Alþýðublaðið - 12.03.1996, Síða 6

Alþýðublaðið - 12.03.1996, Síða 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 1996 I e i k h ú s Þeim var ég verst... Verkefni: Hið Ijósa man; leiksýning unnin upp úr íslandsklukkunni - einkum miðbók hennar Höfundur: Halldór Laxness Leikmynd Stígur Steinþórsson Búningar: Messíana Tómas- dóttir Lýsing: David Walters Tónlist: Jón IMordal Handrit og leikstjórn: Bríet Héðinsdóttir Sýningarstaður: Borgarleik- ----Iiúsið - Stóra sviðið.- Þetta er hin mikla íslenska klass- ík, sagði leikhúsgestur við mig í öðru af hléum sýningarinnar. Jú gott og vel, auðvitað er Islands- klukkan löngu orðin sígild skáld- saga sem lifir sínu sjálfstæða lífi í hugum landsmanna, en ég hef meiri efasemdir um að hún teljist til klassískra leikhúsverka okkar. Og þessi nýja leikgerð Bríetar Héðins- dóttur breytir engu um þær efa- semdir mínar. Víst var leikgerð skáldsögunnar ein af opnunarsýn- ingum Þjóðleikhússins á sínum tíma og eflaust þótt vel við hæfi Musteris íslenskrar tungu. En síðan hefur margt vatnið fallið til sjávar og hið unga íslenska leikhús þrosk- ast að getu og kunnáttu. Það sýnir nokkurn kjark hjá Bríeti að ráðast í að gera nýja Ieik- gerð af fslandsklukkunni, þar sem saga Snæfríðar Björnsdóttur er í ÚTBOÐ RARIK óskar eftir tilboðum í: RARIK 96002 stækkun útivirkis aðveitustöðv- ar að Eyvindará við Egilsstaði. Útboðið nær til Byggingarhluta stöðvarinnar, þ.e. jarðvinnu og byggingar undirstöðu fyrir stálvirki. Útboðsgögn verða seld á aðalskrifstofu RARIK, Laugavegi 118 Reykjavík og Þverklettum 2, Eg- ilsstöðum frá og með mánudeginum 11. mars nk. Verð fyrir hvert eintak er 1.000 kr. Skila þarf tilboðum á skrifstofu RARIK á Egils- stöðum fyrir kl. 14.00 þriðjudaginn 26. mars nk. Tilboðin verða opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem óska að vera nærstaddir. Þóknun fyrir gerð tilboða er engin. Verkinu á að vera að fullu lokið föstudaginn 31. maí 1996. Vinsamlega hafið tilboðin í lokuðu umslagi, merktu: RARIK-96002 Eyvindaráaðveitustöð. brennidepli, svo gróin er hin upp- runalega leikgerð í hugum okkar. Hvar eru Jónarnir allir? Hvernig getur sagan spunnið sig áfram án þess að fylgja sögu Jóns Hreggviðs- sonar? Getur Hið ljósa man, Álfa- kroppurinn mjói, sem virðist aðeins hálf af þessum heimi og helst vera nefnd til sögunnar sem ein þessara dísa sem hefur þann starfa drýgstan að spinna mönnum örlög, orðið uppistaðan í þeim vef sem þarf til Leikhús I Arnór Benónýsson skrifar um leiklist að skapa heilsteypta, sjálfstæða leiksýningu? Slíkar spurningar leit- uðu óneitanlega á hugann áður en sýningin hófst. Bríét velur þá leið að hefja frá- sögnina þar sem Snæfríður er orðin matróna í Bræðratúngu og hefur átt erfiða og ástlitla ævi með Magnúsi um nokkurt skeið. En til að spinna fram söguna lætur hún aðra leik- konu fara með hlutverk hennar ungrar. Leið sem gengur upp og þannig tekst að mestu að komast hjá bláþráðum í verkinu. Þó gerir ö RARIK Laugavegi 118 • 105 Reykjavík Sfmi 560 5500 • Bréfasími 560 5600 Leikskólar Reykjavíkurborgar Leikskólastjórar Stöður leikskólastjóra við leikskólana Fellaborg við Völvufell, Foldakot við Logafold, Hagaborg við Fornhaga, Kvistaborg við Kvistaland og Stakka- borg við Sólstaðarhlíð eru lausartil umsóknar. Umsóknarfrestur er til 25. mars n.k. . Leikskólakennaramenntun er áskilin. Nánari upplýsingar gef Bergur Felixson, fram- kvæmdastjóri og Margrét Vallý Jóhannsdóttir, deild- arstjóri í síma 552- 7277 Dagvist barna Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 552-7277 sú ofuráhersla sem lögð er á að hafa Snæfríði og hennar sögu í for- grunni verksins stundum erfitt um vik að skilja viðbrögð hennar og at- hafnir. Aðrar persónur vakna trauðla til lífsins og átök milli ein- staklinga verða óljós og myndin sem fram kemur af Snæfríði sýnir fremur einþykkni og ósveigjanlegt stolt en persónu sem heyr stríð sitt við óblítt umhverfi og svikula sam- ferðamenn. Og efalítið á þetta að vera svona, en einhvern veginn saknar maður þess tilfinningalega samspils persónanna sem slær þann lífsneista sem hverju leiksviðsverki er nauðsyn og gerir þessa list augnabliksins ólíka öðrum list- greinum. Ást Bríetar Héðinsdóttur og virðing fyrir texta og verki Hall- dórs Laxness, leynir sér ekki í leik- gerð- og stjórn og víst er um það að textinn svíkur ekki. Og hafi maður ást á honum, er þessum þremur tfm- um vel varið, þótt persónulega hugnist mér hann betur beint af bókinni. Leikmynd Stígs Steinþórssonar er sterk. Það er Almannagjáin sjálf sem trónir á miðju sviði, svipþung og ógnandi, og leikurinn allur hverfist um þennan stuðalabergs- vegg. Sviðið stóra er vel notað og í stærð sinni skapar það trúverðuga umgjörð þessara einstaklinga sem í smæð sinni berjast við vindmyllur hégómleikans. Og lausnir Stígs í leikmyndinni auðvelda alla fram- vindu sýningarinnar svo sem vera ber ög sýna að hann hefur orðið feikigott vald á listgrein sinni. David Walters sýnir enn einu ur hann er og samspil ljósa 'ög íeik: myndar er einn sá þáttur sýningár- innar sem helst lifir í minningunni'. Búningar Messíönu eru stílhrein- ir og henni tekst með þeim að und- irstrika mismunandi þjóðfélags- stöðu og stétt persónanna á einfald- an og öfgalausan hátt; búningarnir eins og leikmynd og lýsing undir- strika og skerpa þann harmsögulega svip sem yfir uppsetningu Bríetar liggur. , Tónlist Jóhs Nör'dál er ékki'fýrir- ferðarmikil í sýningunni og ekki laust við að stundum fengi maður á tilfinninguna að meiri og sterkari tónlist hefði getað ljáð uppsetning- unni meiri tilfinningalega dýpt og þannig skerpt heildarmyndina. Það er ekki heiglum hent að taka þriggja tíma leiksýningu á herðarn- ar og leiða til lykta svo skammlaust sé. En þetta gerir Sigrún Eddá Björnsdóttir í hlutverki Snæfríðar og frammistaða hennar er glæáiíeg. Sigrún sýnir, að hún hefur skapað sér þá þyngd og tilfinningalegu dýpt, sem hverjum þeim leikara sem teljast vill til hinna stóru er nauðsyn. Henni fatast hvergi flugið en best kemst til skila harkan og stoltið þegar hún snýst gegn þeim sem hún elskar til þess eins að end- urreisa brogaðan orðstír ættar sinn- ar. Að frágegnum texta Laxness er frammistaða Sigrúnar það sem hélt athyglinni vakandi sýninguna á enda. Um frammistöðu annarra leikara er erfiðara að dæma, þar sem leik- stjórinn virðist fara þá leið að nota aðrar persónur verksins sem „batta“ (svo gripið sé til íþróttamálsins) fyrir tilfinningar og athafnir Snæ- fríðar. Þeirra hlutverk er fyrst og fremst að fara með texta skáldsins og einhvern veginn öðlast þeir ekk- ert persónulegt tilfinningalíf. Sýn- ingin er sóló Snæfríðar, sóló text- ans. Þetta er auðvitað ákveðin að- ferð og svo sem ekkert um það að segja. Og leikararnir hlýða leik- stjóra sínum, þeir flytja þennan texta af ást og vandvirkni. Óll um- gjörð sýningarinnar er líka unnin af vandvirkni, ást og virðingu. Leik- stjórinn er trúr aðferð sinni til hins ítrasta. Þeir sem hafa gaman að svona leikhúsi fá vandaða sýningu að horfa á. En sjálfum finnst mér þetta náttúrulaust og leiðinlegt leik- hús, en það er nú bara mitt vanda- mál. Niðurstaða: Umfangsmikil leik- sýning, sem unnin er af ást og virðingu við texta Halldórs Laxness, en eins og leikstjórinn segir í leikskrá: „...leiksýning- ar birtast og hverfa sem svipult hjóm; íslandsklukkan blífur.“ W Útboð f.h. Sjúkrahúss Reykjavíkur, er óskað eftir tilboð- um í viðhald tækja á röntgendeild. Útboðsgögn verða seld á kr. 1.000,- á skrifstofu vorri frá og með miðvikud. 13. mars n.k. Opnun tilboða: fimmtud. 11. apríl n.k. kl. 11:00. f.h. Sjúkrahúss Reykjavíkur, er óskað eftir tilboð- um í blóðtökukerfi. Útboðsgögn verða seld á kr. 1.000,- á skrifstofu vorri. Opnun tilboða: þriðjud. 9. apríl n.k. kl. 11:00. f.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings, er óskað eftir tilboðum í lóðarframkvæmdir við leikskól- ann Ásgarð ásamt frágangi á sameiginlegri lóð leik- skólans og íbúðarblokkar í eigu Félagsstofnunar stúd- enta, Heildarstærð lóðar er um 2.100 m2. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri gegn kr. 5.000,- skilatr. Opnun tilboða: Miðvikud. 27. mars n.k. kl. 14:00. F.h. Hitaveitu Reykjavíkur, Gatnamálastjóra, Símstöðvarinnar í Reykjavík og Rafmagnsveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í endurnýjun veitukerfa og gangstétta 1. áfanga 1996 - Sund. Göt- urnar sem endurnýjað er við eru: Holtavegur, Efsta- sund, Skipasund og Sæviðarsund. Helstu magntölur eru: Legnd hitaveitulagna í plastkápu alls um 5.250 m Skurðlengd 6.700 m Malbikun 1.800 m2 Steyptar gangstéttir 4.900 m2 Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frá og með þriðjud. 12. mars n.k. gegn kr. 15.000 skilatr. Opnun tilboða: þriðjud. 26. mars n.k. kl. 11:00 f.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings, er óskað eftir tilboðum í frágang viðbyggingar að utan og gerð lóðarvið Grandaskóla. Helstu magntölur: Plötuklæðning útveggja 455 m2 Múrkerfi á útveggi 580 m2 Frágangur þaka 1.120 m2 Gluggar, gler og hurðir 240 m2 LÓÐ 2.500 m2 Verkinu á að vera lokið 1. ágúst 1996. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri frá og með þriðjud. 12. mars n.k. gegn kr.15.00,- skilatr. Opnun tilboða: fimmtud. 28. mars n.k. kl. 14:00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Pósthólf 878 - 121 Reykjavík Sími 552 58 00 Bréfsími 562 26 16 Og efalítið á þetta að vera svona, en einhvern veginn saknar maður þess tilfinningalega sam- spils persónanna sem slær þann lífsneista sem hverju leiksviðsverki er nauðsyn og gerir þessa list augnabliksins ólíka öðrum listgreinum. Ást Bríetar Héðinsdóttur og virðing fyrir texta og verki Halldórs Laxness, leynir sér ekki í leik- gerð- og stjórn og víst er um það að textinn svíkur ekki. Og hafi maður ást á honum, er þessum þremur tímum vel varið, þó persónu- lega hugnist mér hann betur beint af bókinni. sinni hversu snjall lýsingarhönnucV

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.