Alþýðublaðið - 19.12.1995, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 19.12.1995, Qupperneq 3
ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1995 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7 s k i I a b o ð Þjóðskjalasafn Sýning á heimilaum í anddyri Safnahússins við Hverfisgötu hefur verið komið upp sýningu þar sem sýndar em frumheimildir tengdar nokkrum atburðum ársins 1995 sem nú er að ljúka. í fyrsta lagi er minnst tímamóta í sögu Seyðisijarðai'- kaupstáðar, sem átti aldaraftnæli á þessu ári. Sýnd em skjöl varð- andi stofnun kaupstaðarins og allra fyrstu árin í sögu hans. I öðm lagi er miimst aldarafmælis flutnings kirkju að Blönduósi frá Hjaltabakka, en kirkjan var vígð 13. janúar 1895. I þriðja lagi kom út á haustdögum skáldsagan Hraunfólkið eftir Bjöm Th. Bjömsson. Höfund- ur byggði sögu sína að nokkm leyti á skjölum sem varðveitt em í Þjóðskjalasafni. Safnið vill gefa almenningi kost á að sjá með eigin augum sýnishom af heimildum sem bregða ljósi á sögu lands og þjóðar og rithöf- undar og fræðimenn nota við vinnu sína. Styrkir Snorra 77/ Pólverja og Rússa Styrkir Snorra Sturlusonar vom auglýstir fyrr á þessu ári og barst 41 umsókn frá 18 lönd- um. Úthlutunamefnd hefur lok- ið störfum og þau sem hljóta styrki 1996 til þriggja mánaða hvort em Jasek Godek, leikari og þýðandi í Gdansk í Póllandi til að vinna að þýðingum á ís- lenskum þjóðsögum á pólsku og Tatiana Shenyavskaya M.A., stundakennari við Moskvuháskóla til að semja æf- ingabók í íslensku fyrir rúss- neska stúdenta. Það var í tilefhi af 750. ártíð Snorra Sturlusonar 23. september 1991 að ríkis- stjómin ákvað að efna úl styrkja sem kenndir yrðu við nafn hans. Samkvæmt reglum um styrkina skulu þeir árlega boðnir erlend- um rithöfundum, þýðendum og fræðimönnum til að dveljast á íslandi í því skyni að kynnast sem best íslenskri tungu, menn- ingu og mannlífi. Það er stofnun Sigurðar Nordal sem auglýsir styrkina og tekur við umsókn- um en í úthlutunarefhd sitja Ulf- ar Bragason, Helga Kress og Ingibjörg Haraldsdóttir. Nefndin hafði eina milljón króna til ráðstöfunar. Ný bók Um Niflunga- hringinn Stofnun Sigurðar Nordals hefur gefið út bókina Wagner’s Ring and Its Icelandic Sources: A symposium at the Reykjavík Arts Festival, 29 May 1994. Bókin hefur að geyma fimm er- indi sem flutt vom á alþjóðlegu málþingi um Niflungahring Ri- chards Wagners og íslenskar heimildir hans í Norræna húsinu 29. maí 1994. Málþingið var haldið í tilefni af frumflutningi Niflungahringsins á íslandi. Stytt útgáfa hans var flutt á Listahátíð í Reykjavík. Háskólaútgáfan Afarkostir Háskólaútgáfan hefur nú sent frá sér þriðju bókina í ritaröð Heimspekistofnunar og nefnist hún Afarkostir eftir Atla Harð- arson. í þessari bók eru 22 greinar um evrópska heimspeki, sögu hennar, vandamál, kenn- ingar og úrlausnarefni. Textinn er á alþýðlegu máli og að mestu laus við tækniorð, enda er bókin skrifuð til þess að kynna heim- speki fyrir almenningi. Nafh sitt dregur bókin af því hvernig heimspekin bannar mönnum öll undanbrögð og setur hugsun þeirra afarkosti. Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar Nýjar stöður Vegna yfirtöku grunnskólans á næsta ári auglýs- um við eftir: Rekstrarstjóra Helstu starfsþættir: Umsjón með daglegu starfi rekstrardeildar. Áætlanagerð og eftirlit með framkvæmd fjár- hagsáætlunar. Ráðninga- og launamál kennara. Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt og veitt mikilvægri deild styrka forystu. Gerð er krafa um reynslu og þekkingu á rekstri skóla. Ráðið verður í starfið frá og með 1. febrúar 1996 eða eftir samkomulagi. Kennslufulltrúa Helstu starfsþættir: Umsjón með daglegu starfi þjónustudeildar. (Ráðgjafar- og sálfræðiþjónusta) Kennsluráðgjöf, þróunarstarf og aðstoð við skipulagningu skólastarfs. Hæfniskröfur: Framhaldsmenntun á sviði kennslu- og uppeldis- fræða ásamt fjölþættri reynslu af skólastarfi. Ráðið verður í starfið frá og með 1. maí 1996 eða eftir nánara samkomulagi. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf berist skólaskrifstofu Hafnarfjarðar, Strandgötu 4, fyrir 29. desember nk. Um kaup og kjör fer samkvæmt samningum við STH og nánari upplýsingar veitir skólafulltrúi. Bæjarstjórinn í Hafnarfirði. Ungir jafnaðarmenn Skrifstofa sambandsins verður opin til áramóta sem hér segir: Mánudaga og þriðjudaga: 9-13 Miðvikudaga: 12-16 Fimmtudaga: 14-18 Framkvæmdastjórn SUJ §Happdrætti Alþýðuflokksins Dregið hefur verið í Happdrætti Alþýðuflokksins og hlutu handhafar eftirtalinni númera vinning: 1. 987 2. 1716 3. 1080 4. 621 5. 319 6. 1079 7. 1377 8. 958 9. 1925 10. 1784 11. 885 Vinningshafar eru beðnir að hafa samband við skrifstofu Alþýðuflokksins, sími 552 9244, Hverfis- götu 8-10, Reykjavík. Frá menntamálaráðuneytinu Stöðupróf í framhaldsskólum Stöðupróf í framhaldsskólum í byrjun vorannar 1996 verða sem hér segir: Enska föstud. 5. janúar kl. 17.00. Spænska, þýska mánud. 8. janúar kl. 18.00. Franska, ítalska, stærðfræði þriðjud. 9. janúar kl. 18.00. Danska, norska, sænska, tölvufræði mið- vikud.kl.18.00 Stöðuprófin eru opin öllum framhaldsskólanem- endum sem orðið hafa sér úti um einhverja þekk- ingu umfram grunnskóla. tilkynna skal þátttöku símleiðis til skrifstofu Menntaskólans við Hamra- hlíð í síðasta lagi 30. desember í síma 568 5140 eða 568 5155. Auglýsing um starfs- laun listamanna árið 1996 Starfslaun handa listamönnum Hér með eru auglýst til umsóknar starfslaun handa listamönnum árið 1996, í samræmi við ákvæði laga nr. 35/1991. Starfslaunin eru veitt úr fjórum sjóðum þ.e.: 1. Launasjóði rithöfunda, 2. Launasjóði myndlistarmanna, 3. Tónskáldasjóði, 4. Listasjóði Umsóknir skulu hafa borist Stjórn listamanna- launa, menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, á þar til gerðum eyðublöðum fyrir ki. 16.00 mánudaginn 15. janúar 1996. Umsóknirn- ar skulu auðkenndar „Starfslaun listamanna" og tilgreina þann sjóð sem sótt er um laun til. Um- sóknareyðublöð fást hjá menntamálaráðuneytinu. Ath. Hafi umsækjandi áður hlotið starfslaun verður umsókn hans því aðeins tekin til umfjöllunar að hann hafi skilað stjórn listamannalauna skýrslu um störf sín í samræmi við ákvæði 4. gr. laga um lista- mannalaun nr. 35/1991. Reykjavík 15. desember 1995 Stjórn listamannalauna ipÚtboð F.h. Húsnæðisnefndar Reykjavíkur, er óskað eftir tilboðum í eftirtalda verkþætti í 86 íbúðir í Borgahverfi. Fataskápa Málun Eldhúsinnréttingar Gólfdúkalögn Innihurðir Gólfefni (linóleum) Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, að Frí- kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr.10.000,- skilatrygg- ingu, fyrir hvern verkþátt. tilboðin verða opnuð á sama stað Miðvikudaginn 10. janúar 1996, kl. 14:00 e.h. F.h.Byggingadeildar borgarverkfræðings, er óskað eftir tilboðum í jarðvinnu við Engjaskóla í Reykjavík. Helstu magntölur: Uppúrtekt 14.000 m3 Sprengingar/fleygun 1.000 m3 Fyllingar 6.000 m3 Verkinu á að vera lokið 15. mars 1996. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, að Frí- kirkjuvegi 3, Reykjavík, frá og með þriðjudegin- um 19. desember 1995, gegn 15.000,-skilatrygg- ingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudag- inn 10. janúar 1996, kl. 11:00 f.h. Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar Fríkirkjuvegi 3 - Pósthólf 878 - 121 Reykjavík Sími 552 5800 Bréfsími 562 2616 Útboð Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í véla- vinnu við lagningu 132 kV háspennulínu frá að- veitustöð Eyvindará við Egilsstaði til Seyðisfjarðar. Lauslegt yfirlit verksins Línuflokkur RARIK á Austurlandi mun reisa staura og leggja línuna. Verktaki á einungis að fram- kvæma éftirfarandi þrjá verkþætti undir stjórn RA- RIK: 1) Útvega og flytja malarefni á tiltekin stað á vegi eða við vegslóða. Heildarmagn er áætlað um 500- 600 m3. 2) Leggi til minnst 20 tonna beltagröfu ásamt tækjamanni í tímavinnu til að grafa fyrir staurum og aðstoða við reisingu staura. Heildartímafjöldi er áætlaður 500-600. 3) Bora og sprengja klöpp og moka upp úr sprengdum holum fyrir staura þar sem klöpp er í staurastæði. Bora holur fyrir stagfestur (bergbolta) í bergi þar sem þess gerist þörf. Alls er gert ráð fyrir að sprengja þurfi fyrir 140-180 staurum og bora þurfi fyrir 20-30 bergboltum. Bjóðendur geta gert tilboð í allt verkið eða hvern af einstökum þremur verkþáttum þ.e. malarflutning, gröfuvinnu og borun og sprengingar. Til greina kemur að semja við einn, tvo eða þrjá aðila um verkið, þá hvern með sinn verkþáttinn af þremur. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofum Rafmagns- veitna ríkisins Þverklettum 2-4 Egilsstöðum og Laugavegi 118, 105 Reykjavík frá og með þriðju- deginum 18. desember 1995 og kostar hvert eintak kr. 2.500,- Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins Þverklettum 2 - 4 Egilsstöðum fyrir kl. 14.00 miðvikudaginn 10. janúar 1996 og verða þau þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda, sem þess óska. Tilboðin séu í lokuðu umslagi, merkt RARIK 95 005 Rafmagnsveitur ríkisins RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS UfxHdi ojf Laugavegi 118 105 Reykjavik Simi 560-5500. bréfasimi 560-5600 Alþýðublaðið ekki allra

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.