Alþýðublaðið - 13.12.1995, Síða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1995
s k o ð a n
MMVBIMÐ
21034. tölublað
Hverfisgötu 8-10 Reykjavik Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Að vaða á skítugum
skónum ...
Nýlega lagði Siv Friðleifsdóttir alþingismaður fram tillögu á
Alþingi þess efnis að ráðherrar gegndu ekki jafnframt þing-
mennsku. Við það tilefni sté einn þingmaður í pontu og taldi til-
löguna tímabæra, enda þyrfti löggjafarvaldið að gæta þess að
framkvæmdavaldið væri ekld eilíflega að vaða á skítugum skón-
um yfir þingið og rétt þess. Ólafur Þórðarson, fyrrverandi alþing-
ismaður, hefur sett fram þá kenningu að við búum ekki við þing-
bundna stjóm, heldur stjómbundið þing. Svavar Gestsson alþing-
ismaður hefur tekið undir þessa skoðun og lýst yfir áhuga á skýr-
ari mörkum framkvæmdavalds og löggjafarvalds. í því efni hefur
hann meðal annars bent á Bandaríkin og sagst dást að kerfinu þar
í landi.
Því ber auðvitað að fagna að þessi brýnu mál beri á góma og
séu rædd af viti innan þings og utan. Þingmenn tala gjaman í
þeim tón að framkvæmdavaldið sé sífellt að taka vald af þinginu
og ráði nú meiru en góðu hófi gegni. Sjaldnast em nefnd skýr
dæmi um þetta eða bent á önnur þjóðþing til samanburðar. Hlut-
verk Alþingis er fyrst og fremst að setja landinu almenn lög, fjár-
veitingarvaldið er alfarið þess og ríkisstjóm á hveijum tíma verð-
ur að njóta stuðnings þingsins eða það þarf í það minnsta að þola
hana í embætti. Ekkert bendir til þess að vald Alþingis sé minna
en sambærilegra stofnana erlendis, en margt bendir til þess að
það sé meira ef eitthvað.
Um áratuga skeið hafa íslensk stjómmál verið gegnsýrð af fyr-
irgreiðslu af ýmsu tagi og mótuðust starfshættir Alþingis mjög af
þessari staðreynd. Helsta áhugamál þingmanna var að komast í
stjómir og ráð hjá framkvæmdavaldinu til að útdeila gæðum, sér-
staklega peningum og leyfum hvers konar. Fyrirgreiðsla af þessu
taginu hefur dregist saman með opnara samfélagi, en hún er þó
engan veginn úr sögunni. Meðferð þingsins á íjárlagafmmvarpi
ríkisstjómarinnar þætti tíðindum sæta víða erlendis, enda sitja
fjárlaganefndarmenn - vanalega af landsbyggðinni - og krukka í
frumvarpinu um nokkurra vikna skeið og nota um leið tækifærið
til að ota sínum tota. Slíkt framferði heyrir til undantekninga í
siðmenntuðum þingræðisríkjum.
Staðreyndin er sú að Alþingi hefur - gagnstætt því sem vana-
lega er haldið fram - vaðið á skítugum skónum yfir framkvæmd-
arvaldið í landinu. Alþingi telur sig húsbónda og herra í háu sem
lágu. Margir þingmenn skilja ekki þá gmndvallarreglu íslenskrar
stjómskipunar að valdið er þrískipt. Þess vegna skipta þeir sér af
meiru en þeim kemur við. Þessi staðreynd er þjóðarmeinsemd og
hefur leitt til gríðarlegrar spillingar og fleiri axarskafta við stjóm-
un ríkisins en flest annað. Banka- og sjóðakerfi landsmanna er
skýrt dæmi um þetta, en einnig mætti nefna íjölda nefnda og ráða
á vegum framkvæmdavaldsins. Ríkisbankamir heyra stjómskipu-
lega undir viðskiptaráðherra, en valdið er á endanum hjá þing-
kjömu bankaráði. Vart er hægt að hugsa sér verra kerfi en þetta -
enda er það gjörspillt - og enginn virðist bera ábyrgð á nokkmm
sköpuðum hlut.
Vikublaðið spaugar
Eitt alvöruþrungnasta blað sem gef-
ið er út á norðurhveli jarðar heitir
Vikublaðið og er ritstýrt á flokkskon-
tór Alþýðubandalagsins. Nú fyrir
stuttu tók blaðið upp á því að lýsa
sósíalsimann dauðan og spruttu upp af
því miklar umræður á síðum blaðsins,
- enda dyggir flokksmenn ekki á því
að taka létt á slíku alvörumáli. Hinn
alvörugefni ritstjóri Vikublaðsins var
þó ekki að segja annað en það sem all-
ir vissu. Utflutningsleið Alþýðubanda-
lagsins var beint upp úr kokkabókum
Alþjóðabankans (enda Ólafur Ragnar
vel lesinn maður) og tilvalin sem
stefnuskrá hvaða hófsama hægriflokks
sem væri.
Pallborðið
Ekki það að allir allaballar hafi skil-
ið um hvað málið snýst. Svavar Gests-
son setti í gang rauð-grænt ljósasjóv
við sjónanrönd, svona um leið og hann
viðurkenndi kosti markaðarins með
semingi, - meira að segja í landbún-
aðarmálum (og hefur eflaust roðnað í
leiðinni). Jöfnuð, meiri jöfnuð, segir
Svavar. Já ennþá meiri jöfnuð, hrópar
Ögmundur Jónasson, en bætir svo við:
mótmælum markaðaslausnum í nafni
jöfnuðar! Ögmundur Jónasson hefði
verið upp á sitt besta í kröftugum mót-
mælum gegn fijálsri utanríkisverslun
fyrr og síðar. Vér mótmælum allir!
Það er því vandlifað á flokkskontór
Alþýðubandalagsins og ábyrgðin mik-
il á herðum Páls Vilhjálmssonar rit-
stjóra. Ráðast ber að rót vandan af al-
vöru, mikilli alvöru. Fagnaðarerindið
mikla um dauða sósfalismans er eitt-
hvað hálf misskilið og nauðsynlegt að
árétta hina skýru línu af fesm. I stað
sósíalismans kemur þjóðleg íhalds-
semi, enda hefur alþýðubandalagið
alltaf verið þjóðlegt mjög og eftir því
íhaldssamt eins og allir vita. Postulinn
Páll reiddi því pennans máttuga sverð
á loft síðasta föstudag: hið nýja dirr-
indí í lofti íslenskra stjómmála er sam-
bland af útflutningsleið Alþjóðabank-
ans í Washington og þjóðlegri heima-
tilbúinni íhaldsstefnu. Þetta dirrindí
gerir Alþýðubandalagið húsum hæft í
stjómarráðinu, sérstaklega til fínni sel-
skapar með Sjálfstæðisflokknum. Ög-
mundur Jónasson getur sofíð rótt því
Páll Vilhjálmsson bætir við: Alþýðu-
flokkurinn hefur nú ánetjast erlendri
hugmyndafræði og vill selja landið til
Brussel. Hann er þvf ekki stofuhæfur
lengur (enda ekki þjóðlegur og alls
ekki íhaldssamur). Sjálfstæðisflokkur-
inn og Alþýðubandalagið geta því
með glans starfað saman í ríkisstjóm
við það verðuga verkefni að vemda
fullveldið, tunguna og menninguna.
Til að árétta þennan magnaða boð-
skap fylgir alvörugefinn leiðari til
vamar Davíð Oddssyni. Þessi leiðari
verður að teljast meðal mestu snilldar-
verka í pólitískum skrifum hérlendis á
síðari ámm. Lítum á valinn kafla: „í
fyrirsjáanlegri framtíð á Island ekki
heima í Evrópusambandinu. Saga
okkar og menning markast af þeirri
sérstöðu að við emm eyþjóð í miðju
Atlantshafi, milli tveggja meginlands-
álfa. Innganga í Evrópusambandið er
okkur álíka nærtækt og að sækja um
aðild að Bandaríkum Norður-Amer-
íku“. Þar sem sagan er svo sérstök
bætir ritstjórinn við firllur siðferðilegr-
ar vandlætingar: „Islenskir vinstri-
menn sem renna hýru auga til Bmssel
ættu að rifja upp feril þeirra manna og
kvenna sem fýnr á öldinni sóttu pólit-
íska sannfæringu lengra austur." Hvað
skyldi nú annars Svavar Gestsson
segja við þessu síðasta: er þetta ekki
einhver villukenning ættuð frá Jóni
Baldvin? Ég hlakka til að lesa svar fé-
laga Svavars í næsta Vikublaði (og
ijómm næstu blöðum þar á eftir)..
Svona er Alþýðubandalagið í dag.
Baðstofumenningin upp á sitt besta.
Þjóðrembuleg. Ihaldssöm. Lágkúru-
leg. Með leyfi að spyija: Hvað er það
nákvæmlega í sögu okkar og menn-
ingu sem gerir aðild að Evrópusam-
bandinu svona skelfilegan kost? Þessu
hefur enginn svarað svo vit sé í. Rit-
stjórinn alvarlegi fer með almennt
snakk um sérstöðu okkar: I hverju er
þessi sérstaða okkar fólgin, - ná-
kvæmlega? Hvað er sameiginlegt með
Evrópusambandinu og Sovétríkjun-
um? Hvað er sameiginlegt með Sovét-
kommum fyrr á tíð og Evrópusinnum
nútímans? Reyndu nú að svara þessu
eins og þú ert langur til, Páll Vil-
hjálmsson. Og að lokum: I uppskrúf-
uðum þjóðlegheitúm þínum ber er-
lendar hugmyndir nokkuð á góma.
Hvaða hugsjónir eða hugmyndir sem
einhveiju skipta í íslensku þjóðlífi eru
ekki erlendar að uppruna?
Það verður fróðlegt að fylgjast með
því hvort næsta Vikublað beri á borð
fyrir okkur jafn alvöruþrungið spaug
og það síðasta. ■
ISvona er Alþýðubandalagið í dag. Baðstofumenning upp á sitt besta.
Þjóðrembuleg. íhaldssöm. Lágkúruleg.
agatal 13. desember
Þegar þingmenn kvarta næst undan skítugum skóm fram-
kvæmdavaldsins, ættu þeir að byrja á því að þvo skítinn af eigin
skóm. Stjórnsýslan í landinu hefur einnig ríka ástæðu til að
kvarta undan skítugum skóm ráðherra og þingmanna. Þingmenn
ættu að minnast þess að fagleg stjómsýsla er mikilvæg fyrir jafn-
ræði borgaranna og vöm þeirra gagnvart duttlungum og gerræði.
Alþingi þarf að taka vinnubrögð sín til rækilegrar endurskoðun-
ar. Eitt af hlutverkum löggjafans er að hafa eftirlit með fram-
kvæmdavaldinu og halda uppi gagnrýni á stjómun þess og störf.
Ein af þeim stofnunum sem þingið hefur til þess að sinna þessu
hlutverki er Ríkisendurskoðun. Hvað verður um skýrslur Ríkis-
endurskoðunar? Er einhver vitleg umræða um þær á Alþingi?
Astand þessara mála er með öllu óviðunandi. Ólafur G. Einars-
son, forseti Alþingis, ætti að beita sér fyrir breytingum í þessu
efni og styrkja þannig starfsemi þingsins og möguleika þess til að
tryggja réttmæta stöðu sína í stjómkerfinu. ■
Atburðir dagsins
1784 Skáldið og gagnrýnand-
inn Samuel Johnson deyr. 1867
Tólf farast / sprengingu þegar
írskir hryðjuverkamenn freista
þess að frelsa félaga sinn úr
fangelsi í Lundúnum. Tilraunin
mistókst. 1922 Hannes Haf-
slein skáld og fyrsti ráðherra
íslands lést, 61 árs. 1923 Alfr-
ed Douglas lávarður, fyrrum
elskhugi Oscars Wildes,
dæmdur í sex mánaða fangejsi
fyrir meiðyrði í garð Winstons ’
Churchills. 1988 Sjötug kona
vann stærsta happdrættisvinn-
ing sem um getur hérlendis, 25
milljónir króna, í.Happdrætti
Háskólans. 1992 Orgel Hall-
gnmskirkju vígt. Það er stærsta
hljóðfæri á íslandi.
Afmælisbörn dagsins
Jón Þorláksson 1744, skáld og
prestur á Bægisá. Heinrich
Heinc 1797, þýskur rithöfund-
ur og skáld. Dick Van Dyke
1925, bandarískur leikari og
skemmtikraftur. Christopher
Plummer 1929, breskur leik-
ari.
Spurning dagsins
Ekki vænti ég, að þú hafir á þér
hundrað kall, sem þú ert hætlur
að nota?
Jóhannes S. Kjarval viö efnamann
sem hann hitti á götu.
Annálsbrot dagsins
1 Múlasýslu átti maður bam við
dóttur sinni og fyrirfór sér
sjálfur, að menn meintu, strax
eptir hennar bamsfæðingu, því
að hans föt fundust eptir á sjó-
arkletti.
Vatnsfjarðarannáll yngri 1671.
Grand dagsins
Það er hægt að granda manni,
en ekki sigra hann.
Ernest Hemingway.
Málsháttur dagsins
Bolur er kyrr, þá burt er haus.
Orð dagsins
Að drepa sjúlfan sig
er syrid gegn Kfsins herra.
Að lifa sjdlfan sig
er sjöfalt verra.
Hannes Hafstein. Hann dó þennan
dag fyrir 73 árum.
Skák dagsins
Enn leitum við fanga í Alfrœði-
bók um skúk eftir dr. Ingimar
Jónsson. Þar er að linna hið
svonefnda Indverska dtemi,
frægt skákdæmi frá fyrrihluta
síðustu aldar eftir Englending-
inn II.A. Loveday. Sérðu
hvernig hvítur mátar í þriðja
leik?
Hvítur mdtar t þremtir leikj-
um.
1. Bcl b4 2. Hd2 Kf4 3. Hd4
Skák og mát!