Alþýðublaðið - 12.01.1996, Page 7
FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1996
ALÞÝÐUBLAÐK)
7
m e I a m i d
Marx og fingels, póst-sovéskrar myndlistar, en gætu þó líka
blekbullaranna. Sömu náungarnir og
létu valta yftr sýninguna okkar stóðu
íyrir þessari jarðýtuvinnu."
Ljósaskilti á hof Leníns
Komar og Melamid vildu varðveita
söguna. Þeir veltu fyrir sér hvort hægt
væri að finna einhvetja aðra leið en þá
að ýmist tilbiðja eða mölva minnis-
varða. Ef til vill gæti sú stétt sem átti hér
sök að máli - myndlistarmenn - fundið
þeim annað og endingarbetra hlutverk.
Árið 1993 efndu þeir til hugmyndasam-
keppni um hvað gera ætti við þau
ógtynni opinberra minnisvarða í fyrrum
. Sovétríkjunum sem glömnar bíða þar eð
pólitísk skilaboð þeirra eiga ekki lengur
upp á pallborðið.
150 listamenn hvaðanæva að úr
heiminum sendu inn tillögur, flestar í
slcoplegri kantinum. Rússneski innflytj-
andinn Vladimir Nekrasov vildi að öll-
urn áróðursstytmnum af Lenín - stand-
andi Lemri, sitjandi Lemri, niðursokkinn
Lenín, þrumandi Lenín - yrði raðað í
beina línu er næði frá Stalíngrad, nú
Volgograd, út í Finnlandsflóa og þannig
„yrði kommúnisminn hrakinn aftur til
Vesturlanda þar sem hann á upptök
sín“. Susan Hoetzel þótti aftur á móti
vissara að fjarlægja styttuhausana og
setja sjónvarpsskjái í þeirra stað sem
súÚa mætti í samræmi við hina pólitísku
vindátt hverju sinni. Sjálfir skrifuðu
Komar og Melamid forseta Rússlands,
Boris Jeltsín, bréf þar sem þeir lögðu úl
að grathýsi Leníns fengi að standa, en
því yrði breytt. Glerskrín Leníns yrði
flutt um set og hlaupandi ljósaskilti fest
á bygginguna er geislaði nafni leiðtog-
ans milli þess sem lesa mætti nýjustu
fréttir, veðurhorfur næsta sólarhring,
ljóð og jafnvel klausur úr Biblíunni.
Hofið fengi þannig á sig vinalegri blæ
um leið og það vitnaði um „fáfengil-
eikra allra útópía".
Sjálfir hafa Komar og Melamid sagt:
,Málið er að þessi sýning var algjört eg-
óflipp. Jú, það verðúr að varðveita sög-
una fyrir næstu kynslóðir og allt það. En
þessir minnisvarðar eru okkur ekki bara
saga, þeir endurspegla líf okkar. Það eru
ekki endilega minnisvarðamir sem við
viljum varðveita, heldur hinn fallegi og
yndislegi heimur æskuáranna."
Lífið er mýri
Þótt Komar og Melamid hafi verið
orðnir kapítalíse-
raðir fram í pens-
ilhár, færðu
Bandaríkin þeim
heim sanninn um
að grasið er ekki
grænna hinu meg-
in. Grænkan kem-
ur að innan: „Áð-
ur en við komum
hingað trúðum við
á ffamfarir en vera
okkar í Bandaríkj-
unum eyðilagði þá tálsýn," segir Mel-
damid. „Við lærðum að hlutimir Kða í
hringi. Sumir sjá lífið fyrir sér sem á en
við lítum á það sem mýri, eitthvað sem
sekkur, rotnar og gýs svo aftur upp -
það er lífíð. Þessi vesúæna hugmynd að
allt sé í framför er
einfaldlega röng,
og það em vissu-
lega engar fram-
farir í listum.
Pollock er ekki
betri en Poussin."
Skoðanakönn-
un Hagvangs, sem
framkvæmd var í
febrúar 1995, er
hluti af alheimsút-
tekt Komars og
Melamids á því
hvað almenningur
vilji helst sjá í
málverki. Fljótt á litið gætu menn dregið
þá ályktun að hér sé einungis um lang-
dregna og rándýra skrýtlu að ræða, rétt
þokkalega fyndna miðað við allt til-
standið. Aðalgildi könnunarinnar felst
hins vegar ekki í niðurstöðunni heldur í
þeim spumingum sem hún lumar á og
lætur áhorfandanum/lesandanum eftir
að svara. Er eðlilegt í okkar svokallaða
lýðræðisþjóðfélagi að listmiðlun sé
stjómað af þröngum hópi manna? Ef
svo er ekki, með hvaða leiðum er hægt
að koma á fót jafhari dreifíngu á milli
valds og vals? Skiptir það listheiminn,
þennan lærða og lokaða sem „allt veit
betur“, nokkru hvort almenningi líkar
við framlag hans - jafnvel þegar hann
gerir sér far um að höfða til lýðsins?
(Eða nægir meðlimum hans ef til vill að
fá um sig „góða gagnrýni" í réttum
blöðum og hagstæðari tilboð á enn úgn-
ari stöðum?) Hefur lýðræði óhjákvæmi-
lega í för með sér „gæðarýmun"? Er
Greinin er að stofni til ritgerð Hannesar
Sigurðssonar listfræðings „Á söguslóð-
um Komars og Melamids". Hún hefur
verið nokkuð stytt og sumar millifyrir-
sagnireru Alþýðublaðsins.
Málverkið sem bandaríska þjóðin
vildi helst sjá, meðalstór stofu-
mynd af George Washington,
þremur sumarklæddum orlofsþeg-
um og tveimur dádýrum við logn-
stillt stöðuvatn.
Málverkið sem Bandaríkjamenn
vildu sist sjá, hrjúfir, skræpóttir þrí-
hyrningar í ruglingslegri skipan.
„framúrstefnulistin“ á villigötum? Er
hugsanlega viðeigandi að fara fram á
fullkominn aðskilnað ríkis og lista? Em
lögmál markaðarins, sem tekið hafa af
skarið á flestum sviðum þjóðh'fsins, há-
listinni ekki samboðin?
Listheimurinn kann að flissa með
sjálfum sér yfir þessum sniðugheitum
félaganna en hafi hann ekki haldbær
svör á reiðum höndum gæú það átt efúr
að koma honum óþyrmilega í koll. Hinn
raunverulegi brandari er þegar haftnn.
Sá hlær best sem...
■ Myncllist fyrir fólkið
Allir þekkja Erró
Komar og Melamid hafa látið gera könnun á myndlistarsmekk í ein-
um tólf löndum og upp úr þeim mála þeir svo eftirsóttasta og síst
eftirsóttasta málverk viðkomandi þjóðar. Hér fara á eftir nokkur for-
vitnileg brot úr Hagvangskönnun sem þeir létu gera fyrir sig í febrú-
ar 1995. Hún náði til eitt þúsund íslendinga á aldrinum 18 til 67 ára
og voru þátttakendur beðnir um að svara alls 49 spurningum. Eftir
könnuninnLhafa Komar og Melamid svo gert tvö málverk sem verða
afhjúpuð á Kjarvalsstöðum á morgun.
Þegar þú velur málverk, Ijós-
myndir eða aðrar tegundir lista-
verka fyrir heimili þitt, hvort
finnst þér að þú hallist meira að
nútímalegum eða hefðbundnum
stfl?
Nútímalegt 18%
Hefðbundið 58
Blandað 15
Gerir ekki upp á milli 6
Ekki viss 3
Margir eru hrifnir af málverkum
sem hafa ákveðið viðfangsefni,
til dæmis dýr. Hvort kysirðu
frekar að sjá málverk af villtum
dýrum (t.d. ísbjörn, refur, hrein-
dýr) eða húsdýrum (t.d. hestur,
kind, hundur)?
Villt dýr 57%
Húsdýr 19
Bæði 10
Hvorugt 10
Ekki viss 4
Geturðu sagt mér hver af eftir-
töldum útistöðum höfðar mest
til þín?
Málverk af skógi eða kjarrlendi 11%
Málverk af vatni, á eða hafi 21
Málverk af fjöllum,
hrauni eða óbyggðum 41
Málverk af túnum eða engjum 3
Málverk af borg 1
Málverk af húsum eða
öðrum mannvirkjum 5
Ekkert af ofantöldu 2
Skiptir ekkí máli 7
Veltur á ýmsu 8
Ekki viss 1
Hvaða árstíð vildirðu helst sjá í
slíku málverki?
Vetur 8%
Sumar 20
Vor 13
Haust 44
Skiptir ekki máli 9
Veltur á ýmsu 5
Ekki viss 1
Hvort fellur þér betur að geði,
málverk sem ýkja raunveruleik-
ann eða málverk sem eru algjör-
lega abstrakt og hafa ekkert
með raunveruleikann að gera?
Ýkja raunveruleikann 59%
Algjörlega abstrakt 20
Velturáýmsu 16
Ekki viss 5
Og hvort ertu meira fyrir í lista-
verkum, hvöss horn eða ávala
boga
Hvöss horn 19%
Ávalir bogar 51
Veltur á ýmsu 23
Ekki viss 7
Ef þú hugsar aðeins til þeirra
málverka sem hrífa þig og sýna
fólk, geturðu sagt mér hvort það
er yfirleitt að störfum, ■ makind-
um sínum eða uppstillt?
Að störfum 58%
í makindum sínum 13
Uppstillt 12
Ekki viss 17
Og ef þú dæmir út frá því sem
þú hefur séð, hvort kanntu betur
við að sjá fólk í málverkum nak-
ið, léttklætt eða alklætt?
Nakið 6%
Léttklætt 25
Alklætt 23
Veltur á ýmsu 43
Ekki viss 3
Hvað er hámarksupphæð sem þú
værir til í að greiða fyrir lista-
verk sem virkilega heillaði þig?
0-5 þúsund 4%
5-15þúsund 8
5-30 þúsund 13
30-60 þúsund 19
60-120 þúsund 15
120-240 þúsund 5
240-500 þúsund 6
500 þúsund 4
Ekki viss 26
Ertu með eða á móti stærra ríkis-
framlagi til myndlistar í landinu,
en það nam að meðaltali um
1040 krónum á hvern skatt-
greiöanda á síðasta ári (1994)?
Eða viltu kannski láta afnema
það með öllu?
Með 36%
Á móti 13
Afnema 13
Óbreytt 24
Ekki viss 14
Mig iangar núna til að lesa upp nöfnin á nokkrum þekktum lista-
mönnum, bæði lifandi og látnum. Geturðu sagt mér hvort list þess-
ara manna virkar mjög jákvætt á þig, jákvætt, hlutlaust eða nei-
kvætt á þig. Nöfn sumra þessara listamanna eru minna þekkt en
önnur, þannig ef þú hefur aldrei heyrt þeirra getið eða vantar meiri
upplýsingar um list viðkomandi til að hafa skoðun á henni þá skaltu
alveg vera ófeimin(n) við að segja það.
Mjög jákvætt Jákvætt Hlutlaust Neikvætt Þekkir ekki
Pablo Picasso 11% 43 18 14 ■ 14
Jóhannes Kjarval 25% 54 12 14 4
Salvador Dali 9% 24 19 15 32
Pórarinn B. Porláksson 3% 12 11 2 72
Svavar Guðnason 5% 17 14 7 57
Rembrandt 15% 35 13 3 34
Louisa Matthíasdóttir n% 21 11 5 52
Claude Monet 8% 13 9 2 68
Erró 23% 39 14 22 2
Jackson Pollock 1% 4 8 2 85
Georg Guðni 1% 4 9 1 85