Alþýðublaðið - 03.10.1995, Síða 5

Alþýðublaðið - 03.10.1995, Síða 5
ÞRIÐJUDAGUR 3. UK, I UBtK iy9b ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5 o r n td : ' ^ . urðardóttur m? :ssum tíma lið var upp síðast lið- i gildra at- mnalistinn inn á þing. erið gerðar á fylgi flokkanna hefur fylgi Þjóðvaka nánast þurrkast út og er nú um eða undir 1%. I ljósi þessa hafa vaknað upp spumingar um stöðu og framtíð Jóhönnu Sigurðardóttur í íslenskum stjómmálum. Alþýðublaðið leitaði til nokkurra einstaklinga ýmist sem starfa í pólitík eða fylgjast vel með á vettvangi stjómmála og spurði: Hver er staða Jóhönnu Sigurðardóttur í dag? Sighvatur Björgvinsson Afska, erfið „Ég held að staða hennar sé afskap- lega erfið og hana hefur hún skapað sjálf,“ sagði Sighvatur Björgvinsson alþingismaður. , J>að var aldrei neinn málefhalegur grundvöllur fyrir brottför hennar úr Alþýðuflokknum. Hún gekk þar á bak orða sinna við sfna eigin stuðnings- menn og eina ástæðan var sú að hún taldi sig vera í ágreiningi við formann- inn aðallega. Það hefur nú komið í ljós að þessi flokksmyndun hennar er loft- bóla og ég sé ekki að það muni neitt breytast. Einu áhrifin sem má segja að framboð hennar hafi haft er að það var forsenda þess að Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur mynduðu ríkis- stjóm. Ef Jóhanna hefði verið í Af- þýðuflokknum og starfað þar á lýð- ræðislegum grundvelh, það er að segja virt niðurstöður flokksins um meint ágreiningsefni, þá væri Alþýðu- flokkurinn sennilega með að minnsta kosti tíu þingmenn í dag,“ sagði Sighvatur Björgvinsson. Svanur Krístjánsson Staðan er veik „Staða Jóhönnu Sigurðardóttur eftir kosningamar er veik eins og staða allra axmarra forystumanna stjómar- andstöðunnar," sagði Svanur Krist- jánsson prófessor. En sér hann hvert framhaldið verður miðað við fylgis- hran Þjóðvaka í skoðanakönnunum? ,,Ég sé ekkert framhald fyrir þessa stjómarandstöðuflokka yifir höfuð. Það er verið að tala um flokka sem era að hámarki með 14% fylgi og niður í lítið sem ekki neitt. Þetta getur sveifi- ast til og frá. Ég get bent á stöðu stjómarflokkanna í kosningunum á þessu ári miðað við stöðu þeirra í skoðanakönnunum fyrir tveimur ár- um. Það er ekki hægt að segja fyrir um það hver úrslit kosninga verða eft- ir fjögur ár miðað við útkoma þeirra í skoðanakönnunum núna,“ sagði Svan- ur Kristjánsson. Guðrún Helgadóttir Alþýðubanda- lagið engin Sorpa „Ég held að staða Jóhönnu sé ekki sterk þessa dagana enda sérkennilegur hópur sem hún er í. Það er auðvitað háttur stjómmálamanna sem era að missa tökin að fara að leita fyrir sér í öðram flokkum,“ sagði Guðrún Helgadóttir fyrrverandi alþingismað- ur. „Það er dálítið sérkennilegt að heyra fólk úr Kvennahsta og Þjóðvaka tala þessa dagana eins og þeir sem valdið hafa. Fólk sem hefur nánast ekkert fylgi lengur. Það hefur marg sýnt sig að þessir litlu flokkar eiga afskaplega erfitt uppdráttar. Menn virðast heldur vilja halda í sína gömlu flokka. Þessar svokölluðu grasrótarhreyfingar virðast vera einnota fyrirbæri. Kvennahstinn byggði að vísu á ákveðinni hug- myndafræði en manni sýnist hún sé komin í blindgötu og ekki eiga mikla framtíð fyrir sér. En menn skulu ekki halda að Alþýðubandalagið sé einhver allsherjar Sorpa fyrir dána stjómmála- flokka. Alþýðubandalagið er einfald- lega öflugur stjómmálaflokkur og þarf ekki á deyjandi stjómmálahreyfmgum að halda og allra síst hnígandi stjóm- málaforingjum. Við emm kannski til- búin til að taka við einhverjum kjós- endum en Guð forði okkur frá því að fá fallna stjómmálaforingja í okkar raðir. Við höfum nóg af þeim sjálf, „ ■ sagði Guðrún Helgadóttir. Atli Rúnar Halldórsson Þjóðvaki búinn „Þar sem ekki var hægt að stofna þessa hreyfingu án þess að hópur manna gengi út af stofnfundinum með látum fannst mér að það væri nánast búið að kasta rekunum á þessa hreyf- ingu fyrirfram," sagði Atli Rúnar Halldórsson fyrrverandi fréttamaður. ,J>að var því hægt að sjá stöðu Jó- hönnu fyrir. Þjóðvaki er náttúrlega bú- inn og ég sé ekki hvaða hlutverk Jó- hönnu er ætlað í pólitíkinni hér eftir nema að hún fari aftur heim í Alþýðu- flokkinn. Það er svo einfalt," sagði Atli Rúnar. Óskar Guðmundsson Hefur mikið að segja „Mér finnst það segja dálítið um stöðu Jóhönnu Sigurðardóttur, að í öllum dagblöðunum í dag, föstudag, er verið að fjalla um hennar pólitík með einum eða öðram hætti. Alls staðar er Jó- hanna á ferðinni og það bendir ekki til að hún hafi lítið að segja,“ sagði Ósk- ar Guðmundsson blaðamaður. „Staða Jóhönnu er því sú að hún hefur mikið að segja. Það er meginmálið. Ég ætla leyfa mér að benda á að hin ,aiýja“ skoðanakönnun sem Alþýðu- blaðið birti um fylgi flokkanna er eldri en kannanir sem sýna annað fylgi Þjóðvaka en 0,5 prósent. Slæmt gengi pólitískra flokka eða samtaka þarf ekki endilega að segja neitt til um styrk þeirra sem era í forystu í slíkum hreyfingum. Þetta segir ekkert til um það hver sé hinn raunveralegi styrkur viðkomandi stjórnmálaforingja. Það væri óeðlileg ef stjómmálamaður sem horfist í augu við það að jafnaðar- menn á íslandi era í mörgum stjóm- málaflokkum væri ekki að tjá sig um þá. Ég veit ekki hvaða pólitíska perr- erí það er orðið ef menn mega ekki fjalla um pólitíkina," sagði Óskar Guðmundsson. Ólína Þorvarðardóttir Óijós „Óljós,“ var svar Ólínu Þorvarðar- dóttur fyrrverandi borgarfulltrúa við spumingu blaðsins. Helga 'IQí Jónsdottir Fortíðar- fyrirbæri „Ég lít á hana sem fortíðarfyrirbæri. Mér finnst hún hafa misst trúverðug- leik og tel að hennar hlutverki í stjóm- málum sé lokið,“ sagði Helga Jóns- dóttir formaður Landssambands al- þýðuflokkskvenna. Elsa Þorkelsdóttir Sterkur stjórnmáia- maður „Ég get eiginlega ekki hugsað mér pólitík án þess að Jóhaima Sigurðar- dóttir taki þátt í henni. Ég sé ekki ís- lenska stjómmál fyrir mér án hennar. Persónulega tel ég hana vera sterkan stjómmálamann,“ sagði Elsa Þorkels- dóttir ffamkvæmdastjóri jafhréttis- ráðs. „Varðandi ffamtíð hennar í stjómmálum þá held að hún hljóti að verða þar áfram. Hvort sem það verð- ur á vegum Þjóðvaka, einhvers annars flokks eða sameinaðs flokks á vinstri væng stjómmálanna, sem ég vildi helst," sagði Elsa. sta kk- ds- ígs ína Togstreita Jóhanna og Jón Baldvin á flokksþingi í Kópavogi 1992. Ágreiningur og togstreita setti svip á síðustu flokksþing Alþýðuflokksins. Formannsframboð Jóhanna var varaformaður Alþýðuflokksins í meira en tíu ár. Fyrir flokksþing 1994 gaf hún kost á sér til for- manns gegn Jóni Baldvin Hanni- balssyni. Meðan kosningabarátta hennar stóð yfir kvaðst hún una niðurstöðunni. Hér greiðir hún at- kvæði á flokksþinginu í Keflavík. Úr ríkisstjórn Jóhanna sagði af sér ráðherraembætti sumarið 1994 og bar við ágreiningi í Alþýðu- flokknum. Hér gengur hún af vett- vangi eftir að hafa tilkynnt afsögn sína. „Minn tími mun koma!" Jóhanna hlaut 40% atkvæða í formanns- kjöri en Jón Baldvin 60%. Þegar niðurstöður lágu fyrir flutti hún dramat- íska ræðu og endaði með því að mæla hin fleygu orð: Minn tími mun koma! „Okkar tími er kominn..." Jóhanna ávarpar fundarmenn á Hótel ís- landi. Hún boðaði uppstokkun flokkakerfisins, og skoðanakannanir um þetta leyti bentu til að hún hefði nokkuð til síns máls: Þjóðvaki mældist með allt að 25% fylgi og var næststærsti flokkur þjóðarinnar. Nýr flokkur Jóhanna sagði sig úr Alþýðuflokknum fyrir rúmu ári og skömmu síðar var boðað til stofnfundar nýs flokks. Á sjötta hundrað manns mættu á undirbún- ingsfund á Hótel íslandi, meðal annars mörg kunnugleg andlit. Hér heilsar Jóhanna Helga Péturssyni. Milli þeirra má sjá Ragnheiði Dav- íðsdóttur. Klúður á landsfundi Þjóðvaki hélt landsfund í ársbyrjun. Þar gekk allt á afturfótunum: Mun færri mættu en búist var við, harð- ar deilur blossuðu upp um ýmis at- riði og hópur fundarmanna gekk út.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.