Alþýðublaðið - 09.11.1995, Blaðsíða 1
■ Umgengni Landsvirkjunarmanna um Þingvallavatn gagnrýnd á Alþingi
Haga sér eins
og barbarar
^■^^-sagði Össur Skaiphéðinsson alþingismaður.
Bændur við Þingvallavatn hafa
aldrei fengið neinar bætur fyrir hlunn-
indatap vegna virkjunar Efra-Sogs og
þess þegar bráðabirgðastíflugarður þar
brast. Össur Skarphéðinsson sagði á
Alþingi í gær að það myndi tæpast
takast að rækta upp urriðastofninn í
Þingvallavatni meðan landsvirkjun
notaði vatnið sem miðluirarlón. Hann
sagði Landsvirkjunarmenn hafa geng-
ið mjög óvarlega um Þingvallavatn og
hagað sér eins og hreinir barbarar.
A dagskrá Alþingis í gær var íyrir-
spurn til iðnaðarráðherra frá Össuri
urn rennslistruflanir í Soginu. í svari
ráðherra koma fram að 109 sinnum
hefur rennslið í Soginu farið niður fyr-
ir þau mörk sem samþykkt voru sem
skaðlaus árið 1969. Össur taldi að þar
með hefði það samkomulag verið rof-
ið sem fólst í gerðardómi sem gekk ár-
ið 1969 og haft mjög óheppileg áhrif á
klak og uppeldi laxa í Soginu. Einn
ífægasti stórlaxastofn landsins var áð-
ur fyrr í Soginu og veiði góð. Nú er
Össur: Steingrímsstöð stærsta um-
hverfisslys hér á landi.
þama mun minna af fiski og hann er
miklu smærri en áður. Össur velti fyrir
sér hvort þetta væri afleiðing af
rennslistruflunum.
Árið 1969 féll gerðardómur vegna
skaða á lífríki Sogsins sem rennslis-
truflanir í Soginu höfðu valdið. Þær
truflanir eru raktar til byggingu og
starfrækslu virkjananna við Ljósafoss
og írafoss. Veiðiréttareigendur fengu
þá bætur því niðurstaða sérfræðinga
var sú að þetta hefði haft neikvæð
áhrif á hrygningu laxa og uppeldis-
stöðvar. Sigurjón Rist vatnamælinga-
maður gerði rannsóknir á þessu og
komst að því að meðalrennsli þyrfti að
vera 65 teningsmetrar á sekúndu til að
líftíkinu væri ekki hætta búin. Sú við-
miðun var hluti gerðardómsins og
Össur spurði hve oft rennslið í Soginu
hefði farið niður fyrir þessi mörk sem
samþykkt voru 1969.
Össur Skarphéðinsson sagði við
umræðumar að Steingrímsstöð væri
mesta umhverfisslys sem orðið hefði
hér á landi. Þar hefði verið nötað DTT
til að eyða mýi og sennilega líka eytt
bleikju. Við virkjunina hefði verið
reist stífla fyrir mynni Efra-Sogsins og
áin tæmd. Þetta hefði verið uppeldis-
stöð stórvaxnasta urriðastofnsins í
Þingvallavatni og sennilega öllum
heiminum. Urriðinn tempraði sveiflur
murtustofnsins sem hann liftr á. Á síð-
asta áratug varð offjölgun murtu í
Þingvallavatni og hún smækkaði. Öss-
ur var þeirrar skoðunar að allt þetta
hefði valdið miklu hlunnindatapi
bænda við Þingvallavatn án þess að
nokkrar bætur hefðu komið fyrir.
I svari iðnaðarráðherra kom ffam að
unnið væri að því að mynda gönguleið
um stífluna niður í gamla farveginn til
að reyna að byggja urriðastofninn upp
aftur. Össur sagði Landsvirkjun taka
mjög seint við sér og mikil spjöll unn-
in á lífríki vatnsins með því lækka
yftrborð þess svo mjög á vetmm að
hrygningarstöðvar urriðans væru á
þurru.
„Réttvísin gegn Láru miðli Haustið 1940 var ein
innlend frétt sem náði að ryðja tíðindum af gangi seinni heimsstyrjaidar
af forsíðum íslensku blaðanna: þegar Lára Ágústsdóttir miðill var staðin
að og játaði á sig stórfelld svik. Alþýdubladiö rifjar þetta mál upp í dag
auk þess að birta meinfyndna grein sem Halldór Kiljan Laxness skrifaði
um „séra Láru" og andatrúarmennina. Forsíðumynd blaðsins í dag var
einmitt aðalmynd Alþýðublaðsins 26. október 1940 þegar sagt var frá af-
hjúpun svikanna. Myndin var tekin á miðilsfundi hjá Láru miðli eftir að
hún féll í „dá". Henni á vinstri hönd er „líkamningur" sem átti að vera úr
öðrum heimi en var í raun og veru brúða sem eiginmaður Láru bjó tii.
Lára hlaut dóm í hæstarétti ásamt fyrrverandi eiginmanni og tveimur ást-
mönnum sínum. Sjá miðopnu.
■ Sighvatur Björgvinsson í Alþýdubladinu í dag
Alverið í Smugunni
í Alþýðublaðinu í dag, þar sem
hann ber meðal annars saman
ávinning Islendinga af Smuguveið-
unum og stækkun álversins. Sig-
hvatur segir: „Ég hef orðið var við,
að þessi samjöfnuður hefur vakið
undrun margra. „Getur það verið,
að þessi mikla stóriðjuframkvæmd,
sem landsmenn hafa beðið eftir ár-
um saman, skili okkur ekki meiru
en Smuguveiðarnar?“, hafa menn
spurt í undrun. Spurninguna ættu
menn heldur að orða þannig: „Get-
ur það verið, að Smuguaflinn hafi
skilað jafn miklu í þjóðarbúið og
heilt álver?“ Og svarið er: „Já!“
Síðastliðin tvö ár höfum við íslend-
ingar átt álver í Smugunni."
Þá rifjar Sighvatur upp forsögu
þess að íslendingar hófu veiðar í
Smugunni og tilraun Þorsteins
Pálssonar til að stöðva veiðarnar,
og ræðir um samninga okkar við
Norðmenn og Rússa um kvóta í
Norðurhöfum: „Það er mikið fagn-
aðarefni og vekur íslendingum
bjartsýni að tekist hefur að ná
samningum um byggingu nýs ker-
skála við álverið í Straumsvík. Á
sama tíma liggur það í láginni að
verið er að semja um það við Norð-
menn og Rússa að leggja niður „ál-
verið í Smugunni" sem skapað hef-
ur þjóðarbúinu jafn miklar tekjur á
ári síðastliðinn tvö ár og álverinu er
ætlað að gera. Sjávarútvegsráðherra
landsins vildi meira að segja að það
„álver“ fengi aldrei að verða til.“
„Þegar hagfræðingur úr Þjóð-
hagsstofnun var beðinn að meta
ávinning þjóðarbúsins af stækkun
Álversins í Straumsvík þá líkti
hann því við ávinning þjóðarbúsins
af árlegum afla íslenskra úthafstog-
ara úr Smugunni," segir Sighvatur
Björgvinsson í athyglisverðri grein
Ráðherrann sem vildi ekki „álver" í
Norðurhöfum og reyndi að banna
Smuguveiðar.
Seðlabankastjórarnir Birgir fsleifur
Gunnarsson og Steingrímur Her-
mannsson með nýja tvö þúsund
króna seðilinn. A-mynd: E. Ól.
■ Tvö þúsund króna seð-
ill og 100 króna mynt
Kjarval í
veskið í dag
í dag lætur Seðlabankinn í umferð
nýjan tvö þúsund króna seðil og 100
króna mynt. Samtímis verður hætt að
láta 100 króna seðla í umferð, en þeir
verða áfram löglegur gjaldmiðill og
um sinn í umferð jafnhliða hinni nýju
mynt.
Seðlabankamenn segja að með
þessari útgáfu sé stefnt að liprara
greiðslukerfi, aukinni hagkvæmni og
lægri kostnaði við útgáfu gjaldmiðils-
ins. Af reynslu annarra þjóða, þar sem
verðgildi seðla er í hlutföllunum 1:2:5,
en ekki 1:5 eins og hér hefur verið, má
ætla að tvö þúsund króna seðill sé
hentugri í viðskiptum og muni draga
úr notkun þúsund króna seðla.
Nú eru í umferð 6,4 milljónir seðla;
þar af eru 100 króna seðlar um 47%
og er meðalending þeirra aðeins um
eitt ár. Slátta 100 króna myntar er um
þriðjungi ódýrari en prentun seðils og
ending hennar margföld.
2000 króna seðillinn er að útliti til-
einkaður myndlist með andlitsmynd
Jóhannesar S. Kjarvals á framhlið
og er annað myndefni á seðlinum
tengt verkum hans. Seðilinn teiknuðu
Kristín Þorkelsdóttir og Stephen A.
Fairbairn. Fyrsta upplag er tvær
milljónir seðla, en kostnaður við
prentun hvers seðils er 7,75 krónur.
100 króna myntin er með land-
vættamynd á framhlið en á bakhlið er
mynd af hrognkelsi. Myntin er teikn-
uð af Þrestí Magnússyni. Fyrsta upp-
lag er sex milljónir eintaka en kosm-
aður við sláttu hvers penings er 3,65
krónur.
■ Hagstofan
Lottó hækk-
aði vísitölu
Vísitala neysluverðs miðað við verð-
lag í nóvemberbyrjun lækkaði um
0,3% frá því í október. Ýmsar verð-
lækkanir lækkuðu vísitölu en sam-
kvæmt upplýsingum Hagstofunnar olli
25% hækkun Lottómiða 0,13% hækk-
un á vísitölu neysluverðs. Lækkun á
kartöflum um 66% olli 0,25% lækkun
vísitölminar. Ennffemur lækkaði verð á
dilkakjöti, grænmeti og ávöxtum. Und-
anfarna þrjá mánuði hefur vísitala
neysluverðs hækkað um 0,5% sem
jafngildir 1,9% verðbólgu á ári.
Bylting í baráttunni I MplihínCP
viö hrukkurnar! 11T1CIIU,U5C
Á augu: Eye Gontour
Á andlit: Light Texture og
Enrich Texture.
UTSOLUSTADIK: Akranes Apólek. Akureyrar Apólek. Apótek Ausuirbæ|ar, Apólek Auslurlands. Arbæ|ar Apótek, Blönduós Apólck, Borgar Apólek. Borgames Apólek. Breiöliolls Apólek. Garöabæ|ar Apótck. Gratarvogs
Apótek. Hóaleills Apótek, Hafnar Apótek Höfn. Hatnarflarflar Apótek, Heba Slglullrfll, Holts Apótek, Hraunbergs Apótek, Húsavfkur Apólek. Hygea Reykjavfkur Apótekl. Iflunnar Apótek. Ingólfs Apólek. ísaflarðar Apótek,
Kcflavfkur Apólek. Kópavogs Apótek. Laugarnesapótek. Lvfsala llólinavfkur, Lyfsala Vopnaflarflar, 4ísalan Stöðvarflrfli. Mosfells Apótek. Ncsapótek Eskirirfli. Nesapótek Neskaupstaö. Nes Apótek Sclllamam.. Norflurbæiar
Apótck. Olafsvíkur Apótek. Sauöárkróks Apólck. Selfoss Apótek. Stykkisliólnis Apótek. Vestmannaeyja Apólck, Vesturbæiar Apótck.
LAGMARKS OFNÆMI
ENGIN ILMEFNI