Alþýðublaðið - 08.11.1995, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 08.11.1995, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 1995 ALÞÝÐUBLAÐK) 3 s k o d a n i r Þáttur unga fólksins í störfum mínum fyrir hreyfingu ungra jafnaðarmanna undanfarinn ára- tug hef ég verið þeirra forréttinda að- njótandi að kynnast flokkssystkynum mínu víðsvegar að úr heiminum, þó vitaskuld flestum af Norðurlöndum. Jafnaðarmannaflokkar eru afarmargir vítt og breytt um heiminn og mynda með sér samtök, þar sem félagar í þeim skiptast á skoðunum og reynslu. Þeir eiga einnig oft á tíðum með sér náið samstarf, sem hefur skilað okkur friðvænlegri heimi. Pallborðið Dæmi um þetta er mér ofarlega í huga nú vegna hins hörmulega morðs á Itzhak Rabin, forsætisráðherra ísra- els og leiðtoga þarlendra jafnaðar- manna. Það var ekki haft í hávegum að í allnokkum tíma áður en friðars- samningar ísralesmanna og Palestínu- manna náðust í Osló fyrir nokkrum missemm, hafði ungliðahreyftng ísra- elska Verkamannaflokksins átt í eins- konar tilraunafriðarviðræðum við unga Palestínumenn, fyrir tilverknað og milligöngu ungara jafhaðarmanna norskra. Þessar hreyfingar voru búnar að kortleggja það sem fara þyrfti fram í friðarviðræðum jafnaðarmannanna Rabins og Peresar fyrir hönd Israels og Arafats fyrir hönd Palestínumanna, með milligöngu norska utanríkisráð- herrans og jafnaðarmannsins Johans Jörgen Holst. Þama voru ungir stjómmálamenn notaðir til að koma friðarviðræðum af stað án þess að fjölmiðlaheimurinn allur fylgdist með með öndina í háls- inum og gæfi andstæðingum friðarins færi á að drepa viðleitnina í fæðingu. Ástæðan fyrir því að ég er að nefna þetta nú eru greinarskrif nokkurra ungmenna í Alþýðuflokki og Alþýðu- bandalagi að undanförnu þar sem menn hafa gælt við hugmyndina um að bræða þessa flokka saman í stóran jafnaðarmannaflokk. Flokk sem hefði ámóta fjöldafylgi og jafnaðarmanna- flokkar hafa á hinum Norðurlöndun- um. Undanfarin þijú ár hefur ungt fólk úr þessum flokkum, svo og úr Kvennalistanum og á stundum Fram- sóknarflokknum átt í misinnilegum viðræðum um fortíð og ffamtíð þess- ara flokka og hvort einhverjir þeirra eða þeir allir gætu átt með sér ein- hverskonar samstarf sem væri í ætt við starf innan stjómmálaflokks, en ekki á milli stjómmálaflokka. Ég full- yrði að Reykjavíkurlistinn er sprottinn úr þessum jarðvegi, þar sem „eldri deildin“ tók við þegar jarðvegurinn hafði verið undirbúinn. Þó svo að samvinna jafnaðarmanna uppi á íslandi kunni að vera smámál samanborið við nauðsyn þess að ná sáttum fyrir botni Miðjarðarhafs, þá hvílir hún þungt á mörgum innan flokkanna sem taldir eru vera til vinstri í stjómmálum dagsins í dag. Ég hef sagt það áður að ég tel mig eiga afar mikla hugmyndafræðilega samleið með formanni Alþýðuflokks- ins, Jóni Baldvin Hannibalssyni, en ég er ekki fjarri því að Jón ætti meiri möguleika á að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd, þegar hann væri búinn að sannfæra félaga sína í „Stór- um jafnaðarmannaflokki" um ágæti þeirra (því menn eiga þó möguleika á að sannfæra samheija sína, en aldrei andstæðinga.) Þess vegna vil ég hvetja félaga mína í hreyfingu ungra jafnaðarmanna að taka áskomn Roberts Marshall, for- manns samtaka ungs Alþýðubanda- lagsfólks og ganga til viðræðna við hann og aðra í hans hreyfmgu sem til- Þó svo að samvinna jafnaðarmanna uppi á ís- landi kunni að vera smámál samanborið við nauðsyn þess að ná sáttum fyrir botni Mið- jarðarhafs, þá hvílir hún þungt á mörgum inn- an flokkanna sem taldir eru vera til vinstri í stjórnmálum dagsins í dag. búnir em til að velta fyrir sér mögu- leikum á samstarfi þessarra flokka, þar sem útkoman væri ein hreyfing með kjörorð jafnaðarmanna, ættuð úr frönsku byltingunni, að leiðarljósi: „- Frelsi, jafnrétti, bræðralag." Það verð- ur fróðlegt að sjá hvort unga fólkinu tekst ekki að plægja akurinn svo hann gefi af sér uppskem í þetta skiptið eins og áður. Ég get bent á einn útgangspunkt í þessum viðræðum sem sagan hefur kynnt okkur. Um sameiningu er ein- ungis að ræða ef meginstoðimar Al- þýðuflokkurinn og Alþýðubandalagið sanieinast sem stofnanir. Þó æskilegt sé að aðrar jafnaðarsinnaðar stjóm- málahreyfingar séu þátttakendur í ferl- inu, þá eru A- flokkarnir lykillinn. Annar flokkurinn getur unnið tíma- bundinn „sigur“ á hinum með því að innlima klofningshópa en annars held- ur stríðið bara áfram eins og ekkert hafi ískorist._____________________ Höfundur er varaþingmaður Alþýðuflokksins í Reykjavík. Eftir að textavarpið fékk loks alíslenska stafi hafa vinsældir þess vaxið og ný stendur til að brydda uppá ýmislegri nýbreytni. Þannig hefur Jón Kalman Stef- ánsson skáld nú verið feng- inn til að sjá um þátt á texta- varpinu, „Ljóð vikunnar", og var hann sérstaklega styrktur af Menningarsjóði útvarps- stöðva í þessu skyni. Um helgina verðurfyrsti þáttur- inn, og þar heyrum við að til sýnis verði glænýtt Ijóð eftir Hannes Sigfússon. Fram að jólum verður öll áhersla lögð á að kynna nýmeti, en eftir það mun Jón Kalman ætla að kynna skáld frá ýms- um tímum. Auk þess að geta ornað sérfyrir Ijóð geta les- endur textavarpsins gluggað í skrif Jóns Kalmans um ein- stök skáld... Alltaf fjölgar kaffihúsun- um í miðbænum og nú er svo komið að Ingólfs- stræti getur farið að keppa við Klapparstíg sem lífleg- asta hliðargata bæjarins. Við höfum sagt frá því að innan tíðar verður opnuð ný knæpa þarsem verslunin Ól- íver var til húsa, og þá mun ennfremur von á því að hús- ið við hliðina, á horni Hverf- isgötu og Ingólfsstrætis, verði lagt undir kaffi og list. Hannes Sigurðsson list- fræðingur hefur augastað á þessu gamla og fallega húsi og hefur í hyggju að nýta efri hæðina sem sýningarsal en þá neðri sem kaffihús. Við heyrum að Gerðuberg verði jafnvel með í ráðum, en starfsemi þeirra hefur blómstrað í Breiðholtinu síð- ustu árin... /■ Ur borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík heyrum við að þar riki lítil stemmning. Sjálf- stæðismenn eru að átta sig á hinum grimma veruleika í minnihlutanum, og áhuga- leysi og doði einkennir starf- ið. Lítið ber á tillöguflutningi og sjálfstæðismenn hafa verið mjög máttlausir í stjórnarandstöðu gegn R- listanum og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur. Einn úr borgarstjórnarflokki sjálf- stæðismanna segir að nú sé byrjað að ræða um að byggja þurfi upp nýjan leið- toga fyrir næstu kosningar, í stað Árna Sigfússonar sem hefurfráleittglansað síðustu misserin. Eina vandamálið sjálfstæðis- manna er, að enginn virðist vita hver geti tekið við og skákað Ingibjörgu Sólrúnu... Flóa-strákar. f imm á förnum vegi Eigum við að veita rúmensku stúlkunni hæli? Magnús Guðmundsson verslunarmaður: Já, já. Al- veg endilega. Sigurður Örn Guðbjörns- son nemi: Auðvitað. Hvort sem það er af pólitískum eða mannúðar ástæðum. Hlín Ingólfsdóttir húsmóð- ir: Já, án umhugsunar. Svana Birna Gerber hús- móðir: Ég veit það ekki. Sennilega er það skynsamlegt. Berglind Smáradóttir vinnur í heilsurækt: Nei, alls ekki. Hún á bara að vera heima hjá sér. m e n n Ég hef beitt sömu aðferðum við kindina og hundana mína og ég held að sem lamb hafi hún talið sig vera hund, væntanlega íslenskan fjárhund. Það eru auðvitað tak- mörk fyrir því hvað hægt er að kenna henni og hún getur til dæmis ekki iært að setjast Það er kindum ekki eðlilegt Ásta Dóra Ingvadóttir hundaþjálfari um „fjárkind" sem hún hefur þjálfaö. DV í gær. Sennilega er til of mikils mælst að þjóðin eignist staðfasta stjómmálamenn sem hafa sömu sannfæringu og siðferði og pöpullinn á götunni - en það sakar ekki að vona. Garri Tímans í gær. Það fer vitaskuld eftir smekk fólks hversu það kann að meta grautargerð einsog þesa. Líklega þykir þeim mest gaman á sýningunni sem hafa fengið sér nokkrum sinnum í glas áður en hún hefst Leikdómur Gunnars Stefánssonar um Sápu þrjú og hálft í Kaffileikhúsinu. Tíminn í gær. Ríkisendurskoðun færir fram sannfærandi rök fyrir því, að fréttastofur RÚV eigi að sameina. Arni Mathiesen í Morgunblaðinu í gær. Fyrirsætan Jerry Hall, eiginkona rokkarans síunga Mick Jagger, hefur alis ekki tapað fegurð sinni, þótt hún sé komin vel á fertugsaldurinn. Morgunblaðiö í gær. Einsog öllum sönnurn gyðingum líður mér mjög vel. Mér líður meir en vel. Hann fékk það sem hann átti skilið. Arie Bar-Yosef landnemi á Vesturbakkanum um morðið á Rabin. DV í gær. Og rétt einsog aðdáendur fagurs máls og stíls vita að hverju þeir ganga hjá skáldinu er víst, að unnendur eldri kveðskapar Þorsteins verða ekki sviknir af því sem hér er fram borið. Ritdómur Þrastar Helgasonar um nýja Ijóöabók Þorsteins frá Hamri, Þaö talar í trjánum. Morgunblaðið í gær. fréttaskot úr fortíð Um kvikmyndir ætlar Helgi Hjörvar að tala í Stúd- entafræðslunni á morgun í Nýja Bíó. Hefír Helgi kynt sér vel þetta efni, og mörgum mun forvitni á að vita að hvaða niðurstöðu menn eru að kom- ast um þetta nýja stórveldi í skemt- analífinu. - Fyrir ofan leiksviðið á Konunglega leikhúsinu í Kaup- mannahöfn standa orðin: „Ej blot til Lyst“, til þess að minna menn á að leiklistin sé ekki eingöngu til skemt- unar, heldur líka til gagns og lær- dóms. - Nú er eftir að vita að hvaða niðurstöðu menn komast um kvik- myndalistina. Alþýðublaðið 2. apríl 1921.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.