?
„Fjöldi Kjarvalssýninga hefur verið
haldinn á Kjarvalsstöðum, en það
hafa verið þemasýningar. Til dæmis
hafa einkasöfn verið sýnd, verk úr
eigu safnsins eða uppstillingar eða
eitthvað þvíumlíkt. Það eru tíu ár síð-
an yfirlitssýning yfir verk hans var
haldin, sú síðasta var aldarafmælis-
sýningin árið 1985. Núna ætlum við
að sýna verk frá aldamótum til 1930.
Sýningin verður byggð upp í tímaröð
og það ætti að gefa fólki kost á að
rekja sig í gégnum feril hans. Það
verða sýnd verk írá því áður en hann
fór til náms í útlöndum, verk sem
hann málaði í London, námsverkefni
frá Kaupmannahöfn, verk sem hann
málaði þegar hann heimsótti fsland og
svo verk sem hann málaði þegar hann
var sestur hér að. Ferlið verður rekið
svona stig af stigi. Það verða sýnd um
það bil 90 verk.
í sýningarskrá verður grein sem
fjallar um stflþróun Kjarvals. Þá verð-
ur æviferill hans tíundaður, mun ítar-
legar en áður hefur verið unnt.“
■ Tvennum sögum fer af gæðum vinnubragða
karlmanna í fiskvinnu
Vinnubrögð karlmanna
grófari en kvenna
við snyrtingu og pökkun,
segir Magnús Helgason
frystihússstjóri í Hrísey.
„Ég hef sjálfur unnið svona störf og
viðurkenni að karlmenn eru grófari
við þessi störf, má ekki þeirri nýtingu
og afköstum sem afkastamestu kon-
umar ná,“ sagði Magnús Helgason,
ífystihússstjóri Kaupfélags Eyfírðinga
í Hnsey, í samtali við dagblaðið Dag
fyrir skemmstu. Tilefni þessara orða
Magnúsar er að Páll Pétursson fé-
lagsmálaráðheiTa hefur nú til skoðun-
ar mál þarsem karlmönnum hefur ver-
ið neitað um vinnu í frystihúsi sem
taldi að um hefðbundin kvennastörf
væri að ræða. Slflct brýtur gegn jafn-
réttislögum og Dagur spurði því
ffystihússstjórann í Hrísey hvort það
væri reynsla hans að karlmenn séu
lakari starfskraftur við snyrtingu og
pökkun á flæðihriu og kvað sá já við
spumingunni. Magnús Helgason tók
þó fram í Degi, að „þessi störf hafa að
langmestu leyti verið unnin af karl-
mönnum á frystitogurunum og engan
hef ég heyrt kvarta yfir því. Og auð-
vitað er betra að hafa karlmenn við
þessi störf en alls enga.“
Ingibjörg Sólrún borgarstjóri lagöi
sitt af mörkum til Landssöfnunar
Rauða krossins um helgina og
gekk meðal annars í hús með bauk
og safnaði. A-mynd: E.ÓI.
■ Landssöfnun
Rauða krossins
25 milljón-
ir komnar
í baukana
Rauði kross íslands gekkst fyrir
ijársöfnun um land'allt á sunnudaginn
var til styrktar konum og bömum sem
búa við neyð í gömlu Júgóslavíu og
afskekktum héruðum Víetnam. Söíh-
unarféð rennur óskipt til hjálparstarfs-
ins og síðast þegar fréttist var upp-
hæðin komin í 25 milljónir.
Það voru ótal sjálfboðaliðar sem
gengu í hús með sérstaka söfnunar-
bauka sem merktir vom Rauða krossi
Islands og á þeim hvfldi þungi söfhun-
arinnar, en einnig liggja gíróseðlar
Hjálparsjóðs RKI frammi í bönkum
og sparisjóðum. Deildir innan RKÍ
hafa umsjón með skipulagningu söfn-
unarinnar, en 50 slflcar em starfandi í
landinu.
Alþjóðahreyfing Rauða krossins
hefur helgað konum og bömum hjálp-
arstarf sitt á þessu ári, enda verða þau
iðulega verst úti þegar neyðarástand
skapast vegna átaka eða af öðmm or-
sökum. Vamarleysi þeirra er oft al-
gjört. Um 50 milljónir manna em nú á
vergangi í eigin landi eða hafa neyðst
til að flýja heimaland sitt. Um 80 af
hundraði þeirra eru konur og börn.
Skilaboðin um neyðina komust síðan
vel til skila til fslensku þjóðarsálarinn-
ar og viðtökumar vom góðar.
■ Lundaveiðin
góð í Eyjum
Hundrað
þúsund
lundar
veiddir
Lundaveiðitímabilið er á enda í
ár. Almennt eru menn ánægðir með
sumarið sem fór rólega af stað í
veiðinni en síðan sóttu menn í sig
veðrið er á Ieið. Veiðimenn segja að
áberandi meira hafi verið af fugli í
sumar en áður og bendi það til að
stofninn sé fráleitt að minnka.
Þetta kom fram í Vestmannaeyja-
blaðinu Fréttum um síðustu helgi.
Engir munu þó vera jafnánægðir og
Ystaklettsmenn, en þeir veiddu 223
kippur að sögn Frétta og slógu
gamla veiðimetið: 186 kippur. Þess
má geta að ein „kippa“ telst vera
100 fuglar.
Blaðið ræddi við Eyjamenn og
voru flestir sammála um að sumar-
ið væri yfir meðallagi gott og þann-
ig veiddu til dæmis Eilliðaeyingar
130 kippur, Bjarneyingar 120-130
kippur og á heildina litið giska
menn á að veiðin sé ekki undir þús-
und kippum sem gerir hvorki meira
né minna en hundrað þúsund
lunda.