Alþýðublaðið - 12.03.1996, Page 7

Alþýðublaðið - 12.03.1996, Page 7
 ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 1996 S ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7 k á ■ Reykjavíkurmótinu í skák lauk um helgina og útlendingar hirtu öll verðlaun enda virðast ís- lensku stórmeistararnir í öldudal. Alþýðublaðið var á staðnum og talaði við íslendingabanann Agdestein, Boris Gulko sem orðið hefur meistari bæði Sovétríkjanna og Bandaríkjanna og korn- ungan Svía, Emanuel Berg, sem Davíð Bronstein spáir bjartri framtíð Islendingarnir sendir til sál- fræðings og í líkamsrækt? Einsog endranær nennti Bronstein ekki að sitja yfir taflborðinu en var á þönum úti í sal að spjalla við vini og kunningja. Bosníumaðurinn Predrag Nikolic var eini keppandinn sem blandaði sér í baráttuna á „norska meistaramótinu” sem lauk um helgina. Hann deildi efsta sætinu með norsku stórmeistur- unum Simen Agdestein og Jonathan Tisdall. Allir unnu þeir sex skákir hver, gerðu tvö jafntefli og töpuðu einni skák. Agdestein tapaði fyrir Tisdall sern tapaði fyrir Nikolic sem tapaði fyrir Agdestein. Þrír keppendur sluppu taplausir gegnum mótið: Litháinn Rozentalis, Hollendingurinn van der Sterren og Hannes Hlífar Stefánsson. Frammistaða íslensku stórmeis- taranna olli miklum vonbrigðum meðal áhorfenda sem fjölmenntu öll kvöld í Faxafenið enda aðgangur ókeypis. „Gömlu mennimir”, Jóhann Hjartarson, Margeir Pétursson og Helgi Ólafsson, voru langt frá sínu besta, en Helgi Áss Grétarsson og Hannes Hlífar Stefánsson stóðu sig bærilega. Sá síðameíhdi byijaði með látum en jafntefli í fimm síðustu umferðunum komu í veg fyrir að hann næði á verðlaunapall. Meðal áhorfenda voru ýmsar skýringar á því almenna sleni sem virtist einkenna fslendingana. Einn áhrifamaður í skákhreyfingunni sagði umhugsunarefni hvort föst laun frá ríkinu hafi kæft allan baráttuvilja hjá stórmeisrnmnum okkar. Hann benti á, áð Norðmenn styrkja sína skákmenn eþki nm krónu;enda sé ólíku saman að jáfna: keppnisskapi þeirra og dauðyflislegri taflmennsku íslendin- ganna. Annar forsvarsmaður í íslensku skáklífi sagði í fúlustu alvöm að það væri tímabært að ráða sálfræðing til að reyna að koma stórmeistumnum okkar yfir þann þröskuld sem þeir virðast hafa staðnæmst við. Einn enn úr hópi áhorfenda taldi að lausnin fælist í þvf áð ?enda strákana í líkamsrækt og áuka þannig þol þeirra og styrk. Hann sagði enga tilviljun að Simen Agdestein sýndi engin þreytumerki, þrautþjálfaður íþróttamaðurinn. En hvað sem líður þessum bollaleggingum er ljóst að íslensku skákmennimir ná sér ekki almenni- lega á strik um þessar mundir, og íslendingar em í þann veginn að tapa þeirri yfirburðastöðu sem þeir höfðu gagnvart öðmm Norðurlandaþjóðum. „Gengur yf irleitt vel á móti íslendingum..." „Jú, auðvitað er ég ánægður með árangur minn á mótinu,” segir Simen Agdestein í samtali við Alþýðublaðið. Hann er nýstaðinn upp frá taflborðinu í síðusm umferð: gerði litlaust jafntefli við danska stórmeistarann Curt Hansen í aðeins fimmtán leikjum. Það þýðir að Agdestein kemur í mark með sjö vinninga en þegar viðtalið er tekið situr Predrag Nikolic enn að tafli og er að reyna að svíða Rozentalis í endatafli. Agdestein vissi vitaskuld að ynni Nikolic næði Bosníumaðurinn einn efsta sæti og dollumnum sjöþú- sund sem eru í verðlaun. Agdestein, sem er hávaxinn og geðþekkur ungur maður, játar að sér hafi verið óljúft að slíðra sverðin gegn Hansen eftir svo stutta viðureign. Hann veit hinsvegar að Rozentalis er ekki auðsigraður, og segir að staða sín með svörtu gegn Hansen hafi ekki boðið uppá mikil sóknarfæri. En hvað kom Agdestein mest á óvart í mótinu? „Mér kom á óvart að Hansen skyldi ekki ná betri árangri í heild og eins hafa íslensku stórmeistaramir oft sýnt meiri tilþrif. Svo er auðvitað ánægjulegt hversu okkur Norðmönn- um gekk í heild vel,” segir hann. Og jú, líklega er það rétt, segir hann, aðspurður hvort Norðmenn skarti nú ekki sterkustu skáksveit Norðurlanda. Agdestein hefur yfirleitt leikið íslenska skákmeim grátt, og er í þeiira i : Einn úr hópi áhorfenda taldi að lausnin fælist í því að senda strákana í líkamsrækt og auka þannig þol þeirra og styrk. Hann sagði enga tilviljun að Simen Agdestein sýndi engin þreytu- merki, þrautþjálfaður íþróttamað- urinn. hópi kallaður „íslendingabaninn”. Hvað fínnst honum um þá nafngift? Agdestein brosir: „Jú, mér gengur yfirleitt vel á móti íslenskum skák- mönnum. Síðast þegar ég kom hingað tapaði ég hinsvegar fyrir tveimur íslendingum,” segir hann einsog til að réttlæta framkomu sfna gagnvart gest- gjöfunum. Að þessu sinni sigraði Agdestein þá Arinbjöm Gunnarsson, Þröst Þórhallsson og Jóhann Hjartarson; aðeins Hannes Hlífar náði jafhtefli gegn honum. Agdestein, sem er um þrítugt, er fyrrum norskur landsliðsmaður í knattspymu og var auk þess afreks- maður í þríþraut. Hann varð að hætta keppnisíþróttum fyrir þremur árum vegna hnémeiðsla, en er ekki atvinnu- maður í skák. Hann hefur nýlokið háskólaprófi og stundar nú kennslu aukþess að skrifa um skák fyrir áhrifa- mesta blað Noregs, Verdens Gang. Agdestein finnst tíðindin um heimsmeistaraeinvígi Karpovs og Kamskys í Bagdad vægast sagt fárán- leg. „Eg treysti ekki þessum forseta FIDE (Alþjóðaskáksambandsins) og mér finnst grunsamlegt hvemig hann fór að því að verða svona vellauðugur. „Mér finnst mjög áhugavert að halda heimsmeistaraeinvígi í íslömsku landi, enda getur það eflt skákina mjög. Hinsvegar held ég ekki að Bagdad sé rétti staðurinn.” Þurftum að berjast fyrir lífi okkar Frammi á gangi hittir tíðindamaður Alþýðublaðsins Boris Gulko. Ferill hans er í hæsta máta athyglisverður. Hann var á sínum tíma einn sterkasti skákmaður Sovétríkjanna, og hampaði meistaratitli árið 1977. Skönnnu síðar sótti hann hinsvegar um leyfi til að flytja úr landi ásamt konu sinni, Önnu Gulko, sem unnið hafði meistaramót kvenna í Sovétríkjunum. Þetta var á miðjum valdatíma Brésnjevs: ógnarhrammur kúgunarinnar hvíldi yfir öllu mannlífi risaveldisins og ein- staklingurinn var einskis metinn. Sovésk yfirvöld létu sér ekki nægja að neita Gulko-hjónunum um að flyt- jast úr landi: Þau voru útilokuð frá skák og öllu opinberu lífi. „Þetta var sjö ára barátta,” segir Gulko. „í sjö löng ár þurftum við nánast að beijast fyrir lífi okkar. Það var mjög, mjög erfið barátta.” Vinir þeirra í útlöndum sáu til þess að þau sultu ekki heilu hungri. Meðal annars var skákmót haldið í Sviss þeim til styrktar. Gulko segir að aðalástæða þess, að þeim hafi ekki verið hleypt úr landi hafi verið sú að skák var gífurlega vinsæl í Sovétríkjunum. „Yfirvöld vildu ekki láta það spyijast að einn sterkasti skákmaður landsins flytti í burtu.” En hvað með félaga hans í sovésku skáklífi, veittu þeir Gulko-hjónunum stuðning á einhvem hátt? „Aðstæður í Sovétríkjunum voru þannig, kerfið var slíkt, að það var óhugsandi,” segir Gulko. Hann er nú á miðjum aldri, einstaklega viðfelldinn og vottar aldrei fyrir beiskju þegar hann rifjar upp árin vonlausu. Árið 1986 gátu Boris og Anna Gulko loksins flutt frá Sovétríkjunum. Þau voru fyrst eitt ár í Israel en fóm þaðan til Bandaríkjanna og hafa búið þar síðan. Þar hafa þau bæði unnið meistaratitil, og em þannig ein um það í skáksögunni að hafa hampað meistaratitli í Sovétríkjunum og Bandaríkjunum. Þegar þau hjónin stóðu ein og börðust við kerfi sem virtist ósigrandi, átti hann þá von á því að einn góðan veðurdag myndi það hrynja einsog spilaborg? „Nei, ég gat aldrei ímynd- að mér að kerfið myndi hrynja svona gjörsamlega, að hrunið yrði svona algert. En ástandið í Rússlandi núna er hryllilegt: stríðið í Tjetsníu, örbirgðin, upplausnin...” Boris Gulko ætlar sannarlega ekki að flytja aftur til Rússlands. Fischer og skattamálin Nú er hann í fremstu röð skák- manna en árangur hans á Reykjavíkurmótinu olli vonbrigðum. Eftir þrjár umferðir hafði hann tvo og hálfan vinning, þá komu fjögur jafn- tefli í röð og loks tap í áttundu umferð fyrir Jóhanni Hjartarsyni. Þótt Gulko ynni ömgglega í síðustu umferð dugði það ekki til. „Ég hef nokkmm sinnum komið til íslands, einhverra hluta vegna gengur mér ekkert sérlega vel héma,” segir hann og brosir. En ætlar hann þá að sneiða hjá íslandi í framtíðinni. „Aldeilis ekki! Hér er frábær aðstaða, mótin em vel skipu- lögð og hingað er gott að koma. Vonandi gengur bara betur næst.” Gulko segir að það sé „brandari” að halda einvígi Karpovs og Kamskys í írak. „Kamsky er bandarískur ríkis- borgari og honum verður aldrei leyft að tefla í írak,” segir hann, en samsinnir því að vísu að himinhátt verðlaunaféð hljóti að freista hins fégráðuga Kamskys. Annar bandarískur stórmeistari braut alþjóðlegt viðskiptabann fyrir fjómm árum þegar hann settist að tafli í „Júgóslavíu”. Robert James Fischer tefldi þá í fyrsta sinn opinberlega síðan í Reykjavík 1972. Andstæðingurinn var hinn sami, Boris Spasskí, og aftur sigraði Fischer. En síðan hefur Fischer verið ókleift að snúa aftur til Bandaríkjanna. Hann býr nú í Búdapest og var ekki á leiðinni vestur um haf þegar síðast fréttist. Gulko telur ekki að það sé vegna þess að Fischer óttast ákæru vegna taflmennsku í bönnuðu landi. „Ég held að það sé vegna skattamála, án þess að ég viti það fyrir víst. Nú er búið að aflétta samskiptabanni á Serbíu, svo Fischer ætti að geta komið aftur. En ég er ekki viss um að hann geri það.” Góður árangur ungs Svía en Schubert án sigurs Við höfum áður sagt frá Austurríkismanninum Hans-Joach Schubert, sextugum heiðursmanni með 2120 Elo-stig, sem gaf sjálfum sér ferð á Reýkjavíkurskákmótið í afmælisgjöf. Schubert hefur oft leikið betur, hann tapaði tjójum skákum og gerði fimm jafntefli. í sfðustu umferð mistókst honum að vinna Stefán Briem í endatafli, þótt hann væri peði yfir. Enginn veit hvort Schubert er ánægður með árangurinn: hann talaði við fáa, var jafnan ofurlítið rauna- mæddur á svip í ullarpeysu og þykkum jakkafötum. Annar keppandi kom mjög á óvart framan af: Svíinn Emanuel Berg sem aðeins er 14 ára. I fyrstu umferðunum gekk honum allt í haginn: sigraði danska alþjóðameistarann Borge, Guðmund óíslason og Einar Hjalta Jensson. í fimmtu umferð hélt hann jafntefli í erfiðu endatafli gegn stórmeistaranum van der Sterren. I fjórum síðustu umferðunum fékk Berg litli aðeins hálfan vinning en það dugði samt til þess að vinningshlutfallið í heild er fimmtíu prósent, og hann hækkar verulega að stigum. Emanuel Berg kveðst ekki mjög ánægður með árangur sinn, þegar Alþýðublaðið hefur tal af honum. „Það gekk ekki nógu vel í síðustu umferðunum. Nei, ég veit ekki hvað gerðist,” segir hann. Berg kom hingað með föður sínum og fékk frí í skólanum til að keppa. Hann kveðst ekki eyða miklum tíma í æfingar og er hreint ekki viss um hvort hann langar að verða atvinnumaður í skák. Þegar ég segi honum að sjálfur Bronstein hafi hrósað honum í hástert og spáð honum bjartri framtíð, lætur Emanuel Berg' sér nægja að brosa dauft. Hann er greinilega laus við alla drýldni. Conquest sigrar Bronstein Bronstein, já. Auðvitað er ekki hægt að segja skilið við Reykjavíkurmótið án þess að skýra ffá árangri hans. Hinn 72 ára gamli meist- ari sigldi í höfn með fimm og hálfan vinning, og telst harla gott. Hann vann fjórar skákir, gerði þrjú jafntefli en tapaði tvisvar. Seinni tapskák Bronsteins kom 1 áttundu og næst- síðustu umferð, gegn enska stórmeis- taranum og fslandsvininum Stuart Conquest. Einsog endranær nennti Bronstein ekki að sitja yfir taflborðinu en var á þönum úti í sal að spjalla við vini og kunningja. Haim hafði hvítt og hóf stórfellda árás strax í byrjun: skóflaði peðum sínum fram á vígvöllinn en vanrækti algerlega að koma öðrum mönnum í ákjósanleg færi. Sóknin rann útí sandinn og skyndilega stóð Conquest með pálm- ann í höndunum. Bronstein gaf sér tíma til að gefast upp í 19. leik, en tók það ekki vitund nærri sér heldur hélt áfram fyrirlestrahaldi yfir gestum og gangandi. í síðustu umferð vann Bronstein svo fyrirhafnarlítinn sigur og var í heild sáttur við frammistöðu sína. Lítum á ljörlega skák Bronsteins og Conquests. Hvítt: Davíð Bronstein Svart: Stuart Conquest 1. e4 d6 2. d4 Rf6 3. Rc3 g6 4. f4 Bg7 5. Rf3 0-0 6. e5 Rfd7 7. h4 c5 8. h5 Peðin eru í aðalhlutverki og engu líkara en gamli meistarinn œtli að knýja fram sigur í örfáum leikjum. Conquest er hinsvegar enginn aukvisi og kippir sér ekki upp við peðaspriklið 8. ... cxd4 9. hxg6?! dxc3 10. gxf7+ Hxf7 11. Rg5 cxb2 12. Bxb2 Da5+! 13. c3 Rxe5! 14. Db3 Dc5 15. Be2 De3 Svarta drottningin er komin inní herbúðir hvíts. Kóngur Bronsteins er á berangri og getur enga björg sér veitt 16. Bcl Dg3 17. Kdl Bg4 18. Hel Dd3+ 19. Bd2 Rc4 Bronstein gafst upp enda mát eða stórfellt liðstap yfirvofandi. Lokastaðan talar sínu máli. Tap í níu leikjum Skákirnar á Reykjavíkurmótinu skiptu hundruðum, og voru náttúrlega æði misjafnar að gæðum. Lengsta skákin var hvorki meira né minna en 128 leikir: Jafntefli Kristjáns Eðvarðssonar (2190 Elo-stig) og Stefáns Þ. Sigurjónssonar (2125) í fjórðu umferð. Margeir Pétursson og Helgi Áss Grétarsson sátu næstlengst að tafli, þegar þeir í annarri umferð gerðu jafntefli f 99 leikjum. Stysta skákin var tefld af tveimur kornungum íslendingum, Birni Þorfmnssyni og Sigurði Sigfússyni; þeir gerðu jafntefli í aðeins átta leikjum, og er ekki til marks um mikinn baráttuanda. Bjöm gerði annað örstutt jafntefli, þegar hann samdi um skiptan hlut við Braga bróður sinn eftir ellefu leiki. íslendingur var síðan í hlutverki fórnarlambsins í stystu vinn- ingsskákinni. Sænski stórmeistarinn Jonny Hector vann drottningu af Jóni G. Viðarssyni í aðeins 9 leikjum í fimmtu umferð. Vitanlega gefur skákin ekki rétta mynd af getu Jóns; hann hefur 2340 Elo-stig og gerði meðal annars jafntefli við hollenska stórmeistarann van der Sterren auk þess að vinna ágæta sigra á veikari skákmönnum. Jón beitti Sikileyjarvöm og ætlaði víst að nota afbrigði «em Friðrik Ólafsson var einna mestur sérfræðingur í. Röng leikjaröð olli því hinsvegar að skákin snerist uppí hrollvekju. Lítum á auíWeldasta sigur Reykjavíkur- mótsins. Hvítt: Jonny Hector Svart: Jón G. Viðarsson 1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 a6 5. Rc3 g6 6. Be3 Bg7 7. Rb3 Re7 8. Ra4!? Rbc6?? 9. Bb6 Drottningin er króuð af og svartur gafst upp. Lokastaðan er ekkifögur.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.