Alþýðublaðið - 10.10.1995, Side 3
ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTOBER 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o ð a n i r
Kratinn sem varö aö afturhaldsmóra
„Þegar jafnaðarmenn spígspora fram og aftur
blindgötur fordóma og heiftúðugs afturhalds
og virðast una sér svo dável á þeirri spásser-
ingu að þeir umturnast í öllum málflutningi,
þá er orðið tímabært að vísa þeim leiðina
heim."
Á ísafirði leikur afturhaldsmóri
lausum hala og andskotast að vild í
Vestfirska fréttablaðinu, um leið og
hann kennir sig við jafnaðarstefnu.
Tilefni til ólátanna fann hann í þeirri
hugmynd ísfirskra bæjaryfrrvalda að
veita erlendum flóttamörmum hæli, en
þau segja skyldu okkar Islendinga að
liðsinna fólki í neyð. Þar sem þetta er
einangrunarsinnaður móri fannst hon-
um, eðli sínu samkvæmt, hugmyndin
hin mesta svívirða.
fra^rðið |
Móri þessi gegnir nafninu Gísli
Hjartarson, og er varabæjarfulltrúi
Alþýðuflokksins á Isafirði og ritstýrir
einnig málgagni Alþýðuflokksins á
Vestfjörðum, Skutli, sem á sér glæsta
fortíð og var á sínum tíma ritstýrt af
afburðamönnum. - Ekki veit ég hvurs
lags sending það er nú orðin.
Sendingin í Vestfirska fréttablaðinu
er auðskilin þeim sem hana les. Hún
barst mér reýndar í hendur tveimur
dögum eftir að'Einar K. Guðfinns-
son, alþingismaður Sjálfstæðisflokks-
ins á Vestfjörðum, skrifaði afar góða
grein hér í Alþýðublaðið sem hann
nefndi Velkomin vestur, en eins og
nafnið gefur til kynna fagnaði hann
þar hugmyndum ísfirskra stjómvalda.
Það þurfti sjálfstæðismann úr óró-
legu deildinni til að fagna tíðindunum,
og það þurfti krata til að andmæla
þeim, og sá hlýtur sá að teljast í miður
geðslegri deild. Og er nú tímabært að
bera niður í hina einkennilegu ókra-
tísku ritsmíð sem Gísli Hjartarson
sendi frá sér í hinu Vestfirska frétta-
blaði með fyrirsögninni Enga flótta-
menn takk!:
„Undirritaður hélt að vandi félags-
málaráðs fsafjarðar væri nægur fyrir
þótt ekki sé verið að óska eftir erlend-
um flóttamönnum til þess að auka á
þann vanda... Væntanlega þarf að
eyða stórfé í flóttamennina til þess að
kenna þeim íslensku og að laga þá að
siðum okkar ísfirðinga og náttúrlega
öldungis óvíst að þeir geti aðlagast
okkur... Auk þess skapar innflutning-
ur flóttamanna fleiri vandamál en
hann leysir þótt vanti fólk í fisk-
vinnslu nú tímabundið."
Bæjarráð er síðan hvatt til að „-
gleyma þessum heimskulegu tillögum
um að flytja inn erlenda flóttamenn.
Kannski verða flóttamennirnir frá
fyrrum Júgóslavíu, Serbar og Króatar,
sem nú berjast á banaspjótum [ívo/]
þar og gætu haldið áfram að drepa
hverjir aðra hér á fsafirði. Nei, enga
flóttamenn til ísafjarðar takk.“
Nú eru það svosem engar fréttir að
menn tali máli afturhalds, einangrunar
og fordóma, segist vilja fá að vera í
friði með sig og sína, og aftaki að
veita þeim leitandi og þurfandi skjól á
þeim forsendum að þeir muni einung-
is leiða bölvun yfir samfélagið. En of-
ur einkennilegt er að heyra mæla á
þann veg talsmann stjórnmálaflokks
sem kennir sig við jafnaðarstefnu og
um leið hugsun sem virðir einstakling-
inn og amast hvergi við þjóðemi hans,
kyni, eða litarhætti. Grundvallarhugs-
un jafnaðarstefnunnar byggir, eins og
kunnugt er, á virðingu fyrir einstak-
lingnum, og umhyggju fyrir kjörum
hans og örlögum. En þetta ætti ég ekki
að þurfa að segja Gísla Hjartarsyni.
Hann var einn af frambjóðendum Al-
þýðuflokksins, Jafnaðarmannaflokks
fslands, og hefur þá væntanlega kynnt
sér stefnu flokksins - en þó er eins og
hann skilji hana ekki. Það skilnings-
leysi hlýtur að hafa komið sér einkar
illa þann tíma sem hann gegndi störf-
um kosningastjóra krata á Vestijörð-
um í síðustu alþingiskosningum.
Réð ef til vill hending ein hvar
mann þennan bar niður í pólitfk?
Ekki veit ég hversu margir jafnað-
armenn stunda pólitískt hreinlífi, en
þar sem mannlegt eðli er sérlega
breyskt á þeim bæ má búast við ein-
hveijum víxlspomm. Þeim er sjálfsagt
að sýna umburðarlyndi svo framarlega
sem menn séu einungis í stuttum
skoðunarferðum á bannsvæðum. En
þegar ntenn spígspora fram og aftur
blindgötur fordóma og heiftúðugs aft-
urhalds og virðast una sér svo dável á
þeirri spásseringu að þeir umtumast í
öllum málflutningi, þá er orðið tíma-
bært að vísa þeim leiðina heim.
Nú legg ég til að Alþýðuflokkurinn
fómi einhverjum íjánnunum til endur-
menntunar þessa jafnaðarmanns sem
leiðst hefur af vegi mannúðarhyggj-
unnar. Væntanlega þarf að eyða
stórfé í þennan mann til að kenna hon-
um undirstöðuatriði jafnaðarmennsk-
unnar, og laða hann að siðum
okkar jafnaðarmanna. Náttúrlega er
öldungis óvíst að hann geti aðlagast
okkur, og einhverjum kann að finnast
að vandi okkar krata sé nægur fyrir og
þessi aðferð skapi fleiri vandamál en
hún leysi, en það er nú einu sinni svo
að við alþýðuflokksmenn teljum
venjulega ekki eftir okkur að
sinna gmndvallarhugsjónum jafnaðar-
stefnunnar og horfum því hvorki í
kostnað né tíma þegar í hlut á einn
okkar minnstu bræðra. ■
cJ
Borgarstjóri og lögreglustjóri
Reykjavíkur hafa tekið saman
höndum við að reyna að hreinsa
apabúrið, sem myndast oft að
næturlagi í miðbæ Reykjavíkur,
er valtrandi, slefandi, gargandi,
ælandi og berjandi lýður ráfar
þar um og sig vera að skemmta
sér ærlega.
Jónas Kristjánsson - hver annar?
- í forystugrein DV á laugardag.
Nú eru aðeins fjórir dagar
þangað til úrslit liggja
fyrir í formannsslag Margr-
étar Frímannsdóttur og
Steingríms J. Sigfússon-
ar. Niðurstaðan verðurtil-
kynnt á landsfundi, klukkan
19 föstudaginn 13. október.
Nú er svo komið, að jafnvel
þeir sem gerst þekkja innviði
Alþýðubandalagsins treysta
sér ekki til að veðja um úr-
slitin. Menn eru hinsvegar
byrjaðir að bollaleggja um
varaformannsembættið, en
um það verður kosið á laug-
ardaginn. Nafn Bryndísar
Hlöðversdóttur heyrist iðu-
lega nefnt, en stuðnings-
menn Steingríms hafa hins-
vegarfullan hug á því að
Ámi Þór Sigurðsson borg-
arfulltrúi hreppi hnossið.
Hann er ötulasti liðsforingi
Steingríms og hefur stjórnað
kosningabaráttu hans. Stein-
grímsmenn segja að sigri
Margrét eigi þeir rétt á vara-
formennskunni -til að
græða sárin - en sigri Stein-
grímur hljóti hann að þurfa
„sinn mann" sér við hlið...
Menn ræða fátt meira en
hver eigi að taka við af
Vigdísi Finnbogadóttur
forseta á næsta ári. Kollegar
okkar á Fréttum, sem gefnar
eru út í Vestmannaeyjum,
leituðu til Sigrúnar Þor-
steinsdóttur og spurðu
hvort hún ætlaði að demba
sér í slaginn aftur. Sigrún
braut í blað þegar hún bauð
sig fram gegn Vigdísi árið
1988, þótt ekki hefði hún ár-
angur sem erfiði. Sigrún af-
tekur að hún ætli að gefa
kost á sér aftur, en stingur
hinsvegar uppá því að þjóð-
in velji Vigdfsi Grímsdótt-
ur rithöfund sem næsta ábú-
anda á Bessastöðum - „ef
hún er tilbúin til að standa
fyrir breyttar áherslur." Yfir
til þín, Vigdís...
Um þessar mundir eru
fulltrúar trúfélaga að
dreifa Nýja testamentinu og
Davíðssálmum til 10 ára
barna í grunnskólum vítt og
breitt um landið. Þetta tiltæki
hefur vakið nokkra gagnrýni.
enda tækifærið stundum
notað til að koma guðsorð-
inu til skila með afar afdrátt-
arlausum hætti. Bima Þórd-
ardóttir, hin óþreytandi bar-
áttukona, hefur nú kvartað
formlega til Sigrúnar
Magnúsdóttur formanns
Skólamálaráðs Reykjavíkur
vegna málsins. I bréfi, sem
einnig er sent borgarráði,
segir Birna að „í þeim skóla
er undirrituð þekkir best til
var tekinn til þessa hluti al-
mennrar kennslustundar og
dreifingaraðilum heimilað
að viðhafa almennan áróður
fyrir því efni sem þeir
dreifðu. Undirrituð getur
ekki samþykkt að það falli
undir starfssvið Grunnskóla
Reykjavíkur að heimila ein-
hliða trúaráróður utanað-
komandi aðila innan skól-
anna, nógur er samt einhliða
áróður kristinfræðikennsl-
unnar". Þá fer Birna eindreg-
ið fram á að skipulögðum
áróðri af þessu tagi linni.
Ekki fer sögum af viðbrögð-
um Sigrúnar og félaga...
Hætta í skóianum?! Hætta í skólanum?! Lúlii minn, viltu
enda einsog hann pabbi þinn og verða tilraunarotta að at-
vinnu?
Best væri, ef framámenn þjóðar-
innar vildu með góðu fordæmi og
markvissum ábendingum stuðla að
því, að þessari æluþjóð verði um
síðir komið til manns.
Meiri Jónas.
Gaidurinn við samtölin
er ekki síst sá að láta
viðntæiandann halda að hvert
orð sé rétt eftir honum haft,
þótt öllu sé umbylt.
Úr smiðju Matthíasar Johannessens.
Ég fann það vel og skynjaði
að fólk upplifði heimsókn mina
sem birtu að norðan. Þetta fólk
er ekki mikið fyrir að tjá sig,
en það sagði við mig:
„Við munum sakna þín.“
Vigdís Finnbogadóttir sagði lesendum
Tímans á laugardag ítarlega frá Kínaferö sinni
og þeim hughrifum sem hún vakti.
Keðjuhnettla, bogsýkill,
snældugerill, blóðfíkill,
rotverur, lungnabólgustafsýkill,
iðrakeðjusýkill, klasahnettla.
Úr íðorðasafni laekna. Læknablaðið.
fimm á förnum vegi
Hver er þinn uppáhaldsárstími?
Eygló Rós Gísladóttir Jón K. Gíslason nemi:
nemi: Sumarið. Þá er góða Sumarið, við vinnu í birtu og
veðrið og frí í skólum. yl.
Júlíus Helgason vegfar-
andi: Vorið. Ég verð svo
fjandi þunglyndur í myrkrinu.
Það er eltin.
Hjördís Hrefna Guðna-
dóttir nemi: Sumarið er
minn uppáhaldstími því þá er
svo létt yfir öllum.
Rut Steinsen nemi: Vorið,
því þá er sumarið í nánd.
fréttaskot úr fortfð
Nágrannaeijur
Nýlega voru böm að leika sér í
smáþorpi einu í Póllandi. Fóm þau
ofan í kjaliara í húsinu einu og fundu
þar meðvitundarlausan mann lokaðan
inni í klefa. Við rannsókn málsins
kom í ljós að maðurinn hafði setið
‘innilokaður í kjallaranum í þtjá
mánuði og allan þann tíma hafði hann
aðeins fengið vatn og brauð.
Hann hafði lent í deilu við nágranna
sinn og endaði deilan með því,
að nágranninn lokaði hann inni í
kjallaranutn og skemmti sér við
að berja hann daglega.
Sunnudagsblað Alþýðublaðsins,
21. ágúst 1938.