Alþýðublaðið - 19.12.1995, Side 1
ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1995
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Klisjan blómstrar
Friðrik Erlingsson: Vetrareldur
Vaka-Helgafell 1995
Enginn sem las Benjamín dúfú ætti
að efast um hæfileika Friðriks Erlings-
sonar, því sú fallega og tregafulla
barnabók átti sannarlega innistæðu
fyrir öllu því hrósi sem á hana var
hlaðið. Menn biðu því nýrrar skáld-
sögu Friðriks með töluverðri eftir-
væntingu. Forlagið var hresst að
vanda og óhrætt við að veðja á sinn
hest og því var verkið auglýst sem
„skáldsagan umtalaða“ áður en gagn-
rýnendur höfðu svo mikið sem fengið
hana í hendur. Orðin hafa ræst, en á
annan veg en forlagið ætlaði. Verkið
er orðið umtalað vegna þess að það
brást þeim vonum sem bundnar voru
við það. Það einkennilega er að for-
lagið sem gaf hana út sá ekki gallana
eða vildi ekki sjá þá. Það veitti höf-
undi sínum ekki nauðsynlegt aðhald
og brást honum því gjörsamlega. í rit-
dómi um óboðlega ljóðabók Einars
Más Guðmundssonar sagði Hrafn
Jökulsson að vissulega gætu allir gert
sig seka um hliðarspor en þau ætti
ekki að gera að „opinberu hneyksli
með því að auglýsa þau upp sem
meiriháttar afrek". Þau skilaboð má
Bækur
Vaka-Helgafell sannarlega taka til sín.
Þeir dómar sem hafa birst um verk-
ið eru hingað til á einn veg. Þessi er í
engu frávik ífá þeim. Eitt er þó vert að
hafa í huga. Ef höfundur ætlaði sér að
skrifa fyrirsjáanlegan og klisjukennd-
an eldhúsróman þá má hann vera sátt-
ur við sitt. Það mega þeir einnig vera
sem lesa slíkar sögur af nautn. En ég
trúi því ekki að Friðrik Erlingsson hafi
ætlað sér að skrifa slíka sögu og ég er
einnig sannfærð um að flestir lesendur
hans ætli honum betra hlutskipti en
það að verða svar karlkynsins við
Ingibjörgu Sigurðardóttur.
I sögunni kynnumst við saklausri,
draumlyndri stúlku sem elst upp í litlu
þorpi þar sem þorpsfíflið er hennar
besti vinur. Hún missir foður sinn og
flyst til höfuðborgarinnar með móður
sinni. Við kynnumst borgarsollinn
sem stúlkan verður þó ekki samdauna
því sakleysið er sverð hennar og
skjöldur. Hún er orðin ballerína og
verður ástfangin af ungum drykkfelld-
um og kvensömum leikara. Þegar þar
er komið sögu er nokkuð ljóst hvert
sagan mun leiða. Lesandinn kemst
ekki hjá því að álykta að ungi maður-
inn mun yfirgefa stúlkuna. Og af því
að klisjurnar grassera í sögunni þá
mun hún trúlega vera barnshafandi.
Þetta er einmitt það sem gerist. Það
gerist reyndar sitthvað fleira, en alls
ekkert óvænt. Og það er einmitt það
sem er að - það gerist ekkert í þessari
sögu sem lesandinn getur ekki sagt
fyrir um.
Verkið er yfirborðslegt, fyrirsjáan-
legt og klisjukennt. Persónusköpun er
flöt og ósannfærandi. Verkið er að
sönnu tilfinningaríkt og væri verið að
segja einhverja aðra sögu yrði það
hugsanlega styrkur þess, en þar sem
klisjan fær að blómstra að vild verður
tilfinningasemin að enn einni heng-
ingaról sem kyrkir textann.
Ég held að það sé rétt að gleyma
þessari bók sem fyrst.
Ef höfundur ætlaði sér að skrifa fyrirsjáanlegan og
klisjukenndan eldhúsróman þá má hann vera sáttur
við sitt. Pað mega þeir einnig vera sem lesa slíkar
sögur af nautn. En ég trúi þvi ekki Friðrik Erlingsson
hafi ætlað sér að skrifa slíka sögu og ég er einnig
sannfærð um að flestir lesendur hans ætli honum
betra hlutskipti en að verða svar karlkynsins við
Ingibjörgu Sigurðardóttur.
Athugasemd vegna greinar Jónasar Sen
Til varnar Berkovsky
Það er ekki gott fyrir litla þjóð að vera svo sjálfhverf
að geta ekki metið fólk sem hingað kemur nema
með þeim formerkjum að þeir séu útlendingar og
skrítnir sérvitringar.
Ekki veit ég hvort það er í tísku
í dag eða einhver annarleg pína
sem hrjáir ýmsa ágætustu menn
þessa dagana. Grein Jónasar Sen í
Alþýðublaðinu helgina 7.-10. des.
„Þegar Shumann heyrði rödd illra
anda“ kom við mig og marga aðra
eins og að vera sleginn í andlitið af
unglingi í miðbæ Reykjavíkur.
Hvað er orðið af sómatilfinningu
og virðingu okkar fyrir fólki, sem
hefur gefið okkur öllum jafn mikið
af list og örlæti af eigum sínum og
starfi eins og til dæmis Martin
Berkovsky?
Það er ótrúlegt að píanóleikarinn
Jónas Sen skuli tala um að Martin
Berkovsky hafi á sínum fyrstu tón-
leikum á íslandi barið slaghörpu
sína sundur og saman eins og harð-
fisk og það er líka ótrúlegt að lesa
það að ráðamenn landsins hafi
flæmt hann burt af landinu vegna
þess að Martin Berkovsky væri
alltaf að detta í trans og aðrar
víddir.
Ég veit ekki betur en að Martin
Berkovsky hafi verið einn af okkar
ágætustu píanóleikurum meðan
hann bjó hér á landi. Menn geta
vissulega haft skiptar skoðanir á
túlkun einstakra flytjenda tónbók-
menntanna, en er það ekki einmitt
þess vegna sem við förum á tón-
leika og hlustum á mismunandi
túlkun og tjáningu eða eigum við
ef til vill aðeins að eiga eina
hljómplötu og hlusta á hana því
aðrir spila öðruvísi?
Gæti skýringin á því hvers
vegna Berkovsky fór af landinu ef
til vill legið í einhverju öðru en að
hann berði hljóðfæri sitt eins og
harðfisk, eða félli í trans við
minnsta tilefni? Ættum við ef til
vi 11 að skoða hug okkar betur?
Hvernig er umburðarlyndi okkar
háttað í garð útlendinga sem flytja
til íslands? Erum við ef til vill
gestrisin og góð rétt meðan við er-
um að fleyta rjómann ofan af
þeim, en eigum til að segja hingað
og ekki lengra þegar þeir vilja vera
einn af okkur? Það mætti athuga
hversu margir útlendingar hafa
fengið störf hér á landi, sem telja
mætti ábyrgðarstörf. Hvað eru til
dæmis margir erlendir kennarar
við Tónlistarskólann í Reykjavík?
Er það eitthvað í hlutfalli við
hversu margir erlendir menn og
konur starfa við Sinfóníuhljónt-
sveit íslands eða við hina ýmsu
tónlistarskóla landsins, sem oft eru
taldir undirbúningsskólar undir
Tónlistarskólann í Reykjavík? Ég
spyr margra spurninga, sem ég
held að við hver og einn ættum að
spyrja okkur sjálf að og reyna að
víkka sjóndeildarhring okkar örlít-
ið. Það er ekki gott fyrir litla þjóð
að vera svo sjálfhverf að geta ekki
metið fólk sem hingað kemur
nema með þeim formerkjum að
þeir séu útlendingar og skrítnir
sérvitringar.
Martin Berkovsky er einn af
þeim erlendu tónlistamönnum sem
hér hafa búið og eflt íslenskt tón-
listalíf, það ber okkur að þakka í
stað þess að tala niðrandi um trúar-
reynslu hans og ýja að geðveiki.
Að lokum vil ég minna píanó-
leikarann Jónas Sen, sem og aðra,
á að ekki eru margir sem hafa bor-
ið hag íslensks tónlistarlífs sér fyr-
ir brjósti eins og Martin Berkov-
sky, og nefni ég sem dæmi fjöl-
marga tónleika sem hann hefur
haldið víða um heim ásamt útgáfu
á hljómbandi (kasettu) með píanó-
leik sínum til styrktar Tónlistar-
húsi á íslandi. I mínum huga er
það skaði að okkur tókst ekki að
halda Martin Berkovsky á íslandi,
það hefði gert tónlistalíf á fslandi
ríkara.
Freyja Jónsdóttir
tónlistarunnandi.
Er honum
ekki skvísa
vant
Háskólabíó: Goldeneye
Aðalleikendur: Perce Brosnan,
Isabella Scorupco, Sean Bean
★★★
Aðeins fáeinum dögum eftir að
RQdsútvarpið skýrði ífá auknum ferð-
um rússneskra kafbáta undan strönd-
um Bandaríkjanna hóf Háskólabíó
sýningu á seytjándu James Bond
myndinni (lengi lifir í görhlum glæð-
um). Sver hún sig í ætt við hinar fyrri,
allt frá ferlegu „stunt" foratriði, stökki
manns í teygjukaðli ofan af tugum
metra háum stíflugarði. En það var
fyrir níu árum, að síðar kemur í ljós.
Nú er við nýja gerska íjendur að eiga:
Myrðandi braskara í tygjum við
breyska ráðherra. Berst leikuiinn um
víðan völl, allt frá Miðjarðarhafs-
strönd Frakklands til freðinnar Síber-
íu, og yfir svífa válegar eldflaugar.
Loks berst leikurinn til Kúbu (þar sem
Rússar virðast enn eiga ítök), að skot-
„Kominn er nýr Bond leikari, hinn
írski Pierce Brosnan, og tekst hon-
um býsna vel upp. Er honum ekki
skvísa vant."
stöð eldflauga, hulinni neðanjarðar.
Til fjárkúgunar? En hver stjómar rúss-
nesku mafíunni? Enginn annar en
gamall félagi Bonds (sem hann skildi
særðan eftir í höndum Rússa eftir
stfflustökkið). Kunna þeir hvor á öðr-
um tökin. Kominn er nýr Bond leikari,
hinn írski Pierce Brosnan, og tekst
honum býsna vel upp. Er honum ekki
skvísa vant. Styrkur þessarar Bond
myndar, sem hittna fyrri, er þó um-
fram allt vel útfærð og upphugsuð
spennuatriði, þótt ekki heyri lengur til
nýlundu. Har.Jóh.
Vinnin
1 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ A HVERN VINNING
m 5 af 5 0 4.249.830
B +4af 5 3 143.900
D 4 af 5 69 10.790
EQ 3 af 5 2.965 580
BÓNUSTALA:
19
Heildampphaeð þessa viku:
7.145.740
UPPLYSl'KJÖAR, SlMSiyARI 568 1511 EÐA G'fiÆKÍ
'NR. 800 6511 - TEXTAVARP 453 BIRT MEO FYRIR
IVARA UM PRENTVILLUR
V I K I IV G A
Vinningstölur
miövikudaginn:
13. des. 1995
VINNINGAR
6 af 6
5 af 6
|+bónus
5 af 6
0
4 af 6
Ei
. 3 af 6
|+bónus
m
FJÖLDI
VINNINGA
1
211
703
UPPHÆÐ
Á HVERN VINNING
45.120.000
276.831
54.370
1.630
210
BONUSTOLUR
(21) (25) (34)
Heildarupphæð þessa viku
46.105.871
á fsl.:
985.871
JPPLYSINGAR, SIMSVARI 568 1511 EDA GRÆNT;-
NR. 800 6511 - TEXTAVARP 453 BIRT MEÐ FYRIR-I
VARA UM PRENTVILLUR
fór til Noregs
Húsbréf
Innlausnarverð
húsbréfa í
4. flokki 1992 og
4. flokki 1994
Innlausnardagur 15. desember 1995.
4. flokkur 1992: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 6.328.307 kr. 1.265.661 kr. 126.566 kr. 12.657 kr.
4. flokkur 1994: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 5.407.009 kr.
1.000.000 kr. 1.081.402 kr.
100.000 kr. 108.140 kr.
10.000 kr. 10.814 kr.
Innlausnarslaður: Veðdeild Landsbanka íslands
Suðurlandsbraut 24.
ATH. Útdregin óinnleyst húsbréf bera hvorki vexli
né verðbætur frá innlausnardegi.
[>X] HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
HÚSBRÉFADEILD • SUÐURIANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 569 6900