Alþýðublaðið - 12.01.1996, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 12.01.1996, Blaðsíða 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1996 k o m a r Á söguslóðum Komars og Melamids n Fáfengileiki a 11 ra útópía // Þeir eru stundum kallaðir Lenín og Stalín, eða Marx og Engels, póst-sov- éskrar myndlistar. í útliti gætu þeir hins vegar verið náskyldir Gög og Gokke, og list þeirra verið eftir þá alla; hún er sér- kennilegt sambland af alvöru og glensi, auglýsingaskrumi og pólitískri hug- sjónamennsku. Þeir heita Vitaly Kom- ar og Alexander Melamid, betur þekktir sem hið óskráða vörumerki „Komar og Melamid". Þeir eru fæddir og „prógrammeraðir" í Listaskóla Moskvu og hlutu rækilega þjálfun í uppskrúfuðum skólastíl 19. aldarinnar við Listaakademíuna í Strog- anov. Þeir kynntust 1963 í líkhúsi í tengslum við módelnámskeið og hófu að starfa saman tveimur árum síðar. 1 þá daga urðu menn að t'ara eftir settum reglum; þeir sem eitthvað höfðu út á al- sæluríkið að setja frömdu í mesta lagi listræn prakkarastrik á bak við luktar dyr íynr útvalda vini og starfsbræður. Komar og Melamid voru ofvirkir þátt- takendur í þessari undirheimastarfsemi borgarinnar. Leyniþjónustan hafði á þeim augastað og grunaði þá um græsku, sem jafngilti föðurlandssvikum. Til að bytja með var þeim vísað úr ung- liðadeiid Myndlistarsamtaka Moskvu þegar þeir sóttu um leyfi til að halda op- inbera sýningu á verkum sínum. En þeir létu sér ekki segjast heldur skipulögðu þess í stað fjölmenna andófssamsýningu ásámt málaranum Oscar Rabine undir berum himni í útjaðri borgarinnar árið 1974. Hún hlaut síðar viðurnefnið ,Jarðýtusýningin“ og komst í forsíðu- fréttir vestrænna stórblaða. Yfirvöld settu þungavinnuvélar á staðinn og hreinlega jörðuðu sýninguna. Eftir það var ekki um annað að ræða fyrir þá sa- myrkjufélaga en að flýja land. Jarðýtusýningin Svo hljómar frásögn Komars og Me- lamids af þessum atburðum: „Það var rigning svo við urðum að vaða aurbleytuna upp í ökkla. Þetta ber- svæði í Belyayevo er risastórt. Slegnir og velhirtir grasvellir fyrirfinnast ekki í Rússlandi. Um 3-400 manns voru á vappi á svæðinu. Við tókum fram mál- verkin okkar til að stilla þeim upp en þá kom óeinkennisklæddur náungi aðvíf- andi og sagði: „Nei-nei-nei! Við ætlum að planta tijám héma!" Skammt undan voru að minnsta kosti fjórar jarðýtur með hinu gula og bláa skjaldarmerki Moskvu-borgar, í gangi og til reiðu. Við fluttum okkur um set og reyndum að reisa trönumar á ný en um leið skipaði annar gaur okkur að hætta því þeir ætl- uðu að planta tijám þama líka! Svo við færðum okkur aftur. Þannig hentumst við ffá einum stað til annars fram eftir deginum; ólíklegt er að nokkmm hafi heppnast að sýna eftir sig verk. Að lok- um þreif einn af sjálfboðaliðum lögregl- unnar til sín tvöfalda portrettið af okkur sem Marx og Lenín. Við sögðum að ef honum geðjaðist að myndinni mætti hann eiga hana. Hann svaraði með því að fleygja henni á jörðina og bjóst til að traðka á henni. „Stopp,“ hljóðuðum við, „þetta er engin venjuleg mynd - þetta er meistaraverk!“ Það fékk hann til að hika eitt andartak - hann vildi ekki vera bar- bari. Ot'sahræðsla hafði gripið um sig. Fólk æpti og orgaði: „Hjálp-hjálp, þeir em að murka úr okkur líftómna." Þeir sprautuðu á manntjöldann úr háþrýsti- dælum meðan jarðýtumar æddu fram og aftur um völlinn til að króa fólkið af - sennilega liður í þessu ræktunarátaki. Komari var hrint niður i forina. Hann lá grafkyrr og sýndi engan mótþróa eins og Gandhi. Skyndilega stóð samanrek- inn náungi fyrir frtunan mig (Melamid), „Uppruni sósíalrealismans" heitir þessi mynd Komars og Melamids og er úr fiokki mynda sem máski væri hægt að nefna Eftirsjá eftir sósíalrealism- anum. náungi með hatt. Hann var mjög nálægt mér en snerti mig samt ekki. Hann benti á mig og sagði: „Héma er listamaður - handtakið hann“. Ég tók á rás eins og óttaslegin mús með gleraugu. Þau voru hulin móðu svo ég sá ekkert hvert ég var að fara. Við vorum færðir til fimmtugráðu yfirheyrslu en sluppum með skrekkinn. Síðast er við fréttum var ekki enn búið að planta neinum trjám þama.“ „Alþjóðlega mikilvægir listamenn" 1977 settust kumpánamir að í ísrael sem pólitískir landflóttagyðingar, þar til þeir plöntuðu sér endanlega niður í New York 1978. Þeir voru gerðir að sérstök- um heiðursríkisborgurum 1988 fyrir að vera „alþjóðlega mikilvægir listamenn". Og hvað hafa þeir eiginlega verið að bauka undanfarin 18 ár? Til að svara því af einhveiju viti þyrfti allt að 386 blað- síðna bók. Þeir hafa gert innsetningar til að varpa ljósi á útópískan yfirgang sov- étstjórnarinnar og skáldað upp tvo myndlistarmenn með magnaða ævisögu og afspymulangan sýningarferil. Þeir hafa kennt hundi að teikna og framleitt íjölbreytt úrval af drasli-de-luxe til að úthúða neysluaukningarstefnunni. Þeir hafa dregið dár að merkilegheitum vís- indasamfélagsins og samið píanósónötu með því að umbreyta reglusetningum aftan á sovéska vegabréfmu í nótnaflúr. Þeir hafa búið til nýtt tungumál, amoist, lagt fram smíðauppdrætti tyrir töfrahluti og drýgt tugi gjöminga, stundað fom- leifauppgröft á Krít og sent Ajatolla Khomeini símskeyti þar sem þeir lýstu sig seka um að hafa valdið jarðskjálftan- um í íran 1979 í hegningarskyni fyrir gíslatökuna. Þá reka þeir tveggja manna útvarpsstöð á Manhattan (opin á laugar- dögum eftir aðstæðum). Með pensilinn að vopni Einkum hafa Komar og Melamid þó fengist við að mála en á því sviði em af- köst þeirra næstum erróísk. Árið 1980 byrjuðu þeir aftur að hæðast að sósíalre- alismanum undir formerkjum Sotsstefn- unnar, sem þeir em upphafsmenn að. Þetta háðglósuform varð til í Moskvu upp úr 1967 og er fyrsta framúrstefnu- hreyfingin sem fram kom í Rússlandi eftir að konstrúktívisminn var formlega tekinn úr umferð á miðjum fjórða ára- tugnum. Sósíalrealisminn réð lögum og lofum í sovéskri myndlist frá og með valdatöku Stalíns, sem krafðist þess 1934 að hún væri „þjóðleg að formi til og sósíalísk að merkingu". Á auga- bragði koðnaði konstrúktívisminn, ein merkasta hsthreyfing aldarinnar, niður í akademískar konfektkassamyndir af ójjekktu afreksfólki byltingarinnar, ka- frjóðu af framfaraáhuga og harð- ákveðnu í fasi, eldhressum dráttarvéla- körlum og spúandi verksmiðjureykháf- um. Allt sem ekki túlkaði lygimagnaða hamingju öreigalýðsins með ástand mála var stranglega úr myndinni. Nú á tímum nota pólitískir harðstjórar sjónvarpið til að þvo ímynd sína og framkalla áreiðanlega karaktera. En áð- ur fyrr féll það í skaut hirðlistarinnar að breyta miskunnariausum einræðisherr- um í ástkæra landsfeður. Komar og Me- lamid ólust upp þegar háleitasta form myndlistarinnar, klassíkin, var notað til að réttlæta lágkúrulegasta form mann- legrar hegðunar. Stalín lét greipar sópa um fjársjóði Dresden í lok síðari heims- styrjaldar og skipaði kónum sínum að klæða sósíalrealismann í hátíðarbúning gömlu meistaranna. Sotsaramir beittu aðferð popplistar- innar, paródfu og óvæntum samlíking- um, í því skyni að grafa undan boð- skapnum, hinum opinbera ofurhetjustíl Ráðstjómarríkjanna. Aðall popplistar- innar er geta hennar til að spenna upp sjónrænar klisjur svo skín í innviðina á hugsunarlitlum kreddum samfélagsins. Að því leyti má líta á poppið sem skær- ari, jassaðri, sölukræfari paródíska út- gáfu þeirrar hefðar er lá til grundvallar akademísku listinni, sem og myndræn- um siðareglum sósíalrealismans. Stalín er ekki hér Ádeilumálverk Komars og Melamids féllu eins og flís við rass á þeim hug- myndum sem Ameríkanar höfðu gert sér um Sovétríkin; þau vom „meistara- lega“ vel gerð, rammpólitísk og hug- myndafræðilega alveg glettilega réttu megin við strikið. Málverk af ráðþrota Stalín að fremja misheppnaða sjálfs- morðstilraun á einnar stjörnu móteli féllu strax í kramið hjá Kananum. Og þau voru fleiri; Stahn krýpur á kné og tilbiður sjálfan sig í spegli; Stalín gægist út um rauð gluggatjöld á limósínu; Sta- lín við rauðdúkað borð tekur brosandi á móti mannkynssögubók úr hendi ör- lagagyðjunnar til endurskoðunar. Félag- amir slógu í gegn. Aragrúi allegórískra skopmynda af æðstu ráðamönnum kommúnismans (og Ronald Reagan) fylgdi á eftir. Það segir kannski sitt að stærstu viðskiptavinir þeirra í byijun voru kvikmyndastjöm- umar í Hollywood. Arnold Schwarze- negger og Sylvester Stallone em eitil- harðir aðdáendur. „Ég veit ekki hvers vegna en vöðvafjöll virðast veik fyrir svona myndum," er haft eftir Melamid. „Tveimur vikum eftir að við komum til Bandaríkjanna varð okkur neonljóst að við áttum að vera skemmtilegir.“ Jarðýtur fara aftur á kreik Byltingarsinnar hafa löngum talið fólki trú um að fjarlægja verði öll óæskileg vegsummerki fortíðarinnar til að hægt sé að ryðja framtíðinni beina og bjarta braut. Þannig rústuðu kommúnist- ar höllum og kirkjum í kjölfar rússnesku byltingarinnar og lögðu Guð í einelti. Og nú vilja demókratar sópa yfir blóði- drifna slóð þeirra. Hingað og ekki lengra, sögðu Komar og Melamid. Að þeirra mati leiðir skemmdarstarfsemi í skjóli nýrra trúarbragða aldrei til góðs. Þeim er í mun að minnismerkjum kommúnismans verði bjargað. Ekki vegna fagurfræðilegra verðleika þeirra eða hugmyndafræðinnar sem býr að baki, heldur vegna þess að aðeins með Komar og Melamid: Lenín og Stalín, eða verið náskyldir Gög og Gokke. því að gangast við fortíðinni og sam- sama hana líðandi stundu sé hægt að losna úr ánauð hennar. „Við sátum í vinnustofunni okkar á Manhattan og sáum ölduna ríða yfir á CNN-sjónvarpsstöðinni,“ minnast Komar og Melamid. „Tortímingin á minnisvörðum var með ólíkindum. Fyrst sáum við mannfjöldann rífa niður styttuna af Felix Dzerzhinsky, stofn- anda sovésku leynilögreglunnar. Það var í góðu lagi. Við gátum umborið það. Þetta var stórkostlegt, eins og að upplifa áhlaupið á Bastilluna eða sterkan jarð- skjálfta. En það var næsta skref sem snerti í okkur viðkvæman streng: æstur múgurinn skemmdi aðalstyttuna af Len- ín. Þetta er dæmigerð gömul Moskvu- aðferð, annað hvort að dýrka eða eyði- leggja. Bolsévíkar kollvarpa keisaran- um, Stalín þurrkar út bolsévíka, Krút- sjof hrindir Stalín af stalli, Brézhnev rífur niður Krjútsjof, og svo þetta. Eng- inn munur. Á öllum umbyltingartímum hefur fortíð þessa lands verið afmáð eft- ir geðþótta. Og það vanalega af sama fólkinu! í flestum tilfellum var það ekki ástríðufullur múgurinn sem sá um skemmdarverkin - það var yfirveguð hönd framkvæmdavaldsins að tilskipun Komar og Melamid efndu til samkeppni 1993 um hvað gera skyldi við þau ókjör af minnisvörðum frá kommúnistatímanum sem til eru í fyrrum Sov- étríkjunum. Meðal annars barst þessi ágæta hugmynd Arts Spiegelmans um hvað gera skyldi við minnisvarðann „Bændur og verkamenn" í Moskvu - halda honum óbreyttum en einfalda stallinn.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.