Alþýðublaðið - 10.10.1995, Blaðsíða 8
Þriðjudagur 10. október 1995
153. tölublað - 76. árgangur
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
■ Félag íslenskra háskólakvenna
Fjölbreytt starfsemi Félags
íslenskra háskólakvenna
■ Yfirmanni lögfræðideildar Amnesty meinaðuraðgangur inn íKína
„Við getum gert það
sem okkur sýnist"
Amnesty Intemational hefur skrifað
Li Peng, forsætisráðherra Kína, og
mótmælt því að fulltrúum samtakanna
hafi ekki verið leyft að sækja alþjóð-
lega ráðstefnu í Kína. Tveimur fulltrú-
um var neitað um vegabréfsáritun að
alþjóðlegri ráðstefnu þar sem íjalla átti
um spillingu. Þriðja ftilltrúanum, Nic-
holas Howen, yfirmanni lögfræði-
deildar Amnesty, var veitt vegabréfs-
áritun, en síðar var hann boðaður í
Kínverska sendiráðið í London og
honum tilkynnt að vegabréfsáritunin
hefði verið afturkölluð.
Amnesty segir að þessi ákvörðun sé
svar kínverskra stjómvalda við öflugri
starfsemi Amnesty á kvennaráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna í Kína, en þar
vakti Amnesty ítrekað athygli á mann-
réttindabrotum í landinu. „Þeir leitast
nú við að refsa Amnesty Intemational
og þagga niður í umræðu um mann-
réttindamál í Kína - og við höfum sér-
staklega áhyggjur af þeim skilaboðum
sem um leið er verið er að senda bar-
áttufólki í Kína,“ segir í tilkynningu
frá Amnesty.
I trássi við vilja kínverskra stjóm-
valda fór Howen til Kína, með þá
vegabréfsáritun sem honum hafði í
upphafi verið veitt. í Bejing var hon-
um ekki hleypt í gegnum vegabréfs-
skoðun og stóð í tveggja tíma stappi
við útlendingaeftirlitið. Þegar Howen
spurði hvaða ástæður lægju til þess að
honum væri ekki hleypt gegnum
vegabréfsskoðun var honum sagt að
ekki væri hægt að segja honum
ástæðu þess. Þegar hann bað um að ná
tali af fulltrúa utanrikisráðuneytisins
var honum sagt að ekki næðist tal af
neinum þar. Einn starfsmanna útlend-
ingaeftirlitsins sagði við hann: „Við
getum gert það sem okkur sýnist.“
Howen sem er Astrali bað ítrekað
um að fá að hringja í ástralska sendi-
ráðið. Beiðni hans var neitaði og hon-
um var tilkynnt að „aðalskrifstofum-
ar“ hefðu sent þau fyrirmæli að hann
mætti ekki hringja í sendiráðið. Þegar
Howen reyndi tvisvar að komast í
síma var símtólið hrifsað úr höridum
hans. Þegar llugvél á leið til London
bjóst til brottfarar, kröfðust fulltrúar
útlendingaeftirlitsins þess að Howen
færi um borð eri hann krafðist þess
enn að fá að hringja. Þegar hér var
komið sögu greip einn fulltrúanna
þéttingsfast um úlnliði hans og dró
hann alla leið að flugvéladymnum. í
„fylgdarliðinu" vom sex aðrir óein-
kennisklæddir embættismenn. Meðan
á þessu stóð sagði fulltrúinn reiðilega.
,,Þú ert í Kína ekki Ástralíu.
Nicholas Howen er nú í London.
Mikil og blómleg starfsemi verður
hjá Félagi íslenskra háskólakvenna og
Kvenstúdentafélagi Islands í vetur.
Bryddað verður upp á ýmsum nýjung-
um og farið inn á nýjar brautir.
Félag íslenskra
háskólakvenna og
Kvenstúdentafé-
lag Islands heldur
fyrsta félagsfund
vetrarins mið-
vikudaginn 11.
október í Þing-
holti Hótel Holti
þar sem Jón
Böðvarsson ís-
lenskufræðingur
og ritstjóri mun
fjalla um Ástir i
Islendingasögum.
Hefst fundurinn
klukkan 18. með
því að félagskon-
ur borða saman ftskisúpu með nýbök-
uðu brauði. Að erindinu loknu mun
Jón kynna fyrsta námskeið vetrarins
þar sem ijallað verður um Stöðu kon-
unnar í þjóðfélaginu fyrr á öldum.
Námskeiðið verður undir stjóm Jóns
Böðvarssonar og Kolbrúnar Berg-
þórsdóttur og stendur yfir fjögur
mánudagskvöld og byrjar 23. október
næstkomandi.
Nýtt tveggja kvölda námskeið í
Stjórnun með Eygló Eyjólfsdóttur,
fyrrverandi konrektor í Menntaskólan-
um í Hamrahlíð og nýskipuðum
skólameistara, byrjar 18. október. All-
ir em velkomnir á námskeiðin meðan
húsrúm leyfir, en íyririfam skráning er
hjá stjómarkonum.
Félag íslenskra háskólakvenna var
stofnað árið 1928 og er aðili að Al-
þjóðasamtökum háskólakvenna en
þau halda ráðstefhu þriðja hvert ár en í
ágúst síðastliðnum var tuttugasta og
fimmta ráðstefna samtakanna haldin í
Yokohama í Japan. Formaður félags-
ins sótti ráðstefnuna fyrir félagsins
hönd. Rúmlega átta hundruð konur
víðsvegar að úr heiminum unnu sam-
an undir yfirskriftinni: Framtíð kvenna
- framtíð heimsins - menntun til sjálfs-
bjargar og framþróunar. Þessi ráð-
stefna var einnig mikilvægur undir-
búningur fyrir fjórðu heimsráðstefnu
kvenna í Peking, sem haldin var í
sumar.
■ íslandsbanki
Umbi skuldara
Fólk sem lent hefur í verulegum
greiðsluerfiðleikum og telur sig ekki
hafa fengið eðlilega úrlausn sinna
mála varðandi skuldir sínar í íslands-
banka getur nú skotið máli sínu til
umboðsmanns skuldara. Þetta er ný
staða í bankanum og með henni er
reynt svo sem unnt er að mál þeirra
sem tekið hafa lán hjá bankanum
hljóti sem sanngjamasta umljöllun.
Það er Oddur Ólafsson lögfræð-
ingur sem hefur verið skipaður í þetta
starf. Hann hefur mikla reynslu í úr-
lausn erfiðra skuldamála, fyrst í lög-
fræðideild Utvegsbankans og síðan Is-
landsbanka, síðustu árin í lánaeftirliti
bankans. f frétt ftá íslandsbanka segir
að umboðsmanni skuldara sé ætlað að
leiðbeina þeim einstaklingum sem til
hans leita eða beita sér sjálfur fyrir
lausn mála ef hann telji það vera réttu
leiðina.
Ný stjórn Félags íslenskra háskólakvenna: Geirlaug Þor-
valdsdóttir formaður, Margrét Sigurðardóttir varaformað-
ur, Brynja Runólfsdóttir gjaldkeri, Asdís Guðmundsdóttir
ritari, Áslaug Ottesen ritari við útlönd, Kristín Njarðvík og
Ragnheiður Ágústsdóttir meðstjórnendur.
HITAVEITA REYKJAVÍKUR
er ein helsta auðlind íslendinga
• Hitaveita Reykjavíkur hefur í yfir 60 dr veitt
heitu vatni inn d heimili Stór-Reykjavíkursvæð-
isins og til iðnaðar og atvinnuuppbyggingar.
• Hitaveita Reykjavíkur er eitt arðsamasta
fyrirtæki landsmanna og hefur dtt sinn stóra
þdtt í uppbyggingu Stór-Reykjavíkursvæðisins.
• Hita hefur tekið þdtt í grundvallar-
rannsóknum í virkjun jarðvarma, veitingu
vatnsins og d jarðeðlisfræði íslands.
# Hitave er til viðræðu um miðlun sér-
þekkingar sinnar og veitingu þessarar þekkingar
um heimsbyggðina.
HITAVEITA
REYKJAVÍKUR