Alþýðublaðið - 03.10.1995, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 03.10.1995, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 1995 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 s k o ð a n i r Allir töluðu alvarlegum rómi og áttu það sameiginlegt að augnaráðið var staðfast en sorgmætt. Hvað er að? spurði barnið ég. Afi leit á mig alvarlegur og sagði: Það er verkfall. Er það sorglegt? spurði ég. Já það er sorglegt, svaraði hann. Afi minn heitinn, Amór Kristjáns- son, varði lífsstarfi sínu í verkalýðs- baráttu á Húsavík norður. Hann var svona ósköp blátt áfram erfiðismaður. Þeir kölluðu hann komma og víst hreifst hann eins og svo margir aðrir af draumalandi verkalýðsins austur í sovét. En allt var það meira eins og draumur sem þjónaði svipuðum til- gangi í daglegu lífi húsvískra dag- launamanna og huldufólkssögur í hvunndagsbasli íslenskrar alþýðu höfðu gert um aldir. Eitthvað til að hvfla hugann við að lokinni önn dags- ins, vekja sér von um annað og betra Pallborðið | h'f. Þetta var vel að merkja tyrir daga sjónvarpsins og sápuópera Holly- wood. Bryggjukommarnir sem hann afi minn tilheyrði vom engir bóka- menn. Hagfræðin og fínni blæbrigði hinnar kommúnísku kenningar voru þeim lítt hugstæð. Þannig sagði afi mér að hann hefði aðeins lesið eina bók um ævina, Sögur af séra Jón- mundi. En það breytti engu um það að hann var ódeigur og steíhufastur bar- áttumaður bættra kjara launafólks. Hann og félagar hans gengu til leiks- ins með réttlætiskenndina að vopni. Samhugur var þeim ekki áunninn launaður eiginleiki heldur lífsstfll, til- orðinn í erfiðleikum lífsbaráttunnar. Þeir sátu ekki í launuðum stjórnar- stöðum lífeyrissjóða, þeir skópu þá sem tæki til samhjálpar. Þeir sáu ekki verkalýðsbaráttuna fólgna í því að flytja orðstórar en innantómar ræður á torgum og láta lýðinn hylla sig. Þeirra stríð var barátta dagsins: á bryggju- sporðinum, í fiskiðjuverinu, síldar- planinu og hvar sem daglaunamenn Kaupfélagsins vom að störfum. Verk- föll vom þeim ekki tæki til kúgunar, heldur afleiðing þess að þeim hafði mistekist, mistekist að sína atvinnu- rekandanum fram á með rökum að kröfur þeirra væm réttlátar. Eg á mér bemskuminningu um eldhúsið hjá afa og ömmu, troðið af verkaköllum og konum. Sumir sátu á eldhúskollunum aðrir lágu tvist og bast um gólfið: and- rúmsloftið var þmngið spennu. Allir töluðu alvarlegum rómi og áttu það sameiginlegt að augnaráðið var stað- fast en sorgmætt. Hvað er að? spurði bamið ég. Aft leit á mig alvarlegur og sagði: Það er verkfall. Er það sorg- legt? spurði ég. Já það er sorglegt, svaraði hann og hélt áfram að ræða við fólkið í eldhúsinu. Slíkt var viðhorf þeirra til barátt- unnar. Þau voru þess fullkomlega meðvituð að þetta var ekki bara þeirra stríð heldur ekki síður orrusta fyrir framtíðina. Fyrir bættum hag barna sinna og bamabama. Þessu fólki var ókunnugur sá hugsunarháttur að skuldsetja afkomendur sína. Fyrir þá skildi búið í haginn. Blítt frítt, sagði afi minn þegar hlut- imir gengu upp og vel lá á honum. Eg velti fyrir mér hvaða orð hann hefði um frammistöðu sporgöngumanna sinna í verkalýðsbaráttunni. Auðvitað geri ég mér grein fyrir því, að kringumstæður á vinnumark- aðnum vom um flest ólíkar á dögum frumherjanna og nú. Hlutirnir voru einfaldari, andstæðumar skarpari og óréttlætið brann á þeim sem skópu umbætumar. Þar er ef til vill kominn mergur málsins. Einfaldleikinn þykir í listum heilladrýgstur. Því skildu önnur lögmál gilda um atvinnuh'f og verka- lýðsbaráttu? Einhver hvíslaði að mér að á þingi Alþýðusambands Islands árið 1958 hefði verið samþykkt álykt- un í þá vem að vinna að því að taka upp vinnustaðasamninga. Það var líka eitt af hugsjónamálum Vilmundar heitins Gylfasonar alþingismanns. Er ekki orðið tímabært að skoða þessa leið? Færa þannig kjarabaráttuna nær vettvangi? Tengja betur saman af- komu fýrirtækja og afkomu launþega? Kannski myndi framleiðni vaxa? Er hér komið tæki til að brjóta niður þá svívirðu sem launamunurinn í samfé- laginu er? Eitt er víst, að ekki verður lengur unað við ástandið eins og það er og lýsir sér meðal annars í því að fs- lenskt fiskverkafólk flytur nú umvörp- um til Hanstholm á Jótlandi þar sem laun þess eru margfalt hærri en við sambærileg störf hér á landi. Hætt er við að jarðsambandslausir verkalýðsrekendur nútfmans verði ekki ginnkeyptir fyrir hugmyndum um breytingar á ríkjandi ástandi. Því verður að höfða til réttlætiskenndar al- þingismanna. Að þeir sýni nú dug sinn og breyti óviðunandi ástandi í blítt frítt. JÓN ÓSKAR v i t i m e n n Ég er einn af þeini sem hef verið hundóánægður með starf og stefnu flokksins í mörg ár. Ég er einn af þeim sem einu sinni var virkur í flokknum en hef ekki starfað þar lengi. Ari Skúlason framkvæmdastjóri ASÍ aÖ skrifa meðmælabréf með Margréti Frímannsdóttur í formannsslag alþýðubanda- lagsmanna. Vikublaðið. Alþýðubandalagið hefur um alllangt skeið átt í innbyrðis erjum af ýmsum toga, sem vissulega hafa staðið því fyrir þrifum. Bréf Helga Seljans fyrrverandi'alþingismanns og fleiri þarsem mælt er með Steingrími J. Sig- fússyni í formannsslagnum. Vikublaðið. Hef ekkert á móti því að líkjast Póstinum Páli. Páll Pétursson í ítarlegu viðtali íTímanum á laugardag. Reagan fletti miðum sínum þarsem á var að finna áletranir. Þeir rugluðust saman og nokkrir duttu af borðinu. Hann byrjaði að raða þeim uppá nýtt og reyndi að finna svör við spumingum mínum; tókst það þó ekki. Morgunblaðið birti kafla úr nýjum endurminningum Gorbatsjovs þarsem hann fjallar um Reykjavíkurfundinn. Frásögnin bendir til þess að Bandaríkjaforseti hafi fengið Alzheimer mun fyrr en haldið var. Fá 40 þúsund í makalífeyri eftir 10 daga þingsetu. Morgunblaðið á sunnudag skýrði frá hlunnindum varaþingmanna. Hún verður að átta sig á valdinu sem hún hefur yfir karlmönnum og hversu auðveldlega þeir fara að hegða sér einsog bjánar. Breska blaðið The Sun að leggja Díönu prinsessu lífsreglur. DV í gær. fréttaskot úr fortíð Hefnd fflsins í sirkus í London er ffll sem er í miklu eftirlæti meðal sirkusgesta. Ffllinn sýnir allskonar töfrakúnstir og „líkamsæfmgar11. A sýningu nýlega, þegar ffllinn kom nálægt áhorfenda- bekkjunum, bar svo við, að hrekkja- lómur nokkur stakk fflinn í ranann með nál. Ffllinn, sem er vel vaninn, lét ekki á neinu bera meðan á sýning- unni stóð. En að sýningunni lokinni gekk ffllinn fram með áhorfenda- bekkjunum, 'uns hann fann syndasel- inn. Tók hann manninn upp með rananum og þeytti honum langar leið- ir, og lá hami þar í óviti. Fólkið varð gripið skelfingu, en ffllinn gekk inn til sín að loknu þessu þrekvirki. Sunnudagsblað Alþýðublaðsins, 7. apríl 1935. h i n u m e g i n "FarSide” eftir Gary Larson Stuðningsmenn Margrét- ar Frímannsdóttur í formannsslagnum í Alþýðu- bandalaginu létu Gallup gera skoðanakönnun um stuðning við hana og Stein- grím J. Sigfússon. Skemmst er frá því að segja, að Margrét nýtur öllu meiri vinsælda en Steingrímur, bæði utan Alþýðubanda- lagsins og innan. Þannig kváðust mun fleiri stuðn- ingsmenn annarra flokka geta hugsað sér að kjósa Al- þýðubandalagið undir for- ystu Margrétar en Stein- gríms. Við vitum að könnun- in olli talsverðum titringi í herbúðum Steingríms, en liðsmenn Margrétar hafa í hyggju að senda niðurstöð- urnartil allra alþýðubanda- lagsmanna... Það kom mörgum í opna skjöldu þegartilkynnt var að Viðar Eggertsson yrði næsti leikhússtjóri Leikfélags Reykjavíkur, enda var hann eini umsækjandinn sem hafði óskað nafnleyndar. Fæstir efast hinsvegar um að Viðar sé rétti maðurinn í starfið enda hefur hann náð góðum árangri hjá Leikfélagi Akureyrar, og þykirfrumleg- ur, áræðinn og laginn í því að laða það besta fram hjá fólki. Viðar er nú að hefja þriðja og síðasta ár sitt hjá Leikfélagi Akureyrar: hann mun á næstunni stíga á svið í fyrsta sinn og leika sjálfan Drakúla í viðamikilli sýningu. Það var því ekki öldungis að ófyrirsynju sem Hallmund- ur Kristinsson smiður og leikmyndateiknari hjá Leikfé- lagi Akureyrar kastaði fram þessari stöku þegar hann frétti af ráðningu Viðars í stól Borgarleikhússtjóra: Lengur ei virðist hjá okkur una - því er nú ver. í Borgarleikhúsi er betra og meira blóð en hér. Umræður um stefnuræðu Davíðs Oddssonar for- sætisráðherra fara fram í kvöld. Alþýðuflokkurinn teflir fram fjórum ræðumönnum: Rannveigu Guðmunds- dóttur, Guðmundi Árna Stefánssyni, Lúðvík Berg- vinssyni og Ástu B. Þor- steinsdóttur. Ásta er vara- þingmaður í Reykjavík og mun eiga sæti á Alþingi næstu tvær vikur, meðan Jón Baldvin Hannibalsson flokksformaður er í útlönd- um... r IVikublaðinu, málgagni Al- þýðubandalagsins, lesum við að Friðrik Friðriksson eigandi Almenna bókafé- lagsins hafi verið kærður til Rannsóknarlögreglu ríkisins fyrir meint brot á tékkalög- um. Friðik, sem einnig átti Pressuna sálugu, mun hafa greitt Jónasi Sen pistlahöf- undi og píanóleikara með innistæðulausum ávísunum fyrir greinaskrif í blaðið. Vikublaðið segir að í héraðs- dómi hafi málinu verið frest- að þangað til föstudaginn 6. október. Okkar heimildir herma að sættir kunni að nást í málinu fyrir þann tíma... Náð'enni Staffan! Hún er greinilega af Vespula- tegund og úff, hún virðist svooo sannarlega bááálvooond! f i m m förnum veg 9 Ætlar þú að fylgjast með þingstörfum í vetur? Anna Guðrún Stefáns- Rannveig Eva Karlsdóttir dóttir nemi: Ég mun fylgjast nemi: Jájá, ég reyni að gera eitthvað með þeim, aðallega í það í gegnum fjölmiðla. fféttum. Gunnar Börkur Jónasson Agnes Benediktsdóttir kennari: Já, eflaust einsog nemi: Nei, ég hef engan tíma venjulega. og lítinn áhuga. Þorvaldur Auðunsson nemi: Nei, ég býst ekki við því.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.