Alþýðublaðið - 22.09.1995, Blaðsíða 3
FOSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o ð a n i r
Aö sjá skóginn fyrir trjánum
„Nú dettur mér ekki í hug að fara að verja
skattfríar greiðslur til ráðamanna þjóðarinnar
(þó í þeim efnum sé ein(n) jafnari en aðrir)
enda væri það sjálfsagt eins og að ætla sér
að stofna samtök sadómasókískra íhalds-
þingmanna í Whitehall..."
Bandarísk þingnefnd komst nýlega
að niðurstöðu um að reka bæri for-
mann fjárlaganefndarinnar af þingi
vegna þess að hann hefði löngum
áreitt kvenkyns undirmenn sína kyn-
ferðislega. Bob Packwood heitir þing-
maðurinn og sat hann í öldungadeild-
inni fyrir Oregon. Hann var einn af
elstu og valdamestu öldungum deild-
arinnar. Þegar dagbækur hans voru
skoðaðar í tengslum við rannsókn
þingnefndarinnar kom í ljós að megin-
starfi hans hafði falist í því að gera
fjársterkum aðilum í samfélaginu um-
fangsmikla greiða og þiggja fé að
launum, áreitnina stundaði hann í hjá-
verkum. En var hann látinn fara af
þingi með skömm fyrir þær sakir að
Ps^)nðið |
hafa svikið kjósendur sína í Oregon
og Bandaríkin með braski sínu? Nei,
hin ósiðlega hegðun hans fgarð
kvenna var það sem fyllti mælinn.
Annað bandarískt dæmi um tví-
skinnung í sakfellingum manna eru
réttarhaldasápan yfir O.J. nokkrum
Simpson. O.J. þessi var allkunnur
íþróttafréttaritari og leikari í hjáverk-
um, er hann var ákærður fyrir að
myrða eiginkonu sína og friðil hennar.
Hann var handtekinn eftir bijálæðis-
legan eltingarleik við lögreglu, sem af
einhveijum undarlegum orsökum var
sýndur í beinni útsendingu um öll
Bandaríkin. Blóðugur hanski af Simp-
son fannst á morðstaðnum og fæstir
bjuggust við löngum réttarhöldum þar
eð sekt mannsins væri nánast borð-
liggjandi. Þá er komið að þætti veij-
enda Simpsons. Lögreglumaðurinn
sem fann hanskann mun hafa látið út
úr sér orðið „nigger" 41 sinni í viðtali
við unga konu um miðjan siðasta ára-
tug. Þetta hefur vakið upp grunsemdir
um það að lögreglumaðurinn hafi
komið hanskanum fyrir á morðstaðn-
um til að klekkja á Simpson sökum
litarháttar hans, en Simpson mun vera
dekkri á hörund en umræddur lög-
reglumaður. Vikum saman hafa réttar-
höldin ekki snúist um morð á tveimur
einstaklingum, heldur kynþáttahatur
lögreglunnar í Los Angeles.
Vissulega eru kynþáttahatur og
kynferðisleg áreitni viðurstyggilegt at-
hæfi sem ber að uppræta, en stundum
verða menn þó að gera tilraun til að
sjá skóginn fyrir trjánum.
í Bretlandi hefur það verið landlæg-
ur andskoti að meta stjómmálamenn
fremur eftir kynhegðun þeirra en
stjórnmálaskoðunum og verkum
þeirra á stjómmálasviðinu. Menn hafa
rökstutt það þannig að illt væri að
treysta manni í opinbem lífi ef honum
væri ekki treystandi í einkalífinu. Það
má vel til sanns vegar færa. En ef það
versta sem stjómmálamaður í lýðræð-
isríki gerði af sér væri að vera nappað-
ur af gulu pressunni í Chelsea-búningi
og netsokkabuxum, þá væri nú gaman
að lifa. Við íslendingar eigum líka
okkar tabú fyrir stjómmálamenn. Við
emm viðkvæmastir fyrir bflakaupum,
utanlandsferðum (þó sannað sé að
mennimir séu í vinnunni) og dagpen-
ingum. Ef eitthvað æsir Islendinginn
sérstaklega mikið upp þá er það sú
vitneskja að stjómmálamaðurinn geti
lifað sómasamlegu lífi af þingfarar-
kaupinu einu saman. (Var ekki einmitt
stofnaður stjórnmálaflokkur síðasta
vor til að beijast gegn slíku, „Þjóðvilj-
inn“ eða eitthvað svoleiðis...)
Nú dettur mér ekki í hug að fara að
verja skattfríar greiðslur til ráðamanna
þjóðarinnar (þó í þeim efnum sé
ein(n) jafnari en aðrir) enda væri það
sjálfsagt eins og að ætla sér að stofha
samtök sadómasókískra íhaldsþing-
manna í Whitehall, en stundum, þegar
maður les blöðin og horfir upp á
gengdarlausa sóun stjómmálamanna á
skattpeningum landsmanna, þar sem
þeir borga gæludýmnum sínum millj-
arðatugi til þess eins að við hin getum
haft það jafn skítt og áður, þá verður
manni á að hugsa um gamla orðatil-
tækið „að spara eyrinn og eyða krón-
unni.“
Nú er eins líklegt að stjórnmála-
mennimir þori ekki annað en að taka
til baka þær launahækkanir sem þeir
fengu í síðustu viku, en ég leyfi mér
að spyija: Hvenær ætlar þjóðin að rísa
upp á afturlappimar og mæta niður á
Austurvöll og krefjast þess að þeir
hætti að stela af þeim fátæku milljarð-
artugum til að gefa ríku gæludýrunum
sínum? Ég vona að ég lifi þann dag að
íslendingar hætti að nöldra yfir bflun-
um sem stjómmálamennimir aka og
fari að einbeita sér að því sem þeir
gera þegar þeir stíga út úr bflunum.
Höfundur er varaþingmaður Alþýðu-
flokksins í Reykjavíkurkjördæmi.
Alþýðublaðið varð fyrir
því óláni í gaer að
hlusta á ábyrgðarlaust hjal
um ráðningu leikhússtjóra
að Borgarleikhúsinu. Það er
þannig enginn fótur fyrir
því að Sveinbjörn I. Bald-
vinsson hafi sótt um stöð-
una: enda mun hann ekki
hugsa sértil hreyfings úr
stöðu dagskrárstjóra inn-
lendrar dagskrárgerðar á
Sjónvarpinu...
Heyrst hefur að á fundi
hjá Reykjavíkuriistanum
í fyrrakvöld hafi verið tekist
á um fargjaldahækkun
SVR. Helgi Hjörvar var
mættur og hélt áfram
harðri gagnrýni sinni á
þessa hækkun. Hlaut hann
góðar undirtektir meðal
óbreyttra fundarmanna en
leiðtogarnir bærðust
hvergi...
ins og menn muna
höfðu þeir nafnar Einar
Kr. Guðfinnsson og Einar
Oddur Kristjánsson uppi
stóryrtar yfirlýsingar um
stefnuna í sjávarútvegsmál-
um fyrir kosningar. Eftir að
hafa beygt sig undir flokk-
saga í vor við samþykkt
nýrra laga um
stjórnun fiskveiða mun
þeim þykja Þorsteinn
Pálsson hafa komið illa í
bakið á sér við setningu
reglugerðar um veiðar
smábáta. Talið er að þeir
nafnar hugsi Þorsteini
þegjandi þörfina nú þegar
alþingi kemur saman í
haust...
Endurminningabók
Thors Villhjálmsson-
ar, Raddir igarðinum vakti
mikla athygli, er hún kom
út fyrir tveimur árum. Að-
dáendur Thors geta nú
glaðst, þvi á næstunni mun
Mál og menning, gefa út
aðra endurminningabók
Thors. Eftir því sem við
hlerum, mun hún ekki síður
skrifuð af listfengi og verð-
ur að teljast líkleg til vin-
sælda sem hin fyrri...
Ekkert virðist stöðva
Guðna Ágústsson í
andstöðu hans við þann
ásetning Finns Ingólfs-
sonar viðskiptamálaráð-
herra, að breyta rekstrar-
formi rikisbankanna. Þann-
ig sagði Guðni í umræðu-
þætti á Rás tvö síðastliðinn
þriðjudag, að honum virtist
sem frjálshyggjuöflin í
þjóðfélaginu „vildu einka-
væða gróða ríkisfyrirtækja
en þjóðnýta tapið". Kaldar
kveðjur frá Guðna til bróð-
ur hans í ungmennafélags-
andanum. íslandi allt...
Enn gétum við verið fyrst
með bókafréttirnar. Mál
og menning mun á næst-
unni gefa út Ijóðabækur
tveggja meistara. Annars-
vegar er um að ræða Ijóða-
þýðingar eftir Helga Hálf-
danarson og hinsvegar
Ijóðabók eftir Hannes
Sigfússon. Bók Hannesar
mun bera heitið
Kyrjálaeidi...
/^So, Ms. Clavell...
Readany goodbooks. Idtply
h i n u m i b g i n
KmTrffjj yiTSamúú. t m
'I.TOrí
má llf
H
H *n
i §
Eftir að hafa látið sér nægja leynda drauma í öll þessi ár lét
Stebbi loksins tii skarar skríða gagnvart Gunnu bókaverði.
Arnhildur Hreggviðsdóttir
sölumaður: Já, svo sannar-
lega. Kettir eru yndisleg dýr
svo framarlega sem þeir míga
ekki í híbýlum þínum.
Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir
nemi: Já, ég er mjög mikill
kattavinur og á einn kött.
ísleifur Þórhallsson nemi:
Ég er að reyna að vera það en
hef ofhæmi fyrir þeim.
Ásgerður Júlíusdóttir
nemi: Já, já. Það er allt í lagi
með þá, greyin.
Olga Þorsteinsdóttir nemi:
Já, ég er mikill kattavinur. En
mamma og pabbi munu aldrei
leyfa mér að fá kött.
v i t i m e n n
1§J
Þegar Bjami Felixson
íþróttafréttamaður RÚV sem
iýsti leiknum var farinn að yfir-
gnæfa leikmenn báðu ieikmenn
hann að lækka róminn.
íþróttafréttaritari Morgunblaösins í
umsögn um handboltaleik Stjörnunnar og Vals.
Leikiö var fyrir tómu húsi.
Ber er hver að baki, sem á
Björn að bandamanni.
Mat Jóns Baldvins á samstarfinu
viö Björn Bjarnason í síöustu ríkisstjórn.
Helgarpósturinn.
Nú er mikið talað um
heilbrigðiskröfur til sláturhúsa
eða innfluttra matvæla en svo
virðist að engum hafi orðið meint
af þessu áti á heimaslátruðu kjöti.
Það segir sína sögu um
þessar kröfur.
Vilhjálmur Egilsson maelir meö
heimaslátrun á fundi Verslunarráös.
Mogginn í gær.
Spurningin er hvort ekki
sé hægt að fresta varnargarðinum
og lifa af einhverja vetur með
varfærni í byggðinni.
Páll Pétursson félagsmálaráöherra
um snjóflóðavarnir á Súöavík.
Morgunblaðið.
íslenskir fjölmiðlar og
(sem er ófyrirgefanlegt)
íslenskir menntamenn upphrópa
Serba sem árásaraðila!
Serbinn Predrag Djokic í lesendabréfi í
Morgunblaöinu.
Fáar hryssnanna fylfullar
eftir samneyti við Viðar.
Hvaö skyldi hann Viðar hafa
átt aö gera við þessar hryssur?
Fyrirsögn í DV í gær.
A síðasta ári voru einnig
erfiðleikar með notkun
stóðhestsins eftir að sparkað var
í skaufann á honum.
Æ, æ, ó. Dagblaðið.
Svo virðist að hugarástand
flialdskurfa hafi breiðzt út
meðal þjóðarinnar.
Jónas Kristjánsson í leiðara
DV í gær.
fréttaskot úr fortíð
Fjársjóðsleit á
Þmgvöllum
f gær var það þrekvirki unnið á Þing-
völlum að maður kafaði í peninga-
gjána og kom upp með peninga.
Var það einn af nýju lögregluþjónun-
um hér í bænum, Helgi Júlíusson að
nafni. Kafaði hann þrisvar sinnum og
kom upp með peninga í öll skiptin.
Þykir það mikið þrekvirki að kafa í
gjána, því að vatnið er eiturkalt og
hefir það sjaldan verið gert áður.
Alþýðublaðið,
11. ágúst 1941.