Alþýðublaðið - 18.10.1995, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
5
María Guðmundsdóttir, fyrrverandi fyrirsæta og fegurðardrottning, þurfti að gjalda frægðina dyru verði,
■ Ingólfur Margeirsson skrifar ævisögu
Maríu Guðmundsdóttur
„Ekki bók um glans-
feril fyrirsætu"
Um næstu mánaðamót kemur út hjá
Vöku-Helgafelli ævisaga Maríu Guð-
mundsdóttur. Það er Ingólfur Marg-
eirsson sem skráir sögu Maríu og
nefnist hún María- konan bak við
goðsögnina. Alþýðublaðið náði tali af
Ingólfi og forvitnaðist nánar um verk-
ið.
Nú hefur áður verið reynt að skrá
œvisögu Maríu Guðmundsdóttur, en
það verk gekk ekki upp. Afhverju tekst
þér syona miklu betur?
„Ég get náttúrlega engu svarað um
fyrri tilraunir. En það tókst mjög góð
samvinna milli okkur Maríu og við
áttum mjög gott samstarf, átakamikið
á köflum, en í heildina vandræða-
laust.“
Afhverju ertu að skrifa þessa sögu?
„I fyrrasumar færði María í tal við
mig hvort ég væri tilleiðanlegur að
skrifa ævisögu hennar. Ég sagði henni
að ég væri reiðubúinn að skoða málið.
En ég tók fram við hana að ég hefði
engan áhuga á að skrifa glansmynda-
útgáfu af ferli fyrirsætu, heldur hefði
ég áhuga á hinni sönnu sögu hennar.
Hún tók strax vel í það og sagði mér
undan og ofan af lífi sínu. Mér varð
fljótlega ljóst að þama væri mjög ein-
stæð saga á ferðinni. Bæði er þetta ifá-
sögn konu sem hefur náð miklu lengra
en flestir Islendingar í alþjóðlegum
vettvangi, og hefúr líka þurft að borga
miklu hærra verði fyrir frægðina en
flestir hafa ímyndað sér hingað til.
Það sem kom mér svo á óvart, og
„Einstæð saga á ferðinni", segir
Ingóifur Margeirsson.
varð til þess að ég ákvað að taka verk-
efnið að mér, var þegar hún lýsti lífinu
bak við glæsitjöld tískuheimsins.
Sagði ffá rótleysinu, einsemd fyrirsæt-
anna og þessum harða og frrrta veru-
leika, þar sem hinir sterku lifa af en
hinir veiku verða undir og gjalda jafn-
vel fyrir þátttökuna með lífi sínu.“
Er hún sátt kona í dag?
„Svona eins og hægt er að vera. Já,
ég held hún sé nokkuð sátt í dag. Hún
er búin að gera upp sitt líf, og það
gerðist ekki hvað síst vegna þessarar
samvinnu okkar. Hún var að miklu
leyti að gera upp líf sitt meðan við
vorum að vinna bókina. Líf hennar var
búið að vera svo mikill flótti ffá raun-
veruleikanum."
Hvaða form er á þessari bók?
„Ævisagnahöfundur hefur ekki leyfi
til að leika sér að staðreyndum, það
eina sent hann getur leikið sér að er
formið. Ég reyni að nýta það frelsi.
Verkið er sett upp í fyrstu persónu.
Inn í það er fléttað mikið af draumum,
því María hefur skráð niður flesta
drauma sína og þeir gera bókina. að
mínu mati, oft lýríska á köflum. Síðan
hef ég reynt að hafa mikinn hraða í
frásögninni. Líf Maríu hefur verið svo
hratt."
Hvaða viltu segja við þá sem halda
því fram að bœkur um þotuliðið svo-
nefnda einkennist yfirleitt afyfirborðs-
mennsku?
„Þá get ég náttúrlega sagt sem svo
að þessi gagnrýni á vissulega rétt á sér
ef einungis er verið að skrifa um þotu-
liðið sem ríkt og frægt fólk. Með til-
vísun í bókmenntaheim Islendinga má
benda á að Islendingasögumar fjalla
að mestum hluta um þotulið þjóðveld-
isaldar. En það er ekkert ómerkilegra
að skiifa um Hollywood leikara held-
ur en verkakonu að vestan, svo fram-
arlega sem höfundurinn veit hvað
hann er að gera og viðkomandi er til-
búinn að gera upp líf sitt. Bókin um
Maríu er ekki bók um glansferil fyrir-
sætu. Hún er þvert á móti uppgjör
hennar við glans- og þotuheiminn.
Hún talar um erfiðleika sína í bemsku
og hvemig það púsluspil eltir hana allt
lífið. Hún þurfti að gjalda frægðina
dým verði. Ég er illa svikin ef foreldr-
ar hugsa sig ekki um tvisvar, eftir lest-
ur þessarar bókar, áður en þeir senda
dætur sínar á þennan markað.“
■ Lára Margrét um konur og völd
„Hef orðið vör við karlrembur"
Baráttan um völd er yfirskrift fyrir-
lestra sem alþingismennirnir Lára
Margrét Ragnarsdóttir, Jón Bald-
vin Hannibalsson og Svavar Gests-
son flytja á Sólon Islandus í kvöld
klukkan 21.00. Dagskráin er þáttur í
jafnréttisdögum Stúdentaráðs, sem nú
standa yfir. Alþýðublaðið náði sam-
bandi við einn þátttakenda, Láru
Margréti Ragnarsdóttur og bað hana
að gera grein fyrir áherslum í fyrir-
lestri sínum.
„Ég ætla að ræða um konur og
völd. Af hverju konur hafa ekki fengið
völd og hvað konur þurfa að gera til
að ná völdum," sagði Lára Margrét.
„Síðan hef ég hugsað mér að ræða um
reynslu mína af þeirri valdabaráttu
sem fram hefur farið, bæði í atvinnu-
lífinu og það sem ég hef séð í starfi
mínu sem alþingismaður. Ég mun
ræða hvað mér sýnist þurfa að breyt-
ast í þjóðfélaginu til að konur nái
þeim völdum sem þær óska eftir."
Hvað er stœrsta vandamálið?
„Vandamálið liggur hjá konum.
Lára Margrét: Ég ætla að ræða um
konur og völd.
Vandamálið liggur hjá körlum.
Vandamálið liggur í þjóðfélaginu.“
Áherslur íjafnréttisumrœðunni hafa
breyst á siðustu árum. Harði femín-
isminn er úti.
„Já, mér finnst fólk vera meira að
ræða hvemig kynin eiga að tala sani-
an. Mér finnst það jákvæð þróun. Ég
er búin að vera á vinnumarkaði í næst-
um tuttugu og átta ár og hef mjög
mikið unnið með körlum og oft og tíð-
um verið eina konan. Eg hef nær
aldrei orðið vör við leiðindaviðmót
vegna þess að ég væri kona En það
hefur auðvitað komið fyrir að ég hef
orðið vör við karhembur, og ekki síst
vegna þess að ég hef verið í þannig
starfi að þar hefur verið tekist á um
völd.“
Nú hefurðu tvo flugmœlska þing-
menn með þér í kvöld. Hvemig finnst
þér að slást í hóp með þeim?
„Ég geri hlutina bara eins og ég vil
gera þá og þeir gera þá eins og þeir
vilja og svo sjáum við til.“
Heldurðu að þessir þingmenn séu
mjög jafnréttissinnaðir íeðli sínu?
„Ég er nú ekkert svo viss um það,“
sagði Lára Margrét að lokum.
■ Prestar í sagnaham í Hlaðvarpanum
„Prestum er
nauðsynlegt að kunna
að segja sögur"
f haust ákvað
Kaffileikhúsið að
efna til starfs-
greinasögukvölda í
bland við önnur.
Fyrsta sögukvöldið
þeirrar tegundar
verður á miðviku-
dagskvöld og þá
munu fimm prestar
segja sögur. Þeir
eru Arni Pálsson,
Dalla Þórðardótt-
ir, Gunnar Sigur-
jónsson, Irma
Sjöfn Óskarsdótt-
ir og Kristján Valur Ingólfsson. f
tilefni Prestakvöldsins náði Alþýðu-
blaðið tali af Döllu Þórðardóttur,
Prestasögukvöld, hvað gera prestar
þá? •
„Við segjum alls kyns sögur sem
okkur koma í hug úr starfi og lífi.“
Er nauðsynlegt fyrir presta að
kunna eitthvað fyrir sér í undirstöðuat-
riðum sagnalistar?
„Já, ég held það. Þegar við erum að
koma boðskapnum áfram, hvort sem
það er í sunnudagaskólanum, til ferm-
ingarbama, eða í predikun, þá álít ég
að nauðsynlegt sé að setja orð sín í
þann búning að textinn verði eins og
saga, vekji áhuga og festist í huga
fólks. Ræðurnar eru að sumu leyti
fræðsluerindi og að sumu leyti eru
þær sögur. Þess vegna finnst mér að
okkur sé nauðsynlegt að kunna að
segja sögur, svo við getum komið er-
indinu vel til skila og vakið áhuga á
því.“
Heldurðu að við séum að einhveiju
leyti að glata niður sagnahæfileikan-
um í þessu einkennilega hraða þjóðfé-
lagi sem við búum í?
„Ekki held ég það. Mér finnst það
einmitt áberandi við starfssystkini mín
hversu dugleg þau eru að tjá sig, til
dæmis í útvarpi. Þannig að áhuginn á
sagnalistinni lifir innan prestastéttar-
„Áhuginn á sagnalistinni iifir innan
prestastéttarinnar," segir Dalla
Þórðardóttir, sem er ein þeirra
presta sem láta Ijóst sitt skína á
Prestakvöldi í Hlaðvarpanum á
miðvikudagskvöld.
innar, eins og annars staðar í þjóðfé-
laginu."
En hvað með áhuga bama? Hvemig
bregðast þau við Biblíusögunum sem
þú segir þeim í sunnudagaskólanum?
„Þau hafa ákaflega mikinn áhuga,
bæði á sögum úr Gamla- og Nýja
testamentinu. Þau muna sögumar og
þykja þær skemmtilegar. Eg gæti til
dæmis nefnt sögumar af kraftaverkum
Jesú, sömuleiðis þegar hann kallar á
lærisveinana og þeir fara og fylgja
honurn."
Hvaða sögur ætlar þú að segja á
þessti kvöldi?
„Ég er með það í mótun. Eitthvað
verður af sögum úr daglega starfinu.
Það er af nógu að taka.“
Svona kvöld byggjast kannski á þvf
að segja aðallega fyndnar sögur, eins
, konar langa brandara?
„Ég veit það ekki. Sögumar em lík-
lega af ýmsum toga. Jú, er ekki alltaf
beðið eftir því að það komi eitthvað
fyndið.“
pSa Verkamannafélagið
W Dagsbrún
Félagsfundur verður haldinn í Bíóborg (gamla Austur-
bæjarbíó) fimmtudaginn 19. október kl. 13.15.
Fundarefni er aðeins eitt:
Uppsögn kjarasamninga.
Gert er ráð fyrir stuttum fundi. Félagsmenn fjölmennið.
Komið beint úr vinnu og sýnið afstöðu ykkar.
Stjórn Dagsbrúnar.
I|Í Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar f.h. sjálfseignar-
stofnunarinnar Skógarbæjar, óskar eftir tilboðum í jarð-
vinnu vegna byggingar hjúkrunarheimilis að Árskógum
2 í Reykjavík.
Helstu magntölur eru:
Uppgröftur: 24.000 m3
Sprengingar: 100 m3
Fylling: 8.000 m3
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, að Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík, gegn kr. 15.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 31.
október 1995, kl. 14.00 f.h.
Skógarbær er sjálfseignarstofnun um byggingu og
rekstur hjúkrunarheimilis. Stofnaðilar eru m.a. Reykja-
víkurborg og Reykjavíkurdeild Rauða kross íslands.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800