Alþýðublaðið - 22.09.1995, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1995 ALÞÝÐUBLAÐID 5
■ Gífurleg óánægja með ofurtolla ríkisins á innfluttar búvörur
Framkvæmdin
gengur þvertá
markmið GATT
-segir Jón Baldvin Hannibalsson alþingismaður og formaður Alþýðuflokksins.
Þess verður krafist að málið verði tekið aftur upp á Alþingi.
„Það er grundvallarblekking þeg-
ar ráðherrar ríkisstjórnarinnar halda
því fram að þeir séu að framkvæma
markmið GATT-samningsins hér á
landi. Þetta er ekki rétt því hér er
um að ræða pólitískar ákvarðanir
innlendrar ríkisstjórnar um það að
ganga gegn tilgangi GATT-samn-
ingsins. Framkvæmdin hér er ekki í
samræmi við það sem þetta er gert
með öðrum þjóðum. Meira að segja
í Noregi, sem er eitt mesta verndar-
stefnuland í heimi, tók framkvæmd-
in eitthvert tillit til neytenda," sagði
Jón Baldvin Hannibalsson alþing-
ismaður í viðtali við Alþýðublaðið.
Nú er farið að reyna á fram-
kvæmd GATT-samningsins og væri
synd að segja að viðbrögðin hafi
verið jákvæð. í ljós hefur komið að
samningurinn eins og hann er fram-
kvæmdur hér skilar engu sem máli
skiptir fyrir íslenska neytendur,
eins og Óskar Magnússon forstjóri
Hagkaups komst að orði á fundi
Verslunarráðs í vikunni. Alþýðu-
sambandið og Vinnuveitendasam-
bandið hafa sent frá sér harðorðar
ályktanir gegn framkvæmd samn-
ingsins. Stjórn Neytendasamtak-
anna segir í ályktun sem samþykkt
var á fundi í fyrradag að með fram-
kvæmd GATT-samningsins hafi
stjórnvöld fórnað hagsmunum
fólksins fyrir þrönga sérhagsmuni
ákveðinna framleiðenda. Stjórnin
telur að stjórnvöld hafi brotið gegn
ákvæðum GATT- samkomulagsins.
Við lögðum fram
skýrar tillögur
„Það kemur æ betur í ljós með
hverjum deginum sem líður að þeir
sem ráða ferðinni í ríkisstjómarsam-
starfinu varðandi framkvæmdina á
GATT skáka mjög í því skjólinu að
málið er flókið. Það er ekki bara al-
menningur sem skilur málið tæpast.
Ef marka má það sem hefúr komið ffá
þingmönnum Sjálfstæðisflokksins
botna þeir ekki upp né niður í mál-
inu,“ sagði Jón Baldvin.
„Þeir hafa haldið því fram að fram-
kvæmdin sé hin sama og hafði verið í
undirbúningi í tíð fyrri ríkisstjómar.
Staðreyndimar em aftur á móti aðrar.
Undirbúningi var ólokið í tíð fyrri rík-
isstjómar. Málið var til umfjöllunar í
embættismannanefnd sem var á for-
ræði forsætisráðherra. Embættismenn
sem vom fulltrúar ráðherra Alþýðu-
flokksins lögðu hins vegar ífarn skýrar
tillögur: Bændum yrði í upphafi
tryggð tollvemd sem byggðist á verð-
jöfnun. Með verðjöfnun er átt við að
brúa bilið milli virks innflutningsverðs
erlendis frá og heildsöluverðs innan-
lands. Síðan nytu innlendir aðilar fjar-
lægðarvemdarinnar sem nemur á bil-
inu tíu til þijátíu prósent umifam inn-
lenda verðið. Fjármálaráðherra og
varaformaður Sjálfstæðisflokksins,
Friðrik Sophusson, eða embættis-
menn í hans nafni, hugsuðu á svipuð-
um nótum en lögðu fram tillögu um
tuttugu prósent aukna vemd umfram
þetta. Kjami málsins í því var síðan sá
að samkvæmt þessum tillögum báðum
hefði þetta lækkað um 35 prósent á
sex ára bili. Þá hefði öllum skilmálum
verið fullnægt en skilaboðum komið á
framfæri við innlenda aðila að nýta
þessi sex ár til að búa sig undir sam-
keppni,“ sagði Jón Baldvin Hannibals-
son.
vinning. Það kemur því engin sam-
keppni út úr þessu. Meira að segja
varðandi þetta lítilræði er fram-
kvæmdin með þeim hætti að sam-
keppni er útilokuð.
Þessi framkvæmd er unnin af land-
búnaðarkerfmu sjálfu. Landbúnaðar-
ráðuneytið er bara útibú þess kerfis.
Það var aldrei talað við neytendur eða
fulltrúa verslunarinnar. I umfjöllun
efnahags- og viðskiptanefndar um
málið komu allir sem áttu við þetta að
búa og sögðu að þetta væri ekki
GATT heldur GABB. Þetta gengi
þvert á yfirlýst markmið samnings-
ins,“ sagði Jón Baldvin.
Rakin ósannindi
„Það er enginn að deila um að það
átti að vera tollvemd í upphafi en hún
átti að breytast á samningstímanum.
Það er það sem þeir hafa komið í veg
fyrir og því mun ekkert breytast. Það
verður engin samkeppni sem knýr til
breytingar í einokunarkerfinu. Þegar
Davíð Oddsson forsætisráðherra
heldur því fram að GATT sé ekki um
það að lækka vöruverð heldur aðeins
að auka fjölbreytni er hann bara að
staðfesta það sem hann sagði alltaf á
síðasta kjörtímabili að hann botnaði
ekki upp né niður í þessum deilum um
landbúnaðarmál. Hann hefur aldrei
botnað í þessu.
Því er haldið fram að við séu að
framkvæma þetta eins og allar aðrar
þjóðir. Það eru rakin ósannindi. Evr-
ópusambandið leggur á 20 prósent
verðtoll en við 30 prósent og síðan
svokallaðan magntoll. En þeirra
magntollar eru brotabrot af því sem
við emm að beita. í mörgum tilfellum
fella þeir þá niður af vörum sem vega
þungt í neyslu almennings. Þeir fella
niður magntoll á nautakjöt, svínakjöt
ber mjög lágan magntoll og tollurinn
lækkaður í þrjú prósent. Kjúklingar
em að meginhluta á núll tolli. Sömu-
leiðis ostategundir sem vega þungt í
neyslu. Að því er varðar þriggja pró-
senta lágmarksaðganginn ber hann 32
prósent toll eins og hér. Hins vegar er
hann ekki 32 prósent af 200 prósenta
hámarksheimildum eins og hér heldur
reiknast hann af rauntolli sem í flest-
um löndum er á bilinu sjö til 15 pró-
sent.
Meðal annarra þjóða lækkar verð-
tollurinn á aðlögunartímanum úr 20
prósénf í 12,8. Framkvæmdin er því
allt önnur en hér. Hún er sveigjanleg,
tekur tillit til sjónarmiða neytenda og
lækkar mjög hratt á tímabilinu auk
þess sem hún er með fullt af undan-
þágum er varða þýðingarmiklar
neysluvömr," sagði Jón Baldvin enn-
fremur.
Jón Baldvin Framkvæmdin útilokar samkeppni.
Qfurtollar ráðherra.
„Landbúnaðarráðherra vildi lög-
festa svokallaðar tollbindingar. En
tollbinding er hins vegar reiknings-
dæmi. Viðmiðunarárin eru 1986-88
og viðmiðunin er tilbúið niðurgreitt
heimsmarkaðsverð sem er allt annað
en virkt viðskiptaverð sem íslendingar
eiga kost á. lnnanlands er viðmiðunin
heildsöluverð einokunarkeríisins sem
í mörgum tilvikum er hærra en verð
stórmarkaða. í þessu reikningsdæmi fá
þeir ofurtolla á bilinu 300 og uppfyrir
þúsund prósent. Svo reyna þeir að
segja að það sé réttur Islendinga að
gera þetta. En þetta er bara reiknings-
dæmi um hver tollvemdin var meðan
innflutningsbannið var í gildi,“ sagði
Jón Baldvin.
„Það er algjörlega sjálfstætt ákvörð-
unarefni stjórnvalda hvort þau nýta
þessar hámarksheimildir og fara upp í
þakið eða hvort þau taka aðrar pólit-
ískar ákvarðanir. Tillögur mínar og
fjármálaráðherra voru auðvitað um
það að hafa þetta miklu lægra og hefði
samt dugað til að tryggja bændum
tollvemd. A tímabilinu hefði hins veg-
ar orðið einhver innflumingur. Fyrst á
grundvelli gæða og síðan smám sam-
an á grundvelli verðsamkeppni. En
kerfið hefði verið knúið til breytinga,"
sagði Jón Baldvin.
GATT verður GABB
„Ráðherrar em alltaf að tönglast á
þessum þrjú prósenta lágmarksinn-
flutningi en gleyma því að 97% af
markaðinum er þá lokaður áfram. En
hvemig er framkvæmdin þar? Við sjá-
um það núna. Þeir leita tilboða og
Sláturfélag Suðurlands fær vemlegan
skammt. Þar með geta þeir flutt inn í
samkeppni við sjálfa sig. Tollamir á
þessum lágmarksaðgangi em ofurháir
eða á bilinu 60 upp í 260 prósent. í
flestum tilvikum fer þetta umífam inn-
anlandsverðið. Aðili sem er að vemda
sína eigin framleiðslu og fær svona
kvóta fer vitaskuld upp í innlenda
verðið en fær svolítinn happdrættis-
Málið tekið upp á ný
„Við afgreiðslu málsins á Alþingi
fluttum við Alþýðuflokksmenn tillög-
ur um breytingar. Vildum lækka
magntollana um 23 prósent og verð-
tollana úr 30 í 20 prósent. Við lögðum
til að á lágmarksaðganginum yrðu
raunvemlega lágir tollar. Þessar tillög-
ur vom felldar af stjómamieirihlutan-
um. Nú getum við krafist þess að mál-
ið verði tekið upp á ný í ljósi reynslu
og flutt tillögur um lækkun á þessum
tollum. Þar væri markmiðið bara eitt:
Að tryggja að það verði lækkun á
tímabilinu og fyrstu skrefin stigin í átt
til þess að samkeppnin hafi áhrif.
Koma þeim boðum til skila að þetta
muni breytast. Það mun setja á stað
feril þar sem bændur yrðu losaðir und-
an kvótakerfinu og neytendur gætu
smám saman átt von á verðlækkun,“
sagði Jón Baldvin Hannibalsson. ■
20. sept. 1995
Vinningstölur
ViNNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆ< Á HVERN VINNING
n63,6 1 108.250.000
EJ 5 af 6 Lfl+bónus 0 405.651
R1 5 af 6 5 63.740
Q 4 af 6 273 1.850
n 3 af 6 Efi+bónus 1.093 190
A>altölur:
25 30 46
BONUSTOLUR
Heildarupphæ> flessa viku:
109.687.071
áisi, 1.437.071
UPPLtSlNGAR, SIMSVARI 91- 6ð 15 11
LUKKULINA 99 10 00 - TEXTAVARP 451
BIRT ME« FVRIRVARA UM PRENTVILLUR
fór til Danmerkur