Alþýðublaðið - 12.10.1995, Page 7
FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
áleitnar spurningar
■ Menn vikunnar eru vitaskuld for-
mannsframbjóðendurnir í Alþýðubanda-
laginu, Margrét Frímannsdóttir og
Steingrímur J. Sigfússon. Á morgun
klukkan 19 liggurfyrir hvort þeirra leiðir
Alþýðubandalagið næstu árin
Steingrímur
& Margrét
Steinarímur Margrét
um Margréti um Steingrím
„Ég hef kunnað ágætlega við
Margréti Frímannsdóttur alveg frá
okkar fyrstu kynnum. Þegar okkar
leiðir lágu fyrst saman var hún sveita-
stjórnarmaður á Stokkseyri og ég byij-
aður í pólitíkinni fyrir norðan. Ég hef
alltaf haft frekar þægilega tilfinningu
gagnvart Margréti og fundist ágætt að
vera í návist hennar. Ég hef ekkert
nema gott um hana að segja sem
manneskju og samstarfsmann í stjóm-
málunum.
Ef ég ætti að nefna það sem mér
finnst einkenna hana þá hefur mér
fundist hún vera mikil tilfmningavera
sem hefur næma tilfmningu fyrir fólki
og högum þess. Það kann maður vit-
anlega vel að meta. Mér finnst hún
hafa sýnt seiglu og dugnað sem stjóm-
málamaður, oft og tíðum við erfiðar
aðstæður. Þetta er krefjandi starf og
tekur sinn toll. sérstaklega fyrir ungt
fólk með fjölskyldu. Það þekkjum við
Margrét bæði mætavel, hafandi geng-
ið í gegnum þetta undanfarin ár, á
sama tíma og við vomm að ala upp
böm. Þannig að ég held að hlutskipti
þeirra sem lenda ungir inn í stjómmál-
um, á sama tíma og þeir eru enn að
standa í bamauppeldi og öðm slíku, sé
kannski ekki alltaf eins öfundsvert og
margir gætu haldið. Ég held að við
Margrét eigum, hvað það snertir, auð-
velt með að setja okkur hvort í annars
spor. Ég vona bara að sú staðreynd að
við bjóðum okkur bæði fram til að
gegna formennsku hafi ekki nein áhrif
á okkar samskipti, sem einstaklinga
og samstarfsmanna í flökknum, enda
sé ég enga ástæðu til þess.“
„Steingrímur J. Sigfússon er
hörkuduglegur, samviskusamur og
það er gott að vinna með honum í
þingflokki. Hann er ágætis húmoristi.
Ég þekki hann sáralítið í einkalífi, en
hann virðist vera mikill ijölskyldu-
maður og pabbi, á þessa þijá feikna
duglega stráka.
Mér fannst mjög gaman að sjá
Steingrím á heimaslóðum, en það
upplifði ég í fyrsta skipti núna í fund-
arherferð okkar. Þegar við komum að
Gunnarsstöðum þá sá maður alveg
nýja hlið á honum. Þá kom greinilega
í ljós hvað honum þykir óskaplega
vænt um heimaslóðimar. Hann sýndi
okkur allt þama með sýnilegu stolti
heimamannsins. Sú hlið sem hann
sýndi þá var af miklu léttari og opnari
einstaklingi en maður sér í pólitísku
þrasi á þingi. Ég vildi gjaman sjá
meira af þessum opna einstaklingi í
daglegu Kfi stjómmálanna.“
■ Vísbendingaleikur Alþýðublaðsins
Spurt er
1 Þekkirðu manninn?
Alþýðublaðið heldur í dag áfram með laufléttan spumingaleik, þarsem reynir á hversu mannglöggir lesendur em. Spurt
er um menn úr öllum áttum, íslendinga jafnt sem útlendinga, h'fs og liðna. Spumingamar em 10 og em gefnar þijár vís-
bendingar með hverri spumingu. Sá sem svarar rétt eftir fyrsm vísbendingu fær þijú stig, tvö stig fást fyrir rétt svar eftir
aðra vísbendingu og eitt stig ef svarið kemur eftir þriðju vísbendingu. Lesendur geta mælt þekkingu sína við svör keppend-
anna Loga Bergmanns Eiðssonar og Egils Helgasonar, hér að neðan.
FYRSTA VÍSBENDING ÖNNUR VÍSBENDING ÞRIDJA VÍSBENDING
1 Hann var íslenskt skáld sem spurði: A mér þá alltaf að líða illa? Hann dó á Vopnafirði, 27 ára gamall. Hann sveimaði einn yfir kaldan eyðisand.
CSI Hún er alþingismaður, fædd 1954, og hefur millinafnið Sæunn. Hún kemur úr litlu þorpi og varð oddviti aðeins 28 ára gömul. Á fóstudag kemur í Ijós hvort hún verður formaður stjórnmálaflokks.
CO Hann setti á fót fyrstu íslensku prentsmiðjuna. Hann var guðsmaður og skáld, og að eigin sögn djarfur og hraustur við Dani. Hann var hálshöggvinn ásamt sonum sínum árið 1550.
4 Hann var fyrsti fonnaður Alþýðusambands íslands og þarmeð fyrsti formaður Alþýðuflokksins. Hann hafði millinafnið November og var mikfll bar- áttumaður fyrir bættum kjör- um sjómanna. Sonur hans skrif- aði vinsælar barnabækur. Togari er nefndur eftir honum.
5 Hann var fæddur á Englandi og varð fræg Hollywood- stjarna, hét upphaflega Archibald Leach. Hann giltist finun sinnum, önnur eiginkona hans var auð- kýfingurmn Barbra Hutton, sú fjórða Dyan Cannon. Meðal kvikmvnda þessa róm- aða kvennagulls eru Philadelp- hia Story, Notorius, North by Northwest og His Girl Friday.
CD Islenskur rithöfundur sem fæddist 4. október 1930 á Neskaupstað. Meðal verka hennar eru leikritið Hvað er íblýhólknum? og smásagnasafnið Veisla undir grjótvegg. v" Leigjandinn er frægasta smásaga hennar og skáldsagan Gunnlaðar saga hlaut mikið lof.
7 Hann fór í sigUngu um Kyrrahafið 1831-36. Á ferðalaginu lagði hann gruim að einu frægasta riti 19. aldar. Það heitir á íslensku Uppruni tegundanna við náttúruval.
00 Hann lék um hríð með meis- taraflokki Vfldngs en fór ungur í atvinnumennsku. Hann var á 18. ári þegar hann lék fyrsta landsleik sinn í fótbolta fyrir ísland. Það var árið 1979. Hann skoraði einu sinni fjögur mörk í landsleik. Leikurinn gegn Tyrkjum var 60. landsleikur hans.
9 Hann var ítalskur, uppi á 13. öld, orti meðal annars Sólarsöng. Hann var kaupmannssonur, svallsamur í æsku en gekk guði á hönd. Sagt er að hann hafi skrafað við fugla. Munkaregla er við hann kennd.
10 Hann er tónlistarmaður, fæddur árið 1951 í Hafnarfirði. Sagt er að ungir menn hafi á sínum tíma brotið í sér tennur til að líkjast honum. Á erlendum vettvangi gegnir hann nafninu Bo Halldorson.
Glæsilegt
stigamet
Egils!
Egill Helgason virðist geta fært lög-
heimili sitt í spumingaleik Alþýðu-
blaðsins. Ekki er nóg með að hann
hristi keppinauta sína léttilega af sér,
nú setti hann stigamet sem ólíklegt er
að falli, fékk 28 stig af 30 möguleg-
um. Röskleg framganga Loga Berg-
manns Eiðssonar dugði ekki til, hann
hlaut 19 stig og úr því úr leik með
sæmd. En svona gekk þetta fyrir sig:
1. spurning Egill gaf tóninn og
fékk 3 stig en Logi náði í 1.
Egill: 28 stig -
bætti eigið met
um 4 stig.
2. spurning Nú fengu báðir fullt
hús, eða 3 stig. Staðan: Egill 6, Logi
4
3. spurning Egill fékk „bara“ 2 stig
og Logi 1. Staðan: Egill 8, Logi 5
4. spurning Egill komst aftur á
beinu brautina, fékk 3 stig en Logi 2.
Staðan: EgiII II, Logi 7
5. spurning Egill 3 stig, Logi 1.
Staðan: Egil) 14, Logi 8
6. spurning Hvort sem menn trúa
því eða ekki hlaut Egill 3 stig. Logi
fékk 1. Staðan: EgiII 17, Logi 9
7. spurning Egill fékk sín venju-
legu 3 stig og Logi náði í 2. Staðan:
Egill 20, Logi 11
8. spurning: Báðir fengu fullt hús.
Staðan: Egill 23, Logi 14
9. spurning Hér missti Egill af einu
stigi, hlaut 2 einsog Logi. Staðan: Eg-
ill 25, Logi 16
10. spurning Báðir luku keppni
með glæsibrag, fengu 3 stig hvor.
Lokastaða: Egill 28, Logi 19
Logi: Fékk 19
stig, en mætti
ofjarli sínum.
uossjopnEH u|A6jo(g ’ot |S|ssv bjj subjj 6 uasuLiofQng jpujy '8 u|mjbq S9|jei|3 •/_ j|nppsqo>|er babas -g luejg Ajeg -g uos
-s>|e|joq j9qui9AO|\| o«o 'f uosbjv dn>|S!q uop •£ j|nppsuueuj)jj uunæs tpj6je|/\| z p|B>)SB||Bfj uossuop ueþsuyi 't :joas uajj