Alþýðublaðið - 15.11.1995, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 15.11.1995, Blaðsíða 3
I 1 MIÐVIKUDAGUR 15. NOVEMBER 1995 ALÞYÐUBLAÐH) s k o ð a n i r Valdhroki í sirmi verstu mynd! -gagnvartfjölmiðlum og almenningi „Nýir siðir koma með nýjum herr- um,“ segir máltækið og á það vel við hér á ísafirði eftir bæjarstjómarkosn- ingamar í fyrravor þegar nýr meiri- hluti sjálfstæðismanna og Framsókn- ar tók við stjómartaumunum í bæn- um. Þessir háu herrar sem ráða ferð- inni í meirihlutanum (læknirinn og bæjarstjórinn) þola ekki umfjöllun og umræðu fjölmiðla og almennings Pallborðið J um snjóflóðahættu í Hnífsdal og Skutulsfirði og gera allt til þess að gera umræðuna tortryggilega og ómerka. Hafa þessir menn gengið svo langt í viðleitni sinni til að stöðva umræðuna að jaðrar við skerðingu á málfrelsi og ritfrelsi þegnanna. Einnig eru ofsafengin við- brögð „herranna" við umræðunni undanfarið aðför að skoðanafrelsi einstaklingsins. Ljóst er að þessir menn eru uppi á röngum tíma og á röngum stað í heiminum. Þeir hefðu getað notið sín vel hér fyrr á ámm í Grikklandi herforingjanna eða Sov- étríkjum kommúnistanna. Þeir hefðu þegar getað sýnt valdahrokann og bannað alla óæskilega umræðu. Skulu tvö dæmi umvaldahroka herranna á ísafirði tilgreind hér. Fyrra dæmið er frá því á fyrstu mánuðum þessa árs þegar fjallað var í Ríkisútvarpinu um sérfærðiskýrslu sem svissneska snjóflóðarannsókna- stofnunin (SFISAR) gerði um mögu- leika á snjóflóðavörnum á skíða- svæðinu á Seljalandsdal. Skýrslan var „trúnaðarmál" og hafði með ein- hverjum hætti lekið út til fjölmiðla. I umfjöllum sinni um skýrsluna átti RÚV viðtal við Ólaf Helga Kjartans- son, sýslumann ísfirðinga og for- mann Almannavarna á svæðinu á hættutímum. Sýslumaðurinn sagði sína skoðun á niðurstöðum skýrsl- unnar. Ekki stóð þá á viðbrögðum bæjarstjómar ísafjarðar. Haldinn var fféttamannafundur þar sem harkaleg gagnrýni kom fram á fréttaflutning RUV og þremur dögum síðar (16. febrúar) var haldinn bæjarstjórnar- fundur þar sem gerð var samþykkt um að sýslumaðurinn ætti að „halda kjafti" í framtíðinni og ekki skipta sér að málum sem ekki kæmu hon- um við. Orðrétt var samþykktin svona: „Bæjarstjórn telur rétt að fram komi að Ólafur Helgi sýslumaður er ekki umsagnaraðili um skipulagsmál eða uppbyggingu skíðasvæðisins á Seljalandsdal og sér bæjarstjóm ekki ástæðu til að kynna sýslumanni sér- staklega þau vinnugögn sem unnin eru að beiðni og fyrir Isafjarðarkaup- stað...“ Og síðar í samþykktinni seg- ir: „Lögreglustjóri fer með yfirstjóm almannavama þegar hættuástand rík- ir samkvæmt lögum um Almanna- vamir." Svo mörg vom þau orð. Þau sýna valdhroka í sinni ljótustu mynd. Ekki var talin, eins og fram kemur í sam- þykktinni, ástæða til að kynna yfir- manni almannavama á svæðinu inni- hald skýrslunnar um snjóflóðavamir á Seljalandsdal. Hvað er eiginlega að gerast? Síðara dæmið um valdhrok- ann er frá því í síðustu viku þegar Vestfirska fréttablaðið birti frásögn trúverðugrar roskinnar konu á Isa- firði um snjóflóð sem féll niður á mannvirki við Engjaveg á ísafirði í kringum árið 1950. Nú skyldi ráðist á fjölmiðlana og þagga niður í þeim í eitt skipti fyrir öll. Læknirinn og bæjarstjórinn ósk- uðu eftir lögreglurannsókn á sann- leiksgildi frásagnarinnar. Leitað var til sýslumannsins, þess hins sama sem sagt hafði verið að „halda kjafti" fyrr á árinu og hann beðinn um lögreglurannsókn á málinu. Nú var hann nógu góður til að þjóna til- gangi þeirra þótt fordæmdur hefði verið 16. febrúar síðastliðinn. Það má segja það að viðbrögð sem þessi vegna fréttar í óháðum fjöl- ungis sent þurrt uppsagnarbréf og ekki getið um ástæðu uppsagnanna. Ekki höfðu uppsagnimar verið sam- þykktar eða ræddar í bæjarstjóm áð- ur en til þeirra kom. Það hefði þó verið eðlilegur gangur mála. Bæjarfulltrúar em kosnir af íbúum bæjarins og eiga að vera þjónar um- bjóðenda sinna en ekki herrar þeirra. Umræða um bæjarmálefnin í fjöl- Einnig eru ofsafengin viðbrögð „herranna" við umræðunni undanfarið aðför að skoðana- frelsi einstaklingsins. Ljóst er að þessir menn eru uppi á röngum tíma og á röngum stað í heiminum. Þeir hefðu getað notið sín vel hér fyrr á árum í Grikklandi herforingjanna eða Sovétríkjum kommúnistanna. miðli sé einsdæmi á íslandi og þótt víðar væri leitað. Enn birtist valda- hrokinn í sinni svæsnustu mynd. Meirihluti bæjarstjórnar ísafjarðar hefur enn orðið að athlægi um allt land. Þegar þetta er skrifað (7. nóv- ember) liggur niðurstaða lögreglu- rannsókaar ekki fyrir en vafalaust verður hún á þá leið að umrætt snjó- flóð hafi fallið niður á Engjaveg á sínum tíma. Hvernig bregðast þá ráðamennimir við? Það verður fróð- legt að sjá, því eins og kunnugt er hafa þeir lagt sig í líma við að afs- anna snjóflóð á þessu svæði. Ekki er við öðru að búast en að rannsókn lögreglunnar og sýslumannsins sé hlutlaus og óháð og niðurstaðan verði ekki eftir pöntun meirihluta bæjarstjómarinnar. Fleiri dæmi um valdaníðslu og hroka þessara manna mætti nefna, til dæmis ráðningu félagsmálastjóra í sumar og fyrirvaralausa uppsögn allra starfsmanna sorpbrennslunnar Funa nú eftir að hús og búnaður stór- skemmdust af völdum snjóflóðs. Þar var ekki talin ástæða til að ræða við starfsmennina, heldur var þeim ein- miðlum og meðal almennings á að vera gagnrýnin og fijáls en þó mál- efnaleg. Kjörnir fulltrúar verða að taka þeirri umræðu og upplýsa fólkið um málefni þau er á döfinni eru hverju sinni, án alls hroka, og gera ekki jafnvel ómerkilegustu mál að „trúnaðarmálum". Þegar leynd hvílir yfir störfum kjörinna fulltrúa fólks- ins í bæjarstjóm er ástæða til að ætla að ekki sé allt með felldu. Fordæm- ingar á einstökum mönnum, lög- reglurannsóknir og uppsagnir á áskriftum blaða eru ekki þau við- brögð sem við viljum sjá hjá ráða- mönnum við óþægilegum fréttum fjölmiðla. Ef ætlun meirihluta bæjarstjómar er að þagga niður gagnrýnisraddir með þessum vinnubrögðum, þá vil ég láta þessa menn vita að ég er ekki hræddur við þá og held mínu striki sem fyrr. ■ Höfundur er varabæjarfulltrúi Alþýðu- flokksins á Isafirðir og ritstjóri Skutuls, málgagns jafnaðarmanna á Vestfjörð- um. Greinin birtist í síðasta tölublaði Vestfirska fréttablaðsins. Reykjavíkurborg hefur nú fetað í fótspor Bjöms Bjamasonar og fleiri góðra manna, og sett upp heimasíðu á Internetinu. Tildrög málsins voru þau að tveir stúdentar, Pétur Ö. Richter og Gísli Reynisson sóttu um styrk til Nýsköpunarsjóðs námsmanna til að vinna að uppsetningu upplýsingabanka Reykjavíkur- borgar á Internetinu. Sjóður- inn veitti þeim 250 þúsund króna styrk og Reykjavíkur- borg lagði fram 300 þúsund krónur. Og nú er síðan sem- sagttilbúin. Meðal efnis eru upplýsingar um borgarstjórn, ráð og nefndir borgarinnar og borgarfulltrúa. Þá er þar að finna ítarlegar upplýsingar um stjórnkerfi borgarinnar og skipurit, rekstur og þjónustu einstakra málaflokka á vegum borgarinnar, auk upplýsinga á ensku um ferðaþjónustu í Reykjavík. Áfram verður unnið að þróun gagnabankans, en fyrir þá sem vilja líta á heim- síðu Reykjavíkurborgar er rétt að birta netfangið: http://WWW.rvk.is... Starfsemi Kaffileikhússins í Hlaðvarpanum blómstrar um þessar mundir. Sagna- kvöld, leiksýningar og tónleik- ar eru flest kvöld í viku og dag- skráin jafnan metnaðarfull og áhugaverð. Næsta verkefni leikhússins verður uppfærsla á tveimur einþáttungum. Þar mun Þórhildur Þorleifsdóttir leikstýra manni sínum, Arnari Jónssyni, í verkum eftir Franz Kafka og Ólaf Hauk Símonarson. Einþáttungur Kafka heitir Fyrirlestur fyrir akademíu, og er meðal annars athyglisverður fyrir það, að leikarinn fullyrðir að hann sé api. Ólafur Haukur mun vera að leggja lokahönd á sinn ein- þáttung sem hann semur sér- staklega fyrir Arnar. í Kaffileik- húsinu hefur verið mörkuð sú stefna að gefa öndvegisleikur- um okkar kost á að takast á við verkefni að eigin vali. Eftir ára- mót verða sérstakar sýningar með leikurum á borð við Guð- rúnu Gísladóttur, Krist- björgu Kjeld og Ólafíu Hrönn Jónsdóttur... Kvennalistakonur eru að vonum lítt ánægðar með landsfund sinn, enda sam- dóma álit allra fjölmiðla að hann hafi misheppnast alger- lega og skaðað flokkinn. Þeim öflum vex fiskur um hrygg í Kvennalistanum sem vilja samstarf á vinstrivæng, en til skamms tíma var slík umræða svo gott sem bönnuð innan flokksins. Konur í Reykjavík, sérstaklega í yngri kantinum, eru hinsvegar að velta af sér flokksklafanum, einsog meðal annars kom fram hjá Stein- unni V. Óskarsdóttur borg- arfulltrúa á landsfundinum. Hún er áhugasöm um viðræð- ur á vinstrivæng, rétt einsog Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri. „Flokkseigendur" Kvennó eru hinsvegar óhressir með þessa þróun mála og vilja ekki fórna pólitísku skírlífi samtakanna á altari samein- ingar. Innan Kvennalistans gengur þessi flokkseigenda- hópur undir nafninu dauda loppan-og segir kannski það sem segja þarf... Martröð þeirra sem vanrækja stærðfræði í skólanum. fimm á förnum vegi Hvernig líst þér á nýju 100 krónu myntina? Freydís Ólafsdóttir versl- unarmaður: Það er gott að vera búin að fá 100 krónur í mynt. Soffía Einarsdóttir skrif- stofumaður: Ágætlega, en hún er svolítið áþekk 50 króna myntinni. Eyrún Rós Árnadóttir nemi: Ég hef ekki skoðað hana nógu vel. En ég er svolít- ið hrædd um hækkanir. Magnús Skarphéðinsson formaður þorskavinafé- lagsins: Hrognkelsið er ljótt. Mér finnst að Össur hefði átt að vera með á myndinni. Það hefði samrýmst betur. Katrín Þorbjörnsdóttir dagmóðir: Mér líst mjög vel áhana. v i t i m e n n Hvernig getum við verið hér? Við erum nýflutt í hús sem Króati átti en nú koma Króatamir allir aftur. Aldraður flóttamaður í Austur-Slavoníu í Króatíu. Mogginn í gær. Friðrik er öskrandi skemmtilegur, hlýr, Ijóðrænn og háðskur. Kvikmyndagagnrýnandi norska blaðsins Aftenposten um Cold Fever Friðriks Þórs Friðrikssonar. Mogginn í gær. Ég held nú að það væri skynsamlegt fýrir þær að íhuga það að minnsta kosti að ganga til iiðs við aðra flokka og taka þátt í þeirri jafnréttisbaráttu sem þar fer fram. Margrét Frímannsdóttir um kvennalistakonur. Tíminn í gær. Úrelt og stöðnuð viðhorf í þjóðfélaginu em, einsog Kvenna- listinn hefur margoft bent á, það sem einna helst stendur kvenna- baráttu fyrir þrifúm. Nú virðist hinsvegar svo komið að kreddu- festa og fastheldni við gamalt form innan kvennahreyflngarinnar sjálfrar geti farið að hamla gegn árangri hennar. Forystugrein Morgunblaðsins í gær. Svo forstokkaðir eru valdamenn, að tvö mannskæð snjóflóð á þessu ári urðu ekki til þess, að málsaðilar vitkuðust og drægju gamla skýrslu uppúr skúflúnum. Það var DV, sem gróf upp hina tíu ára gömlu norsku skýrslu og birti rækilega frásögn af henni í gær. Forystugrein Jónasar Kristjánssonar í DV í gær. Seðlabankanum ber að þjóna öllum landsmönnum með útgáfu nothæfra peningaseðla. Því hlutverki hefur hann brugðist. Helgi Hjörvar framkvæmdastjóri Blindrafélags- ins í DV í gær. Blindum er næstum ókleift að greina milli nýja tvöþúsund króna seðilsins og þúsund króna seðils. fréttaskot úr fortíð Langur svefii Læknamir í Jóhannisburg í Suður Afríku hafa í mörg ár fengist við mjög einkennilegt sjúkdómstilfelli. I heilsuhæli borgarinnar er sem sé kvenmaður, sem búinn er að sofa í fimmtán ár. Læknamir hafa nú haft eftirlit með henni í fjögur ár, og það hefir komið í ljós, að hún vaknar að eins einu sinni á misseri, en þær fáu stundir, sem hún vakir, er hún mjög drungaþrungin og með öllu sljó fyrir utan að komandi áhrifum. Þrátt fyrir þennan djúpa svefn virðist hún þrífast hið bezta, því að auðvelt er að veita henni næringu sofandi. Orsök þessa mikla svefns er talin sú, að taugar þessarar veslings konu hafi gengið úr lagi við voveiflegan atburð í lífi hennar. Unnusti hennar dó dag- inn áður en þau ætluðu að giftast. Læknamir em nú úrkula vona um að geta nokkru sinni vakið konuna af þessum langa svefni. Alþýöublaðið 24. júní 1925.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.